Morgunblaðið - 29.06.1984, Qupperneq 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ1984
,, þú kennur ktukkutima of seint! þú skalt
ekki' ásaka mi'9 þótt ostesamíokan þin sé
oríin köid.1'
Ast er ...
... að syngja henni
sætan söng.
TM R«o. U.S. Pat. Otf.-aH rights res«fvod
«1984 Los Angeles Times Syndicate
Jaeja vinur. — í*á eru þad mjólk-
urpeningarnir?
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessir hringdu ..
Rómverskar
tölur
Jón Gissurarson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja við
krossgátusmið Morgunblaðs-
ins:
Ég vil gjarnan leiðrétta
misskilning sem gætir hjá
höfundi krossgátu Mbl. Stórt
ID er ekki rómversk tala eins
og stóð í skýringum hans
fyrir helgi. Rómverskur einn
(I) dregst einungis frá fimm
(V) og tíu (X). Þú munt hafa
haft í huga fjögurhundruð-
níutíuogníu, en sú tala væri
rituð CDXCIX.
Rómverskar tölur henta vel
í krossgátur þínar, en þú
þarft bersýnilega að lesa þér
til um ritun þeirra. Ég bendi
þér á Reikningsbók eftir Jón
Gissurarson og Steinþór Guð-
mundsson sem er gefin út
1966. í henni er örstuttur
kafli um ritun rómverskra
talna.
Með bestu kveðjum.
Kynhverfa
orsakast af
illum anda
Wiily Hansen hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
Mig langaði að koma örlitlu
á framfæri vegna skrifa „eins
í felum" í Velvakanda síðast-
liðinn þriðjudag. Það er ef til
vill engin ein skýring á því
hvers vegna þeir eru haldnir
þessari hneigð en ég tel mig
vita hvernig þeir geta losnað
við hana. Og svarið er að trúa
á frelsara vorn, Jesúm Krist,
og láta reka þetta úr líkaman-
um. Ég hefi séð fólk á Nýja
Sjálandi frelsast undan illum
anda sem orsakaði vitlausa
kynhneigð og það er enginn
vafi að um slíka anda er að
ræða í þessum tilfellum.
Ef þessi maður, sem skrif-
aði í Velvakanda á þriðjudag-
inn, trúir því að Biblían sé orð
Guðs þá er hann vissulega á
réttri leið og ef hann tekur á
móti Jesú sem frelsara sínum
og iðrast þá opnast dyrnar
fyrir þennan illa anda til að
yfirgefa hann. Ef einhver er
reiðubúinn til að snúa við á
>eirri braut sem hann nú er á
>á er ég reiðubúinn til að tala
við hann um þessi mál og
hjálpa eftir megni.
/
Biblían veitir
svar við öllu
Ragnar Konráðsson skrifar og
vill svara „einum í felum“ sem rit-
aði pistil í Velvakanda síðastlið-
inn þriðjudag.
Svar mitt er til þín kæri vinur,
sem skrifaðir í Velvakanda 26.
júní síðastliðinn, um baráttu þína,
að vera hommi sem kallað er.
Björgun til að læknast er Jesús
Kristur. Til þess kom hann, að
frelsa synduga menn eins og orð
Guðs segir. Það orð er satt og í
alla staði þess vert að við því sé
tekið, því Kristur kom í heiminn
til að frelsa synduga menn.
Þú segist hafa leitað til Biblí-
unnar og að þú trúir að hún sé orð
guðs. Guð bendir okkur á hvað er
syndsamlegt líferni. Þér finnst að
Biblían hafi andstyggð á svona líf-
erni. Það er rétt. Guð hefur and-
styggð á syndinni en bendir um
leið á björgun. Hann vísar þér til
sonar síns Jésú Krists.
Ég var drykkjumaður í mörg ár
og átti í erfiðleikum og baráttu.
Síðan eru liðin rúm tuttugu ár, að
þeim þrautum var létt af mér.
J'-sú var björgun mín. Hann er
in friður og frelsari. Hvað segir
Biblían um drykkjuskap? Hún
segir að við skulum ekki drekka
okkur full, því slíkt leiði aðeins til
spillingar. Það er satt en samt eru
margir sem ekki vilja viðurkenna
vandann og vita ekki fyrr en þeir
eru orðnir þrælar hans. Taktu guð
á orðinu, því Jesú sagði: Komið til
mín, allir sem erfiðið og þunga eru
hlaðnir og ég mun veita yður
hvíld. Hallgrímur Pétursson yrkir
líka á einum stað í sálmi, að guðs
orð sýna hvað sé okkur leyft og
bannað.
Ég komst við í hjarta mínu þeg-
ar ég heyrði ákall þitt, kæri vinur.
Von mín er sú að guð hafi leitt
mig til að svara ákalli þínu og ég
bið hann allrar hjálpar og mis-
kunnar fyrir þig og þá sem við
sama vanda eiga að stríða.
Mig langar til að benda þér á
pistil eftir Billy Graham sem birt-
ist í Mbl. 21. júní síðastliðinn. Svo
kveð ég með þessum orðum: Því
svo elskaði guð heiminn að hann
gaf son sinn eingetinn til þess að
hver sem á hann trúir, glatist ekki
heldur hafi eilíft líf.
Lengið útsendingar-
tíma „Frístundar“
Ágæti Velvakandi.
Eftir að hafa hlustað á þáttinn
„Frístund" á rás 2 fyrir skömmu
get ég ekki lengur orða bundist
og vildi gjarnan koma á fram-
færi ánægju minni með þáttinn.
Frístund er ekki bara skemmti-
legur þáttur, hann er meirihátt-
ar. Oft hef ég hlustað á ungl-
ingaþætti í útvarpinu en enginn
þeirra kemst i hálfkvisti við
„Frístund".
Eðvarð Ingólfsson, stjórnandi
þáttarins, er með færustu út-
varpsmönnum sem við eigum,
það hafa þættir hans sýnt og
sannað.
Ábyggilega er mikill vandi að
stýra fjölbreyttum þætti eins og
Frístund er í beinni útsendingu.
Þá er þátttaka unglinganna í
þættinum mjög skemmtileg og
þeir standa sig vel. Þá er fram-
haldsleikritið sem verið hefur í
þættinum mjög skemmtilegt og
þyrfti slíkt leikrit að vera í
hverjum þætti.
Að lokum til yfirmanna rásar
2: Fyrir alla muni lengið útsend-
ingartíma „Frístundar", annað
Eðvarð Ingólfsson
hvort með því að hafa þáttinn
tvisvar í viku eða tvo tíma í
senn, þátturinn á það skilið því
hann stendur svo sannarlega
fyrir sínu og ég veit að margir
eru á sömu skoðun og ég. "