Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
9
VISA kynnir vöru
og þjónustustaói
FATAVERSLANIR — BARNA:
S
Anddyriö, Austurstræti 8 91-621360
Baby Björn, Laugavegi 11 91-29488
Bangsímon, Laugavegi 41 91-13036
Benetton, Skólavöröustíg 5 91-18875
Endur og hendur, Laugavegi 32 91-27620
Fiðrildiö, Skólavörðustíg 6 91-10470
Finnska, Laugavegi 28 91-22201
Krakkar, Laugavegi 51 91-13041
Leggur og Skel, Skeiöi, ísafiröi 94-4070
Lipurtá, Lóuhólum 2—6 91-75220
Mömmusál, Laugavegi 17 91-27340
Noröurfell, v/Hornið, Akureyri 96-22866
Rut, Glæsibæ, Álfheimum 74 91-33830
Sporiö, Grímsbæ, Efstalandi 26 91-82360
Versliö meö VZSA
Kork»o*Plast
Sænsk gæöa-
vara
KORK-gólfflísar
með vinyl-
plastáferö.
Kork‘0*Plast
í 10 gerðum
Og nú er komið
þaö nýjasta frá
Wicanders
Cork-o-Floor
Kork O Floor er nýjasta gerðin frá Wicanders sem
er ekkert annaö en hiö viöurkendna Kork O Plast
límt á þéttpressaðar viðartrefjaplötur, kantar með
Nót og gróp, þykkt 9 mm. Leysir vandamáliö fyrir
þig þegar lagt er á gamalt gólf slitiö. Kunnir þú
aö halda á sög getur þú lagt á gólfið sjálfur. Engin
vandamál. Þú leggur á gamla slitna gólfiö án
þess aö þurfa aö laga þaö nokkuö áöur.
Einkaumboð á íslandi fyrir WICANDERS
K0RKFABRIKER.
Hringið eftir ókeypis sýnishorn og bæklingi.
Ættum að draga úr
bensínkaupum frá Rússum
—m olíiiféW(in atts •* fé svlgráM tN a* ka«M Inn iMmfR t|áH
Benzínverð á íslandi
Benzínverö mun hvergi hærra í V-Evrópu en
hér á landi. Orsökin er tvíþætt. í fyrsta lagi
eru tæplega 60% benzínverös skattar til rík-
issjóös. í annan staó er ekki samkeppni milli
söluaöila (olíufélaga) aö því er verö snertir.
Megnið af því benzíni, sem hingaö er keypt,
kemur frá Rússlandi skv. sérstökum samn-
ingum sem íslenzk stjórnvöld hafa gert viö
Sovétríkin. Þóröur Ásgeirsson, forstjóri Olís,
svarar í viðtali viö Dagblaöiö-Vísi fyrirspurn-
um um þessi viöskipti og veröþætti benzíns
á íslandi. Staksteinar grípa ofan í þetta viö-
tal í dag lesendum sínum til fróöleiks um
þennan þátt í heimilisútgjöldum fólks.
Ekki verðstríð
í benzmsölu
hér á landi
Hér á eftir fara nokkrar
fyrirspumir og svör úr
DV-viðtaJi við forstjóra
OUk
— Er skollið á bens-
ínstríð bér eins og heyrst
hefur að geisi á hinum
Norðurlöndunum?
„Eftir því sem mér skilst
er ben.sínstríð í Noregi og
Danmörku fyrst og fremst
verðstríð, það getur ekki
orðið hér á íslandi vegna
þess að olíufélögin hér
ráða engu, hvorki inn-
kaupsverði né útsöluverði
á bensíni."
— Það er þvf ekki haegt
að áfellast olíufélögin fyrir
hátt bensínverð hér?
„Nei, það er ekki við
olíufélögin að sakast í
þessu efni. Ástsðumar
fyrir því að bensínverð er
hærra hér en annars staðar
era fyrst og fremst þær að
hér era meiri opinberar
skattheimtur en annars
staðar. Ríkið tekur um 60
prósent af bensínverðinu
til sín og þar við bætist að
það er jú dýrara að koma
bensíninu hingað en tU
annarra landa { Evrópu.
Verðjöfnunin kostar einnig
sitt, það er ákveðið í lögum
að sama verð eigi að vera á
bensíni um land allt og það
er verðlagsráð sem ákveð-
ur bensínverðið hverju
sinnL
— Olíufélögin ákveða
ekki bensínverðið. Er þá
engin samkeppni milli olíu-
félaganna og er það rétt að
á mUli þeirra ríki bróðurleg
samvinna?
„Það er rétt að það er
ekki samkeppni milli olíu-
félaganna hvað bensfn-
verðið snertir. einfaldlega
vegna þess að það eru aðrir
aðilar sem ákveða útsölu-
verðið. Hins vegar fer það
ekki framhjá neinum að
það er mikil samkeppni
mUli olíufélaganna um söhi
á öðrum vörum en bensíni
og þar af leiðandi er einnig
mikil samkeppni um söhi á
bensíni þó svo að það sé
ekki verðsamkeppni. Sam-
keppnin kemur fram í því
að veita góða þjónustu og
vera með góðar og huggu-
legar bensínstöðvar. Einn-
ig að vera með fjölbreytt
vöruúrval á bensínstöðvun-
um sem kemur bfleigend-
um til góöa."
Einokun sízt
tU góðs
Enn segir í viðtalinu:
„— Það er því ekki nóg
að hafa bara eitt olíufélag?
„Það yrði ekki tU bóta.
Það hefúr alls staöar sýnt
sig að einokun er ekki til
góðs og ég þykist viss um
að þjónustunni myndi
mjög hraka væri bara eitt
félag.“
— Nú ráðið þið engu
um olíuverðið. Hafa olíufé-
lögin gert eitthvaö tU að
breyta þessu kerfi?
„Bensínverðið ræðst að
mestu leyti af innkaups-
verðinu, fiutningskostnaði,
opinberum álögum og
dreifingarkostnaði innan-
lands. Þegar ég segi að við
ráðum ekki innkaupsverð-
inu á ég við það að megnið
af því bensíni sem keypt er
hingað til landsins er keypt
frá Rússlandi samkvæmt
samningum sem rfkis-
stjórain gerði við hið rússn-
eska olíufélag. Þessir
samningar eru liður f
stærri viðskiptasamningum
þjóðanna og það hefur
hingað tU verið álitið vera
nauðsynlegt vegna okkar
viðskiptahagsmuna aö
kaupa svona mikið bensín
frá Kússum.**.
— Það sem af er þessu
ári hefur verið keypt meira
af bensíni frá Portúgal en
frá Kússlandi.
„Það er rétt og það má
segja að Portúgal sé hinn
aðilinn sem við kaupum
bensín af. Okkar bflaben-
sín er nánast allt keypt frá
þessum tveimur aðilum.
Astæðan fyrir því að keypt
hefur verið meira frá
Portúgal stafar af því að
Rússarair hafa átt í erfið-
leikum með að lesta til
okkar bensín á þeim tím-
um sem við höfum þurft á
því að halda."
— Nú hefur viðskipta-
ráðherra sagt að auka þurfi
samkeppnina miUi olíufé-
laganna og segir að þið eig-
ið að ákveða hhit ykkar í
bensínverðinu sjálfir. Ertu
sammála þessu?
„Ég veit ekki almenni-
lega hvernig æthinin er að
útfæra þetta.
Eg er sammála því að
það eigi að vera samkeppni
á milli olíufélaganna og
vildi gjarnan sjá þá sam-
keppni aukast, en ég sé
ekki hvernig hún getur
aukist frá þvi sem nú er
nema þau fái frjálsari
hendur með innkaupin."
Rússabenzínið
— Eigum við þá að
hætta að kaupa bensfn af
Kússum?
„Ég hef ekki farið dult
með það að ég tel að við
ættum að draga úr bensín-
kaupum frá Kússum og að
olíufélögin ættu að fá svig-
rúm til að kaupa bensín
inn sjálf. Ég hygg að það
yrði tU bóta og þaö kæmi
fram í lækkuóu bensín-
verðL“
— Er þetta framkvæm-
anlegt?
„Við kaupum meira af
rússum en þeir kaupa af
okkur og þó að við hættum
að kaupa bensín frá þeim
myndum við eftir sem áður
kaupa alla okkar svartolíu
frá þeim, sem er olía sem
hentar okkur mjög vel hér.
Einnig reikna ég með því
að við munum kaupa
áfram verulegan hhita af
gasolíunni. Þess vegna er
réttlætanlegt að draga úr
bensínkaupunum vegna
þess hve viðskiptajöfnuður-
inn við Rússa er óhagstæð-
ur.“
— Bensínverðiö er það
hæsta í Evrópu en er það
ekki fuUlangt gengið að
vera líka með lélegasta
bensínið?
„Það er ekki rétt að það
sé það lélegasta. Við eram
með hérna 93 oktan bensín
sem er nú framfor frá því
sem það var áður. Fyrir
nokkrum áram var bensín-
ið bér ekki nema 87 oktan.
Bensínið hér hefur hærri
oktantölu en þaö bensín
sem nefnt er „regular"
bensín. En bensínið hér er
verra en það sem best er
erlendis og einnig betra en
það sem er verst"
— Hvers vegna er ekki
hægt að vera með betra
bensín?
„Það er vegna þess að
við kaupum mest allt
okkar bensín frá Rússum
og þeir hafa einfaldlega
ekki upp á neitt betra að
bjóða. Og á meðan svo er
tel ég ekki ráðlegt að bjóða
bfleigendum upp á margar
tegundir af bensíni. Þeim
yrði enginn greiði gerður
með því.“
VARMO
SNJÓBRÆÐSLUKERFI
VARMO snjóbræðslukerfið nýtir affallsvatnið til
að halda bílaplönum, götum, gangstéttum og
heimkeyrslum auðum og þurrum á veturna. Við
jarðvegsskipti og þess háttar framkvæmdir er lagn-
ing VARMO snjóbræðslukerfisins lítill viðbótar-
kostnaður og ódýr þegar til lengri tíma er litið.
VARMO snjóbræðslukerfið er einföld og snjöll
lausn til að bræða klaka og snjó á veturna.
VARMO = íslensk framleiðsla fyrir íslenskt
hitaveituvatn.
VARMO = Þolir hita, þrýsting og jarðþunga.
VARMO = Má treysta í a.m.k. 50 ár.
VARMO = Heildarkerfi við allar aðstæður.
B^jingavðfuvirxla
Trggjvn Hann«taonar
SlOUMOlÁ iVSIMAR 83290-83360