Morgunblaðið - 08.08.1984, Blaðsíða 64
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1984
Besta kast Einars kom er hann notaöi hálfa atrennu:
„Það væri hroki
að vera óánægður*
— sagði hann um keppnina á Ólympíuleikunum, en hann hafnaði í sjötta sæti
Frá Þáraml Ragnanayni, MaAamanni Morgunbiaðaina, (Loa Angalaa.
„ÞEGAR ÖLLU ER á botninn hvolft og ég hof skoöaö málid frá öllum hliöum þá get óg ekki veriö annaö en
hress meö aö ná sjötta sasti á Ólympíuleikum. Ég álft þetta mitt besta afrek fram aö þessu. Þaö v»ri hroki
aö vera óánægöur meö þetta afrek en hins vegar verö ég aö segja alveg eins og er aö ég átti von á því að ná
betri nýtingu og betri lengd í köstum mínum en aöstæður settu þar strik í reikninginn," sagöi Einar
Vilhjálmsson þegar ág ræddi viö hann eftir spjótkastkeppnina.
„Ég trúöi því sjálfur — ekki síst
eftir aö upphitunin haföi tekist
mjög vel, aö mér myndi ganga vel
i úrslitakeppninni og jafnvel kom-
ast á verðlaunapall. Þaö var mjög
gaman aö hita upp, mér gekk vel
aö kasta og ég og aöstoöarmaöur
minn áttum góöa stund saman áö-
ur en úrslitakeppnin hófst. En þaö
er ekkert launungarmál aö á leiö-
inni í rútunni frá upphitunarvellin-
um yfir á aöalleikvanginn varö ég
var viö mjög erfitt og þungt and-
rúmsloft hjá spjótkösturunum tólf
sem þátt tóku í úrslitakeppnlnni.
Menn heilsuöust ekki, létu engin
orö falla og létu sem þeir sæu ekki
hvorn annan. Slfkt er afar sjald-
gæft og ég hef ekki oröið var viö
svona fyrr. Þetta var fyrsta snert-
ingin á þeirri miklu taugaspennu
sem átti eftir aö ríkja meöan á úr-
slitakeppninni stóö.
Fyrsta kast mitt tókst vel — ég
kastaöi 80,44 metra og var ekki í
nokkrum vafa um aö ég gæti bætt
mig mjög verulega. Venjan er
nefnilega sú hjá mér í mótum aö
ég bæti mig þegar líöa tekur á. Ég
veitti því þó athygli í fyrsta kastinu
aö spjótiö beygöi aöeins til vinstri
og hrapaöi óeölilega hratt síöustu
fimmtán metrana. Annaö kast mitt
var mislukkaö og í þriöja kasti
geröist ekkert — ég kastaöi 79,50
metra. Þaö var mikil spenna um
þaö hvort maður yröi meöal átta
fyrstu, en þaö tókst mér sem betur
fer. Þegar komiö var að fjóröa
kastinu var ég oröinn mjög reiöur
— ekki síst vegna þess aö einn
dómarinn vildi reka á eftir mér,
láta mig klæöa mig úr gallanum,
en ég vissi aö þaö átti aö fara aö
afhenda verölaun og leika banda-
ríska þjóösönginn og allt yröí
stopp á meðan. Þaö kom líka heim
og saman — aö þegar komiö var
aö mér var gert hlé á keppninni.
Heföi ég klætt mig úr íþróttagall-
anum þá heföi ég tapaö einbeit-
ingu minni og þaö heföi veriö
slæmt. Ég geröi mér grein fyrir því
aö eitthvaö var aö — ég náöi ekki
aö virkja atrennuna, þaö var mikill
kraftur í útkastinu hjá mér en þessi
framkvæmd mín kastaöi ekki
meiru en 80 metrum. Ég ákvaö því
í fjóröa kastinu aö taka hálfa at-
rennu — virkja hana vel og ná
góöu útkasti. i þessu kasti náöi ég
81,58 metrum. Ég er margbúinn
aö fara yfir keppnina á myndbandi
Oddur Sigurðsson eftir 400 metra hlaupið:
„Ánægðir með mína
frammistöðu hér“
Frá Þórami Ragnaruyni, btaóamanni
MorgunMaAaina, f Lm Angalaa.
„ÉG ER énægöur meö frammi-
stööu mína hér é Ólympíuleikun-
um. Tíminn sem ég néöi í milli-
riölinum, 48,01 sek. er þriöji besti
érangur minn fré upphafi," sagöi
Oddur Sigurösson er ég spjallaöi
viö hann, en hann lauk keppni é
leikunum é ménudag.
Oddur varö í 2. sæti í undanrás-
unum en næstsiöastur í sínum riöli
i undanúrslitunum. „Þaö kom mér
mjög á óvart hversu góöur tími
náöist í milliriölunum, og hve menn
lögöu sig ofsalega fram viö aö ná
góöum tíma í staö þess eins og
svo oft áöur aö menn hlaupa upp á
sæti í úrslitakeppninni."
Ég spuröi Odd hvern hann teldi
sigurstranglegan í 400 metra
hlaupinu. Hann sagöist telja aö
baráttan myndi standa milli heims-
meistarans Cameroun og Banda-
rikjamannsins McCay, og ef Cam-
eroun, sem er frá Jamaica, gengi
heill til skógar, myndl hann sigra.
Oddur sagöi aö hann ætlaöi aö
halda áfram á fullum krafti viö æf-
ingar og keppnl og halda áfram aö
einbeita sér aö 400 metrunum
næstu tvö ár, og sjá til hvernig sér
gengi, „en eftir þaö væri gaman aö
fara aö prófa 800 metra hlaupið —
þreifa þar fyrir sér,“ sagöi hann.
„Ég sé enga ástæöu til aö færa
mig strax upp í 800 metra hlaupiö
þegar mér gengur svona vel í 400
metrunum.“ Oddur sagöi aö öllum
heföi liðið mjög vel í Ólympíuþorp-
inu, og leíkarnir hafi gengiö betur
fyrir sig í heildina en nokkur átti
von á og þaö eitt er út af fyrir sig
mjög ánægjulegt.
Morgunblaöið/Sjmamynd AP
• Oddur Sigurösson hljép mjög vel í 400 metra hlaupinu þó svo hann
næöi ekki aö komast I úrslit, tími hans var 56,01 sekúnda.
og hef komist aö raun um þaö aö
inní á leikvanginum var sterkur
mótvindur frá vinstri sem þó gekk
í hring og myndaöi hringvind og
dró spjótiö niöur þegar maöur
kastar meö lágu útkastshorni, en
þaö er einmitt það sem ég hef ver-
ið aö æfa mjög stíft aö undan-
förnu. Ég heföi kannski átt aö gera
mér grein fyrir þessu inni á leik-
vanginum en þaö er alltaf hasgt aö
vera vitur eftir á. Bæöi Bretinn og
Fínninn höföu geysilega hátt út-
kastshorn — köstuöu beinlínis
beint upp í loftið — þegar þeir
náöu sínum lengstu köstum. Kast-
ið hjá Svíanum Eldenbrink sem fór
83 metra heföi aldrei fariö nema
70 metra undir eölilegum kringum-
stæöum, en ég er ekki aö ségja
þetta til aö afsaka mig — viö köst-
uöum jú allir viö sömu aöstæöur,
og þær komu jafnt niöur á okkur
öllum. Ég breytti ekki um útkasts-
horn og þrátt fyrir aö ég tæki á öllu
mínu og geröi allt sem í mínu valdi
stóö til aö ná lengri köstum tókst
þaö ekki í þetta sinn.
Ég var mjög vel undir keppnina
búinn og átti mér draum um aö
komast á verölaunapall Ég geröi
mér líka grein fyrir því hversu lítið
má fara úrskeiöis og þegar maöur
lítur á þaö aö spjótkastarar eins og
Tafelmeyer og Manninen komust
ekki einu sinni í úrslit og menn eins
og Atwood og Petranoff og Olsen
náöu ekki lengra, get ég vel viö
unaö. Ég get meö góöri samvisku
veriö ánægöur vegna þess aö ég
var eins vel undirbúinn og hugsast
gat. Ég æföi mig og undirbjó eins
samviskulega og hægt var. Þaö
má kannski segja aö dómgreind
mín heföi átt aö segja mér aö
breyta útkastshorninu — kasta
hátt, og ég heföi átt aö gera breyt-
ingu, en þetta er engin afsökun.
Þaö var mikil spenna í keppninni
og þaö hefur sjálfsagt haft sín
áhrif.“
Þegar ég spuröi Einar aö því
hvort hann heföi ekki oröið fyrir
venjulegum vonbrigöum, svaraöi
hann: „Þaö eru alltaf blendnar til-
finningar, aö sjálfsögöu, eftir
svona keppni. Ég heföi jú alveg
eins getaö komist á verölaunapall
eins og hinir en sjötta sætiö er líka
góöur árangur. Þaö má ekki alltaf
lita á þaö besta, þaö var búiö aö
byggja upp vissar væntingar, en
fólk veröur Ifka aö skilja aö í grein
einsog spjótkasti má lítiö út af
bera. Þetta er minn besti persónu-
legi sigur og veröur mér hvatning
til áframhaldandi afreka ( spjót-
kasti.*
Þess má geta aö jjetta er í þriöja
skipti sem islendingur nær þeim
árangri aö vera á meöal átta fyrstu
á Ólympíuleikum i frjálsum íþrótt-
um. Einar Vilhjálmsson er á fðrum
heim til íslands ásamt konu sinni.
Hann mun taka þátt i bikarkeppni
FRi á Húsavík 16. ágúst og síöan í
landskeppni viö Wales og Hollend-
inga í Wales þann 25.
Einar sagöist vera mjög ánægö-
ur meö alla framkvæmd Ólympíu-
leikanna og þaö eina sem heföi
veriö aö, aö hans mati, heföi veriö
aö engin loftkæling var i herbergj-
um íslendinganna í Ólympíuþorp-
inu í UCLA.
• Einar Vilhjélmsson varð (sjötta aa
kast tryggöi honum sjötta sætiö i spj
Ein
besl
Frí Þórami Ragnaraayni, MaAamanni Morgunt
EINAR Viljhélmsaon fékk svo sann-
arlega gulliö tækifæri til aö komast
é verölaunapall í spjótkasti hér é
Ólympíuieikunum en þaö gekk
honum úr greipum. Hann var langt
fré sínum besta érangri, varö ( 6.
sæti, kastaöi 81,58 metra. öll köst
Einars voru þó nokkuð jöfn, eöa
um 80 metrar, en mjög éberandi
var í úrslitakeppninni hversu mis-
iöng köst keppendanna voru, og