Morgunblaðið - 10.05.1985, Page 26

Morgunblaðið - 10.05.1985, Page 26
ddKáí 1AM .01 IfUOAQUTííÖ^I ,iHQAlð^')OfíOK. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10.MAÍ 1985 Nýfætt ImmbiA sleikt Larab að koma í heiminn, sést í snoppu og fætur Alh á góðri leid, hausinn korainn út og lappirnar. Jóhannes markar tvflembinga áður en þeim er sieppL Reynt að stíga fyrstu skrefin. Mesti annatími sauðfjárbænda genginn í garð SAUÐBURÐURINN er hafinn um land allt og sums staðar, eins og til dæmis í Skaftafellssýslum, kominn vel áleiðis. Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands, sagði í samtali við Mbl. að útlitið væri mjög gott, frjósemi ánna góð og lítil vanhðld 6 'ömbum. Þá sagði hann að gott tíðarfar gerði sauðburðinn auðveldari fyrir bændur. Mesti annatími ársins „Frjósemin er með albesta móti. Svo til allar eldri ærnar eru tvílembd- ar og margar þær yngri. Ég reikna þetta ekki út frá degi til dags, eins og sumir gera, vil heldur nota tímann til að sofa,“ sagði Jóhannes Krist- jánsson bóndi á Höfðabrekku í Mýrdal í samtali við blaðamenn Mbl. sem heimsóttu hann fyrir skömmu. Jóhannes og raunar alit heimilisfólkið, var önnum kafinn við að sinnafénu þegar blm. bar að garði, en gaf sér þó tíma í smá spjall. „Þetta er mesti annatími ársins," sagði Jóhannes. „Við erum til skiptis í fjárhúsunum allan sólarhringinn á meðan á sauðburðinum stendur. Þetta er gífurlega mikil vinna og oft vill nú verða lítið um svefn.“ Jóhannes sagði að sauðburður hefði gengið vel það sem af er, góð frjósemi og engin alvarleg áföll. Fyrsta ærin á Höfðabrekku bar á páskadag, það var reyndar fyrir- málslamb. Hann sagði að almennt hefði sauðburðurinn þó ekki byrjað fyrr en með maí, fyrst yngri ærnar og þær sem sseddar voru i vetur. Á Höfðabrekku er sauðburðurinn í hámarki um þessar mundir en hann mun þó standa nokkuð fram eftir mánuðinum. „Hellirinn þar sem Flosi var drepinn“ Á Höfðabrekku eru um 500 ær. Þær eru látnar bera inni eins og víðast hvar nú til dags. Þegar ærnar eru bornar er farið með þær og lömbin úr stíunum í svokallaðar sólarhringskrær, þar sem þær eru einar með lömbum sínum fram á næsta dag. Þá eru lömbin mörkuð og gefið númer, sem skráð er með helstu upplýsingum inn i bók, og þeim síðan sleppt i afgirt hólf við fjárhúsin. Þegar talið er óhætt að sleppa hendinni af lambánum er þeim sleppt út á tún. Við túnið geta þær leitaö skjóls í hellinum „þar sem Flosi var drepinn". Er það hellir í Höfðabrekkuhálsi en í og við hellinn var hluti kvikmyndarinnar Hrafninn flýgur tekinn. Þar átti maðurinn sem Flosi Ólafsson lék heima og var veginn þar. Jóhannes samsinnti þvf að starf sauðfjárbóndans væri tarnavinna. Sagði hann að sauðburðurinn væri erfiðastur, en síðan kæmi önnur törn yfir neyskapartímann og loks sú priðja i göngum og réttum á haustin. Hann sagði að alltaf væri hægt að hafa nóg að gera, en ef menn væru búnir að búa vel í haginn fyrir sig, ætti vinnan að vera auðveld á milli tarna. „En kaffið og pipan halda manni gangandi i þessum törnum," sagði Jóhannes í lokin og bauð í kaffi. Fjárbókbaldið þarf að færa af samviskusemi Heimilisfólkið i Höfðabrekku i annríkt þeaaa dagana. Jóbannes Kristjánsson bóndi isarat eiginkonu sinni, Sólveigu Sigurðardóttur, vinnumanni, Julian Crawford, og syni, Ingvari. SMS.-'-sím x. ■ ■ - V wm m m Sjáid litlu lömbin, leika sér í h&ga. Morgunblaðið/Bj arni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.