Morgunblaðið - 04.07.1984, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.07.1984, Blaðsíða 25
ffclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLl 1984 57 Þessi fékk sUrf sem baöstrandarvörður, sem er mjög eftirsótt starf af ungum mönnum. Síðan hefur hann mátt norpa Danir að leggjast í rúmið vegna veðursins Dönsku baðstrendurnar eru hvítar og fallegar og hitastigið í sjónum hvorki meira né minna en 13 gráður. Næstum eins hlýtt og á ströndinni sjálfri þar sem lofthitinn hefur að jafnaði verið 14 gráður. + Strandirnar og útiveitingahúsin eru auð og tóm. A biðstofum er hins vegar fullt hús. Þar sitja sjúklingarn- ir og hneykslast á veðrinu með sult- ardropana í nefinu, hálsbólgu, kvef, barkabólgu eða eitthvað annað. Þeg- ar horft er eftir götunum mætti halda að „regnhlífasamtökin" hefðu tekið völdin. Þannig hefur veðrið verið ( sumar hjá frændum vorum Dönum, a.m.k. júnímánuður og þeir eru orðnir svo örvæntingarfullir, að þeir eru farnir að fjalla um það í forystugreinum blaðanna. „Fríið mitt fór gjörsamlega í vaskinn vegna veðursins. Ég ætla að vera veikur seinna í sumar ef veðrið batnar,“ sagði ríkisstarfs- maður nokkur og þótt orð hans lýsi kannski ekki miklu vinnusið- gæði þá óttast Danir, að mikið verði um fjarvistir seinna í sumar vegna raunverulegra veikinda. Segja læknar, að viðnámsþróttur þjóðarinnar gegn sjúkdómum sé stórlega skertur vegna kuldans og sólarleysisins sem líka megi sjá á aðsókninni að læknastofunum. Segja þeir, að nú vanti tilfinnan- lega D-vítamín í danska kroppa og að það sé aðeins lýsið, sem geti bjargað einhverju. Það er þó ekki aðeins í Dan- mörku, sem veðrið hefur verið leiðinlegt því að frá Narvík í norð- ri til Munchen í suðri og Varsjá í austri hefur verið sama veður, indælis íslenskt sumarveður en nokkuð sem fólki á þessum slóðum hryllir við. Hitinn þetta frá 12 til 16 stig. Lítm áhugi á Eric Clapton + Tími hinna stóru útihátíöa viröist vera aö líða undir lok, a.m.k. í Evrópu. I Kaupmanna- höfn var nú nýlega efnt til mik- illar og þrælauglýstra hljóm- leika meö mörgum frægum nöfnum, en þrátt fyrir þaö seld- ust aöeins 600 miðar fyrirfram og hallinn varö gífurlegur. Þaö sama er upp á teningnum í Vestur-Þýskalandi en þar hefur oröiö aö aflýsa hljómleikum meö tveimur frægum mönnum, Roger Waters úr Pink Floyd og Eric Clapton. Aðeins þrjú þús- und manns reyndust hafa áhuga á aö sjá þá felaga og varö þá aö aflýsa öllu saman. COSPER — Borðaðu nú súpuna á meðan hún er heit. Þú færð tæknilega og faglega aðstoð við lausn á vandamálum þínum hjá arkitekt- um og tæknifræðingum sem veita alla venjulega ráðgjöf sem tengist nýbyggingu húsa, endurnýjun eða breytingum á eldra húsnæði, og gerð efnislista. Byggingarráðgjafarnir aðstoða við lausn á minniháttar vandamálum án endur- gjalds. Byggingaráðgjafar eru þér til aðstoðar | þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 4—6 e.h. g í verzlun JL við Sólvallagötu. ■1 1BYGGINGAVORUR JL T- ' ~ HRINGRRAI IT 1 90 Mammgarvorur og verhf*r- 20-605 i innxvjunnu I I<1U. Fi.saroghre.ni»t«t»k. 28-430 Byggmgavorur 28-600 SolustjOf 28-693 Goffteppadeiid 28-603 Sknfstofa 28-620 ^ Timtmrðeiid 28-604 Harðviðarsaia_______________________2R-604 ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM Vikuskammtur af skellihlátri BROSTU! MYNDASÖGURNAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.