Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
47
Fámennt að
Logalandi
ÞRÍR dansleikir voru haldnir að
Logalandi um helgina og var þar
fremur fámennt að sögn lögreglunn-
ar í Borgarnesi. Voru þar 100 manns
á föstudagskvöld, 200 á laugardag,
en um 150 manns á sunnudags-
kvöld. Fór dansleikjahaldiö vel
fram, ölvun lítil, enda samkomugest-
ir fáir.
Borgarneslögreglan sagði um-
ferð hafa verið mikla í Borgarfirði
á föstudag fram á kvöld og á
mánudag hefði verið stanslaus
umferð, en lítið um óhöpp og um-
ferð hæg.
Hátt í 1500
manns í
Húsafelli
AÐ HÚSAFELLI var töiuverð um-
ferð um verslunarmannahelgina eða
milli 1000 og 1500 manns, ásamt
sumarbústaðagestum, að sögn Ingi-
bjargar Kristleifsdóttur, starfs-
manns þar.
Sagði hún að aðallega hefði ver-
ið um fjölskyldufólk að ræða, en
einnig hefðu komið um 40 krakkar
og hefði framkoma og umgengni
gesta verið til fyrirmyndar .
3 til 4 þús-
und manns í
Galta-
lækjarskógi
ÞRJÚ til fjögurþúsund manns sóttu
bindindismótið í Galtalækjarskógi
um verslunarmannahelgina. Að sögn
Brynjars Valdimarssonar, sem var
yfirgæslumaður á mótinu, kom aðal-
lega fjölskyldufólk til mótsins og var
umgengni mótsgesta um svæðið til
fyrirmyndar og ættu þeir þakkir
skildar fyrir það.
Kvað hann mótið hafa gengið
snuðrulaust. Blíðskaparveður
hefði verið föstudag og laugardag,
nokkuð rigndi á sunnudag og
héldu þá margir mótsgesta heim-
leiðis. Á mánudag birti aftur til.
Á mótinu var boðið upp á ýmsa
skemmtan, svo sem flugeldasýn-
ingu og diskótek. Hljómsveit Ólafs
Gauks lék fyrir dansi, kyntur var
varðeldur og einnig hélt Halldór
Kristjánsson frá Kirkjubóli tölu.
^Apg'ýsinga-
síminn er 2 24 80
COROLIA
Það þarf hugrekki til að endurhanna bíl sem nýtur
jafn mikilla vinsælda ogToyota Corolla,
- bíl sem í mörg ár hefur verið mest selda
bifreið í heimi. _____ —
Nú er komin ný Corolla sem sannar
að enn má bæta það sem best
hefur veriðtalið. Viðhönnun
hennar hefur þess verið gætt, að
hún hafi til að bera alla þá kosti sem öfluðu eldri gerðum vinsælda, en
aðaláherslan hefur verið lögð á að auka innanrými,draga úr eldsneytis-
eyðslu og bæta aksturseiginleika. Til þess að ná þessum árangri hefur
Corolla verið búin þverstæðri vél og framhjóladrifi, hjólabil hefur
verið aukið, gólf ækkað, sætum breytt og dregið hefur verið úr loft-
mótstöðu (0.34 Cd á Corolla Liftbackj.Corolla-Breyttur og Betri Bíll.
RÝMI!
Corolla DL 4 dyra 327.000.-
Corolla DL 5 dyra 349.000,-
Nýbýlavegi8 200Kópavogi S 91-44144
Bremsuklossar, bremsuboröar, bremsuskór fyrir
flesta fólksbíla og vörubíla. Handbremsubarkar,
bremsuslöngur, bremsugúmmisett fyrir evrópska og
japanska fólksbíla. Viftureimar, vatnskassahosur,
vatnsdælur fyrir flesta bíla.