Morgunblaðið - 10.05.1985, Page 22

Morgunblaðið - 10.05.1985, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, F'ÖSTUÐAGUE 10. MAÍ1983 Patreksfjörður: 10 % bæjarbúa við nám í tónlistarskólanum PatreluTirii, 6. nuu. TónlksUrliTiö hér á Patreksfirði hefur verið einsUklega gott og ijölbreytt siðustu 2—3 árin. Hér er sUrfræktur tónlisUrskóli með 105 nemendum eða um 10% bæjarbúa. Kennt er á flest hljóðfæri, nær öll blásturs- og strengjahljóð- færi. Næsta vetur er ætlunin að bjóða upp á kennslu í að spila á sög og sekkjapípu og er víst óhætt að fullyrða að slíkt standi ekki til boða hvar sem er. Sá sem byggt hefur upp þetta blómlega tónlistarlíf er norskur maður, Övind Solbakk, sem fluttist hingað fyrir þremur ár- um. Övind starfar sem organisti við kirkjuna og stjórn kirkju- kórsins. Innan vébanda tónlist- arskólans starfar einnig lúðra- sveit og barnakór. Lúðrasveitin hefur hlotið nafnið „Svörtu engl- arnir“. Þeir hafa komið fram opinberlega nokkrum sinnum og þannig viidi til að fyrsta skiptið var í sjónvarpinu. — S.Ö.L Demantar eða glópagull — eftir Jón Hjaltason „Því er hér aðeins tiplað á örfáum atriðum sem í samhengi við aðra þró- un gerðu Öskjuhlíð að einu glæsilegasta úti- vistarsvæði á byggðu bóli. Landrýmið í suð- vesturhlíðinni er til viðbótar það stórt að hugsuðurnir hafa nægt olnbogarými til að rölta um svæðið og ráða lífs- gátuna.“ Rétt sunnan við keilusalinn í Öskjuhlíð eru fjórar gríðarstórar djúpar gryfjur. Á stríðsárunum lagði breska hernámsliðið í gífur- legan kostnað til að sprengja út gryfjur þessar til að koma fyrir olíutönkum, kostnað sem ekki yrði lagt í nú. Gryfjurnar og umhverfi þeirra eru vonarperla stórkostlegs útivistarsvæðis fyrir alla Reykvík- inga sem aðra er borgina sækja. Kemur þar helst þrennt til. Stað- setning þeirra, einstakt skjól og auðveldur leikur með vatn. Útivistaröræfi Reykvíkingar hafa löngum verið lagnir við að gera sér mannvist- Jón Hjaltason arsvæði álíka fjölsótt og Sahara- eyðimörkin. Ekki þarf að líta lengra en til Miklatúns eða Hljómskálagarðsins. Því vaknar sú spurning hversvegna þeir sem völdin hafa falla sífellt i sömu gryfjunar þegar útivist ber á góma. Ástæðan er hin sama og hjá köngulónni sem gleymdi þræðin- um að ofan. Mannvistarsvæði verða að hafa aðdráttarafl. Svo fólk fáist til að koma og dvelja á útivistarsvæði er frumskilyrði að eitthvað sé við að vera, helst fyrir allar kynslóðir. Nú virðist nefndir borgarinnar hafa fundið snjalla lausn á að falla ekki rétt einu sinni í sömu gryfjuna. Snilldin fellst í því að byggja yfir hana. Það gleymist aðeins eitt atriði. Með því að byggja hús í gryfjun- um glatast sú vonarperla sem hefði að sönnu átt að verða öllum almenningi til ánægju og yndis- auka, og áfram ríkti gamla hug- Könnun á efni íslenskra dagbladæ Barnaefni af skornum skammti DAGBLÖÐIN hér á landi virðast öll eiga það sameiginlegt að í þeim er efni fyrir yngstu lesendurna af mjög skornum skammti. Þetta kemur m.a. fram í könnun á barnaefni í dagblöðum, sem unnin var hér á síð- asta ári á vegum norræns sam- starfshóps sem fjallar um börn og menningarheim þeirra (Barn og kultur). Samstarfshópur þessi var skipaður af norrænu ráðherra- nefndinni árið 1983 og er verkefni hans að fylgjast með því sem unn- ið er í hverju landi varðandi menningarheim barna, koma með hugmyndir og tillögur um sam- norræn verkefni og fleira sem snýr að börnum og þeirra þðrfum. Sígríður Ragna Sigurðardóttir kennari er fulltrúi íslands í sam- starfshópnum en tveir fulltrúar eru frá hverju hinna Norðurland- anna. Á fundi með fréttamönnum í vikunni kom fram að samstarfs- hópurinn hefur ákveðið að helga hverju ári ákveðið verkefni. Árið 1984 var valið verkefnið „Hlustið á bðrnin" og var tilgangur þess að beina athygli manna að tján- ingarmöguleikum og þátttöku barna í fjölmiðlum þ.e. útvarpi, sjónvarpi og blöðum. í nóvemberlok var haldin ráð- stefna í Danmörku og sóttu hana af íslands hálfu Salome Þorkels- dóttir alþingismaður, Gunnvör Braga dagskrárfulltrúi barnaefnis í útvarpi, Jenna Jensdóttir rithöf- undur og kennari, Margrét Thor- lacius ritstjóri og kennari og Sig- ríður Ragna Sigurðardóttir kenn- ari og fulltrúi íslands í sam- starfshópnum. Á ráðstefnunni lagði hvert land fram skýrslu um bðrn og menningarheim þeirra þar sem áhersla var lögð á þátt- Morgunblaðid/Bjarni Nokkrar þeirra sem unnu íslensku skýrsluna um börn og menningarheim þeirra. F.v. Sigríður Hrafnhildur Jónsdóttir, Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Gunnvör Braga og Jenna Jensdóttir. tðku barna í fjölmiðlum. I skýrslunni frá Islandi er m.a. að finna grein um börn og bók- menntir eftir Indriða Úlfarsson rithöfund og skólastjóra, skýrslu um barnaefni í útvarpi og sjón- varpi eftir Gunnvöru Braga og könnun á barnaefni í dagblöðum, eftir Sigríði Hrafnhildi Jónsdótt- ur fjölmiðlafræðing, sem vitnað var í hér að íramanverðu. Sigríður tók það skýrt fram á fréttafundinum að könnunin, sem hún gerði á tímabilinu 1.—14. mars á síðasta ári, væri ekki vís- indaleg rannsókn heldur eingöngu vísbending um það barnaefni sem dagblöð bjóða yngstu lesendunum upp á. Kvað Sigríður það vera ótrúlega lítið og væri hið sama upp á teningnum á hinum Norður- löndunum. Sigríður Ragna Sigurð- ardóttir fulltrúi íslands í sam- starfshópnum sagði að hópurinn legði á það mikla áherslu að reynt verði að bæta þetta með aukinni umfjöllun um börn og með því að gera börn virkari þátttakendur i fjölmiðlum. Gunnvör Braga dagskrárfulltrúi barnaefnis í útvarpi sagði að ákveðið hefði verið að stórauka efni fyrir börn og unglinga í hljóð- varpi og um næstu mánaðamót myndi hlutur barnaefnis aukast um 10 klst. á mánuði. Verkefni norræna samstarfs- hópsins á þessu ári verður sam- norrænn könnun á tómstundar- starfi 10—11 ára barna og verður sú könnun kynnt á ráðstefnu sem haldin verður í lok nóvember. Þá hefur hópurinn ákveðið að fjalla á næsta ári um kvikmyndir og myndvæðmgu með tilliti til barna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.