Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 10. MAÍ1985
7
Tv*r Flugleidavélar á flugvelliiiiim í Vestmannaeyjum.
Flugsamgöngur við
Eyjar með bezta móti
Vestmannaeyjum, 7. maí.
FLUGSAMGÖNGUR við Vestmannaeyjar hafa verið með allra besta móti
frá áramótum og umtalsverð aukning orðið í farþegaflutningum Flugleiða.
Fyrstu fjóra mánuði þessa árs fluttu Flugleiðir 4236 fleiri farþega milli lands
og Eyja en sömu mánuði í fyrra, 9607 farþegar í ár en 5371 1984.
Veðrið hefur leikið við þá Flug-
leiðamenn og þessa fjóra mánuði
hafa aðeins komið 18 dagar þar
sem með öllu tók fyrir flug vegna
veðurs. Bragi í. ólafsson, umdæm-
isstjóri Flugleiða, sagði i samtali
við Mbl. að á tveimur dögum, 25.
og 26. apríl sl., hefðu Flugleiðir
flutt 834 farþega til og frá Eyjum
í 16 flugferðum. Þarna hefðu m.a.
verið á ferð ráðstefnugestir á veg-
um IBM sem hefðu skroppið í
stutta dagsferð til Eyja. Bragi
sagðist búast við verulegum far-
þegaflutningi í sumar, ferða-
mannastraumurinn til Eyja færi
jafnt og þétt vaxandi. Sumaráætl-
un Flugleiða tekur gildi 24. maí og
verða þá þrjár ferðir á dag til
Eyja en yfir hásumarmánuðina
verður fjórðu ferðinni bætt við
þrjá daga vikunnar. — hkj.
Fjölmennt í FhigstöðinnL
Eskifjörður og Reyðarfjörðiin
N emendatónleikar
tónlistarskólans
EskirirAi, 9. maí.
HALDIÐ verður upp á 10 ára afmæli Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðar-
fjarðar dagana 11.—12. maí. Þessir tveir staðir hafa frá byrjun rekið tónlist-
arskólann sameiginlega og hafa kennarar ekið milli staðanna.
Nemendatónleikar verða nú klukkan 14, en þeir síðari í Félags-
með öðru sniði en áður hefur ver- lundi á Reyðarfirði sunnudags-
ið, það er að segja nemendur kvöldið 12. maí klukkan 21.
beggja staðanna munu heimsækja 38 nemendur munu leika á þess-
hina og spila með þeim. Fyrri
tónleikarnir verða í Valhöll á
Eskifirði laugardaginn 11. maí
um afmælistónleikum. Kaffiveit-
ingar verða á báðum stöðunum að
loknum tónleikunum. Ævar
Kaupmannahöfn:
Nemendasýning í glugga-
skreytingaskólanum
JónshuNÍ, 30. aprfl.
NÝLEGA var sýning í Du Pont-skálanum á Friðriksbergi á gluggaskreyting-
um nemenda. Ber skólinn nafn stofnanda síns og skólastjóra og hafa tæp-
lega 30 íslendingar stundað þar nám þau 26 ár, sem skólinn hefur starfað.
Nemendur skólans eru 25 tals-
ins og kallast dekoratörar eftir
námið þar, en meða! námsgreina
má nefna skiltagerð, stafagerð,
teikningu, silkiprent og útstill-
ingar Útlendir nemendur hafa
alltaf verið margir við skólann,
jafnvei frá Japan, en Norðmenn
verið flestir Hefur skólinn verið
fullsetmr og færn komist þar að
en vildu enda hafa nemendur það-
an setið fyrir un vmnu hjá mörg
um fyrirtækjum
Á hmn árlegu sýningu er
keppni um bezt skreytta sýn-
ingargluggann, en þeir eru alls 10
stórir og margir litlir. Gluggi
þeirra Elsu Bergmundsdóttur og
Irisar R. Þrastardóttur með fata-
útstillingu varð í öðru sæti og
hafði íris einnig hannað skreyt-
ingartákn sýningarinnar. Einnig
fékk gluggaskreyting Árna
Tryggvasonar á leirtaui góða
dóma og var heildarsvipur sýn-
ingarinnar hinn smekklegasti
G.LÁsg.
Tónlistarskólinn í Reykjavík:
Þrennir burtfarartónleikar
TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík
beldur þrenna burtfararprófstón-
leika á næstunni. Fyrstu tónleikarn-
ir verða laugardaginn 11. maí kl.
14.00 í sal skólans að Skipholti 33.
Þórunn Guðmundsdóttir mezzó-
sópran syngur lög eftir Bach — Pál
ísólfsson — Schubert og Bartók.
Selma Guðmundsdóttir leikur undir
á píanó. Kennari Þóninnar er Elísa-
bet Erlingsdóttir.
Aðrir tónleikarnir verða sunnu-
daginn 12. maí kl. 17.00 i sal skól-
ans að Skipholti 33. Jóhann T. Ing-
ólfsson leikur á klarinett verk eft-
ir C. Tartini, Malcolm Arnold,
Þorkel Sigurbjörnsson o.fl. Guð-
rún Óskarsdóttir leikur með á pí-
anó. Kennari Jóhanns er Einar Jó-
hannesson.
Þriðju og síðustu tónleikarnir
verða í sal skólans mánudaginn
13. maí kl. 18.00. Þar syngur Helga
Björk Grétudóttir mezzó-sópran
við undirleik Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur lög eftir Atla Heimi
Sveinsson, Brahms, Sibelius o.fl.
Kennari Helgu er Sieglinde Kah-
man Björnsson.
Aðgangur að tónleikum þessum
er ókeypis.
Elgilsstaðin
Nýr sveitar-
stjóri tekinn
til starfa
EgikrtMum, 7. nui.
I GÆR tók Sigurður Símonarson við
starfi sveitarstjóra á Egilsstöðum af
Guðmundi Magnússyni sem gegnt
hefur starfinu allt frá árinu 1974.
Tíðindamaður Mbl. hitti Sigurð
sem snöggvast mitt í erli fyrsta
starfsdags hans á sveitarstjórn-
arskrifstofum Egilsstaðahrepps.
„Mitt fyrsta verk sem sveitar-
stjóri hefur verið að leggja loka-
hönd á undirbúning almenns
borgarafundar um hreppsmálefn-
in sem haldinn verður í kvöld —
og undirbúa hreppsnefndarfund á
morgun — auk almennra bréfa-
skrifta og funda með forvera í
starfi, tæknifræðingi og skrif-
stofustjóra," — sagði Sigurður.
„Jú, það er rétt, þetta hefur ver-
ið mikill annadagur og e.t.v.
dæmigerður fyrir starfið. Það er
krefjandi og annasamt — en ákaf-
lega spennandi og heillandi að
minu mati.“
Sigurður Símonarson var ráð-
inn sveitarstjóri Egilsstaðahrepps
í febrúar síðastliðnum. Hann er
kennari að mennt og hefur starfað
við kennslu um árabil á suðvest-
urhorni landsins.
— Ólafur
Morgunblaftift/Ólafur
Sigurður Simonarson. sveitarstjór
Egilsstaðahrepps
BRÖADW/
Boröapantamr eru i Broadway daglega í aíma 77500.
Tryggiö ykkur miöa atrax í dag því aíöaat var uppaelt.
Kynningarkvold
í Broadway 24. maí
Krýningarkvöld
í Broadway 27. maí.
Glæsilegasta hátiö arsins
og nú glæsilegri en nokkru
sinni fyrr.