Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.07.1984, Blaðsíða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1984 Skarðatind, 1385 m háan, barði ég augum fyrsta sinn vorið 1979. Úr botni Morsárdals í Skaftafells- fjöllum í Öræfasveit fylgdumst við fjérir ferðafélag- ar með, er ský tók af fjöllum í brúnum Vatnajökuls. Smám saman kom hann í Ijós sem risavaxinn bergkastali, drungalegur og þverhníptur. Til allra hliða, nema að noröan, girða flugháir hamrar hæstu eggjar. Hæstir eru hamrarnir að austan- verðu. Meðfram þeirri hlið fjallsins gengur Skafta- fellsjökull í boga niður á sanda, en að vestan geng- ur Morsárjökull með undirhlíðum tindsins, niður í botn samnefnds dals. Skarðatindur er fáfarinn tindur, fjarri mannabyggð, og er oft á tíðum um varasamt landslag að fara. Fyrir nokkrum árum flaug Ómar Ragnarsson, hinn landskunni fréttamaöur, með austurhliö Skaröatinds og kvikmyndaöi sam- tímis hengiflugið. Mátti þá sjá fjall- iö frá ööru sjónarhorni en venju- legt er, i mynd hans „Undir og yfir jökli“. Lengi haföi austurhliðin heillað okkur og um síöustu páska létum viö til skarar skríöa. Nokkrum vik- um fyrr höföu tveir félagar okkar gengið aö hlíöinni en ekki reynt viö meginvegginn sökum veðurs. Aö kvöldi 15. apríl síöastl. héld- um viö fótgangandi inn á Skafta- fellsjökul. f Ijósaskiptunum náóum viö undirhlíöum Skaröatinds og undir stóru grettistaki bjuggum viö okkur undír aö sitja af okkur nótt- ina. Klæddir i dúnúlpur og meö fætur í bakpokum varö okkur heldur lítiö um svefn. Um fimmleytiö næsta morgun vorum viö komnir á ról og aö lokn- um fátæklegum morgunverði lögö- um viö af staö upp aö veggnum. Eftir 1 'h stundar göngu náöum viö botni „hvelfingarinnar". Hvelfingin er risavaxið íhvolft gil, er sker sig upp í tindinn og markar ofar syösta turn fjallsins. Innst í henni lá niöur snarbratt ísþil, eina augljósa leiöin upp úr hvelfingunni. Af frásögn félaganna, er veriö höfðu hér allnokkru fyrr, aö dæma, töldu þeir ísþiliö örþunna ísskel, varhugaveröa til klifurs. Olli þaö nokkru hugarangri hjá okkur. Ef ís væri örþunnur væri hætta á aö litl- ar tryggingar fengust í klifrinu. Þögulir bjuggumst viö til upp- göngu. Dauöaþögn ríkti í slúttandi hamrasal, einstaka sinnum rofin af þyt fallandi steina, er síöan skullu í snjónum fyrir neöan með óhugn- anlegu banki. Klifriö hófst. Undir hækkandi sól iá leiö okkar upp ísþiliö. Einstaka ísmoli, bræddur af hita sólar, hent- ist niöur úr hengifluginu og skall í nálægð viö okkur eöa á, stöövaöi framgang klifursins, en ætíö bara augnablik. Á enda ísþilsins kom- umst viö úr köidum skugga hvelf- ingarinnar í langþráóan yl sólar. Næsti hluti klifursins lá eftir brattri syllu. Á henni var sólbráö farin aö gera vart viö sig, en hún jók áhættuna á framskriöi snjóa. Þaö var léttir aö ná snjóbreiö- unni í miöjum veggnum. Undir litl- um kletti var tekinn stuttur matar- tími. Fyrir ofan okkur opnaðist víö- átta veggsins og efst trónaöi geysihár höfuöveggur fjallsins — aöaláhyggjuefniö. Séö frá jökli rann höfuöveggur- inn saman í eitt samfellt ísstykki. Gat veriö aö fær leiö lægi í gegn- um þaö? Úr miöjum vegg sást greinilega aö hann var illvígur, verri en vonir okkar leyföu. Við vissum aö ef hann væri ófær myndum viö þurfa aö feta okkur niður sömu leiö og upp var farin. Þaö væri síöur en svo þægilegt. Áfram héldum við. Þvert á snjóbreiðuna, inn í gil, upp þaö. Yfir hrygg, upp þrep ísfossa að 150 metra háum höfuöveggnum. Rétt eins og í hvelfingunni hrundu ís- stykki úr hömrunum fyrir ofan. Hvílík stærö á öllu hér. Þetta er allt ófært nema ... ? Aöeins noröar var gilskorningur. Jón klifraöi upp í hann. Hann var snarbrattur. Uppi endaði hann í háum yfirhangandi ísfossi, niöri i engu — jú Skafta- fellsjökli 700—800 metrum neöar. Við tókum tíma í aö undirbúa okkur fyrir ísfossinn. Eftir aö hafa höggviö út stæröar snjópolla undir ísfossinum lögöum viö í hann. Viö komumst upp í hann hálfan. Viö þessar aöstæöur var áframhaldiö ófært, áhættan of mikil. Eftir ítrek- aöar tilraunir til aö finna aðra leið upp uröum viö aö sætta okkur viö hlutskipti okkar. Skaröatindur í Öræfum haföi sigrað okkur. Austurhlíð Skarðatinds.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.