Morgunblaðið - 04.07.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ1984
55
Forðast prestar að tala
um líf eftir þetta jarðlíf?
eftir Magnús Vfði
Við lestur greinar frú Dagrúnar
Kristjánsdóttur i Morgunblaðinu
sl. laugardag brá mér illilega við,
því ég hélt fólk hætt að berja
höfðinu við steininn og útiloka
heilaga ritningu til að setja
„mannlega skynsemi" í staðinn.
Meginþráðurinn í grein frú Dag-
rúnar snýst um að Ritningin sé
röng, kenning trúarinnar sé röng
og að Skaparinn (Drottinn Guð)
gefi mannskepnunni aðeins eitt
tækifæri (lesist: jarðlif) stangist á
við allt réttlæti. Ennfremur setur
frú Dagrún fram þá fullyrðingu að
Heilög Ritning sé vísvitandi rangt
þýdd til að fela einhverskonar
sannanir fyrir (jarðnesku) lífi eft-
ir þetta lif. En, frú Dagrún, á tit-
ilsiðu minnar biblíu stendur „Bibl-
ia — það er heilög ritning — ný
þýðing úr frummálinu, 1949“ og
þýðandinn var prófessor Haraldur
Níelsson, og legg ég það i yðar
hendur að dæma hvort hann hafi
þýtt rangt til að fela eða sanna
eitt eða neitt eigin sannfæringu til
framdráttar. Og i þessa þýðingu
vitna ég hér eftir.
Eg játa kinnroðalaust að ég
nota Ritninguna sem handbók um
lífið og tilveruna, frekar en loft-
kastala mannlegrar skynsemi, og
ég treysti því að Frelsari minn,
Jesús Kristur, muni láta mig upp-
skera eins og ég hef sáð á dóms-
degi. Og Ritningin, og trúin þurfa
engrar mælskulistar við, þvi „orð
Guðs er lifandi og kröftugt og
beittara hverju tvieggjuðu sverði
og smýgur inn i innstu fylgsni sál-
ar og anda, liðamóta og mergjar,
og er vel fallið til að dæma hugs-
anir og hugrenningar hjartans".
(Hebreabréf, 4:12.)
Frú Dagrún kveðst ekki trúa því
að maðurinn fái aðeins eitt tæki-
færi (lesist: jarðlíf) til betrunar.
Ég vil í því sambandi rifja upp
aldagamla frásögu, þvi hana er að
finna í 16. kafla Lúkasarguð-
spjalls: „Það var rikur maður er
klæddist purpura og dýru lini og
lifði hvern dag í dýrðlegum fagn-
aði. En fátækur maður nokkur, er
Lazarus hét, hlaðinn kaunum,
hafði verið lagður við fordyri
hans; og girntist hann að seðja sig
af því er féll af borði ríka manns-
ins, og jafnvel hundar komu og
sleiktu kaun hans. En svo bar við,
að fátæki maðurinn dó og hann
var borinn af englum í faðm Abr-
ahams; en riki maðurinn dó lika
og var grafinn. Og er hann hóf upp
augu sín í Helju, þar sem hann var
i kvölum, sér hann Abraham
álengdar og Lazarus upp við
brjóst hans. Og hann kallaði og
sagði: Faðir Abraham, miskunna
þú mér og send Lazarus, að hann
dýfi fingurgóm sínum i vatn og
kæli tungu mína, þvi ég kvelst i
þessum loga. En Abraham sagði:
Minnstu þess, sonur, að þú hlauzt
þín gæði meðan þú lifðir, og Laz-
arus á sama hátt sitt böl, en nú er
hann hér huggaður, en þú kvelst.
Og auk alls þessa er á meðal vor
og yðar mikið djúp staðfest, til
þess að þeir, sem vilja fara héðan
yfir til yðar geti það ekki, og að
menn komist ekki þaðan yfir til
vor. En hann sagði: Þá bið ég þig,
faðir, að þú sendir hann í hús föð-
ur míns, því ég á fimm bræður, til
þess að bera vitni fyrir þeim, svo
að þeir komi ekki líka í þennan
kvalastað. En Abraham segir: Þeir
hafa Móse og spámennina, hlýði
þeir þeim. En hann sagði: Nei, fað-
ir Abraham, en ef einhver frá hin-
um dauðu kæmi til þeirra, þá
mundu þeir gjöra iðrun. En hann
(Abraham: innsk: MV.) sagði við
hann: Ef þeir hlýða ekki Móse og
spámönnunum, munu þeir ekki
Magnús Vfðir
„Ég játa kinnroða-
laust að ég nota Ritning-
una sem handbók um
lífið og tilveruna, frekar
en loftkastala mann-
legrar skynsemi, og ég
treysti því að Frelsari
minn, Jesús Kristur,
muni láta mig uppskera
eins og ég hef sáð á
dómsdegi.“
heldur láta sannfærast, þó einhver
risi frá dauðum."
í Ritningunni hef ég hvergi séð
að ekki sé unnt að tala við látna,
þ.e. vekja þá af svefni hinna
dauðu, en ég leyfi mér að efast um
að slíkt sé af því góða, bæði með
hliðsjón af frásögninni um Lazar-
us og eins vegna þess að „óvinur
yðar, Djöfullinn, gengur um sem
öskrandi Ijón, leitandi að þeim er
hann geti gleypt" (I. Pétursbréf
5:8) og fyrst Satan getur brugðið
sér f ljósengilslíki þá er hætt við
að nann nýti sér allar leiðir til að
villa fólk og telja því trú um loft-
kastala, líka þá leið að tala fyrir
munn hinna liðnu.
Frú Dagrún telur fólk ekki vita
hvert leið liggur eftir dauða hér á
jörð. Ég, og hinir trúuðu, vitum
hvert okkar leið liggur, því hún
liggur gegnum dauða með upprisu
þegar Frelsari minn kemur til að
dæma á Dómsdegi, og hann einn
veit hvenær það verður og hvernig
dæmt verður. Og það er lýgi Djöf-
ulsins að menn fái ekki tækifæri
áður en dauðanum er mætt, því
tækifærið er til fyrir hvern mann,
hjá Kristi á krossinum: „Og eins
og Móse hóf upp höggorminn á
eyðimörkinni, þannig á manns-
sonurinn (Kristur: innsk. MV.) að
verða upphafinn, til þess að hver
sem trúir hafi f samfélaginu við
hann eilíft líf. Þvf að svo elskaði
Guð heiminn að hann gaf son sinn
eingetinn til þess að hver, sem á
hann trúir, glatist ekki heldur
hafi eilíft líf. Því ekki sendi Guð
soninn í heiminn til þess að hann
skyldi dæma heiminn, heldur til
þess að heimurinn skyldi frelsast
fyrir hann. Sá sem trúir á hann
dæmist ekki, sá sein ekki trúir er
þegar dæmdur, því að hann hefur
ekki trúað á nafn Guðs-sonarins
eingetna." Eða í færri, og e.t.v.
skiljanlegri orðum, „Sá sem trúir
á soninn hefur eilift líf, en sá sem
óhlýðnast syninum skal ekki sjá
lífið, haldur varir reiði Guðs yfir
honum.“ (úr 3. kafla Jóhannesar-
guðspjalls).
Við skulum samt staldra við
núna og athuga hvort það sé
„sjálfumgleði" að trúa þessu. í
fyrsta lagi, þá er „trúin fullvissa
um það sem menn vona, sannfær-
ing um þá hluti sem eigi er auðið
að sjá“ (Hebreabréfið 11:1—2). Og
mikill er hroki þeirra sem vilja
afgreiða trúna, og Ritninguna,
sem kreddur fyrri alda og ganga
fram segjandi: „Sjá, svona og
svona átti þetta að vera, en ekki
eins og skrifað stendur „án þess að
hafa nokkuð annað máli sfnu til
stuðnings en fátæklega „mannlega
skynsemi". Við þessa drauga hafa
kristnir menn barist alla tfð, þvi
menn fella sig ekki við að þurfa að
standa skil gerða sinna á dóms-
degi, og vilja frekar fullyrða að
Guð hafi ekki meint það sem hann
sagði! Og í Noregi reis próf. Ole
Hallesby upp og mótmælti hinum
tilbúna, dfsæta, „manneskjulega“
kristindómi og benti réttilega á,
að það er Kristur, það er kross
Krists, friðþægingargjöf Hans til
manna, sem er aðalatriðið, en ekki
Maðurinn, sem allt vill fella í þær
skorður sem honum hugnast best
og hann getur falið sig bakvið með
því að vísa í „mannlega skynsemi"
og „vitiborið fólk“.
En, 'ví miður, krossinn er
þarna ennþá með öllum sfnum
þverstæðum sem mannleg skyn-
semi ekki getur skýrt. Og orð Páls
postula í fyrra Korintubréfi
standa ennþá óhögguð: „Þvf orð
krossins er heimska þeim er glat-
ast, en oss sem hólpnir verðum er
það kraftur Guðs“ og „Þvf að þar
eð heimurinn með speki sinni
þekkti ekki Guð f speki hans,
þóknaðist Guði að gjöra hólpna
með heimsku prédikunarinnar þá
er trúa, með því að bæði Gyðingar
heimta tákn og Grikkir leita að
speki, en vér prédikum Krist
krossfestan, Gyðingum hneyksli
en heiðingjum heimsku." „Því að
heimskan hjá Guði er mönnum
vitrari og veikleikinn hjá Guði
sterkari".
Frú Dagrún gerir mikið úr
„kenningum um upprisu rotnaðra
likama“. Því vil ég benda á 15.
kafla fyrra Korintubréfs, þar sem
segir: „Sáð er forgengilegu en upp-
rís óforgengilegt; sáð er í van-
sæmd en upprfs f vegsemd, sáð er f
veikleika en upprís f styrkleika,
sáð er náttúrulegum lfkama en
upprís andlegur lfkami.“ „Og eins
og vér höfum borið mynd hins
jarðneska munum vér einnig bera
mynd hins himneska". Að mfnu
viti svarar þetta þeim furðuhug-
myndum sem frú Dagrún virðist
gera sér um upprisu dauðra með
gigtarverkjum og öðru þvflfku.
Að endingu: Þessi fátæklega rit-
smið mín er ekki ætluð til að verða
frú Dagrúnu Kristjánsdóttur til
vanvirðu né heldur til að úthrópa
hana heimska eða heiðna, heldur
eru þetta þankar sem tilkoma
vegna greinar hennar f Mbl. sl.
laugardag, og þar sem við frú
Dagrún erum greinilega á önd-
verðum meiði í þessum efnum,
hljóta ritsmfðar okkar að stangast
hressilega á.
26.05.1984
Magnós Víöir.
Magnús Víðir er ragnatjóri hjí
SVR og befur starfað að frjíisu
kristilegu leikmanaastarfi.
^sRmyiMMH [JLLIBOÐ
mt 1 Csiofnr) I VEX ÞVOTTALÖGUR 2 LÍTRAR
MILDA ÞVOTTADUFT 5Kg
\V ^ MOLASYKUR
ltMfja ÞAÐ HRESSIR! lúiffi 1 Kg
LJÚFFENGAR SÚPUR 60 gr pakkar
...vöruverð í lágmarki