Morgunblaðið - 10.03.1985, Síða 34
34 T5
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
Páskaföndur
Nú er ekki nema mánuður til páska. Fyrir þær sem ætla að vera
myndarlegar býður Dyngjan upp á hugmyndir að páskaskreytingum,
sem auðvelt er að búa til, og sem börnin geta einnig verið með í að
útbúa. Prjónuðu páskahænsnin eru þó aðeins fyrir þá sem kunna að
prjóna. Og hér kemur uppskriftin að þeim:
Ein hnota ljósgult bómullar-
garn nr. 8 eða eitthvert annað
gult garn í sömu þykkt, afgangur
af rauðu garni, smá enda af
dökkgulu, og svörtu fyrir augun.
Prjónar nr. 3, heklunál nr. 3.
Fitjið upp 20 lykkjur og prjón-
ið 5 sm garðaprjón (allar um-
ferðir slétt), fellið af 10 lykkjur
og prjónið 3 sm á lykkjurnar 10
sem eftir eru. Fellið af.
Prjónið tvö stykki og saumið
saman, nema að neðan. Ofan á
höfuðið heklið þið 4 rauða
kamba (takka) þannig: 3 loft-
lykkjur, eina fastalykkju á milli
takkanna. Endurtakið þetta
þrisvar i viðbót, slitið endann og
gangið frá honum. Nefið er einn
„takki" úr dökkgulu.
Undir nefið heklast „flipi“
(goggurinn) með rauðu, 4 loft-
lykkjur, stingið heklunálinni
niður í stykkið og festið með 1
fastalykkju. Festið endann.
Saumið út augun og búið til lít-
inn ílangan dúsk sem stél. Troðið
bómull í höfuðið til að hænsnin
beri sig betur þegar þau eru
komin ofan á eggin í eggjabikur-
unum. En einnig má nota
hænsnin sem borðskraut ein-
göngu, til dæmis þannig: Á mitt
borðið er settur spegill eða speg-
ilgler, þar ofan á vasi með
páskaliljum og gul kerti.
Hænsnin eru svo öll troðin út
með bómull og þau sett kringum
borðskreytinguna. Reynið bara,
það er alveg þess virði.
Páskahérar
Hér er svo önnur hugmynd að
eggjahlíf, auðvelt að búa tii úr
fílti eða þéttu bómullarefni.
Þessir hérar eru gulir og grænir
i tilefni páskanna. Teiknið hér-
ann eftir sniðinu (2 stk.) og jafn-
framt tvö samskonar stykki úr
strau-„vlísilíni“ til að hafa innan
í. Saumið trýni með nokkrum
sporum með hvítu eða svörtu,
notið gler eða plastperlur fyrir
augu, eða bara pínulitlar tölur.
Saumið svo stykkin saman með
þéttu sig-sag-spori. Brjótið kant-
inn inn að neðan eftir brotnu lín-
unni, og hérinn er tilbúinn.
Páska-nafnspjöld
Gul kjúklingakort við hvern
disk lífga upp á páska-matborð-
ið. Klippið þau út úr gulum
pappa eða karton, teiknið augu
og nef með svörtum og rauðum
tússpenna.
Brjótið pappann eftir strikuðu
línunni, þá standa kortin alveg
stöðug.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Meistarastigaskráin
— 13 stórmeistarar
Meistarastigaskrá Bridgesam-
bands íslands 1984/1985 er
væntanleg út i næstu viku. í
henni er að finna nöfn 2013 ein-
staklinga sem hlotið hafa stig í
keppni hér á landi, frá 1. mars
1976 til 1. janúar 1985. Efstu
menn skv. nýju skránni eru:
Þórarinn Sigþórsson BR 825
Ásmundur Pálsson BR 701
Guðlaugur R. Jóhannsson BR 684
Jón Baldursson BR 682
örn Arnþórsson BR 682
Valur Sigurðsson BR 603
Sigurður Sverrisson BR 600
Símon Símonarson BR 581
Guðmundur P. Arnarson BR 558
Jón Ásbjörnsson BR 541
Karl Sigurhjartarson BR 505
Hörður Arnþórsson BR 504
Sævar Þorbjörnsson BR 501
Guðmundur Sv. Hermannsson BR 464
Stefán Guðjohnsen BR 452
Hjalti Elíasson BR 432
Guðmundur Pétursson BR 413
Óli Már Guðmundsson BR 368
Þorgeir P. Eyjólfsson BR 335
Jón Hjaltason BR 306
Björn Eysteinsson BH 305
Sigtryggur Sigurðsson BR 292
Þórir Sigurðsson BR 291
Ólafur Lárusson BR 273
Hermann Lárusson BR 262
Þorlákur Jónsson BR 262
Sverrir Ármannsson BR 256
Aðalsteinn Jörgensen BH 249
Hörður Blöndal BR 243
Gestur Jónsson TBK 239
Þetta eru 30 efstu spilararnir í
dag. Alls hafa 72 spilarar hlotið
100 meistarastig eða meir. Þar
af eru 13 spilarar komnir yfir
500 stiga stórmeistaramarkið,
eins og sjá má. Flestir hafa hlot-
ið stig hjá Bridgefélagi Akureyr-
ar, alls 151 spilari. Næst kemur
BR meö 133 spilara og loks
Breiðfirðingar með 122 spilara.
Alls eru 44 félög innan Bridge-
sambands íslands. Má ætla að
virkir félagar innan Bridgefé-
laga séu um 2.500—3.000. Senni-
lega er þessi tala varlega áætluð.
Meistarastigaskránni verður
dreift til allra félaganna 44,
þannig að allir spilarar innan
vébanda BSf ættu að geta nálg-
ast hana fljótiega upp úr miðj-
um mars.
Umsjón með útgáfu Meistara-
stigaskrár höfðu þeir Jón Bald-
ursson, ólafur Lárusson og Vig-
fús Pálsson (tölvuvinnsla).
Henni er dreift ókeypis.
íslandsmótið í
sveitakeppni
Dregið hefur verið í riðla í
undanúrslitum fslandsmótsins í
sveitakeppni. Þeir eru þannig
skipaðir:
A-riðill (Akureyri)
1. Grimur Thorarensen Kópa-
vogi.
2. Sigmundur Stefánsson
Reykjavík.
3. Bjarki Tryggvason Sauðár-
króki.
4. Sveit Úrvals Reykjavík.
5. Örn Einarsson Ákureyri.
6. Þórarinn Sigþórsson Reykja-
vík.
B-riðill
1. Guðbrandur Sigurbergsson
Reykjavík.
2. Jón Hauksson Vestmannaeyj-
um.
Vacuum
pökkunarvélar
t
Plastprent hf. býður nú
„vacuum“-vélar fyrir pökkun á
hvers konar matvöru, s.s. físki,
kjöti og fleiru.
eykur mjög notagildi þeirra.
Leitið nánari upplýsinga hjá
söludeild okkar.
Vélamax eru Vestur-Þýsk
gæðaframleiðsla frá BOSS
GmbH og eru fáanlegar í
fjölbreyttu úrvali. Hægt er að fá
allar vélamar með loft-
skiptibúnaði (gas-flush), sem
Plastprent hf.
Samstilltur hópur i stöðugri sókn
Höfðabakka 9,110 Reykjavik
Simi 685600