Morgunblaðið - 10.03.1985, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 10.03.1985, Qupperneq 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 Maður sem fæddur er skömmu eftir alda- mót fræddi mig örlít- ið um saltfiskverkun fyrri ára. Þessi maður ólst upp í Ánanaust- um í Vesturbænum. Foreldrar hans höfðu komið sér upp stakkstæði við heimili sitt eins og algengt var í þá daga. Faðir hans var á skútu en móðir hans fékk fisk hjá Alliance-félaginu, sem hún vaskaði, en fimm synir hennar hjálpuðu henni við að breiða fiskinn og taka saman. Hægt var að hafa töluvert upp úr þessu og stunduðu jafnt ríkir sem fátækir þessi störf. Þessi maður sagði mér að kona sem bjó vestarlega við Vesturgötu og átti stóra lóð hefði haft nokkrar kon- ur í vinnu hjá sér í fiskinum, en sú kona átti engin börn sem gátu hjálpað henni. I bænum Nýlendu voru þrjár fullorðnar konur með fiskreit og í Bakkabæ bjuggu tveir Jónar með konum sínum og voru þær með saltfiskreit. Þeir voru á grásleppu, en hjálpuðu konunum við saltfiskinn, þegar ekki gaf á sjó. Víða í Vesturbæn- um og inn með Skúlagötu voru stakkstæði. Úti í Viðey var salt- fiskverkun. Voru þar mikil um- svif og unnu þar margar konur við saltfiskinn. Tengdamóðir mín Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURDUR ÞORKELSSON var þar á unglingsárum sínum ásamt móður sinni og minntist þeirra ára með mikilli ánægju. Sem smástelpa vann ég mér inn mína fyrstu aura við að breiða saltfisk á Seyðisfirði hjá Gísla í Þórshamri. Fórum við eldsnemma á fætur til að breiða fiskinn, en hann var síðan tekinn saman síðla dags. Stakkstæði voru báðum megin fjarðarins. Við Liverpool og Glasgow var fólkið kallað til að taka saman með því að hvítum veifum var veifað. Nú er saltfiskverkun ekki háð veðri eins og áður, þar sem hann er þurrkaður innandyra. Margir vinna við saltfiskverkun í dag og er saltfiskurinn ein styrk- asta stoðin í þjóðarbúskap okkar íslendinga. Lengi borðuðu ís- lendingar saltfisk soðinn með kartöflum, rófum og floti. En eft- ir að fréttist að Portúgalar kynnu um eitt þúsund aðferðir við að matreiða saltfisk hafa margir lagt höfuðið í bleyti og búið til margar gómsætar upp- skriftir með saltfiski. Líklegt þykir mér að einhverjir þessara þúsund rétta séu hver öðrum lík- ir. Þó er eitt víst: margt er hægt að búa til úr saltfiski. Fyrsti rétturinn í dag er úr bók minni „220 gómsætir sjávarréttir". SALTFISKUR Saltfiskur með lauk, hvítlauk, ólífum, kapers, eggjum og tómötum Handa 5 'k kg beinlaus saltfiskur, 3 stórar kartöflur, 2 meðalstórir laukar, 1 meðalstór hvítlaukur, 2 msk. matarolía til að sjóða laukinn í, 1 tsk. kapers, 15 svartar ólífur, 2 harðsoðin egg, 3 meðalstórir tómatar eða hálfdós niðursoðnir, 'k dl matarolía, 1 msk dilledik, 1 dl mysa 1. Leggið saltfiskinn í bleyti í kalt vatn í 24 klst. Skiptið oft um vatn. Sjóðið hann síðan í nýju saltlausu vatni í 10 mínútur. Takið roðið af og fjarlægið öll bein. 2. Hitið olíu á pönnu, afhýðið og saxið laukinn smátt og sjóðið í olíunni í 7 mínútur, gætið þess að hann brúnist ekki. Afhýðið og saxið hvítlaukinn og bætið honum út í um leið og þið takið pottinn/pönnuna af hellunni. 3. Afhýðið kartöflurnar og skerið í þunnar sneiðar. Smyrjið eldfast fat og leggið sneiðarnar á botninn í því, setjið síðan fiskinn í smábitum yfir, laukinn og hvít- laukinn, kapersið, tómatana í bitum, eggin í sneiðum og heilar olífurnar þar yfir. 4. Blandið saman 'k dl af matarolíu, 1 msk. af dillediki og 1 dl af mysu og hellið yfir fiskinn. 5. Setjið í heitan bakaraofn, 180—200°C og bakið í 20 mínútur. Meðlæti: Rúgbrauð og smjör. Steiktur saltfiskur meö lauksósu Handa 4 'k kg saltfiskur, 4 msk. matarolía til að steikja úr, 4 msk. gott vínedik, 1 stór laukur, stór grein fersk steinselja eða 4 msk. þurrkuð, 6 msk. matarolía, safi úr 'k sítrónu, nýmalaður svartur pipar. 1. Leggið saltfiskinn í bleyti í kalt vatn í 24 klst. Skiptið oft um vatn. Sjóðið hann síðan í nýju saltlausu vatni í 10 mínútur. Takið roðið af og fjarlægið öll bein. Skiptið síðan fiskinum í stykki u.þ.b. 8 sm á kant. Þerrið stykk- in með eldhúspappír. 2. Hitið olíuna á pönnu og steikið fiskinn í henni þar til hann hefur brúnast. 3. Takið pönnuna af hellunni og hellið edikinu yfir fiskinn. 4. Setjið fiskinn á eldfast fat og haldið honum heitum í bakaraofni meðan þið búið til sósuna. 5. Afhýðið laukinn, setjið í biandara eða rífið á rifjárni. Ef þið notið blandara er matarolía, sítrónusafi og pipar og steinselja sett saman við laukinn og blandað saman í blandaranum, en ef þið notið hrærivél er steinseljunni blandað saman við laukinn, síðar er sítrónusafinn hrærður saman við og loks olían smám saman, síðan er pipar bætt í. 6. Hellið sósunni yfir vel heitan saltfiskinn og berið fram. Meðlæti: Soðnar kartöflur. Djúpsteiktar smábollur úr saltfiski og nýjum fiski Handa 5 250 g saltfiskur, 250 g heilagfiski, koli, karfi eða ýsa, 500 g kartöflur, '/* tsk. rifin múskathneta eða tilbúið duft, 'k dl súrmjólk, 'k—l dl rasp, 1 egg + 2 tsk. vatn, 'k lítri matarolía til að steikja úr 1. Leggið saltfiskinn í bleyti í kalt vatn í 24 klst. Skiptið oft um vatn. Sjóðið hann síðan í saltlausu vatni í 10 mínútur. Takið roðið af og fjarlægið öll bein. 2. Sjóðið kartöflurnar, afhýðið þær. 3. Hreinsið roð og bein úr nýja fiskinum og skerið í smábita. 4. Setjið saltfisk, kartöflur og nýja fiskinn í hrærivél- arskál og hrærið vel saman. Hafið ekki mikinn hraða á vélinni. 5. Bætið múskati og pipar saman við. Setjið síðan súrmjólkina hægt út í og hrærið vel á miili. 5. Mótið með höndunum litlar bollur á stærð við val- hnetu. 6. Veltið bollunum upp úr hveiti, sláið eggið sundur með vatninu, veltið síðan bollunum upp úr því og loks raspinu. 7. Hitið matarolíuna í litlum potti og steikið bollurnar í henni. Steikið bara fáar í einu. 8. Leggið bollurnar á eldhúspappír sem sogar feitina í sig. 9. Haldið bollunum heitum meðan þið eruð að steikja. Best er að setja þær í bakaraofn á meðan. Meðlæti: Snittubrauð, sem rifur eru skornar í og osti stungið í rifurnar. Hitað í bakaraofni um leið og boll- urnar. Blaðsalat, tómatbátar og gúrkusneiðar er gott með. Saltfiskstappa á brauði Handa 4 600 gr fiskur, 500 g kartöflur, 3 hvítlauksgeirar, 1 dl matarolía, 2 dl mjólk, Vt tsk. nýmalaður pipar, 8 grófar brauðsneiðar, smjör til að smyrja brauðið með 1 msk niðurklipptur ferskur, frystur eða þurrkaður graslaukur 1. Leggið saltfiskinn í bleyti í kalt vatn í 24 klst. Skiptið oft um vatn. Sjóðið hann síðan í nýju saltlausu vatni í 10 mínútur. Takið roðið af og fjarlægið öll bein. 2. Sjóðið kartöflurnar, afhýðið siðan. 3. Afhýðið hvítlaukinn. 4. Setjið saltfiskinn og kartöflurnar í hrærivélarskál, merjið hvítlaukinn út í. Setjið pipar út I. Hrærið vel saman. 5. Hrærið olíuna og mjólkina hægt út í. 6. Smyrjið brauðsneiðarnar. Skiptið síðan stöppunni jafnt á þær. Stráið graslauk yfir. 7. Hitið bakaraofn í 200°C og bakið þetta í 10 mínútur. Meðlæti: Gúrkur og tómatar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.