Morgunblaðið - 26.08.1984, Page 15
71
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1984
Glimmerspilavíti (Las Vegas.
allt, hvetja hann til að njóta lífs-
ins og þeirra ótölulegu þæginda
sem í boði eru. Hann fær allt sem
hann girnist og meira til, ef það er
á annað borð innan löglegra
marka. Dyr opnast honum hvar
sem hann drepur niður fæti.
Stórspilari í sjötta flokki, fær
hins vegar ekki aðra umbun en frí-
ar máltíðir og einhver skemmti-
atriði. „Þetta er eins í öllum við-
skiptum," segir stjórnandi um-
rædds spilavítis, „bestu viðskipta-
vinirnir fá bestu þjónustuna."
Mismunandi stíll
Mörgum finnst það eftirsókn-
arvert hlutskipti að vera tekinn í
hóp stórspilara: þetta er flokkur
útvalinna, menn sem borin er
virðing fyrir. Við flokkun stórspil-
ara skiptir tvennt mestu máli:
hversu stórum upphæðum þeir eru
reiðubúnir að veðja og hvað þeir
spila reglulega. Gkki endilega
hversu miklu þeir tapa — þegar
allt kemur til alls hljóta einhverj-
ir að vinna. Og spilavítunum næg-
ir að meirihlutinn tapi. Ásarnir
eiga það sameiginlegt að vera
vellríkir og öfgamenn. En þeir
geta verið ólíkir að öðru leyti og
haft ólíkan stíl við spilaborðið.
Sumir spila aðeins 15 mínútur á
degi hverjum, en leggja aldrei
minna en þúsund dollara undir i
hverju spili eða kasti. Aðrir eru
lengur að dunda sér, leggja
kannski hundrað dollara á í einu,
en sitja við spilaborðin allt upp í
30 vikur á ári.
Dýrt spaug
Það getur verið dýrt spaug að
lifa ásalífi og sumir ásar lenda illa
í því. Gins og til dæmis kanadíski
bankastjórinn sem hafði blætt sjö
milljónum dollara i spilaviti á
átján mánaða tímabili, þegar
hann var stöðvaður af og settur í
svartholið fyrir að hafa dregið að
sér tíu millión dollara úr sjóðum
bankans. I vitund stjórnenda
spilavíta skiptir að sjálfsögðu
engu máli hvaðan gott kemur."
— GPA
Cterkurog
KJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Vistunarheimili
óskast fyrir nemendur utan af landi skólaáriö
1984—1985.
Uppl. í Öskjuhlíðarskóla í síma 23040 eða 17776.
Ml
Halló
krakkar!
Við bjóðum alla krakka uelkomna í básinn okkar
á Heimilissýningunni í Laugardalshöllinni.
Stúlkurnar okkar sjá um að nóg sé til af SPRITE
handa öllum, e.t.v. kökur og kex og líka FRESCA.
Mamma og pabbi, afi og amma eru auðvitað
velkomin í hressingu.
Verksmiójan