Morgunblaðið - 10.05.1985, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
Hvað var flutt
frá Skálholti?
— eftir Sigurð
Sigurðarson
Eins og kunnugt er af fréttum,
hefur þess nú verið minnst undan-
farið, að biskupsstóllinn í Skál-
holti var lagður niður fyrir tvö
hundruð árum. Var minning þessi
haldin í Dómkirkjunni í Reykjavík
sunnudaginn 28. apríl, og áður
hafði þess verið minnst við bless-
un hússins við Hólavöll, sem nú
hýsir starfsemi biskups fslands,
en svo vildi til, að þá athöfn bar
upp á sama mánaðardaginn og
dagsett er konungsbréfið um
niðurlagningu Skálholtsstóls fyrir
tvö hundruð árum. Sannariega er
okkur íslendingum þörf á því að
minnt sé á þessa atburði. Það leið-
ir hugann að aðdraganda þeirra
og að þeirri djúpu niðurlægingu
sem á eftir fór.
Við fyrrnefnda minningargjörð
um þessa atburði hefur stundum
verið talað um, að nú væru tvö
hundruð ár liðin frá því að bisk-
upstóllinn var fluttur frá Skál-
holti til Reykjavíkur. Tel ég, að í
slíku orðalagi gæti nokkurs mis-
skilnings. Hef ég raunar áður full-
yrt í Morgunblaðinu, að ekki hafi
enn verið lokið við að koma á fót
biskupsstóli í Reykjavík. Vil ég
með þessari athugasemd árétta
sjónarmið mitt.
Þegar Skálholtsstóll var aflagð-
Séra Sigurður Sigurðarson
ur, fluttist hann ekki til Reykja-
víkur. Hið eina, sem þangað flutt-
ist, var stöðugildið biskup Skál-
holtsstiftis, sem seinna varð
„Þegar Skálholtsstóll
var aflagður, fluttist
hann ekki til Reykjavík-
ur. Hið eina, sem þang-
að fluttist, var stöðu-
gildið biskup Skálholts-
stiftis, sem seinna varð
stöðugildið biskup ís-
lands.“
stöðugildið biskup íslands. Tekju-
stofnar Skálholtsstóls höfðu
smátt og smátt verið af honum
teknir, og við það verk var lokið
1785. Harðindum er ekki um að
kenna nema að litlu leyti, því að
þá hefðu prestssetrin í Odda eða
Gaulverjabæ eins átt að afleggj-
ast. Efnahagslega voru prestssetr-
in hliðstæðar stofnanir við bisk-
upsstólana, þó að á prestssetrun-
um væri allt smærra í sniðum.
Fyrsti biskupinn í Reykjavík,
Geir Vídalín, varð gjaldþrota á
Lambastöðum á Seltjarnarnesi.
Þá var skipuð nefnd til að rétta
við fjárhag hans. Sú nefnd lét
selja ?llar þær eigur hans, sem
hann hafði ekki augljós not fyrir,
og hún ráðstafaði rniklu af heimil-
isfólki hans annað. Þannig fékkst
nefndin eingöngu við fjárreiður
prívat manns, því að þar var ekki
við neinn biskupsstól að fást. Hon-
um var skammtað blek og pappír,
og hann endaði daga sína í leigu-
húsnæði, þar sem hann sat í óþökk
húseigandans. Eftir séra Geir var
skipaður nýr biskup, sem kunni
betur með einkafjárhag sinn að
fara, og svo hefur það gengið koll
af kolli, að biskupar hafa búið út
um allan bæ síðan og bjargast
misjafnlega. Nú er betur búið að
biskupi en fyrr. Ríkið sér honum
fyrir húsi. En þegar talað er um
að reisa biskupsstól i Reykjavík,
er ekki verið að biðja ríkið að sjá
biskupi fyrir íbúð, heldur er við
það átt, að biskupsstólar á Islandi
fái notið tekjustofna sinna, er
þeim hafa hlotnast gegnum ald-
irnar og eru einskis annars rétt-
mæt eign.
Biskupsstóll er ekki aðeins
stöðugildi. Biskupsstóll er ekki
heldur persóna biskupsins. Bisk-
upsstóll er stofnun, sem sjálf felur
í sér aðstöðu og möguleika til
biskupsþjónustu. 1 þessu felst að
biskupsstóll hefur sjálfstæða
Hvolsvöllur:
Vel heppnuð
HTobreUi, 2. mȒ.
Sjálfstæðisfélögin í Rangírvalla-
sýslu stóóu fyrir vorhátíð í Hellubíói,
30. apríl sl.
Iðnaðarráðherra Sverrir Her-
mannsson flutti ávarp, talaði
hann um stjórnmálaviðhorfið og
hin alvarlegri mál stjórnmálanna.
Hinir eldhressu bræður Halli og
Laddi fóru á kostum, fluttu mjög
góða dagskrá, voru klappaðir upp
hvað eftir annað.
0
Að lokum var stiginn dans Iangt
fram á nóttu og spiluðu þeir
Valdimar á Grenstanga, Jón I
BÍLGREINASAMBANDIÐ
^VORFUNDUR
Vorfundur Bílgreinasambandsins verður haldinn laugardaginn 11. maí nk. á
Hótel Sögu — hliðarsal.
Dagskrá:
Kl. 09:30
Kl. 10.00—11.15
Kl. 11.15—12.00
Kl. 12.00—14.00
Kl. 14.00—14.30
Kl. 14.30
Formaður BGS, Þórir Jensen, setur fundinn og flytur yfirlit
um starfsemi BGS að undanförnu.
Sérgreinafundir:
a) Verkstæðisfundur:
Viögerðarskýrsla.
Viðskiptaskilmálar.
b) Málningar- og réttingarverkstæði:
Nám bílamálara í Danmörku. Jóhann Halldórsson bíla-
málari. Hann greinir frá dvöl sinni í Iðnskólanum í
Silkeborg.
Viöskiptaskilmálar.
Viögerðarskýrsla.
c) Varahlutasalar og bifreiöainnflytjendur:
Breytingar í tollamálum — skráningargjald.
Horfur í bílainnflutningi.
Varahlutamál — Námskeið fyrir sölumenn varahluta.
d) Smurstöðvar:
Verölagsmál — taxtar
Staða í greininni
e) Hjólbarðaverkstæði:
Breytingar á verðskrá
Mennta- og fræðslumál — Hjörleifur Einarsson.
Endurskoðun á verkstæðum á Akureyri og nágrenni:
Svanlaugur Ólafsson.
Niðurstöður sérgreinafunda.
Hádegisveröur og hádegisveröarerindi: Ólafur W. Stef-
ánsson skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu fjallar um
endurskoöun umferðarlaga o.fl.
Sveinn Sigurðsson ræðir um skýrslu um „Þróun menntun-
ar í bílgreinum“ og hugmyndir um sérstaka tilraun meö
breytt fyrirkomulag á fræðslu í bílgreininni.
Önnur mál:
a) Umræða og atkvæðagreiðsla um úrsögn Bílgreina-
sambandsins úr Sambandi málm- og skipasmiðja.
Félagsmenn fjölmennið.
Bílgreinasambandið.
tekjustofna, sem biskupinn ráð-
stafar til þjónustu embættis síns á
þann hátt er helst megi gagna
fagnaðarerindinu að hans mati. í
þessu felst einnig að hann hefur
vald til að sinna verkefnum sínum
án þess að honum séu skömmtuð
til þess öll gögn og gæði af ver-
aldlegri valdstétt, hvort sem það
nú er pappír og blek eða nútíma
skrifstofutæki og vinnuafl. Enn
felst það í biskupsstóli að biskup
hafi dómkirkju, þar sem hann
ræður húsum og kennir kenningar
og stýrir helgihaldi svo oft sem
hann má því við koma. Biskups-
stóll er þannig ekki aðeins persóna
eða stöðugildi, heldur kirkjurétt-
arleg staðreynd, sem felur margt
fleira í sér, og hann er staðreynd,
sem að jafnaði tekur nokkurt rúm
í lagaramma viðkomandi þjóð-
lands.
Við skulum í alvöru íhuga að-
stöðu biskups íslands í dag. Hverj-
ir eru hinir sjálfstæðu tekjustofn-
ar, er standa undir biskupsþjón-
ustunni? Skyldi vera jafnræði I
öllum samskiptum biskups íslands
við ráðuneytin, eða skyldi honum
vera skammtað flest það, sem
hann hefur handa á milli, án þess
að útsjón hans sjálfs eða ráðdeild
geti þar miklu um breytt? Hvaða
kirkju ræður hann, og í hvaða
kirkju hefur hann lyklavöld?
Þetta þurfum við allt að íhuga áð-
ur en við sláum því föstu að bisk-
upsstóllinn I Skálholti hafi verið
fluttur til Reykjavíkur. Enn tel ég
að langt sé í land að lokið sé við að
koma á fót biskupsstóli í Reykja-
vík, þó að eitthvað hafi þokast í
áttina. Óskandi er að það mál
komist í höfn um sama leyti og
vígð verður hin nýja dómkirkja
Reykvíkinga. Ef það yrði hefðu
augu manna opnast fyrir gildi
biskupsþjónustunnar, og þá sæju
þeir einnig þörf þess að endurreisa
hina fornu biskupsstóla og skipta
biskupsdæminu á ný. Þá rynni upp
sú tíð, að Þjóðkirkjan héldi aftur
fyllilega höfði og gæti beitt sér
frekar þjóðinni til blessunar.
{ predikun í Dómkirkjunni þann
28. apríl síðastliðinn sagði biskup
íslands á þá leið, að nú væri horft
til nýrra tíma um endurreisn bisk-
upsstólanna fornu til viðbótar
biskupsstól í Reykjavík, sem með
nokkrum hætti mundi þó áfram
þjóna landinu í heild. Tökum á
með biskupi I þessu efni, svo að
framtíðarsýn hans verði brátt að
veruleika.
Höíuadur er sóknarprestur á Sel-
fossi.
vorhátíð
Hallgeirsey og Grétar í Áshól
fyrir dansi.
Alþingismaðurinn Árni Johnsen
lét ekki sitt eftir liggja og söng
með hjómsveitinni nokkur lög við
góðan orðstír. Þótti þessi skemmt-
un takast í alla staði mjög vel og
var vel sótt.
Vonast sjálfstæðismenn í Rang-
árvallasýslu að vorhátíð sjálf-
stæðisfélaganna verði árviss við-
burður hér eftir.
- Gils
reglulega af
ölmm
5 fjöldanum!
IltorgiimMfifrfö