Morgunblaðið - 10.03.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
B 19
gripsmeira en okkar. Ég held að
okkur sé tamt að hugsa okkur
réttlæti sem dygð einhvers skipu-
lags, frekar en sem eiginleika ein-
staklinga. Við tölum um réttlátt
þjóðfélag, réttlát lög, réttláta
skiptingu og svo framvegis. Hjá
Platóni er réttlæti fyrst og fremst
dygð einstaklinga og því fer stund-
um betur á því að þýða „dik-
aiosyne" með orðunum „réttvísi"
eða „réttsýni". En þetta leysir ekki
allan vandann, því Platóni eru
ofarlega í huga réttlát og ranglát
verk, sem hljómar afkáralega á ís-
lensku og hef ég stundum brugðið
á það ráð að þýða ranglát verk sem
afbrot."
2
— Ein spurning áður en við
snúum okkur að sjálfri rökfærsl-
unni Eyjólfur, hvers vegna var
Platóni svo mjög í mun að sýna
fram á að réttlæti sé mönnum til
góðs?
„Grunnhugmyndirnar í siðfræði
Grikkja voru dygðir og lestir.
Dygðirnar eru ósköp einfaldlega
þeir eiginleikar sem gera menn að
góðum mönnum ..."
— Góðum í hvaða skilningi?
„Nokkurn veginn í sama skiln-
ingi, held ég, og við tölum um að
fólk sé kostum búið. Hvort það er
mönnum sjálfum endilega til góðs
að vera dygðugir var jafn opin
spurning hjá Grikkjum og það er
hjá okkur í dag. Og það er einmitt
þess vegna sem Platón veltir fyrir
sér spurningum á borð við þá hvort
maður sé nokkru bættari með
dygðina. Einkum virðist það vafa-
samt að menn græði ávallt á því að
vera réttlátir, því réttlátur eða
réttsýnn maður lætur ekki eigin
hagsmuni ráða öllum gerðum -sín-
um. Dygðir eins og hugrekki, hóf-
semi og skynsemi virðast hins veg-
ar falla betur að þeirri skoðun að
menn séu bættari með að hafa þær
en skorta.
En það eru einmitt þessar efa-
semdir sem valda Platóni áhyggj-
um, því ef menn græða ekkert á
því að vera dygðugir, því í ósköp-
unum skyldu þeir vera það? Með
öðrum orðum, er nokkur ástæða til
að breyta siðferðilega? Þetta er í
fyrsta skipti í sögunni sem þessari
mikilvægu spurningu er varpað
fram, en hún hefur komið víða við
síðan. Það var til dæmis einn meg-
intilgangur siðfræði Kants að
reyna að sýna fram á að dygðin
hafi gildi i sjálfri sér: að það hafi
sjálfstætt giídi að breyta siðferði-
lega, alveg óháð því hverjar afleið-
ingarnar eru.“
3
„í fyrstu bók Ríkisins rökræðir
Sókrates við nokkra viðmælendur
um spurninguna „Hvað er rétt-
læti?“ Hann lendir þar í manni að
nafni Þrasymakkos sem setur
fram þá kenningu að réttlæti sé
það sem er hinum sterka í hag.
Hugsunin er sú að réttlæti sé
ákvörðunaratriði þeirra sem völd-
in hafa. Það eitt er réttlæti sem sá
sterki segir að sé réttlæti. Þessi
skoðun er ekki alveg út í bláinn
eins og dæmin sanna: í Suður-Afr-
íku heitir það til dæmis ranglæti
að svartur maður leiti sér vinnu á
almennum vinnumarkaði.
Sókrates reynir að kveða Þras-
ymakkos í kútinn, og tekst það að
nafninu til. En vinir Sókratesar,
Glákon og Adeimautos, eru ekki
sáttir við niðurstöðuna og haida
rökræðunni áfram og setja fram
skýringu á því hvers vegna fólk
heldur réttlætið almennt í heiðri: í
fyrndinni ríkti ástand glundroða
og skipulagsleysis, þar sem hver
maður otaði sínum tota og hirti
ekkert um hverjar afleiðingar
gerðir hans hefðu fyrir náungann.
Menn hafa síðan séð í hendi sér að
slíkt ástand er óbærilegt: i því felst
að enginn getur verið öruggur um
sig. Því gerðu þeir eins konar sam-
komulag um innbyrðis samskipti
sín og þetta samkomulag er upp-
runi réttlætis og laga. Menn sáu
sem sagt, að það, þegar á allt er
litið, var meiri gróði í því að halda
réttlætið í heiðri, en iifa við stríðs-
ástand, þar sem hver og einn væri
í baráttu við alla aðra. Þessi kenn-
JF KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
EXTIR
IKUNHAR
Bananar Del Monte — Appelsínur Jafta — Appelsínur Mar-
okk — Blóöappelsínur Marokk — Epll rauö ungversk — Epli
rauö USA — Epli rauö USA Independent — Epll graen
Granny Smith — Epli gul frönsk — Sitrónur Jaffa —
Greipfruit Jaffa — Melónur gular El Salvador — Melónur
hvítar — Melónur hvítar Jamaica — Melónur gular Brasilía —
Vinber blá Cape — Perur ítalskar — Perur Cape — Perur
Argentína — Avocado — Plómur Ijósar — Ferskjur — Nekt-
arinur — Mango — Ananas — Kókoshnetur — Kiwi —
Pomelos — Granatepli —
Einnig mikiö úrval greenmetis.
EGGERT KRISTJÁNSSON HF
Sundagörðum 4, sími 685300.
EKKIBARA VERÐIÐ
Vlð höfum veríð ófeimnlr við að benda á hið
ótrúlega góða verð á SKODA. Verðið er þó aðeins ein
af ástæðunum fyrir því að þú gerir mjóg góð kaup þegar
þú festir þér þennan sterka og trausta bíl.
SKODA ER ÞÆGILEGUR
Komdu og sestu upp í bíl hjá okkur og aktu einn
hring, þá finnurðu best hvað SKODA er rúmgóður
og hversu gott er að keyra hann. Rýmið og þægindin
gera hann að afburða ferðabíl sem leikur í höndum
bílstjórans og farþegum líður vel í.
GOÐ KJOR
Til viðbótar besta verði sem býðst í dag eru kjörin
mjög góð hjá okkur. Helmingur út og eftirstöðvar á
6-8 mánuðum. Við tökum auðvitað gamla
SKODANN uppí kaupverðið, og jafnvel aðrar
tegundir líka, hver veit.
STYRKUR OG
ÞJOri USTUÖRYGGI
Allir vilja geta treysta bílnum sínum, vilja að hann
sé úr góðu efni, sterkur og vel smíðaður. Svo þarf
varahluta- og viðgerðarþjónustan auðvitað
að vera í lagi ef eitthvað kemur fyrir.
SKODA er einn af þeim bílum sem þú getur
treyst, hann er mjög sterkbyggður og þjónusta
okkar nýtur viðurkenningar allra SKODA
eigenda og hefur gert í áraraðir.
METSOLUBILL
í DANMÖRKU
SKODA hefur árum saman verið mest seldi bíll í
Danmörku. Allir vita að Danir eru hagsýnir menn
og fljótir að finna hvar þeir gera bestu kaupin.
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2 KOPAVOGI SIMI 42600