Morgunblaðið - 10.05.1985, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
í línudansi
r
Igærdagsgrein minni stóð:
Héldu sumir fundarmenn því
fram að bestu listdómarnir væru
gjarnan innblástur af huglægu
mati... Hér átti að standa ...
innblásnir af ... Hvað um það,
áfram með smérið, einsog menn
kannski muna snérist gærdags-
grein mín að mestu um fund
gagnrýnenda í Bakarabrekkunni,
en sá fundur varð mér tilefni til
hugleiðingar um sjónhorn þess
þáttar er ég rita hér í blaðið, en ég
hef sjálfur orðið að marka þann
sjónarhól. Tel ég vænlegast að sá
sjónarhóll sé sem hæstur þannig
að þau efnisatriði dagskrárinnar,
sem rýnd eru hverju sinni, tengist
þeirri þjóðmálaumræðu er glym-
ur í eyrum þann daginn. En jafn-
framt hef ég kosið að ræða nánast
í trúnaðiið hinn ímyndaða les-
anda úti í bæ og skammast mín
ekkert fyrir að vera ögn persónu-
legur ef svo ber undir. Ritaði ég
raunar gærdagsgrein mína í þeim
tilgangi að fá álit ykkar lesendur
góðir á þessum vinnuhætti.
Smá leyndarmál
upplýst
En á meðan ég bíð dómsúr-
skurðar ykkar, þá held ég mínu
gamla vinnulagi og mun ég nú
upplýsa mál nokkurt, er tengist
óbeint núverandi skrifum mínum
hér í blaðinu um ríkisfjölmiðlana.
Svo er mál með vexti að sá er hér
stýrir penna ritaði fyrir nokkru
heimildarskáldverk sem sumir
hafa reyndar nefnt fyrstu ís-
lensku vísindaskáldsöguna. Ég
ætla ekki að lýsa þessu skáldverki
nánar fyrir lesendum, en get upp-
lýst að mér fannst við hæfi að
lesa verkið í útvarp. Vissi sem var
að slíkur flutningur er allvel
launaður og veitir nýstárlegum
verkum oft brautargengi á bóka-
markaði. Nú, ég labbaði náttúr-
Iega sem leið lá með handritið upp
í útvarpshús og var vísað þar inn
á skrifstofu varadagskrárstjóra.
Þessi opinberi embættismaður
reyndist vera afar glæsileg kona,
fáguð í framkomu og kurteis i
hvívetna. Afhenti ég handritið og
hvarf við svo búið á braut. Leið nú
og beið en ekki bólaði á upphring-
ingu. Að lokum gafst ég upp á
biðinni enda fjárþurfi. Dagskrár-
fulltrúinn ljómaði í framan þegar
ég birtist á þröskuldinum.
„Hvernig hefurðu farið að því að
safna öllu þessu efni?“ Ég lýsti
fyrir henni fimm ára streði mínu
við upplýsingaöflun hér heima og
erlendis. „Já, þetta er alveg stór
merkilegt, en er þetta ekki svolít-
ið pólitískt hjá þér? Þú veist við
verðum að gæta hlutleysis. En ég
skal sjá hvað ég get gert í mál-
inu.“
Sandropov var það
heillin
Nokkrum vikum síðar er ég aft-
ur mættur inná sólskinsbjarta
skrifstofu dagskrárfulltrúans.
„Já, ég er búinn að ræða þetta við
útvarpsstjóra og hann segist ekk-
ert skipta sér af þessu og formað-
ur útvarpsráðs ekki heldur.“ „Nú,
er þá nokkuð til fyrirstöðu að lesa
söguna?" Bláminn af Viðeyjar-
sundum speglast í augasteinum
varadagskrárfulltrúans. „Tja,
fulltrúi A-flokksins las þetta nú
yfir og sagði hugmyndina ekki al-
veg nýja. En okkur kom samt
saman um að það væri allt í lagi
að lesa verkið ef þú værir til í að
breyta nafninu þarna á honum
hvað hann heitir ... Andropov.
Gætirðu ekki kallað hann til
dæmis Sandropov eða Alexan-
drof? Þú veist að við verðum að
gæta hlutleysis i hvívetna og þeir
eru fljótir að hringja frá sendi-
ráðinu.“ Síðan hef ég ekki komið í
útvarpshúsið við Skúlagötu.
Ólafur M.
Jóhannesson
Ctvarp/sjónvarp
„Þýskaland44
— bresk heimildamynd
■■ Bresk heimild-
30 armynd er
*"“ nefnist „Þýska-
land“ er á dagskrá sjón-
varpsins klukkan 21.30 í
kvöld og fjallar hún um
skiptingu Þýskalands í
austur og vestur og við-
horf manna beggja vegna
Berlínarmúrsins um
áframhaldandi skiptingu.
Þýskalandi var skipt í
austur og vestur í lok síð-
ari heimsstyrjaldarinnar
fyrir réttum fjörutíu ár-
um. í kvikmyndinni er
hressilega tekið á málun-
um og farið niður í saum-
ana. Komið er víða við og
m.a. talað við Kohl,
Brandt, skólabörn og aðra
beggja vegna múrsins.
Þeim sem stjórna fyrir
austan múr finnst ekki
verið að loka neinn inni
heldur sé fólk mjög frjálst
og afsiappað. Þetta kemur
fram hjá „toppmönnun-
um“ fyrir austan, en lítið
er hægt að tala við almúg-
ann þar vegna skipulags-
ins.
í raun hafa engir frið-
arsamningar verið samdir
og eru þeir sem reknir
voru frá heimilum sínum
óhressir með skipan mála.
Þýðandi myndarinnar
er Jón O. Edwald.
„Átrúnaöargoð“
— bresk bíómynd
■■■■ Bresk bíómynd
0015 er mynd
~~ kvöldsins í
kvöld og nefnist hún
„Átrúnaðargoð" Myndin
er frá 1948 og er gerð eftir
sögu Graham Greene.
Leikstjóri er Carol Reed,
en í aðalhlutverkum eru
Ralph Richardson, Mich-
ele Morgan, Bobby Henr-
ey, Sonia Dresdel og Jack
Hawkins.
Sjónvarpsáhorfendur
geta hlakkað til kvöldsins
þar sem kvikmynda-
handbókin okkar gefur
myndinni hæstu einkunn,
eða fjórar stjörnur.
Myndin gerist í sendi-
herrabústað í Lundúnum.
Barnungur einkasonur
sendiherrahjónanna verð-
ur mjög hændur að bryt-
anum í húsinu. Honum er
þó ofviða að skilja atburði
sem gerast í heimi full-
orðna fólksins og koma
vini hans í mikinn vanda.
Eiginkona brytans er leið-
indakvenmaður og ferst í
slysi. Brytinn á hins vegar
ástkonu sem er starfs-
maður sendiráðsins.
Barnið fer strax að
gruna að eitthvað meira
liggi að baki dauða eigin-
konu brytans en slysni
ein. Kvikmyndahandbók-
in segir að myndin sé
mjög góð spennumynd úr
heimi fullorðna fólksins,
en séð með augum barns-
ins.
Þýðandi er Rannveig
Tryggvadóttir.
Kannski einhverjir „drepi í“ í síðasta sinn eftir þáttinn í
kvöld?
„Ekki
eg
■■IH „Ekki ég“ nefn-
90 40 ist þáttur sem
“11 “- er á dagskrá
sjónvarpsins klukkan
20.40 i kvöld en Tóbaks-
varnanefndin lét gera
myndina og fjallar hún
um skaðsemi reykinga.
Mörg fyrirtæki hafa
jtutt nefndina við gerð
myndarinnar en þau eru
Daihatsu-umboðið, Flug-
ieiðir, íslenska álfélagið,
íslenska járnblendifélag-
ið, Morgunblaðið, Sam-
oand íslenskra samvinnu-
Félaga, Verslunarmanna-
Félag Revkjavíkur, Versl-
nnarráð Islands og Vinnu-
/eitendasamband íslands.
Þátturinn er 20 mínútna
anfimr.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
10. mal
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi 7.20
Leiktimi. Tilkynningar.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Siguröar G. Tómas-
sorvar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorö — Sigrún
Schneider talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Bláa barnið" eftir Bente
Lohne. Sigrún Björnsdóttir
les þýöingu slna (5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr).
10.45 .Það er svo margt að
minnast á“
Torfi Jónsson sér um þátt-
inn.
11.15 Morguntónleikar
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar
12.20 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
14.00 „Sælir eru syndugir" eftir
W.D. Valgardson. Guörún
Jörundsdóttir les þýöingu
slna (6).
14.30 A léttu nótunum
Tónllst ur ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar Tónleikar
16.00 Fréttir Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar
a. Stef fyrir enskt horn og
hljómsveit eftir Anton Reicha
og Concertino fyrir enskt
horn og hljómsveít eftir Ga-
etano Donizetti. Heinz Holl-
iger leikur með Concertge-
bouw-hljómsveitinni I Amst-
erdam. David Zinman stjórn-
ar.
b. Planókonsert I a-moll op.
214 eftir Carl Czerny. Felicja
Blumenthal leikur meö
Kammersveit Vlnarborgar.
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaöur Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19J5 Krakkarnir I hverfinu.
Fjórtándi (Játtur.
Kanadlskur myndaflokkur
um hversdagsleg atvik I llfi
rtokkurra borgarbarna.
Þýöandi Kristrún Þóröar-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 „Ekki ég"
Þessa mynd iét Tóbaksvarn-
arnefnd gera um skaðsemi
tóbaksreykinga Eftirtaldir
aöilar studdu nefndina viö
gerð kvikmyndainanr: Dai-
hatsu-umboðið, Flugleiöir.
Helmut Froschauer stjórnar.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.55 Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þor-
steinn J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka
a. Helgar meyjar. Sigurrós
Erlingsdóttir fjallar um helgi-
10. maí
íslenska Alfélagið, islenska
járnblendifélagið, Morgun-
blaðiö, Samband Islenskra
samvinnufélaga, Sölumiö-
stöö hraðfrystihúsanna,
Verslunarmannafélag
Reykjavlkur, Verslunarráö is-
lands og Vinnuveitendasam-
band fslands.
21.00 Skonrokk.
Umsjónarmenn Haraldur
Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.30 Þýskaland.
Bresk heimildamynd um lok
slðari heimsstyrjaldarínnar
fyrir réttum fjörutlu irum,
skíptingu oyskalands og
viðhorf til nennar nu.
Þyðandi Jón 0. Edwald
22.15 Atrunaöargoö
sögur er hafa konu sem aö-
alpersónu.
b. Kórsöngur. Skagfirska
söngsveitin syngur. Stjórn-
andi: Snæbjörg Snæbjarn-
ardóttir.
c. Kvennabarátta vinnukon-
unnar á Bessastöðum.
Ragnar Agústsson tekur
saman og flytur. Umsjón:
Helga Agústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum
Atli Heimir Sveinsson kynnir
.Xanties" fyrir flautu og pl-
(The Fallen Idot) s/h.
Bresk blómynd frá 1948
gerð eftir sögu eftir Graham
Greene.
Leikstjóri Carol Reed.
Aðalhlutverk: Ralph Rich-
ardson, Michéle Morgan,
Bobby Henrey, Sonia Dresd-
el og Jack Hawkins.
Myndin gerist I sendiherra-
bústað I Lundúnum. Barn-
ungur einkasonur sendi-
herrahjónanna verður mjög
hændur að brytanum í hus-
inu. Honum er bó ofviöa að
skilja atburöi sem gerast
heimi fullorðna fólksins og i
stofna vini hans i mikinn j
vanda
výöandi Rannveig T yggva- i
dóttir
, 23.50 Fréttir I dagsKrárlok.
anó eftir Atla Heimi Sveins-
son.
22.00 Tönleikar
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 Úr blðndukútnum —
Sverrir Páll Erlendsson.
(RÚVAK)
23.15 A sveitallnunni:
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(RÚVAK)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
FÖSTUDAGUR
10. maf
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Sigurður Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dótlir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ölafsson.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 1L00, 15:00,
16:00 og 17:00.
Hté.
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: /ignir Sveins-
son og ^orgeir Astvaldsson
(Rásirnar samtengdar að
lokinni dagskrá rásar 1.)
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR