Morgunblaðið - 12.08.1984, Side 10
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984
Sensk-íslenzka frystihúsið.
Bræðurnir
ESPHOLIN
Grein: Kristinn Snæland
Margir íslenskir hugvitsmenn hafa talað hér á landi fyrir daufum eyrum, flosnað upp, flutt
utan, koðnað niður eða misst hugmyndir sfnar í eyru útlendinga. þannig fóru teikningar
fyrsta skuttogarans og nýlega er horfínn af landi brott Jóhannes uppfínningamaður, með
hugmyndir fyrir alþjóðamarkaö. Hugmyndum hans mun væntanlega hrint í framkvæmd í
Danmörku. Bræðurnir Espholin voru tæknimenn og uppfínningamenn hér á landi í upphafí
aldarinnar, einn þeirra hvarf til Danmerkur með hugmyndir sínar, annar lést tiltölulega
ungur og hinn þriðja dagaöi uppi sem fátækan einstæðing í Reykjavík.
Þessir bræður voru synir Þingeyingsins Sigtryggs Jónssonar trésmíðameistara sem fæddur
var 1862, bjó á Espihóli til ársins 1900 er hann fíutti til Akureyrar. Bræðurnir voru allir
fæddir á Espihóli og skírðir Espholin sem ekki var ættarnafn. Elstur var Jón S. Espholin f.
1889, þá Hjalti S. Espholin f. 1893 og loks Ingólfur Gísli S. Espholin f. 1898.
Saga Espholinbræðra
Sú saga sem hér verður rakin er
aðeins sundirlausir punktar um
merka Islendinga sem eiga skilið
að þeim og verkum þeirra verði
gerð betri skil. Þessi brot eru einn-
ig sett fram í því skyni að leita
nánari upplýsinga um þessa ágætu
bræður.
Nokkur fyrirtæki má nefna sem
þeir bræður áttu eða stofnuðu:
Espholin Co., Bræðurnir Espholin,
Bifreiðafélag Akureyrar hf.,
tunnuverksmiðja á Akureyri, véla-
verkstöð á Akureyri, kaffibætis-
verksmiðja í Reykjavík og Sænsk-
Islenska frystihúsið í Reykjavik.
Upprunalega stundaði Espholin Co.
fasteigna- og bátasölu en varð sið-
ar alhiiða innflutningsfyrirtæki.
Eftir að það leið undir lok, við það
að Jón S. Espholin tók upp einka-
rekstur, ráku hinir bræðurnir tveir
fyrirtækið Bræðurnir Espholin.
Þetta sögubrot nær í aðalatrið-
um yfir um einn áratug, eða frá
1916 til 1927.
Espholin Co.
Fyrirtækið Espholin Co. er til á
Akreyri þegar árið 1916 eða fyrr og
virðist einkum stunda fasteigna-,
báta- og skipasölu. Þá búa bræð-
urnir allir hjá foreldrum sínum í
Aðalstræti 16 en Jón hefur þá verið
erlendis í mörg ár við nám í vél-
fræði. Auglýsing sú sem hér birtist,
„Vélar og mannvirkjatæki", kom í
íslendingi árið 1918 og er þá alger-
lega einstök á sinum tima, hvað
varðar fjölbreytni þeirra véla sem
boðnar eru, svo mun hún án efa
vera fyrsta auglýsing á íslandi þar
sem flugvélar eru boðnar til sölu.
Ennfremur bendir flest til þess að
auglýsing þessi hafi orðið til þess
að Espholin Co. seldi árið 1919
Vegagerð ríkisins fyrstu belta-
dráttarvélarnar sem komu til
landsins, tvær Cleveland-vélar, en
áður hafði aðeins ein dráttarvél
verið flutt til landsins. Einnig er
því ósvarað hvort Espholin Co.
flutti inn skurðgraftrarvél Skeiða-
áveitunnar, en henni þjónuðu
Cleveland-vélarnar I fyrstu, drógu
að henni þyngstu hlutina.
Þetta ár, 1919, auglýsir Espholin
Co. sérstaklega Cleveland-drátt-
arvélarnar og vinnur fyrirtækið að
því að bændur stofni með sér félag
til kaupa á vélinni. í júní árið eftir
segir blaðið Norðurland frá á þessa
leið: „Dráttarvélin Cleveland hefir
nokkuð verið látin vinna hér að
jarðarbótum í vor og reynst vel.
Hún dregur tvo plóga eða tvö bíl-
herfi og vinna hennar þykir ekki
dýr.“
Espholin Co. bauð bifreiðir í
auglýsingunni árið 1918 en árið eft-
ir auglýsa þeir bræður bifreiðirnar
sérstaklega, bæði vöru- og fólks-
bíla, og síðar sama ár auglýsir
fyrirtækið kassa utan af fjórum
bifreiðum. Vitað er, að tvær voru
fólksbifreiðir af gerðinni Dixie Fly-
er og er önnur bifreiðin enn til og
var seld á dögunum á 1250 þús. kr.
Þriðja bifreiðin var vöruflutn-
ingabifreið, gerð Old Hickory, en
óvissa er um hvaða bifreið var í
fjórða kassanum. Auk þess að
bjóða Old Hickory-vörubílinn sem
bar % tonn auglýsti fyrirtækið
Republic-vörubílinn, burðarmagn
% —5 tonn, og Henderson-mótor-
hjólið með fjögurra strokka línu-
vél.
Espholin Co. auglýsti víðar en i
Akureyrarblöðunum og 12. október
1923 birtist auglýsing frá fyrirtæk-
inu í Vesturlandinu á tsafirði og
segir þar: „Útgerðarmenn! Ef þér
viljið vera vissir um að fá verulega
sparsama og endingargóða vél, þá
gjörið svo vel og biðjið um tilboð
áður en þér festið kaup annarstað-
ar.“ Síðan eru taldir upp Vesta-
skipamótorar, Randers-fiskibáta-
vélar (endurbætt gerð af Hein-
vélum), Hera-skipamótorar og
tvær stærðir af línuspilum frá
Larsen & Wold, Aalesund. Um
Vesta-mótorinn segir í auglýsing-
unni: „Þeir brenna vel öllum olíum
og einnig lýsi. Eyða tæplega 'U kg á
hestafl.“
Þessi auglýsing birtist í sam-
bandi við dvöl Jóns S. Espholins á
ísafirði en þar var hann með nám-
skeið í mótorvélfræði þetta haust.
Kristján Jónsson frá Garðsstöðum
auglýsti námskeiðið og sagði m.a. i
auglýsingunni: „Kensla mun verða
fullkomin og er vænst almennrar
þátttöku vélamanna."
Úr þessu hverfur Espholin Co. en
fyrirtækið tekur að auglýsa undir
heitinu Bræðurnir Espholin.
Árið 1925 er fyrirtækið með að-
stöðu bæði á Akureyri og í Reykja-
vík og í auglýsingu um margskonar
sælgæti og sænskar eldspýtur segir
að lokum: „Einkaumboðsmenn
fyrir Island og Færeyjar." Tveimur
árum síðar, árið 1927, auglýsa
Bræðurnir Espholin Reykjavík
BALTIC-samstæðuna en í auglýs-
ingunni segir m.a.: „Með töng og
skrúfjárni getur hver sem er búið
til hverskonar radíómóttökutæki
úr hinum heimsfrægu BALTIC-
samstæðum (byggsatser)."
Sænsk-íslenska
frystihúsið
Um aðdragandann að byggingu
þess segir í Vísi 16. júlí 1925:
„Bræðurnir Espholin hafa í hyggju
að koma hér upp frystihúsi með
nýtísku tækjum sem mjög er að
ryðja sér til rúms erlendis. Þeir
hafa nýskeð fengið sendingu af
nýjum fiski og kjöti frá Svíþjóð,
sem fryst var með þessari aðferð og
síðan send hingað í venjulegum
kassaumbúðum. f gær var sending-
in orðin 9 daga gömul, og reyndist
þá fiskurinn algerlega óskemmdur
og með nýjabragði, og kjötið eins.
Má því ætla, að aðferð þessi muni
gefast ágætlega vel til þess að
vernda fisk og kjöt frá skemmdum
um langan tíma. Bræðurnir hafa í
hyggju að frysta hér fisk og kjöt í
stórum stfl, bæði til útflutnings og
neyslu í bænum, og væri óskandi,
að fyrirtæki þeirra kæmist sem
fyrst til framkvæmda."
Og 18. júlí segir Vísir enn:
„Frysti fiskurinn sem getið var í
Vísi fyrir skemmstu, og sendur var
hingað til Espholin bræðra frá Svf-
þjóð, hafði legið þar í frystihúsi í
þrjá mánuði áður en hann var
sendur af stað. Eins og áður er get-
ið, reyndist hann þá algerlega
óskemmdur þegar hingað kom.
Innan skamms er von á sænskum
sérfræðingi hingað, sem á að at-
huga skilyrði til þess að koma hér á
fót frystihúsi því sem Espholin
bræður ætla að koma upp, og verð-
ur nánar minnst á þetta fyrirtæki
síðar.“
Þessum hugmyndum Esphol-
inbræðra var vel tekið og umsókn
þeirra og Ernst Nordenstedt um
lóð við höfnina var fljótlega af-
greidd bæði í hafnarnefnd og bæj-
arstjórn.
Sem dæmi um kraftinn og dugn-
aðinn má svo geta auglýsingar í
Vísi 24. nóvember, aðeins rúmum
V E S T A-moíorinn
er tvígengisvél, sem hefir
flesta kosti Dieselmotors-
ins og er viðurkend að
vera
auðveldari, endingarbetri
og mikið ódýrari í notkun
en allir aðrir motorar,
sem nú tíðkast
„V E S T A“
er smíðuð í hinni miklu og heimsfrægu stór-
skipasmíðastöð *A|B. Bergsunds mek. Verkstað«
við Stockholm, sem hefir einkaleyfið fyrir öll
Norðurlönd. Verksmiðjan er líklega sú einasta,
sem nú afgreiðir áreiðanlega á réttum tíma og
sumar stærðir alveg um hæl.
Verðlistar, teikningar og meðmœli til sýnishjá
undirrituðum, sem tekur á móti pöntunum og
gefur nánari upplýsingar.
/ÓN S. ESPHÓLIN.
Mótorinn sem nýlega fannst á víðavangi. Auglýsing úr Norðurlandinu 30
september 1916.
Með tðng og skrúfjárni getur,hver sém er
búið til hverskonar rndiómóllökitæki úr hin-
um helmsfrœpu
samstæðum
(byggsatser)
1 lampa samstæða ko<tar kr. 64.70
2 - — — - 84,90
3 - — — — 11090
4 — — — — 146,25
5 —(hið frægaSlabilidyn)— 151,90
7 — samstæða (super 10) — 250,90
Stuttbylgju seudistöðva-
samstæða — 203,75
Bylgjugildru og bylgjumælis
samstæða — 30,40
NB Fullkominn leiðarvfsir fylgir hverri
Kristaltæki kosta kr. 25,00 og kr 31,25.
Einkaumboðsmenn:
BRÆÐURNIR E8PHOLIN,
Reykjav k
NB. Athaglð rerftift á stuttbyIejusendistilftvnnrm.
Gott dsmi um fjölbreytt áhugamál Espholin-bræðra. Auglýsing úr Vísi 2(
mars 1927.
fjórum mánuðum síðar en Esphol-
inbræður fengu sendinguna frá
Svíþjóð, en i henni segir: „Tilboð
óskast fyrir mánaðamót um allt að:
2050 teningsmetra af byggingar-
möl, grjóti eða mulningi og 1150
teningsmetra af byggingarsandi,
komið á staðinn á Batteríislóðinni
hér í Reykjavík. Einnig um 4200
tunnur sement. Afhending byrji í
næsta mánuði. Bræðurnir Esphol-
in, Austurstræti 5. Sími 1144.
Frystihúsin hafa sfðan orðið
okkur íslendingum sú gullnáma, að
segja má að vel fari á því að þar
sem áður stóð fyrsta frystihúsið
skuli nú rísa bygging Seðlabanka
íslands.
Önnur verkefni
Tunnuverksmiðjan á Akureyri,
en fyrir henni stóð Hjalti Espholin,
starfaði ekki samfleytt og keppti
við innfluttar vörur. Bæjarstjórn
Akureyrar styrkti reksturinn og
rökstuddi styrkinn með því að
verksmiðjan tryggði að ávallt væru
til nægar tunnubirgðir.
Tunnuinnflytjendur mótmæltu
og töldu sig ávallt hafa sinnt eftir-
spurn með litlum fyrirvara og ís-
lendingur sagði 2. nóvember 1928:
„Tunnuverksmiðja Espholins-
bræðra er tekin til starfa að nýju.“
Kaffibætisverksmiðjan var í
Reykjavík, rekin undir nafni Ing-
ólfs G.S. Espholins og seldi vöruna
undir merkinu „Fálka-kaffibætir"
eða Fálkinn. f auglýsingu um kaffi-
bætinn segir m.a.: „Kaffibætirinn
er jafnaðarlega rannsakaður af
herra Trausta Ólafssyni efnaverk-
fræðingi ríkisins. Ábyrgð fylgir
hverjum pakka."
Eins og áður er að vikið, verð
Espholinbræður fyrstir lands
manna til þess að auglýsa flugvél
ar, þegar árið 1918, og áhuginn i
flugmálum dofnaði ekki. Árið 192
skrifar Ingólfur G.S. Espholin tvæ
greinar í Vísi um „Ahren
bergs-flugið“, þann 2. og 5. sept
ember. Ingólfur bendir á að ill
undirbúið flug yfir Atlantshaf me
lendingu á Islandi geti orðið ti
þess að spilla fyrir því að fasta
áætlunarferðir hefjist á þessar
leið. Ljóst er að hann hefur þ
sannfæringu að áætlunarflug mill
Evrópu og Ameríku með millilend
ingu á íslandi sé allt að því f sjón
máli og færir margt fram máli sím
til stuðnings og segir m.a. í grein
unum: „En það eru einmitt or
Flormann kapteins: „... að telj
megi norðurleiðina yfir Atlantsha
ófæra, þar sem jafn duglegur flug
maður og Ahrenberg neyðist til a
hætta við flugið" — eins og segir
símafregninni — sem eru ástæðai
til að ég skrifa um þetta mál, Þv
ekki má líðast óátalið, að slík or
komi fyrir sjónir flestra þeirra
sem hugsa um þetta mál ... Þa
hefir afar mikla þýðingu fyrir ís
land, að framtíðarflugleiðin Ugg
þar um, en á hinn bóginn gerir þa
aðeins ógagn og tefur fyrir fram
kvæmdum ef menn eru að reyna a
fara þessa leið og mistekst . ■ ■
Einnig verður að vera hægt að haf
með sem mestan flutning (payini
load) og sem minnst af eldsneyti
en það þýðir stutta áfanga. Norður
leiðin um ísland er einmitt best
leiðin hvað þetta snertir ... ísin
er afarhættuleg. Fyrst og frems
þyngir hún flugtækið, og það ef ti
vill um mörg hundruð kíló. ísim