Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 2

Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTfJDAGUR 10. MAÍ1985' Kópavogskaupstaður úthlutar Húsatækni lóðum: Reisa 15.000 fermetra hús í miðbænum — 11 stórhýsi reist á 7 ánim með hóteli, veit- ingastað, verzlunar- og skrifstofuhúsnæði SAMNINGAR eru á lokastigi milli bæjaryflrvalda í Kópavogi og bygg- ingarfyrirtækisins Húsatækni hf. um byggingu mannvirkja uppá 15.000 fermetra í miðbæ Kópavogs, en sam- kvæmt samningnum sem verður til afgreiðslu hjá bæjarráði Kópavogs í dag fær Húsatækni úthlutað lóðum undir 11 bús á byggingarreit sem afmarkast af Pélagsheimilinu í Kópavogi og af gjánni annars vegar og af Utvegbankanum og Hamra- borg hins vegar. Eitt húsið sem um ræðir verður byggt yfir gjána. Um er að ræða framkvæmdir sem reiknað er með að sjái dagsins ljós á næstu sjö árum, en í öllum þessum bygging- um er ráðgert að verði aðallega verslunar- og skrifstofuhúsnæði, en einnig hótel og veitingastaður samkvæmt upplýsingum Braga Michaelssonar bæjarráðsmanns i Kópavogi. Húsatækni hf. mun þegar hefj- ast handa um hönnun svæðisins þegar samningur hefur verið und- irritaður, en auk þess að byggja Bjórinn enn til um- ræðu á Alþingi FRAMHALD8UMRÆÐUR voru 1 neðri deild Alþingis í gær um bjórmál- ið og var þeim haldið áfram í gær- kvóldi eftir kvöldmatarhlé. Sjá nánar á þingsíðu. svæðið á eigin ábyrgð mun Húsa- tækni sjá um að byggja fyrir Kópavogskaupstað bílastæði og göngustíga á byggingarsvæðinu. Alls er ráðgert að 420 bílastæði verði við þessi mannvirki sem að rúmmáli eru áætluð 57 þúsund rúmmetrar. hbmBII Svæðið, sem fyrirhugaðar byggingar munu rfsa á i i 7 árum. Fiskneysla minnkar líkur á hjartasjúkdómum: Góð tíðindi og ýta vafa- laust undir fisksöluna — segir Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater Seafood Corporation NIÐURSTAÐA hollenzkra vísinda- manna þess efnis að fiskneyzla minnki líkur á hjartasjúkdómum hefur vakið verulega athygli I Bandaríkjunum. Magnús tiústafs- son, forstjóri Coldwater, segir, að þessi tíðíndí séu okkur mjög þýð- ingarmikil og ýti vafalaust undir sölu á fiski í Bandaríkjunum. Spurn- :ngin sé hve langan tíma það taki, en þegar að þvf komi, verðum við að vera tilbúin að mæta aukningunni með slíka gæðavöru, að hún sé yfir allan vafa hafin. Magnús sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að frétt þessi hefði verið mjög áberandi i öllum helztu fjölmiðlum Bandaríkjanna. Mikill áhugi væri fyrir fiskáti í Bandarikjunum og fólk teldi sjálfu sér trú um það, að það borð- aði miklu meiri fisk en það gerði i raun og veru. Það vissi hve hollur hann væri og þessi tíðindi ýttu Breska stjómin ítrekar mótmæli sín: Reiðubúnir að halda viðræðunum áfram — og leysa málið með samningum, segir sendiherra Breta á Islandi um áraraðir eignað sér Rockall og svæðið þar í kring. „Éti HEF nýlega minnt íslensk stjórnvöld á að breska stjórnin vísaði kröfum íslendinga um Hatton-Rockall-svæðisins á bug í nóvember. Það gerum við enn,“ sagði Richard Thomas, sendi- herra Breta á íslandi, í samtali við blaðamann Mbl. í framhaldi af útgáfu reglugerðar utanríkis- ráðuneytisins um réttindakröfur íslenskra stjórnvalda á svæðinu. Eins og kunnugt er hafa Bretar Bretar svara Dönum vegna Rockall: Krafan í bága við alþjóðalög BREZKA utanríkisráðuneytið sendi frá sér í gær mótmæli vegna kröfu Dana til umráða á RockaH-svæðinu. Segjast Bretar líta svo á að krafa Dana brjóti í bága við alþjóðalög og hyggjast þeir fylgja mótmælum sín- um eftir með formlegum hætti og áskilja sér allan rétt í málinu, að sögn talsmanns utanríkisráðuneyt- isins brezka, sem blm. Mbl. ræddi við í gærkvöldi. Hann sagði enn- fremur, að e.Lv. mætti vænta við- bragða Breta við kröfum íslendinga í dag, föstudag. Brezki talsmaðurinn sagði enn- fremur, að utanrikisráðuneytinu hefði ekki gefist tfmi til að hug- leiða kröfur íslendinga og því hefði ráöuneytið ekki sent frá sér formlega yfirlýsingu. Aðspurður um, hvort hugsanlegt væri, að send hefði verið út óformleg yfir- lýsing sagði hann, að sér væri eingöngu — sem talsmanni — unnt að upplýsa um formlegar yfirlýsingar, allir gætu gefið út óformlegar yfirlýsingar. Hann sagði ennfremur varð- andi yfirlýsingu Breta vegna kröfu Dana, að ráðuneytið brezka myndi fylgja henni eftir með formlegum mótmælum þar sem þeir áskildu sér allan rétt í mál- inu. Hann sagði að iokum, að e.t.v. mætti vænta viðbragða Breta við kröfum íslendinga strax í dag, föstudag. Sendiherrann sagði að af hálfu bresku stjórnarinnar hefði komið fram í nóvember, „að við værum reiðubúnir að halda áfram þeim viðræðum, sem höfðu farið fram í nokkur ár á milli sérfræðinga stjórna landanna, ef íslendingar kærðu sig um. Svör við því hafa ekki borist, enda munu islensk stjórnvöld hafa talið svar okk- ar þá svo afdráttarlaust, að ekki væri um mikið að tala. „Fyrr í dag (fimmtudag) fékk ég um það orðsendingu frá islenska utanríkisráðuneyt- inu, að af hálfu íslendinga væri litið svo á, að það sé samt sem áður um ýmislegt að tala i þessu sambandi. Það er ljóst aö islenska ríkisstjórnin kýs að leysa ágreining landanna i þessi máli með samningum. Það er og hefur sömuleiðis ver- ið stefna bresku stjórnarinnar að þetta mál beri að leysa meö samningum," sagði sendiherr- ann. „Okkur þykir leitt að af út- gáfu þessarar reglugerðar hafi orðið, þótt hún hafi ekki komið á óvart, en við teljum málið mjög alvarlegt," sagði Richard Thomas sendiherra að lokum. ennfremur undir það og væru því góðar fréttir fyrir okkur. Það virt- ist þó vanta herzlumuninn upp á það, að sannfæringin yrði að at- höfn, að fólk færi að borða fiskinn. Nýjar upplýsingar gæfu til kynna að fiskneyzla á mann í Bandaríkj- unum færi vaxandi. 1983 hefði neyzlan verið 12,9 pund á mann en á siðasta ár: virtist hún hafa verið 13,5 pund á mann. Þarna væri hreyfing upp á við, en hún væri að visu mikið til í skelfiski. Vonandi væru þetta fyrstu merki þess, að fólk yki neyzluna i samræmi við það, sem það segði. „Allar svona niðurstöður koma okkur vel og eru okkur geysimikil hjálp. Rannsóknin byggðist á fiski úr söltu vatni, sjó, en það er ekki þar með sagt að ferskvatnsfiskur sé ekki eins hollur. Þetta ýtir því vafalaust undir söluna, en óvíst er hve lengi árangurinn er að koma í ljós. Þegar lagið kemur verðum við að gæta þess að vera með vöru, sem hentar til neyzlu og er um- fram allt góð. Þegar fólk fer að borða fisk af því hann er hollur og góður, má það alls ekki verða fyrir vonbrigðum. Það er númer eitt fyrir fiskseljendur, þegar fólk fer að taka mark á svona, að það verði ekki fyrir vonbrigðum með því að fá skemmda vöru,“ sagði Magnús Gústafsson. „Tilboð um hrossakaup“ „OKKUR koma svona hrossakaupa- tilboð ákaflega spánskt fyrir sjónir. Við sjáum ekki hvaða efnislegu rök eru fyrir því að tengja saman tillögur um boðveitur og auglýsingar," sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálf- stæðisflokksins varðandi þá yfirlýs- ingu Jóns Baldvins Hannibalssonar formanns Alþýðuílokksins á Alþingi, að flokkurinn sé tílbúinn til að sam- þykkja frjálsar auglýsingar nýrra sjónvarps- og útvarpsstöðva, að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum. Mál þetta var rætt í þingflokki Sjálfstæðisflokksins i fyrradag. Þorsteinn sagði ennfremur: „Ég trúi því ekki að Alþýöuflokkurinn ætli að sýna það í atkvæðagreiðslu um þessi mál að hann láti lögmál hrossakaupanna ráða afstöðu sinni, eins og tilboðið gefur til kynna að þeir ætli að gera.“ Skreiðarsalan: Dregur til tíðinda innan tveggja vikna? „Éti GERI mér vonir um að við fáum að vita innan tveggja vikna hvort af skreiðarsölu til Nígerfu verður um þessar mundir eða ekki. Taki maður mark á því, sem okkur hefur verið sagt, ætti maður að vera vongóður, en að fenginni reynslu vil ég þó ekkert fullyrða um sölumöguleika," sagði Ólafur Björnsson, stjórnarformaður Samlags skreiðarframieiðenda, f samtali við Morgunblaðið. Fulltrúar helztu skreiðarútflytj- enda, Skreiðarsamlagsins, Sam- bandsins og íslenzku umboðssöl- unnar, hafa verið vikum saman f Nígeríu til að leita eftir innflutn- ingsleyfum en þau hafa enn ekki fengizt og eru þeir nú komnir heim. Talið er að verðmæti skreiðar og hertra hausa hér á landi nemi um 2,5 milljörðum króna. Engin inn- flutningsleyfi fyrir skreið hafa ver- ið gefin út i Nígerfu í tæplega eitt og hálft ár og eiga Norðmenn einn- ig í miklum vandræðum vegna mik - illa skreiðarbirgða. Talið er að verðmæti birgða þeirra nemi um 3 milljörðum íslenzkra króna. Ólafur sagði, að flest hefði verið á móti okkur í þessum málum upp á siðkastið. Fyrst i stað hefði það ver- ið ætlunin að ganga frá skreiðar- samningum við opinbert innkaupa- fyrirtæki, en þá hefðu orðið þar skipti á yfirmönnum. Næst hefði verið farið með málið í viðskipta- ráðuneyti Nígeríu, en þar hefðu þá einnig orðið skipti á æðstu mönnum til tafa lúkningar málsins. Loks mæti taka það til, að Norðmenn hefðu boðið Nígeríumönnum skreið fyrir um 1,3 milljarða íslenzkra króna og jafnframt boðizt til að fjárfesta fyrir þá upphæð í Nígeriu. Þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar Níg- eríumanna þess efnis að skipta ekki við Norðmenn, væri talið líklegt, að af þessum viðskiptum gæti orðið og rýrði það sölumöguleika okkar talsvert.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.