Morgunblaðið - 11.01.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1985
7
Vigri RE
seldi fyrir
9 millj.
Hæsta heildarverð
sem íslenzkt skip hef-
ur fengið í Þýzkalandi
SKUTTOGARINN Vigri RE fékk á
mánudag hæsta heildarveró, bæói f
þýzkum mörkum og íslenzkum krón-
um, fyrir afla, sem íslenzk fiskiskip
hafa fengió í Þýzkalandi. Vigri seldi
alls 220 lestir af karfa. Heildarverð
var 8.908.800 krónur (693.900 DM),
meóalverð 40,50.
Vigri átti sjálfur fyrra metið,
sem var sett 23. febrúar 1982. Þá
fékk hann 673.600 þýzk mörk sam-
tals fyrir 279,3 lestir. Skipstjóri f
þessari veiðiferð Vigra var Snæ-
björn Össurarson.
Auk Vigra seldi Júní GK á
mánudag 114,4 lestir i Grimsby.
Heildarverð var 4.206.900 krónur,
meðalverð 36,78.
Á þriðjudag seldi Ýmir HF
105,6 lestir af þorski í Hull. Heild-
arverð var 3.770.700 krónur, með-
alverð 35,70.
Ögri RE seldi á miðvikudag
217,9 lestir í Cuxhaven. Heildar-
verð var 7.551,100 krónur, meðal-
verð 34,66. Þá seldi Þorleifur
Jónsson HF sama dag 132,8 í
Grimsby. Heildarverð var
4.879.600 krónur, meðalverð 36,74.
Nútuninn:
Fréttastjóri og
framkvæmda-
stjóri segja upp
Siguróur Skagfjöró Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Nútímans, hefur
látið af störfum. í samtali vió Morg-
unblaóið kvað hann ástæóuna vera
sitt einkamál. „Ég ætla ekki aó fara
aó gera meira úr þessu en þegar er
oróið,“ sagói Sigurður. „Ég er enn-
fremur aó fara að gera annað og
þetta er samtvinnaó," sagði hann.
Þá er fréttastjóri Nútímans,
Kristinn Hallgrímsson, í samn-
ingsbundnu 3ja mánaða fríi sam-
kvæmt kjarasamningum Blaða-
mannafélagsins. „Ég hef lagt fram
uppsögn og tekur hún gildi þegar
fríinu líkur. Ástæðurnar eru hinar
og þessar og ég kæri mig ekki um
að ræða þær við blaðamenn,"
sagði Kristinn. Hann kvað óráðið
hvað hann færi að gera.
• •
Ogmundur
dreginn í land
Kostnaður við að
ná í hann á haf
út 4—500 þús. kr.
VARÐSKIPIÐ Týr dró togarann
Ögmund ÁR 3 úr Hvalfirði og upp í
fjöru f Eiósvík vió Gufunes í gær-
morgun. Ögmundur hefur legið vió
festar í Hvalfirói sfðan í september
en þá slitnaði hann aftan úr skipa-
lest brotajárnsskipa á leið til Eng-
lands á vegum Stálfélagsins en
starfsmönnum Landhelgisgæslunnar
tókst aó finna hann og dró Týr hann
til Hvalfjarðar.
Sigurður Árnason, skipherra
hjá Landhelgisgæslunni, sagði i
samtali við Mbl. í gær að stöðug
hræðsla hefði verið um að skipið
slitnaði upp í Hvalfirði og þess
vegna hefði skipið nú verið dregið
á land í Eiðsvikinni. Sagði Sigurð-
ur að Landhelgisgæslan hefði i
vetur sent Stálfélaginu reikning
fyrir kostnaðinum við að draga
Ögmund til Hvalfjarðar. Reikn-
ingurinn væri enn ógreiddur en
hann hefði hljóðað upp á eitthvað
á fimmta hundrað þúsund krónur.
Attþú
spariskírteini
ríkissjóðs sem losna
í pessum mánuði?
Verzlunarbankinn býðurþérgóð skipti!
Engin fyrirhöfn.
Verzlunarbankinn býður þér nú að leysa út fyrir þig spariskírteinin og
ávaxta andvirði þeirra á KASKO-reikningi bankans.
Þú kemur bara með skírteinið þitt til okkar og við sjáum um hlaupin.
Engin áhætta.
KASKÓ-reikningurinn hefur fjögur vaxtatímabil á ári: 1. janúar til
31. mars, 1. apríltil30. júní, 1. júlí til 30. septemberog l.októbertil31.desember.
í lok hvers vaxtatímabils fær KASKÓ-reikningurinn vaxtauppbót sem
miðast við mánaðarlegan útreikning okkar á kjörum verð-og óverðtryggðra
reikninga. Hagstæðari ávöxtunin er látin gilda og þannig fær KASKÖ-
reikningurinn alltaf sjálfkrafa raunvexti, hvað sem verðbólgunni líður.
Engin langtíma binding.
Langtímabinding sparifjár getur verið áhættusöm, því þú veist ekki hver
fjárþörf þín kann að verða næstu árin.
Innstæða KASKÓ-reiknings er alltaf laus til útborgunar hvenær sem er,
án uppsagnar reiknings.
Þannig er mikið öryggi fólgið í því að geta gengið að sparifé sínu hvenær
sem er.
Engin spuming.
KASKÓ í STAÐ BINDINGAR, ÞAÐ ERU GÓÐ SKIPTI.
Að sjálfsögðu munum við aðstoða við skipti yfir í ný spariskírteini,
sé þess óskað.
VŒZlUNflRBfiNKINN
-vitMCVi þé% !