Morgunblaðið - 10.05.1985, Qupperneq 29
MORÖONBLADID, FÖSTUDAGUR 10. MAf 1985
29
Moskvæ
Minnast sigurdags-
ins með hersýningu
Moskvu, 9 nuu. AP.
HVER röðin af annarri af skriðdrek-
um og fallbyssum úr síðari heims-
styrjöldinni fór um Rauða torgið í
Moskvu í dag, en þá var þar minnsl
sigursins yfir Þjóðverjum fyrir 40 ár-
um. En jafnframt bar mikið á farar-
tækjum með nýtízku kjarnorkueld-
flaugum í hersýningunni, þar sem
greinilega var lögð mikil áherzla á
hernaðarmátl Sovétríkjanna nú.
Gamlir og ungir hermenn fylktu
liði í göngunni auk erlendra her-
manna úr útlendingasveitum
Tékka og Pólverja, sem Sovét-
menn kom á fót í stríðinu. Gamlir
skriðdrekar af gerðinni T-34 voru
Blóðugt stétta-
stríð á Indlandi
Nýja Delhí. 9. m»í. AP.
BLODIIGAR óeirðir voru í gærkvöldi
og nótt í borginni Ahmedabad á
Vestur-lndlandi og greip lögreglan til
skotvopna gegn fólkinu, ýmsum trú-
arhópum, sem börðust með grjóti,
hnífum og Ijósaperum, sem fylltar
höfðu verið af sýru. Þegar eldaði af
degi voru sjö fallnir og 25 slasaðir.
Óeirðirnar í Ahmedabad hófust
fyrir nokkrum dögum þegar stjórn-
völd tilkynntu, að framvegis yrðu
nemendur og kennarar við mennta-
og háskóla í Gujarat-héraði að 49%
úr lágstéttunum en til þessa hefur
kvótinn verið 31%. Olli það mikilli
ólgu meðal fólks úr efri stéttunum
og urðu ai' mannskæð átök.
Frá því að mótmælin hófust gegn
kvótafyrirkomulaginu hafa 85
menn verið drepnir í átökum há- og
lágstéttarfólks, sem stundum hafa
snúist upp í stríð milli hindúa og
múhameðstrúarmr.nna. Verst hef-
ur ástandið verið i Ahmedabad og
bætti það ekki úr skák þegar sjálfir
Krókódflakjöt
aftur á markað
BrnbuK, 9. mȒ. AP.
FROSIÐ krókódflakjöt til manneld-
is verður senn fáanlegt í verzlunum í
Ástralíu, þar sem skriðdýrið er ekki
lengur í útrýmingarhættu.
X ríkinu Queensland 1 Ástralíu
hefur markvisst verið unnið að
krókódílarækt, en um skeið vofði
útrýmingarhættan yfir krókódíln-
um þar.
Kjötið, sem sett verður á mark-
að, verður af dýrum, sem slátrað
verður í Edward-krókódílabúinu
nyrst í Queensland. Verður um 200
dýrum slátrað þar næstu vikurnar
og kjötið sett á markað að því
loknu.
lögreglumennirnir tóku til að rupla
og ræna og jafna um þá, sem þeim
var í nöp við.
mjög áberandi í hersýningunni, en
einnig mátti þar sjá marga tugi
nýtízku skriðdreka og eldflauga-
palla.
Mikhail S. Qorbachev, leiðtogi
kommúnistaflokks Sovétríkjanna,
stóð fremstur í röð félaga úr
stjórnmálaráðinu ofan á grafhýsi
Lenins og fylgdist þaðan með því,
sem fram fór á torginu.
Sendiherrar flestra aðildarríkja
NATO voru viðstaddir hátíðahöld-
in í dag. Arthur Hartman, sendi-
herra Bandaríkjanna, var þó ekki
viðstaddur sökum atburðar þess,
sem átti sér stað í Austur-Þýzka-
landi í síðasta mánuði, er banda-
rískur major var skotinn til bana.
Sendiherra Vestur-Þýzkalands,
Jorg Kastl, var ekki heldur við-
staddur hátíðahöldin í dag.
UNESCOfundurinn í París:
Bandaríska skýrslan
ekki tekin tU umræðu
Pmrís, 9. maí. AP.
FULLTRÚAR Vesturlanda og Japans féllust á það á fundi framkvæmda-
stjórnar UNESCO, sem hófst í París í dag, að skýrsla bókhaldsstofu
Bandaríkjaþings un fjármái stofnunarinnar, skyldi ekki tekin til umræðu
á fundinum, sem standa á • sex vikur. Kommúnistaríkin og ríki þriðja
heimsins böfðu lags-1 gegn því og bent á, að Bandaríkin eiga ekki lengur
aðild að UNESCO.
í framkvæmdastjórn Menn-
ingar- og vísindastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna á 51 maður
sæti, og er verkefni fundarins
nú, að taka ákvörðun um starfs-
og fjárhagsáætlun fyrir næstu
tvö ár. Jafnframt er fundinum
ætlað, að ná samkomulagi um
breytingar á starfsemi og stjórn
stofnunarinnar, og finna leiðir
til að draga úr útgjöldum henn-
ar. Mikill ágreiningur er um
starf og skipulag UNESCO og
íhuga nokkur vestræn ríki að
fylgja dæmi Bandaríkjanna og
hætta þar þátttöku, ef sam-
komulag tekst ekki um róttækar
breytingar á þessu ári.
Patrick K. Seddoh frá Ghana,
sem er formaður framkvæmda-
stjórnarinnar, skýrði frétta-
mönnum frá því í dag, að sam-
komulag hefði orðið um, að taka
bandarísku skýrsluna ekki til
umræðu, en leyfa notkun hennar
í sérstakri 13 manna nefnd, sem
vinnur að tillögum um úrbætur á
starfi UNESCO.
Bandaríska skýrslan, sem leið-
ir m.a. í ljós fjármálaóreiðu inn-
an UNESCO, hefur hins vegar
ekki verið þýdd á frönsku, sem er
annað höfuðtungumál stofnun-
arinnar, og er því ekki unnt að
nota hana sem umræðugrund-
völl. Aftur á móti fylgja skýrsl-
unni athugasemdir á frönsku,
sem hinn umdeildi fram-
kvæmdastjóri UNESCO, Ama-
dou Mahtar M’Bow, hefur samið.
Fulltrúar Vesturlanda og Japans
hafa krafist þess, að skýrslan
M’Bow framkvæmdastjóri UNE9CO
verði þýdd á frönsku, en aðstoð-
arframkvæmdastjóri UNESCO,
Henri Lopes, sagði frétta-
mönnum í dag að hann kannað-
msmaiim
fjomtnu m msiti
NOTADUR VOLVO
O.MÁNADA
ABYRGD
Það er ekki deilt um hve öruggur og áreiðanlegur
Volvo er. Volvo er draumabíll fjölskyldufólks um allan
heim, þeirra sem láta sig mestu varða öryggi, þægindi
og heill allrar fjölskyldunnar. Volvo-skiptibíll með 6
mánaða ábyrgð hlýtur að freista margra.
ist ekki við að slík krafa hefði
komið fram.
Haft er eftir öruggum heim-
ildum innan UNESCO, að M’Bow
hafi komið í veg fyrir að skýrsl-
an yrði þýdd. Bandaríkjamenn
lögðu skýrsluna fram áður en
þeir hættu þátttöku í starfi
stofnunarinnar, en fram-
kvæmdastjórnin vildi ekki heim-
ila umræðu um hana.
Henri Lopes sagði frétta-
mönnum í dag, að UNESCO
vantaði 10 milljónir bandaríkja-
dala á þessu ári til að endar
næðu saman. Hann sagði, að
borist hefðu aukaframlög frá
nokkrum aðildarríkjunum að
upphæð 8 milljónir bandaríkja-
dala, og útgjöld þegar verið skor-
in niður um 25 milljónir dala.
Bandaríkjamenn stóðu undir
fjórðungi útgjalda stofnunarinn-
ar, áður en þeir hættu þátttöku í
henni, og framlag þeirra hefði að
óbreyttu numið 43 milljónum
dala.
\7I32líE?
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200