Morgunblaðið - 12.08.1984, Page 14

Morgunblaðið - 12.08.1984, Page 14
70___________MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 _ MYRTUR BISKUP --------Sagt frá moröinu á Jóni Gerrekssyni biskupi í Skálholti 1433- Það er grimmilegur dauðdagi að vera tekinn og settur í poka og kastað útí á til að drukkna. Þau urðu örlög Jóns Skálholtsbiskups Gerrekssonar við Brú- ará árið 1433 fyrir ríflega 550 árum. Hver var þessi biskup? Hvað hafði hann til saka unnið að hljóta svo hræði- legan dauðdaga? Hverjir myrtu hann? Af hverju hlutu þeir enga refsingu? Af hverju hlaut maður, sem dreginn var út úr Skálholtskirkju og drekkt á þennan pínlega hátt, veglegasta greftrarstað á Islandi? Af hverju átti hann sér óvini? ERKIBISKUP í UPPSÖLUM Ekki er nákvæmlega vitað hve- nær Jón Gerreksson fæddist en það er talið hafa verið einhvern tíma um 1378 í Danmörku. Hitt er kunnugt að hann var af tignutn ættum, náskyldur einum af aðal- ráðgjöfum Margrétar drottningar. Sjálfur minntist hann á, að hann hafi notið vináttu Eiríks konungs af Pommern allt frá barnæsku. Eftir nám, sem hann stundaði bæði í Prag og i París, komst hann i stöður heima i Danmörku. í gegnum frændskap sinn og vin- áttu við Eirík, gerðist Jón skjótt kanslari þessa æskuvinar sins og árið 1408 gerðist hann erkibiskup i Uppsölum í Svíþjóð að undirlagi danska konungsvaldsins, sem tryggja vildi þar ítök sin og at- kvæði um stjórn kirkjumála. Það gekk þannig til i Noregi og Svíþjóð um þessar mundir að inn- lendir menn urðu að þoka fyrir Dönum og Þjóðverjum þegar emb- ætti voru annarsvegar, en Jón reyndist að sögn ágætur erkibisk- up. Hann var viðkynnilegur og at- orkusamur stjórnandi en einþykk- ur stórbokki í aðra röndina og þá djarfur og harðskeyttur krafta- verkamaður og dýrlingur. Svo virðist sem hann hafi verið ósink- ur á fé í Uppsölum, haft um sig lið sveina (eins og seinna á Islandi), haldið góðar veislur og miklar og verið stórvirkur f byggingafram- kvæmdum. Gekk nú Jóni allt i haginn þar til hann tók að sér að verja og hlífa af óskiljanlegri þrjósku og einstrengishætti ekkju að nafni Halleka, sem var forrík og ekki við eina fjölina felld í ástamálum. Eru ekki tök á að rekja náið þá örlaga- ríku atburði, sem gerðust í lífi Jóns eftir að Helleka leitaði til hans, en svo hélt Jón Gerreksson á málum að hann var á endanum lýstur margfaldur brotamaður við skírlífisreglur kirkjunnar og vorið 1422 úrskurðaði páfinn í Róm Jón óhæfan til allrar æðri klerklegrar þjónustu. Með því varð hann að segja af sér erkibiskupstign. Var Jón þá konungi gagnslaus orðinn í valdabaráttunni f Sviþjóð, en hylli hans hélt hann samt sem áður. Fór nú lítið fyrir Jóni næstu fjögur árin eða þangað til nafni hans skaut upp í Páfagarði 1426, en þá gerðist það að Martin V. gaf út bréf um að Jón erkibiskup Ger- reksson skyldi nú taka við bisk- upsdæmi í Skálholti. Ekki er vitað fyrir hverra tilverknað páfi veitti Jóni Skálholtsbiskupsdæmi á ís- landi þar sem lítið var í húfi hjá „óþjóðalýð" eins og það heitir í bréfi páfa, en auðvelt er að geta sér til um að þar hafi bernskuvin- urinn, Eiríkur af Pommern, skipt sér af málum. Hvað sem þvi lfður höfðu örlögin beint Jóni upp að íslandsströndum, þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. Á ÍSLANDI Jóni Gerrekssyni mun hafa ver- ið falið að rétta við hrapandi gengi Norðurlandakonunga á íslandi. Það var nokkrum erfiðleikum bundið fyrir þá að stjórna hér- lendis sunnan úr Danmörku á þessum árum. Um 1415 breyttist Norður-Atlantshafið úr norsku yf- irráðasvæði í enskt. Samgöngur á milli Noregs og íslands fjöruðu út og tengslin héðan rofnuðu að mestu við norsk-dönsku ríkis- heildina. íslenskir stórhöfðingjar áttu i litlum erfiðleikum með að leggja leið sína um England og koma þar vörum sínum á markað. Skálholts- og Hólabiskupar höfðu getað leyft sér að sitja á Norður- löndum í sæmilegum fagnaði, meðan Norðurlandamenn satu einir að kolunum. En þegar sigl- ingar frá Norðurlöndum til Is- lands tóku að bregðast og útflutn- ingsverslun íslendinga komst i hendur erlendra manna, áttu bisk- upar ekki annarra kosta völ en að sitja á Englandi eða hér norður í dumbshafi. Áður en Jón kom hingað til lands kom hann við á Englandi og var kallaður sendifulltrúi konungs í Danmörku. í Englandi fékk hann stjórnina til að viðurkenna forna réttarstöðu norsku skattlandanna í samfélagi ríkjanna, sem fól í sér að enskum væri bannað að sigla til eylanda norska ríkisins. Sem Skálholtsbiskup var Jón i leiðinni allmikill skreiðarframleiðandi og reyndi hann að tryggja sig sem best hann gat áður en hann hætti sér hingað til lands. Hann kom til íslands árið 1430 og virðist sem honum hafi verið allvel tekið af flestum en þegar hann tók við Skálholti hafði eng- inn biskup setið þar í rúman ára- tug. Þegar biskupsstólar voru þannig auðir gátu stórhöfðingjar öðlast rétt til íhlutunar um mál- efni þeirra og fjármálastjórn bisk- upa létu þeir sig miklu skipta ef þeir gátu. Hefur Jón með komu sinni eflaust þrengt kost ýmissa höfðingja og þá kannski ekki síst Jóns Vilhjálmssonar, Englendings og biskups á Hólum. Jón G. kom hér á sínu eigin skipi og ekki einn síns liðs, heldur fylgdu honum „margir sveinar þeir er danskir létust vera“. Þetta lið hans hefur vakið nokkra úlfúð meðal landsmanna ef marka má alþingissamþykkt frá árinu 1431, en í henni eru „danskir og svenskir" menn úr- skurðaðir landrækir og hver sá, sem hefði slíkan lýð á sínum veg- um hérlendis landráðamaður við konung. Talið er líklegra að Jón hafi ráðið þessa menn I þjónustu sína og tekið þá með sér til ís- lands, en að konungur hafi sent þá með honum til halds og trausts. Er liklegt að sveinarnir hafi orðið óheillavaldar og alið á tortryggni og fjandskap á milli Jóns og ís- lendinga. Kröfðust íslendingar þess að Jón sendi sveina sina utan en hann taldi sig ekki vera bund- inn af alþingi og svo var komið um 1432 að Jón sat i hópi meintra sakamanna i Skálholti, orðinn landráðamaður við konung að dómi islenskra höfðingja. ÁREKSTRAR Ýmislegt bendir til þess að fs- lendingum og þá sérstaklega sunnlenskri alþýðu hafi líkað vel við Jón biskup. „Landsfólkið var nokkuð bráðþýtt við biskupinn," eins og höfundur Nýja annáls kemst að orði. Um böðla Jóns var kveðið: ólafur hinn illi, biskupa spillir;. þó gjörði Jón enn verra: hann sá ráð fyrir herra. Er sagt um böðulinn Jón að hann hafi orðið að fara i líkaman- um til andskotans eftir dauðann. Alþýða dæmdi hann slíkan ill- virkja að hvorki jörð né vatn vildi við honum taka. Þá má einnig nefna sem dæmi um hug margra íslendinga til Jóns, að honum var veittur hinn veglegasti legstaður á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.