Morgunblaðið - 10.05.1985, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
Kjölar
Díönu
vekja
athygli
I)íana prinsessa vekur
hvarvetna athygli og er
þekkt fyrir allt annað en
íognmollu í klæðaburði.
Mynd þessi var tekin nýver-
ið og sýnir prinsessuna í
hvítröndóttum vínrauðum
kjól. Stráhatturinn á höfði
hennar mun einnig vera
vínrauður en barðið hvítt.
Rottumergð
í Shanghai
Peking,). maí. AP.
ROTTUR vaða uppi í mestu iðn-
aðarborg Kína, Shanghai, og
gera þar mikinn usla.
Rotturnar sækja í kornmeti og
bera á milli smitsjúkdóma, að
sögn blaðsins China Daily, sem
er skrifað á ensku og gefið út af
hinu opinbera.
Að sögn blaðsins áætla sér-
fróðir menn að rottufjöldinn í
Shanghai sé fjórum til fimm
sinnum meiri en íbúafjöldinn.
íbúar Shanghai eru 12 milljónir.
Árlega er blásið til herferðar
gegn rottunum og þær drepnar í
milljónatali, en þeim fjölgar
fljótt aftur. Leggur blaðið til að
sótt verði harðar fram gegn rott-
EININGASKULDABREF
/ . .
AVOXTUNARFELAGSIN S HF.
NÚGETA
ALLIR
TEKIÐ ÞÁTT í VERÐBRÉFAMARKAÐNUM
OG NÁÐ í GÓÐU ÁVÖXTUNINA!
Reynslan sýnir, aö fjárfesting í verðtryggðum skuldabréfum gefur hæstu ávöxtun
peninga. Meðalávöxtun þeirra hefur verið tæp 16% undanfarna mánuði,
samanborið við 7% á nýjum spariskírteinum ríkissjóðs og 2-6,5% á verðtryggðum
bankareikningum.
Allur almenningur hefur hingað til leitt hjá sér þessa ávöxtunarleið vegna þess að
hagkvæmar einingar hefur vantað, auk þess sem almenn þekking á þessum
viðskiptum hefur verið af skomum skammti. Nú bjóðast skuldabréf, sem allir ráða
við!
Skuldabréfin eru í einingaformi þannig að hægt er að ávaxta hvaða upphæð sem er,
jafnt 3.123 kr. sem hundruðirþúsunda.
Hvert einingaskuldabréf felur í sér skuldaviðurkenningu Ávöxtunarfélagsins hf. fyrir
fjárhæð sem samsvarar ákveðnum hluta af eignum Ávöxtunarsjóðsins en hann er
sérstök deild í Ávöxtunarfélaginu hf. Fjármálasérfræðingar Kaupþings hf. ávaxta
fé sjóðsins með bestu ávöxtun.
Allar eignir Ávöxtunarsjóðsins, í flestum tilfellum fasteignatryggð skuldabréf,
standa til tryggingar einingaskuldabréfunum.
Fé lagt í einingaskuldabréf er í raun nær óbundið, því að Ávöxtunarfélagið hf. er
skuldbundið til að innleysa einn fimmtugast hluta útistandandi bréfa mánaðarlega,
sé þess óskað. Auk þess er hægt að endurselja bréfin hjá verðbréfasölum.
Mjög auðvelt er að kaupa einingabréf. Kaupþing hf. hefur umsjón með eignum
Ávöxtunarsjóðsins og sér um sölu einingabréfanna. Sláðu á þráðinn, sími 686988,
og kauptu einingabréf fyrir þá peninga, sem þú átt aflögu. Við sendum þér bréfin um
hæl.
JÍii
Avöxtunarfclagiö hf.
KAUPÞING HE
m.
Húsi verslunarinnar "Ef 68 69 88
unni og lengur í einu. Leggur
blaðiö til að notað verði nýtt og
fullkomið eiturefni, sem verki
lengi. Segir blaðið rottuna lævísa
og henni hafi tekizt að snúa á
menn hingað til.
Lést úr
hermanna-
veiki
BrÍHtol, 8. mal. AP.
KONA, sem var hjúkrunar-
kona að hlutastarfi, lézt í dag
úr svonefndri hermannaveiki
og lifrarsjúkdómi.
Kona þessi var 64 ára að
aldri og var hún búsett í
Bristol í suðvesturhluta
Englands. Á mánudaginn var
lézt sextug kona úr her-
mannaveikinni á sjúkrahúsi í
Stafford og höfðu þar með 30
manns látizt úr veikinni. Sjö-
tíu manns, sem talið er, að
tekið hafi hermannaveikina,
liggja nú á þessu sama
sjúkrahúsi. Allir eru þeir yfir
fimmtugt.
Bjargaði
víetnömsku
bátafólki
Bangkok, 9. maí. AP.
BANDARÍSKT flutningaskip,
sem á er suður-kóreskur skip-
stjóri, bjargaði 26 víetnömskum
bátamönnum á Thailandsflóa í
vikunni, að sögn flóttamannafull-
trúa Sameinuðu þjóðanna.
Bátafólkinu var bjargað þar
sem það var statt um 200 sjómíl-
ur suðvestur af Víetnam. Fleyta
þeirra var lítið bátskríli, sem, að
sögn skipstjórans á flutninga-
skipinu, hefði farizt ef sjór hefði
ókyrrzt.
Bátamennirnir lögðu af stað
frá nágrenni Ho Chi Minh-borg-
ar á mánudag. Siglt var undir
seglum og skreið báturinn vel.
Um borð í bátskænunni voru
níu börn undir 17 ára aldri.
Sigldi flutningaskipið með báta-
fólkið til Bangkok.
Allt frá því kommúnistar
komust til valda í Víetnam, þ.e.
eftir lok Víetnamstríðsins, hefur
rúmlega hálf milljón manna flú-
ið Víetnam á báti.