Morgunblaðið - 10.05.1985, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1985
Í4
Nýja riugstöðvarbyggillgin. Morgunbltóií/Arni Helgason
Flugstöðin í
Stykkishólmi vígð
Stjkkúhólmi, 4. maí.
f GÆR kl. 17 var formlega tekin f
notkun flugstöðvarbygging f
Stykkishólmi, en hún stendur f út-
jaðri flugvallarins. Hefir verið f
byggingu undanfarin 2—3 ár. Er
þetta vegleg framtíðarbygging, 270
fm að grunnfleti með stjórnturni
og lækjura. Þar er þægileg skrif-
stofa fyrir starfsmann, sem nú er
Sigfús Sigurðsson. Þá er stór far-
þegasalur og afgreiðsla um leið.
Salur fyrír pakka og farangurs-
geymslu, snyrtiherbergi og eldhús.
Að þessari byggingu er mikil bót
og þau öryggistæki sem þar eru
eiga eftir að þjóna sínu hlutverki
og leiðbeina mörgum ferðamann-
inum í flugi.
Athöfnin hófst með lúðra-
sveitarleik Lúðrasveitar
Stykkishólms undir stjórn Daða
Þ. Einarssonar. Siðan talaði séra
Gisli H. Kolbeins og blessaði
bygginguna og bað farsældar
öllum sem þar kæmu nærri og
kirkjukórinn söng undir stjórn
Jóhönnu Guðmundsdóttur. Þá
tók til máls Matthías Bjarnason
Sigfús Sigurðsson, starfsmaður
fhigvallaríns í Stykkishólmi.
samgönguráðherra og flutti
fróðlega og ágæta ræðu um
flugmál og önnur samgöngumál
Snæfellinga fyrr og síðar. Hann
minntist áfanga í sögu flugmál-
anna og minnti á að fyrsta flug-
vélin hefði lent í Stykkishólmi
1928 um leið og bílaöldin var að
renna þar í garð. Þá sagði
Matthías að ekki væri hægt að
hugsa sér flugsamgöngur án
vega og minntist átaka i vega-
málum á Snæfellsnesi seinustu
árin, minnti á veginn fyrir Enni
og þær stórkostlegu bætur sem
þar hefðu verið gerðar og hann
hefði kostað rúman helming þess
sem áætlað var. Þá minnti hann
á veginn frá Helgafellssveit og
niður i Stykkishólm sem nú
verður gerður varanlegur á
þessu ári o.fl., o.fl. Gat um land-
nema og byggð á Helgafelli og
klaustur þar og sagði að það
væri ánægjulegt að vita til þess
að nú væri klaustur í nágrenni
Helgafells þar sem st. Fransisk-
ussystur rækju líknarstarfsemi
og hefðu gert um mörg ár. Þakk-
aði hann hér vel unnin störf og
óskaði Hólmurum og þeim sem
nota ættu þennan völl til ham-
ingju og bað sannrar blessunar
þessum áfanga í flugmálum.
Pétur Einarsson flugmálastjóri
tók þvínæst til máls og fagnaði
mannvirki þessu og þakkaði
samgöngumálaráðherra trausta
og góða samvinnu og skilning á
samgöngubótum flugmála. Þessi
áfangi væri ekki kominn í höfn
án hans áhuga.
Rakti hann síðan gang flug-
vallargerðar hér i Stykkishólmi
og minntist sérstaklega áhuga
Jóhanns Rafnssonar, sem af
hugsjón og velvilja hefði alltaf
verið driffjöður í að koma þess-
um málum fram, hann hefði ver-
ið vakandi og aldrei látið flug-
málastjóra í friði eins og hann
komst að orði með fyrirhyggju
og athygli hefði hann verið hið
vökula auga flugmálastjórnar og
hert á framkvæmdum. Hann
færði byggingunni mynd af Jó-
hanni sem hann taldi að færi vel
á vegg farþegasalarins og minnti
á hugsjón og óeigingirni. Það er
mikið verk enn eftir hér við flug-
völlinn sagði Pétur og hið fyrsta
þarf að gera gott plan i kringum
flugstöðina til að varna því að
menn vaði þar í for. Þetta stend-
ur allt til bóta. Við eigum vökul-
an mann í samgöngumálum
landsins.
Jóhann Rafnsson tók svo til
máls og þakkaði sér sýndan
sóma. Um leið rakti hann í
nokkrum orðum baráttuna fyrir
flugsamgöngum hér við Stykk-
ishólm, sagði frá leitinni að
flugvallarstæði sem tók sinn
tíma og það skilja þeir sem hér
eru kunnugir. Fagnaði þessum
áfanga og sagði að nú hefði birt í
þessum málum hér, minntist
þeirra sem hér hefðu vel unnið
og þakkaði flugmálastjórn og
samgönguráðherra.
Sturla Böðvarsson sveitar-
stjóri Stykkishólmi flutti þakkir
bæjarbúa og afhenti flugstöð-
inni loftmynd af Stykkishólmi
og verður henni valinn staður í
flugstöðinni.
Þá flutti Friðjón Þórðarson fv.
dómsmálaráðherra kveðjur
þingmanna Vesturlands en þeir
voru 3 mættir við athöfnina eða
helmingur. Hann óskaði þessum
áfanga blessunar í framtíðinni.
Fulltrúi frá Arnarflugi afhenti
mynd af farsælli flugvél félags-
ins en Arnarflug rekur nú áætl-
unarflug milli Reykjavíkur og
Stykkishólms. Þá má ekki við
þennan pistil skiljast að ekki sé
minnst hins farsæla flugkappa
Björns Pálssonar sem var fyrsti
áætlunarflugmaður hér um slóð-
ir og barðist af áhuga fyrir
byggingu flugvallar hér. Þá var
öllum boðið í veitingar af rausn,
en þá var ég farinn enda klukkan
farin að ganga 8 og maturinn
beið heima. Fjöldi manns var við
athöfnina og var þetta mikill há-
tíðisdagur i lífi Hólmara. Þökk
öllum sem hér hafa lyft verulegu
átaki.
Árni
Kirkjur á landsbyggðinni:
Fermingar á sunnudag
Fermingarborn í Eyrarbakkakirkju
sunnudaginn 12. maí kl. 13.30.
Fermd verda:
Arnþór Björgvinsson,
Skúmstöðum.
Gísli Jónsson,
Túngötu 18.
Guðfinna Kristjánsdóttir,
Háeyrarvöllum 6.
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir,
Glóru, Hraungerðishr.
Guðmundur Hreinn Emilsson,
Eyrargötu 7.
Guðrún Jóhannsdóttir,
Kirkjuhúsi.
Guðrún Hulda Ólafsdóttir,
Hvoli.
Ingólfur Hjálmarsson,
Alfsstétt 3.
Kjartan Þór Helgason,
Hvammi.
Sigmundur Unnar Traustason,
Túngötu 36.
Sigurður Þór Emilsson,
Eyrargötu 7.
Sigurður Sigurmundsson,
Háeyrarvöllum 8.
Sigurjón Halldór Birgisson,
Merkisteini.
Stefán Þór Bjarnason,
Háeyrarvöllum 18.
Stefán örn Oddsson,
Búðarstig 1.
Valgeir Sveinsson,
Háeyrarvöllum 22.
Fermingarbörn í Selfosskirkju
sunnudaginn 12. maí kl. 10.30.
Fermd verða:
Aðalbjörg Skúladóttir,
Dælengi 1.
Andrés Ingi Jóakimsson,
Austurvegi 33.
Auðunn Ingi Jóakimsson,
Austurvegi 33.
Anna Kristín Ingvarsdóttir,
Miðengi 9.
Ásta Andrésdóttir,
Hörðuvöllum 4.
Ásta Sigríður Birkisdóttir,
Fossheiði 24.
Eiríkur Orri Guðmundsson,
Engjavegi 83.
Eyþór Österby,
Gauksrima 22.
Grímur Sigurðsson,
Suðurengi 21.
Gunnar Valur Gunnarsson,
Hrísholti 22.
Hafdís Grétarsdóttir,
Fagurgerði 8.
Hanna Bjarnfríður Hreiðarsdóttir,
Stekkholti 21.
Hjalti Eggertsson,
Lambhaga 20.
Ingunn Guðjónsdóttir,
Stekkholti 30.
Jóhanna Benediktsdóttir,
Miðengi 19.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Suðurengi 3.
Kristján Geir Gunnarsson,
Breiðumörk 26, Hveragerði.
Laufey Guðmundsdóttir,
Víðivöllum 19.
Leó Árnason,
Skólavöllum 7.
Lilja Sighvatsdóttir,
Miðengi 13.
Lýður Geir Guðmundsson,
Grashaga 21.
Sesselja österby,
Lágengi 20.
Sigurður Bogi Sævarsson,
Sunnuvegi 3.
Steindór Guðmundsson,
Hrísholti 20.
Svava Steingrímsdóttir,
Fagurgerði 10.
Valgeir Gunnar Reynisson,
Hjarðarholti 5.
Valgerður Una Sigurvinsdóttir,
Lambhaga 44.
Þórdís Fríða Frímannsdóttir,
Lágengi 8.
Fermingarbörn í Selfosskirkju
sunnudaginn 12. maí kl. 14.00.
Fermd verða:
Brynhildur Fjóla Hallgrímsdóttir,
Hjarðarholti 4.
Eiríkur Harðarson,
Kirkjuvegi 27.
Eyrún Soffía Birgisdóttir,
Smáratúni 18.
Guðfinna Tryggvadóttir,
Birkivöllum 9.
Guðjón Öfjörð Einarsson,
Fossheiði 56.
Herbert Oddur Pálsson,
Heimahaga 10.
Haukur Snær Guðmundsson,
Vallholti 38.
Ingibjörg Erlendsdóttir,
Sigtúni 36.
Iris Jónsdóttir,
Þóristúni 17.
ívar örn Gylfason,
Miðtúni 7.
Kolbrún Ylfa Gissurardóttir,
Víðivöllum 17.
Jón Páll Kristófersson,
Sunnuvegi 8.
Kristgerður Garðarsdóttir,
Vallholti 45.
Kristján Örn Hilmarsson,
Suðurengi 20.
Kristrún Þórkelsdóttir,
Eyrarvegi 5.
Martha Ann Thaagaard,
Engjavegi 2.
Óli Kristján Ármannsson,
Úthaga 1.
ólöf Guðmundsdóttir,
Tryggvagötu 5.
Ólöf Þóra ölafsdóttir,
Reynivöllum 8.
Ragnar Guðmundsson,
Víðivöllum 8.
Sigrún Hildur Guðmundsdóttir,
' Lambhaga 46.
Skúli Már Gunnarsson,
Sunnuvegi 10.
Sigurður Gísli Þorsteinsson,
Háengi 14.
Steinunn Kristin Hafsteinsdóttir,
Hrísholti 18.
Sævar óli Þórisson,
Úthaga 16.
Ferming á Reynivöllum í Kjós 12.
maí.
Fermd verda:
Jón Bjarnason,
Þorláksstöðum, Kjós.
Lára Magnúsdóttir,
Eyjum 2, Kjós.
Þórarinn Jónsson,
Hálsi 1. Kjós.
Kirkjur á
landsbyggðinni:
Messur
SEYÐISFJARÐARKIRKJA: Guðs-
þjónusta á súnnudaginn kl. 14.
Kirkjukór Egilsstaðakirkju syngur
undir stjórn söngstjóra síns við
messuna og sóknarpresturinn, sr.
Vigfús Ingvarsson, prédikar. Sókn-
arprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Stefán Lárus-
son.
Bfldudalur:
Námskeið
og vorhátíð
Bfldudal. 9. aul.
SJÁUVTÆÐISFÉLAG Arnarfjarðar
verður með námskeið, sem hefst á
morgun klukkan 20.30 ( félagsheimil-
inu Baldurshaga. Yfirskrift nám-
skeiðsins er „Ræðumennska og
fundarsköp". Leiðbeinandi er Einar
Karl Guðfinnsson. Námskeiðið er öll-
um opið og ókeypis.
Á laugardagskvöld fer síðan fram
vorhátið félagsins í Baldurshaga og
hefst klukkan 23. Þar skemmtir
hljómsveitin Hersveitin frá Pat-
reksfirði. Gestur samkomunnar
verður Einar Karl Guðfinnsson,
varaþingmaður kjördæmisins.
Formaður Sjálfstæðisfélags Arn-
arfjarðar er Bjarney Gísladóttir.
— Hannes.