Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984 Kanada: Turner á undir högg að sækja Toronto, 7. ágúst. AP. JOHN Turner, forsætisrádherra Kanada og leiðtogi frjálslynda flokksins, á nú í vaxandi erfiðleik- um, en kosningar fara fram í land- inu 4. september nk. Kemur þar einkum þrennt til: slæm útkoma flokks frjálslyndra í skoðanakönn- unum, mannabreytingar í kosninga- nefnd flokksins og ekki síst ummaeli forsætisráðherrans sjálfs. I skoðanakönnun, sem birt var fyrir helgi, fékk helsti stjórnarand- stöðuflokkurinn, íhaldsflokkurinn, 45% atkvæða, en frjálslyndir að- eins 36%. Hinn nýstofnaði flokkur nýdemókrata, sem eru jafnaðar- menn, hlaut 17%. Sl. laugardag sagði síðan kosn- ingastjóri Turners, Bill Lee, af sér, eftir að Keith Davey, sem stjórnaði kosninganefnd frjálslyndra þegar Pierre Trudeau fyrrverandi forsæt- isráðherra náði endurkjöri árið 1974 og 1980, bættist fyrir helgi í hóp þeirra sem skipuleggja kosn- ingabaráttuna. Kosningabarátta frjálslyndra hefur fram að þessu verið talin illa skipulögð og undirbúin. Það, sem þó hefur komið Turner verst, er að hann hefur tvisvar sinnum þurft að biðjast opinber- lega afsökunar á röngum ummæl- um. í fyrra skiptið sakaði Turner leiðtoga íhaldsmanna, Mulrony, um að hafa í hyggju, næði hann kjöri, að segja sex hundruð þúsund ríkis- starfsmönnum upp störfum, en staðreyndin er sú að heildarfjöldi ríkisstarfsmanna er fimm hundruð þúsund. í seinna skiptið sagði Turner í sjónvarpskappræðu við Mulrony, en flest dagblöð í Kanada voru samdóma um að hinn síðarnefndi hefði staðið sig þar mun betur, að atvinnuleysi væri minnst í Manit- oba fyrir sakir fólksflótta þaðan. Hið rétta er að íbúafjöldi Manitoba hefur að undanförnu aukist um eitt þúsund á mánuði. Fimmti leiðtogi Samstöðu frjáls Varsjí, 7. ígúKL AP. KAROL Modzelewski, einn sjö Samstöðuleiðtoga, sem verið hefur í haldi í aðalfangageymslum pólsku lögreglunar síðan landið var hneppt í herlög árið 1981, var sieppt í gær, liður í stefnu stjórnvalda að sleppa samviskufongum úr haldi. Sagnfræðingurinn Modzelewski er sá sem átti hugmyndina að nafni Samstöðu. Hann er jafnan talinn vera einn mesti hugmynda- fræðingur samtakanna. Nafninu stakk hann upp á á fyrsta fundi Samstöðu 17. september 1980. Nafnið bar áður blað sem gefið var út af starfsmönnum Lenin- skipasmíðastöðvanna í Gdansk er þeir voru í verkfalli. Modzelewski er fimmti Sam- stöðuleiðtoginn sem fær frelsi sitt á ný, aðrir tveir sitja í sama fang- elsinu, þeir Audrzej Rozploch- owski og Jan Rulewski. Reiknað er með því að þeim verði einnig sleppt úr haldi fljótlega. Norður-Kórea: Sonur forsetans tekur við Tókýó, 7. ígúat. AP. HIN opinbera fréttastofa Norður- Kóreu skýrði frá því í dag, að hinn 42 ára gamli sonur Kim II Sungs, forseta landsins, Kim Jong II, muni taka við forsetaembættinu, en engin tímasetning var gefin upp. Ennfremur var sagt frá því, að þessari ákvörðun hefði verið vel tekið á alþjóðavettvangi, en þetta er í fyrsta sinn sem svo hátt emb- ætti gengur að erfðum í kommún- istaríki. Kim II Sung, sem nú er 72 ára, hefur verið við völd í Norður- Kóreu frá lokum Heimsstyrjald- arinnar síðari, en ekki er vitað mikið um son hans. f frétt hinnar opinberu frétta- stofu Norður-Kóreu segir að Kim Jong II sé eini verðugi eftirmaður föður síns. Símamynd AP. Sovétmenn smíða nýtt flugmóðurskip Þessi mynd, sem tekin var frá gervihnetti, sýnir skipasmíðastöð við Svartahafið, en þar eru Sovétmenn með sitt fyrsta kjarnorkuknúna flugmóðurskip í smíðum. Er skipið smíðað í tveimur hlntum, að mestu leyti í brautinni undir krananum, en skuturinn í braut viö hliðina. Flug- móðurskipið, sem talið er að fái nafnið „Kreml“, verður um 75.000 tonn að stærð, álíka stórt og „Enterprise", stærsta flugmóðurskip Bandaríkja- manna. Ansjósur synda í op- inn dauðann SanU Cruz, 7. ágúsL AP. LfFFRÆÐINGAR viU ekki sitt rjúkandi ráð í Santa Cruz, þar sem um 2000 tonn af ansjósum hafa synt í blindni inn í höfnina með þeim afleiðingum að súrefni hefur eyðst og fiskarnir hafa kafnað. Er varla bátafært í höfninni fyrir dauðum ansjósum. Eigi er vitað hvað rak fiskitorfurnar inn í höfnina, en öm- urleg lyktin af úldnum fiski kostar bæjarbúa nú stórfé, því fjöldi ferða- manna hefur flúið hver um anna þveran. Hafnarbotninn er þakinn dauð- um ansjósum og á floti eru miklir flákar af dauðum fiski, allt rotn- andi, og hafnarstarfsmenn hafa ekki undan að moka upp fiski. Er um viðlíka magn að ræða og veitt er þarna í net á hverri vertíð. Sem fyrr segir er óvíst hvað olli dauða- sundi ansjósanna, en svipuð fyrir- bæri eru þekkt úr dýraríkinu og nægir að benda á helfarir læm- ingja er stofnstærð fer úr böndun- um. Aðrar dýrategundir ná marg- ar hámörkum og lágmörkum reglubundið án þess að farnar séu slíkar helfarir er hámörkin koma, má nefna rjúpur og laxa. Þetta er i fjórða skiptið á tuttugu árum sem höfnin í Santa Cruz, Kalíf- orníu fyllist af ansjósum á þennan hátt. Sumir líffræðingar aðhyllast að fiskarnir hænist að bæjarljós- unum, aðrir kenna um að straum- ar breytist öðru hvoru. Sakharov hættir hungur verk falli SOVÉSKI andófsmaðurinn Andr- ei Sakharov hefur hætt hungur- verkfalli sínu, en hefur verið meinað að yfirgefa sjúkrahús það sem hann er á, að sögn vina hans. Einnig hefur kona Sakharovs, Yelena Bonner, verið formlega ákærð fyrir rógburð um Sovétrík- in. Ef hún verður fundin sek á hún yfir höfði sér þriggja ára vinnu- búðavist. Vinir Sakharov-hjón- anna kváðust hafa náð sambandi við Yelenu stutta stund á sunnu- dag, en það tókst síðast í mái. Sagði Yelena að maður hennar hefði hætt hungurverkfallinu og liði vel, en honum væri haldið gegn vilja hans á sjúkrahúsi í Gorkij. Hún sagði ennfremur að rann- sókn yfirvalda í Gorkij á athöfn- um hennar væri nú lokið og hefði hún verið ákærð fyrir rógburð um Sovétríkin. Hún kvaðst hafa neitað að koma fyrir rannsóknar- nefndina, og hefði hún boðið til sín frægum sovéskum lögfræð- ingi til að fara með mál hennar fyrir rétti. Andrei Sakharov Richard Burton leikari látinn Richard Burton og Elizabeth Taylor áttu samleið í mörg ár, jafnt á hvíta tjaldinu sem í einkalífinu og fylgdist allur heimurinn jafnan með samskipt- um þeirra. RICHARD Burton, hinn þekkti leikari, lést úr heilablóðfalli á sjúkrahúsi í Genf á sunnudag, 58 ára að aldri. Richard Jenkins, eins og hann hét upphaflega, fæddist í bænum Pontrhydfen í Wales 10. nóv- ember árið 1925 og var tólfti í röð- inni af þrettán systkinum. öldruð frænka hans ól hann upp þar sem móðir hans dó þegar hann var tveggja ára. Kennari hans, Philip Burton, tók hann snemma að sér er hann uppgötvaði leikhæfileika piltsins og tók þá Richard upp eft- irnafn hans. Burton lauk prófi frá Oxford- háskóla og gegndi um tíma her- þjónustu. Að henni lokinni hófst leikferill Burtons fyrir alvöru. Frami hans á Ieiksviði var skjótur og snemma varð hann frægur fyrir túlkun sína á meistaraverk- um Shakespeares. Burton lék i ótal leikritum á sviði og í um 40 kvikmyndum. Frægar voru sviðsetningar Ham- lets, Camelot og Equus á Broad- way, þar sem hann lék aðalhlut- verk. Á meðal frægustu mynda hans eru „Who’s afraid of Virg- inia Woolf“ og „The Spy who came in from the cold“ auk stór- myndarinnar Kleópötru þar sem Burton lék á móti Elizabeth Tayl- or, eiginkonu sinni f tvfgang. Burton lék einnig í fjölda mynda sem gleymdar eru nú og grafnar, því ferill hans var líkt og margra annarra stórstjarna æði fjöl- skrúðugur. Þegar hann lést var hann að vinna að kvikmynd eftir sögu George Orwell, 1984. Mót- leikari hans í þeirri mynd er John Hurt. Einkalff Richards Burton var alla tíð ofarlega á baugi f fjöl- miðlum, og þá ekki sist er hann gekk að eiga Elizabeth Taylor eft- ir samleik þeirra i Kleópötru. Hann hafði áður verið kvæntur Sybil Williams, en þau skildu árið 1963. Hjónaband Burtons og Tayl- ors var stormasamt og fylgdist allur heimurinn með framgangi þeirra mála, þar sem bæði þóttu með mikið skap. Þau skildu árið 1974, en giftust aftur árið eftir. Hjónabandið varði þó ekki lengi og þau skildu aftur árið 1976. Sama ár kvæntist hann Sally Hunt, en þau skildu árið 1982. Burton átti við drykkjuvanda- mál að stríða í fjöldamörg ár og viðurkenndi það opinberlega. Hann reyndi oft að rífa sig upp úr eymdinni sem hann sagði verri en krabbamein. Svo virtist sem Burton hefði náð sér að mestu, ráðið fram úr drykkjuvanda sínum og tilbúinn f slaginn á ný, þegar kallið kom. Burton lætur eftir sig eiginkonu, Sally Hay, sem hann kvæntist f fyrra og tvær dætur frá fyrsta hjónabandi. Júgóslavía: Sex andófs- menn ákærðir Belgrid, 7. ágúsL AP. Sex andófsmenn voru ákærðir í Júgóslavíu um helgina fyrir „að safnast saman í fjandsamlegum til- gangi". Aðeins tæplega einn mánuð- ur er síðan júgóslavneskur prófessor var fundinn sekur um „andbylt- ingarstarfsemi sem stofnaði þjóð- skipulaginu í hættu“, og dæmdur í 8 ára fangelsi. Hinir sex, sem nú voru ákærðir, heyrðu 28 manna hópi til, sem sótti fund með kunnasta andófs- manni landsins, Milovan Djilas, fyrrum varaforseta og hægri hönd Títós fyrrv. forseta þangað til 1954. Voru andófsmennirnir leyst- ir úr haldi 3. júlí sl. Djilas sagði að þessi ákæra bæri því glöggt vitni, að stjórnvöld væru að herða tökin i innanrik- ismálum. Bætti hann þvf við, að verði andófsmennirnir sex fundnir sekir eigi þeir yfir sér fimm ára fangelsi, sem væri með öllu óskilj- anlegt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.