Morgunblaðið - 10.05.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
23
myndafræðin að útivist sé aðeins
fyrir náttúruunnendur og sérvitr-
inga.
Einstök paradís
Því fylgir lítill kostnaður að
leiða vatnið sem nú fellur í heita
lækinn og Nauthólsvík að gryfjun-
um. Koma fyrir misheitum og
misdjúpum pottum með eða án
titrings. Þá eru hæg heimatökin
að koma fyrir vatnsrennibrautum
fyrir yngri kynslóðina. í sæmi-
legum veðrum eru gryfjurnar
sannkallaður skjól- og hitapottur.
Það má ekki gleymast að fjöldi
Reykvíkinga ræður hvorki yfir
svölum né einkalóðum. Stéttir og
grænir blettir í þessu hlýjuskjóli
gera þeim kleift að slaka á með
börnunum, án sífelldra áhyggna
hvað hafi nú orðið af þeim.
Nokkur langborð og frambæri-
legt útigrill fyrir þá skynsömu
sem hafa með sér nesti. Lítill leik-
og starfsvöllur. Skiptiklefar og
útisturtur eru sjálfsögð fyrir busl-
ara og hlíðarskokkara. Útileikhús,
málstofa.
Ekki gerist þörf að hafa upp-
talninguna lengri. Möguleikarir
eru óþrjótandi. Því er hér aðeins
tiplað á örfáum atriðum sem í
samhengi við aðra þróun gerðu
Öskjuhlíð að einu glæstasta úti-
vistarsvæði á byggðu bóli. Land-
rýmið í suðvesturhlíðinni er til
viðbótar það stórt að hugsuðurnir
hafa nægt olnbogarými til að rölta
um svæðið og ráða lífsgátuna.
Fjármögnun
Vissulega kostar nokkurt fé að
koma framkvæmdinni f kring. Þá
er eðlilega spurt, hver á að borga.
Svo sem í öðrum framkvæmdum
er varða allan almenning hvílir
burðarásinn á borginni. Bæri hún
gæfu til að vinna verkið ekki með
útitaflsaðferðinni yrði litlu til
kostað fyrir stórkostlegt verk.
Borgin gæti síðan með margvís-
legu móti losnað undan rekstrar-
kostnaðinum.
Einnig kæmi til greina að borg-
in byði út aðstöðuna, legði til með
sér heitt og kalt vatn ásamt frá-
rennsli, raforku og bifreiðastæð-
um, en væri að öðru leyti alfarið
laus undan öðrum stofn- eða
rekstrarkostnaði.
Starfsmannafélag
Flugleiða, STAFF
Það sem áður er sagt í grein
þessari snertir umsókn STAFF
um byggingu íþrótta- og félags-
heimilis í gryfjunum.
Ekki er annað hægt en dást að
stórhug þessa myndarlega
starfsmannafélags. Ekki er að
heldur ástæða til að senda þá
bonleiða til búðar með lóðarum-
sókn sína. Svo vill til að u.þ.b.
2.5002 lóð er til staðar litlu neðar í
hlíðinni.
Enn betur vill til að lóð þessi er
þegar skógi girt og fjöldi bifreiða-
stæða er við bæjardyrnar.
Byggingarkosturinn er mörgum
milljónum ódýrari og síðast en
ekki síst fengist ómælt útsýni sem
ekki fæst úr gryfjunum góðu. öll
rök hníga að stórfellt hagkvæmari
kosti á þessari lóð nema ef vera
kynni hégóminn af gryfjuveggjun-
um, ef einhver er. Mér kæmi ekki
á óvart þótt verðmunurinn á bygg-
ingarkostunum nægði STAFF til
að byggja myndarlegt barnaheim-
ili.
Samviska
borgaryfirvalda
Það er á hinn bóginn samvisku-
spurning borgaryfirvalda hvort
Öskjuhlíð er réttur vettvangur til
að deila út aðstöðu til lokaöra fé-
lagssamtaka. Er ekki minnsta
gjöfin gefanleg að alir eigi jafnan
aðgang að eina vonarvangi borg-
arinnar?
Er ekki einnig kominn tími til
að starfrækja heita lækinn með
reisn í stað lágkúru?
Höíundur er veitingamaður.
Vterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Hagaskóli - Módel 1948
Nemendamót veröur haldiö í Naustinu miövikudag-
inn 15. maí og hefst kl. 19.00.
Þeir, em ekki hafa tilkynnt þátttöku, hafi samband
viö Naustiö, sími 17759, eöa Áslaugu, sími 31186,
fyrir 13. maí.
Fjölmennum. Nefndin.
Rauöi kross íslands
FRIÐUR
STUND MILLI STRÍÐA
EÐA VARANLEGT ÁSTAND?
Fundur veröur haldinn sunnudaginn 12. maí nk. í Norræna
húsinu og veröur fundurinn helgaöur minningu Henry Dunant og
Alþjóöadegi Rauða krossins, 8. maí.
Fundurinn hefst kl. 13:30 og honum lýkur kl. 17:30.
Dagskrá:
13:30 — Setning: Benedikt Blöndal, formaöur RKÍ.
13:40 — ímynd óvinar. Upplestur úr bókum og tímaritum þar
sem reynt er aö skapa ímynd óvinarins, sem þjóöar,
trúflokks eöa ríkis: Kristbjörg Kjeld.
14:00 — Ofbeldi í íslensku þjóðfélagi: Hildigunnur Ólafsdóttir.
14:20 — Hvaö er friöur? Björn Björnsson.
14:40 — Meö mannúö til friðar: Björn Friðfinnsson.
— Kaffi —
15:30 — Friöarfræösla: Guörún Agnarsdóttir.
15:50 — A Plea for Humanity — Kvikmynd ICRC.
16:30 — Heimsfriður og hlutverk íslendinga: Magnús T. Ólafs-
son.
16:50 — Umræöur meö virkri þátttöku frummælenda.
Fundarstjóri: Arinbjörn Kolbeinsson, formaöur
Rvk-deildar RKÍ.
+
JmuuesTunE
GERIR GÓÐAN BÍL BETRI!
Það er ótrúlegt hvað góðir hjólbarðar eins og
BRIDGESTONE gera fyrir bílinn.
Með BRIDGESTONE fæst frábært veggrip,
rásfesta og mikið slitþol. Tryggðu öryggi þitt og
þinna settu BRIDGESTONE undir bílinn — þeir
fást hjá hjólbarðasölum um land allt.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23, Sími 81299