Morgunblaðið - 12.08.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984
61
HRAFNINN
FLÝGUR
„A Cinematic
Monument41
Scandinavian Film News
„Extraordinary
Filmmaking“
Variety
„These pictures
vill live forever“
Úr umsögn dómnefndar
Morgunblaöiö
Hrafn Gunnlaugsson hefur
skapaö hér nýja islendinga-
sögu og tekíst þaö vel. Hrafn-
inn flýgur er tvimælalaust
jafnbesta verk þessa ódeiga
listamanns, sem ótrauöur
framkvæmir þaö sem hann
ætlar sér. Grunar mig aö þeir
sem helst vildu sjá hann falla
flatan á andlitiö þurfi lengi aö
biða . . .
Hin sterka framvinda mynd-
arinnar, trúveröugt, uppskáld-
aö sögualdarumhverfi og
mannlífiö, ásamt afburöaleik
og kvikmyndatöku aö
ógleymdri bestu tæknivinnu
(einkanl. hljóöupptöku) i ís-
lenskri kvikmynd til þessa,
gera Hrafninn flýgur aö einni
athyglisveröustu kvikmynd,
sem gerð hefur veriö um
þessa tíma . ..
Leikurinn er stórkostlegur,
þar er hvergi veikan blett aö
finna. Er hér, auk atvinnu-
manna, marga að finna úr
leikhópi Hrafns.
Helgi er ógnvekjandi. Þessi
mikilúölegi leikari hálf-
drottnar yfir myndinni, túlkun
hans á þessum kuldalega og
einræna haröjaxli er minnis-
stæö. Framsögnin karlmann-
leg og meö eindæmum skýr
og heillandi, aö venju ...
Hrafn Gunnlaugsson og fé-
lagar hafa gert tímamótamynd
i islenskri kvikmyndasögu og
hef ég þá trú aö Hrafninn flýg-
ur eigi eftir aö fljúga hærra og
viöar en myndir okkar hafa
áöur gert . . .
Sæbjörn Valdimaraaon
Til allrar hamingju held ég
að viö Islendingar höfum nú
loks áttaö okkur á aö þaö er
ekki bara þorskurinn sem
blívur, þannig markar mynd
Hrafns Gunnlaugssonar Hrafn-
inn flýgur tímamót i atvinnu-
sögu okkar, því þar er gullald-
arbókmenntum okkar breytl í
girnilega söluvöru sem sómir
sér á kvikmyndaveisluboröi
heimsins . . .
Það verður aö neyta allra
bragöa viö aö koma þessari
ágætu kvikmynd á heims-
markaö því hér viö liggur ekki
aöeins heiöur arfleiföar vorr-
ar heldur lífsvon þess nýiön-
aöar sem gelur breytt okkar
hálfsiöaöa veiöimannaþjóöfé-
lagi í siömenntaö nútímasam-
félag.
Ólafur M. Jóhannesson
„í einu orði frábær“
Davíð Oddsson, borgarstjóri
Tíminn ★★★★
Nýjasta kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar, Hrafninn
flýgur, sem frumsýnd var á
kvikmyndahátiö Listahátíöar
kemur manni þægilega á
óvart og í huga undirritaös er
hún einfaldlega besta islenska
myndin sem gerö hefur veriö
hérlendis og hjálpast þar flest
aö, handrit, kvikmyndataka,
sviösmynd og búningar, tón-
list og leikur .. .
Þaö sem öðru fremur ber af
i myndinni er tónlistin og
kvikmyndatakan, tonlistin er
aö grunni til rammíslensk,
maöur kannast viö lög eins og
.Ríöum, ríöum . . . en þau eru
færö i dulúölegan búning af
Hans Erik Philip og fellur tón-
listin eins vel og kostur er aö
efniviö myndarinnar. Yfir
kvikmyndatökunni er léttur
.Bergmanstíir, Hrafn notar
mikiö af .nærmyndarskotum"
og byggir myndina mikiö upp
þannig, eins og til dæmis i
upphafsatriði myndarinnar og
gefur þessi tækni myndinni
mjög sérstakt yfirbragö og
hefur á heildina litiö heppnast
vonum framar . . .
Hvaö leikinn varöar þá er
Flosi hreint óborganlegur í
hlutverki bragðarefsins Eiríks
sem á sér þann draurn æöst-
an aö hverfa frá .grjóthólman-
um" og aftur til Noregs. Hann
er nokkurskonar víkingaút-
gáfan af sukksömum róm-
verskum keisara í útliti,
bragöarefur hiö innra sem
bregst slægöin þegar hann
þarf hennar mest. Helgi
Skulason og Edda Björg-
vinsdóttir gera hlutverkum
sinum einnig mjög góö skil .. .
Búningar og sviösmynd eru
sérkapituli út af fyrir sig,
hvorttveggja frábærlega vel
leyst af hendi en myndin er aö
mestu tekin i nágrenni Víkur í
Mýrdal og spilar landslagiö og
nátturufeguröin þar stórt hlut-
verk i henni.
Friörik Indriöason
DV
Sjaldan eöa aldrei hef ég gengiö jafnsáttur út úr kvikmyndahúsi eftir
aö hafa séö nýja íslenska kvikmynd eins og ég var eftir aö hafa séö
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur. Þaö er í rauninni allt
sem hjálpar til að gera myndina aö einhverri eftirminnilegustu kvikmynd
sem gerö hefur veriö hér á landi. Efniö er spennandi saga um blóö-
þorsta, hefndir og tortryggni , ..
í heild er Hrafninn flýgur einstaklega vel heppnuö kvikmynd um efni
sem svo auöveldlega er hægt aö klúöra og má segja aö Hrafninn flýgur
sé listflug i íslenskri kvikmyndagerö.
Hilmar Karlsson
HP
. . . Þetta er akaflega sannfærandi og heilsteypt verk, sem hefur upp
á allt aö bjóöa sem maöur vill finna í góöri aksjónsmynd.
. . . Hrafn heldur manni hugföngnum viö efniö meö spennu, átökum
og hraöri framvindu ...
Hrafninn flýgur var mikil manndómsraun fyrir Hrafn Gunnlaugsson í
fleiri en einum skilningi. Slik manndómsraun aö hann lét jafnvel aö því
llggja aö þetta yrói sin síðasta mynd.
En þegar maöur hefur staöist manndómsraun meö slíkum ágætum
sem Hrafn gerir í þessari mynd, þá á þjóö hans þaö tilkall til hans aö
hann láti hér ekki staöar numið.
Núna fyrst á hann aö vera aö byrja.
Björn Vignir Sigurpálamon
Bíóhöllin — á öllum sýningum — Bíóhöllin