Morgunblaðið - 26.08.1984, Side 2
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1984
Punktar um
LÝÐVELDIÐ CosU Rica hefur
verið minna í erlendum fréttum en
ýmis nágrannaríki þess undanfar-
ið, en hefur á hinn bóginn færst
inn á svið innlendra frétta vegna
farar sendinefndar héðan á dögun-
um til að kanna samvinnu í sjávar-
útvegsmálum, og sagt hefur verið
frá hér í blaðinu. Enn er ekki kom-
Luis Alberto Mongo, forseti.
ið á daginn hvort af þessari sam-
vinnu verður né heldur hvernig
hún verður í framkvæmd, en áhugi
virðist vera af beggja hálfu.
Costa Rica á landamæri að
Nicaragua í norðri og Panama í
suðri. Karabiska hafið liggur að
austurströndinni og Kyrrahafið
í vestri. íbúar eru um hálf þriðja
milljón, spönskumælandi og 95
prósent þeirra rómversk-kaþ-
ólskir.
Afkoma Costa Rica hefur
lengi byggst á akuryrkju og
landbúnaði og mikið er flutt út
af kaffi, banönum, hrísgrjónum
og sykurreyr, svo að nokkuð sé
nefnt. Nokkur fjörkippur hefur
færst í fiskveiðar hin seinni ár,
meginhluti aflans er fenginn í
Kyrrahafinu.
Kristófer Kólumbus mun hafa
komið til Costa Rica árið 1502,
ekki ýkja langt frá borginni
Limon við Mexíkóflóa. Sagnir
herma að Kólumbus hafi gefið
landinu nafn sitt sem þýðir Hin
gjöfula strönd.
Spánverjar réðu Costa Rica í
nokkrar aldir eða til ársins 1821,
að landið varð lýðveldi. Miðað
við önnur lönd í þessum heims-
hluta hefur verið kyrrt á Costa
Rica í pólitísku tilliti. Forsetinn
er kjörinn til fjögurra ára, hann
hefur sér til halds og trausts tvo
varaforseta. Frambjóðandinn
verður að hljóta að minnsta
kosti 40 prósent atkvæða til að
vera réttkjörinn. Á þingi lands-
ins sitja 57 þingmenn og kosn-
ingarétt öðlast borgarar átján
ára. Forseti er Luis Mango.
f Costa Rica er enginn her.
Ákveðið var að leysa upp herinn
árið 1948, en sjö þúsund manna
þjóðvarðlið og 2.500 til viðbótar
gæta laga og reglu.
Á árunum upp úr 1970 var
hagvöxtur í landinu mjög mikill,
en síðan hefur dregið úr honum,
meðal annars vegna olíuverðs-
hækkana, sem hafa haft sín
mögnuðu áhrif á efnahagslíf
flestra landa. Af hálfu stjórn-
valda er unnið mjög markvisst
að því að styrkja efnahag lands-
ins og einn þáttur þeirra aðgerða
er að efla fiskveiðar.
Það er athyglisvert og sjálf-
sagt ekki á allra vitorði utan
Costa Rica að þar er fullkomn-
ara tryggingarkerfi en í flestum
löndum heims, að vestrænum
velferðarríkjum meðtöldum.
Miklu fjármagni er varið til al-
mannatrygginga og lífeyris-
Samantekt: Jóhanna Kristjónsdóttir
Frá Kyrrahafsströnd Costa Rica.
Frá höfuðborg Costa Rica, San Jose.
Ávextir og grænmeti eru stór hluti af útflutningi Costa Rica.
greiðslna og landið er á háu stigi
hvað varðar heilsugæslu og
menntunarmál. Samkvæmt síð-
ustu handbæru tölum sækja um
92 prósent barna á aldrinum
6—11 skóla og 40 prósent barna
á aldrinum 12—16 ára. ólæsi
meðal fullorðinna er minna en
nokkurs staðar í Mið-Ameríku.
Til menntamála er varið miklum
upphæðum, og var 22 prósent
fjárlaga árið 1982.
Ferðamannastraumur er vax-
andi í landinu. Helstu ferða-
mannastaðir eru San Jose og
eldfjallasvæðið þar í grenndinni.
Strendur eru víða mjög góðar og
töluvert átak er verið að gera til
að laða ferðamenn til landsins.
Vegna ótryggs ástands i Nicar-
agua hefur það þó gengið hægar
en ella.
Ibúar á Costa Rica hafa reynt
eftir föngum að komast hjá því
að dragast inn í átökin milli
Sandinista-stjórnarinnar og
skæruliðanna sem berjast gegn
henni. Stjórnvöld í Costa Rica
eru vel á verði að því er virðist
og vísa úr landi þeim sem grunur
leikur á að berjast með eða á
móti Sandinista-stjórn.
Iðnaður hefur ekki verið um-
talsverður í landinu, að frátöld-
um fiskiðnaði, sem er aðallega
vinnsla á túnfiski. Vefnaðariðn-
aður er þó nokkur og leirkera-
smíði. í atvinnulegu tilliti eru
íbúar Costa Rica mjög kappsam-
ir að bæta hag sinn og gera veg
sinn meiri á alþjóðavettvangi.
Þeim hefur miðað vel áleiðis og
með því að halda fast við hlut-
leysisstefnu og vilja vinsamleg
samskipti við flestar þjóðir án
þess að slík vinátta verði á ann-
arra kostnað sýnist það ætla að
lánast; meira að segja á þessum
siðustu tímum, þegar kraumar í
flestum löndum þessa heims-
hluta. Það er út af fyrir sig ekki
svo lítið afrek.
Frá kafflplantekni.
Fiskvinnsla hefur verið efld.