Morgunblaðið - 04.07.1984, Side 18

Morgunblaðið - 04.07.1984, Side 18
50 Steinasöfnun: MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1984 Tómstundagaman fyrir hvern sem er Kubblaga kristallar kabasíts sjást oft I zeólítaholufyllingum hér á landi. Algengur zeolít á íslandi: Skólesít myndar nálarknippi. Steingert tré er fyllt kvartsi (ópal eða kalsedón), þannig að vefjabyggingin er varðveitL — eftir Ara Trausta Guðmundsson Öll höfum við einhvern tíma lotið og tínt stcin sem okkur hefur þótt sérkennilegur. Lögunin, liturinn, áferðin eða eitthvað annað hefur vakið forvitni. Það er langur vegur frá svona skoðun yfir í steinasöfnun. Steinasafnarar í landinu skipta áreiðanlega hundruðum og eru þeir langflestir leikmenn. Það er einkum tvennt sem fær fólk til að taka skref- ið til reglulegrar steinasöfnunar: Fegurð steinanna og allur sá fróð- leikur sem þeir gefa manni tilefni til að afla sér. Ef til vill má líka nefna dálitla spennu sem margir finna við leit að steinum í safnið sitt. Steinasöfnun er ekki tómstunda- gaman handa útvöldum, heldur skemmtilegt viðfangsefni fyrir hvern sem er. Grjót og ekki grjót 1 jarðfræðinni hefur orðið grjót a.m.k. tvenna merkingu. Það þarf nefnilega að gera greinarmun á bergtegundum og steintegundum (steindum). Bergtegundir eru úr steintegundum. Að auki eru til margar steintegundir sem ekki mynda bergtegundir. Munurinn á steintegund og bergtegund er þessi: Steintegund er eitt frumefni (t.d. brennisteinn) eða frumefnasam- band (t.d. kísill og súrefni). Þær eru oftast sem kristallar í náttúr- unni og við segjum að sumar séu frumsteindir og aðrar útfell- ingasteindir. Munurinn er sá að frumsteindirnar mynda bergteg- undir en hinar falla út í holrými í jarðlögum. Og reyndar geta nokkrar steindir bæði verið frum- steindir eða útfellingar. Flestar eru þó annað hvort. Bergtegund er, eins og ljóst ætti að vera, safn af frumsteindum. Með öðrum orðum: Nokkrar steintegundir (efnasambönd) mynda eina ákveðna bergtegund, t.d. basalt. Ein steintegundin í basalti heitir t.d. pýroxen og er ekki til sem útfellingasteind. Steintegundirnar í bergtegundinni eru venjulega litlir kristallar, sem stundum er erfitt að greina með berum augum. Hugsum okkur nú að þú takir þér stein í hönd af vegarkanti. Ef þér finnst hann samsettur úr litl- um kornum, getur þú verið nærri viss um að þarna haldir þú á ein- hverri bergtegund. Dökkir molar eru t.d. einhver basaltgerð, brún- leitir móberg (sem er líka basalt) og ljós moli er líparít (rýólít). Það er ekki um auðugan garð að gresja í bergtegundasafi Islands og lang oftast eru steinarnir lítt fallnir til söfnunar. Þeir eru móskulegir á lit og jafnan þarf nokkra sérþekkingu til að greina þá nánar eða nýta fróðleik sem í þeim býr. Það er helst sérkennileg lögun, skófir eða stöku litbrigði (t.d. í líparíti) sem fá menn til að hirða bergtegundarmola — nema þá að stórir kristallar séu í hon- um. Steinasafnarar leggja megin- áhersiu á hinar aðgreindu stein- tegundir og verður það einnig gert hér. Dálítið um steintegundir Eins og að framan segir eru steintegundir í bergtegundum svo smásæjar að þær verða sjaldnast safngripir. Það eru því útfell- ingasteindirnar sem menn sækj- ast eftir. Þjált heiti á þeim er t.d. holufyllingar. Lítið er um holu- fyllingar úr málmsteindum á ís- landi. Algengasta málmsteindin er pýrít eða brennisteinskís, sem kallað er glópagull af því að það finnst sem gullgljándi kristallar og er allsendis verðlaust. Islensku holufyllingarnar eru langflestar kísilsteindir. Uppruni holufyllinga í bergi er sem hér segir: Úrkoma sígur djúpt í jarðlög og hitnar þá vatnið. Það nær að leysa upp efni í jarðlögunum, en léttist jafnframt og leitar fyrr eða síðar fram í dagsljósið. Á leiðinni þang- að kólnar vatnið og er mettað upp- leystum efnum. Efnin falla út í glufum, sprungum, blöðrum og stærri holrýmum í jarðlögunum, rétt eins og úr heitu vatni í ofnum í jarðhitakyntum húsum. Þegar rof og veðrun skafa jarðlag af jarðlagi, kemur fyrr eða síðar að því að holufyllingarnar koma í ljós. Þar eru viðfangsefni steina- safnara komin. Sem dæmi um uppleystu efnin í vatninu má nefna kísil, kalsíum, járn, magnesíum o.fl. Þau ganga í samband við önnur efni í vatninu og mynda þar með steindir. Hvað má þá nota til að greina steindirnar í tegundir? Þar má taka til lit, lögun kristalla, áferð (t.d. gljáa) og síðast en ekki síst hörkuna. Auðvitað eru steindirnar misharðar. Harkan er metin eftir kvarða sem kallast Mohrs-kvarði og eru tölurnar 1 — 10 hafðar sem mið. Steinn með hörkuna 4 er mun „ónýtari" en steinn með hörku 7 (skráð H-7). Handhæg efni, s.s. gler, stál (hnífur) og kalk (nögl) eru notuð til að ákvarða hörkuna. Rispi steinn gler, er hann harðari en H-6, svo dæmi sé tekið. Grein- ingarkerfið er alls ekki flókið og handbækur hjálpa enn frekar við greininguna. Ekki má gleyma steingerfingun- um. Sumir steinasafnarar hafa áhuga á steingerfingum, þ.e. leif- um eða „afsteypum" af lífverum. Hér á Islandi er til allmikið af skeljasteingerfingum, blaðförum, trjábútum og fleiru sem segir til um veðurfar og ýmsar aðrar að- stæður í fyrndinni (allt að 10—15 milljón ár aftur í tímann). Stein- gerfingar eru efni í aðra grein og verður ekki fjallað um þá frekar. Helstu holufyllingar á Islandi Holufyllingar í íslenskum steinasöfnum eru langflestar úr þremur tegundaflokkum: Kvars- steinar, kalsítsteinar og geisla- steinar. Kvarssteinar eru úr kísiloxíði, þ.e. sambandi kísils og súrefnis. Oft eru ýmis snefilefni í þeim sem lita steinana. Kvars er hart (jafn- an um 7) og mjög veðrunarþolið. Kalsítsteinar eru úr kalsíum karbónati, þ.e. sambandi kalsí- ums, kolefnis og súrefnis. Kalsít er lint (H-2 til 3) og stenst veðrun illa. Annað heiti er kalkspat, en silfurberg er notað um ákveðið af- brigði kalsítsins. Geislasteinar eru úr kísilsam- böndum, en mjög blandaðir öðrum efnum, t.d. kalsíum og magnesí- um. Þeir eru miðlungsharðir (H- 4,5—5,5) og ákaflega algengir. Geislasteinar skiptast í mjög margar tegundir og hafa rúmlega 15 þeirra fundist hér á landi. Ann- að heiti er seolitar. Segjum svo að nú sé komið að því að greina einhverja holufyll- ingu, hvort sem er laglega krist- alla innan úr lítilli blöðru, sjóslíp- aða möndlu eða stærðar brot úr sprungufyllingu. Ef hnífur rispar ekki sýnið eða ef það getur rispað gler, er vafalítið um kvarsstein að ræða. Þá eru möguleikarnir þess- ir; og er nú að athuga lit og lögun kristalla (ef þeir eru): Glærir, sexstrendir kristallar með oddi: Bergkristall Hvítt, glært eða ljósleitt, myndlaust (ókristall- að): Kalsedón — annað heiti er draugasteinn, glerhallur. Hvít og glær lög skiptast á: Onýx. Lituð ' lög, jafnvel hringir: Agat. Litaðir, þéttir steinar (rauðir, grænir, brúnir...): Jaspís. Gulleitir, sexstrendir kristallar: Reykkvars. Fjólubláir, sexstrendir kristallar: Ametyst. Ef sýnið nær varla að rispa gler og er litað með mjög miklum gljáa, er það líklega ópall. Ópallinn er skyldur jaspls nema hvað mun meira vatnsinnihald gerir hann aðeins mýkri og meira gljáandi. Ópall er fremur sjaldgæfur á ís- landi miðað við jaspís (H-6). Ef hnífurinn rispar sýnið er það annað hvort seólíti eða kalsít. Ein- faldasta aðferðin til að skiija þar á milli er að dreypa örlitlu af þynntri sýru (t.d. saltsýru — og varlega nú!) á steininn. Ef sýran freyðir, er efnið kalsít, annars seólíti. Segjum svo að það sé kals- ít: Hálfglærar, hvítar kristalþyrp- ingar, stundum með plötulaga kristöllum: Venjulegt kalkspat. Nil- arlaga, stundum brúnleitir kristall- ar: Aragónít. Skakkir, glærir ten- ingar: Silfurberg. Silfurbergsmolar eru í raun að- eins brot úr stærri kristalsöfnum. Úr óásjálegum kristalhrúgöldum má fá fallega silfurbergsmola með því að nota hníf og hamar og kljúfa kristallana varlega eftir brotflötum sem sjást í þeim. Tvö- falt ljósbrot er í silfurbergsmolum og voru þeir fyrrum notaðir í rannsóknartæki. Setjum svo að sýran hafi ekki freytt á steininum og við þar með talið hann til geislasteina eða skyldra steintegunda. Þá getur orðið nokkuð vandasamt að greina tegundina nánar. í ýmsum steina- handbókum og tímaritum (t.d. Lapis nr. 1, 3. árg. 1978, þýskt) voru góðar myndir sem aðstoða. Lögun kristallanna er helsta hald- reipið, því allir seólítar eru nánast hvítir eða glærir. Stór kristalsöfn geta við ævintýralega falleg: Geislóttir/þráðlaga kristallar: Skólesít, mesólít, thomsonít, mord- enít, lámontít. Plötulaga kristallar: Stilbít, heulandít. Teningslaga kristallar: Kabasít og analsím (skylt seólítum). Hér hafa aðeins verið taldir upp algengustu geislasteinarnir og nokkrar skyldar steintegundir eru ekki nefndar. En greiningarlykl- arnir hér að ofan ættu að duga meðan fyrstu áföngum steinasöfn- unar er náð. Hvar skal leita? Sums staðar finnast engar holu- fyllingar á íslandi. Þar sem nýleg hraun hafa runnið og móbergsfjöll risið, er berggrunnurinn svo ung- ur og ferskur að holufyllingar hafa ekki enn safnast í efri jarð- lögin, en þau neðri eru djúpt graf- in í lítt rofnum berggrunninum. Þessi svæði köllum við eldvirka beltið einu nafni og jaðarsvæði þess. Holufyllinganna ber að leita í eldri jarðlögum landsins, á blágrýtissvæðunum (tertíeri berg- „Ég tel t.d. rangt aö menn sanki aö sér ókjörum af grjóti, tíni allt sem þeir finna og brúki hamar og meitil til aÖ brjóta holufyll- ingar úr bergi — og skemma þær nær und- antekningarlaust. Mikil græögi leiðir annað hvort til þess að menn sitja uppi með ómæld kflógrömm af ónýtu grjóti eða þurfa að vinna ótæpilega úr sýn- um.“ grunnurinn), og þar í nánd: Vest- urland, frá Kjalarnesi að telja, víða á Snæfellsnesi, allir Vestfirð- irnir, allt Norðurland, að undan- teknu gosbeltinu á NA-landi, og loks allir Austfirðirnir og SA-land að Breiðamerkurjökli. T þessum landshlutum er holufyllingunum auðvitað misdreift. Einna mest er um þær í nánd við gamlar megin- eldstöðvar þar sem jarðvatn hefur hitnað vel og „kvikuvessar" leitað út í berggrunninn. Eldstöðv- arústirnar má þekkja á því að ljóst berg er áberandi, mikið er um bergganga (tröllahlöð) og jarðlög hafa haggast. Holufyll- ingarnar eru gjarnan í jöðrum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.