Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 15
MORGUNBLADIÐ, FÓSTUDAGUR10. MAÍ1985
Verkalýðsleiðtogar um leiðir í kjarasamningum á árinu:
Trygging kaupmátt-
ar er meginmálið
f VIÐTÖLUM sem birt voru í Mbl. 1. maí sl. við launafólk kom
m.a. fram, að margt af því telur, að í komandi samningaviðræð-
um eigi að reyna „aörar leiðir“, eins og það var orðað, þ.e.
eitthvað annað en krónutöluhækkun launa. Þá töldu margir við-
mælendur blaðsins, að rétt hefði verið sem semja um skatta-
lækkunarleið á síðasta ári. í tilefni af þessu var rætt við nokkra
verkalýðsleiðtoga og fara svör þeirra hér á eftir:
Krónutöluhækkanaleiðin
verið reynd til þrautar
Bjarni Jakobsson formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks,
sagði, að það hefði sannast enn á
ný eftir síðustu samninga, að hin
áratugagamla leið, þ.e. krónu-
töluhækkun hefði aðeins enzt í
smátíma. Hann sagði aðspurður
í lokin, að hann hefði heyrt þetta
sjónarmið víða meðal verk-
smiðjufólks, en þó væru ekki all-
ir þessarar skoðunar.
Verjast kaupmáttarhrapi
Jón Karlsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Fram á
Sauðárkróki, sagði, að hann
hefði talið skattalækkunarleið-
ina hina réttu sl. haust. Hins
vegar hefðu aldrei verið neinar
forsendur fyrir henni þá. Hann
sagði síðan: „f fyrsta lagi vegna
þess að í rauninni kom aldrei
neitt haldbært frá ríkisstjórn-
inni um þetta og þá var verið að
ræða þessa leið í skjóli
BSRB-deilunnar, sem alltaf var
vitað að fengi allt annan endi en
skattalækkunarleið."
Jón sagði aðspurður, að hann
væri ekki að segja að skatta-
lækkunarleiðin væri sú rétta
núna. „Talandi um skattalækk-
unarleið núna, vil ég fyrst fá það
á borðið, hvernig ríkið ætlar að
mæta henni. Hvar á að skera
niður, hvað á að koma í staðinn.
Ég er auðvitað tilbúinn til að
skoða þetta, en hitt er alveg
ljóst, að verkefni næstu mánuða
er að verjast kaupmáttarhrap-
inu,“ sagði hann að lokum.
Ríkið að borga fyrir
atvinnurekendur?
Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélagsins í Vest-
mannaeyjum, sagðist vita, að
margt fiskverkunarfólk hefði
áhuga á að leggja meira á sig en
það gerði núna. Hins vegar væri
margt af þessu fólki aðeins með
dagvinnutekjurnar sléttar og því
með litla skatta. Hann sagði: „Þá
er talað um neikvæða skatta, en
er þá ekki verið að tala um að
láta ríkið borga fyrir atvinnu-
rekendur?"
Vonast eftir
auknum kaupmætti
Magnús L. Sveinsson, formað-
ur Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, sagði, að þessi
viðbrögð launafólks hefðu ekki
komið sér á óvart. Hann sagði
ennfremur: „Það verður að segja
eins og er að við höfum gífurlega
reynslu af því að krónutölu-
hækkun launa hefur verið tekin
af okkur um það leyti, sem blek-
ið hefur verið að þorna á undir-
skrift samninga. Það hefur ekki
skilað sér í formi aukins kaup-
máttar til launþega. Magnús
sagðist tilbúinn til viðræðna um
skattalækkunarleið á ný og sagði
í lokin: „Það kemur mér ekki á
óvart að fólk sé opið fyrir að
reyna aðrar leiðir, en þá eru
menn auðvitað að vonast eftir
leiðum sem skila auknum kaup-
mætti.“
Kaupmátt, enn
meiri kaupmátt
Þröstur ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar, rakti
fyrst þá umræðu um skatta-
lækkunarleið sem átt hefði sér
stað á síðasta ári og sagði m.a.:
„Þessi leið var reynd og þá í
framhaldi af því að menn van-
treystu ríkisstjórninni það mik-
ið, að þeir vissu að hún myndi
reyna að taka allar kauphækk-
anir til baka, sem samiö yrði um,
nema hendur hennar yrðu
bundnar." Aðspurður um, hvort
hann teldi að reyna ætti skatta-
lækkunarleið að nyju á þessu ári,
sagði Þröstur: „Eg tel að for-
sendur séu aðrar núna, en ég tel
að það sé árangurinn en ekki að-
ferðin sem skiptir máli í sam-
bandi við þetta. Ég tel eðlilegt að
það verði reynt að finna út
áhuga stjórnvalda á þvi að finna
lausnir, sem skila kaupmætti á
einn eða annan hátt.“
Þröstur var spurður í lokin,
hvern hann teldi hug félags-
manna í Dagsbrún vera. Hann
svaraði: „Tónninn er þessi: kaup-
máttur, meiri kaupmáttur og
enn meiri kaupmáttur."
>
Ævar Breiðfjörð umdæmisstjóri Kmanishreyfingarinnar á fslandi afliendir
Jóhannesi Sigmundssyni, forseta Gullfoss, stofnskrá kiwanis.
Kiwanisklúbburinn
Gullfoss vígður
SyAra-Langholti, 2. maí.
ÞANN 28. nóvember sl. var stofn-
aður hér í Hrunamannahreppi
Kiwanisklúbburinn Gullfoss.
Þann 20. apríl var svo þessi klúbb-
ur formlega vígður í Kiwanis-
hreyfinguna með veglegri vígslu-
hátíð sem fram fór í félagsheimil-
inu á Flúðum. Sóttu um 140
manns þessa hátíð, m.a. margir
fulltrúar frá hinum ýmsu Kiwan-
isklúbbum á landinu sem fluttu
hinum nýja klúbbi árnaðaróskir
og færðu góðar gjafir frá Kiwan-
isbræðrum víðsvegar af landinu.
Kiwanisklúbburinn Gullfoss er sá
fertugasti sem stofnaður er innan
Kiwanishreyfingarinnar hér á
landi. í honum eru 28 félagar, for-
seti nú er Jóhannes Sigmundsson,
ritari Magnús Grímsson, féhirðir
Kjartan Helgason, kjörforseti
Guðjón Emilsson.
Fréttaritari.
Félagar í Gullfoss á vígsluhátíðinni.
Ljósm. Sig.SiRm.
3R*«9tiiiW*fetfe
Gódan daginn!
VÍDIK
í kvöld
en til kl. 19 í Austurstræti og
Starmýri.
Glæsilegt úrval
í matvöru!
- Góð verð og
góð þjónusta.
Fjolbreyttar
Vörukynningar
AUSTURSTRÆT117 —STARMÝRI 2
— MJÓDDINNI