Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 31
MORGUNBLAÐID, FÖSTÚDAGUR 10. MAÍ 1985
Reykingamenn
ekki réttlausir
Nú er mælirinn fullur, og við höfum fengið nóg af árásum og hótunum
í gard reykingamanna.
Það er rétt að reykingar eru skaðlegar heilsu þess sem reykir, og þegar
hann loks fær hjartaáfallið sitt eða sýkist af krabbameini í lungum, verða
bindindismcnn að greiða spítalavist hans. Þetta veldur því að margir þeir
sem ekki reykja eru hlynntir lagasetningu sem bannar reykingar, í það
minnsta á opinberum og hálf-opinberum stöðum. Þetta kann að virðast
raunhæft, en það setur okkur, sem samfélag, út á hála og hættulega
braut, og vekur upp möguleika á því að við förum brátt að hindra aðra f
að gera það sem þeir viija vegna þess að það stofni heilsu þeirra og
peningaveskjum okkar í hættu.
Þegar á allt er litið verða
skattgreiðendur einnig að greiða
sjúkrakostnað fyrir drykkju-
menn, akfeit átvögl og þá sem
ekki nenna að stunda líkamsæf-
ingar. Ættum við þá að setja lög
um mataræði, drykkju og lík-
amsæfingar? Hve miklu frelsi —
frelsi til að njóta okkar eigin
siða eða ósiða — erum við reiðu-
búin að fórna?
Menn reykja, eða drekka, eða
borða annað en hollt er þrátt
fyrir slæm áhrif á líkamann
vegna þeirrar sálrænu fullnæg-
ingar sem þeir fá. Þegar Sig-
mund Freud var á sjötugsaldri
gekkst hann undir fyrsta sárs-
aukafulla uppskurðinn af 30
vegna krabbameins í munni.
Honum var sagt að meinið staf-
aði af vindlareykingum, en hann
hélt þeim engu að síður áfram. Á
sjötugasta og öðru aldursári
skrifaði hann: „Ég á vindlunum
að þakka mikla aukningu i
vinnuafköstum mínum
aukna sjálfstjórn." Þegar þar
var komið sögu var hann kominn
með gervikjálka og efri góm.
Hann reykti þar til hann lézt á
níræðisaldri.
Flestir þeirra sem ekki reykja
geta ekki skilið þetta og tala með
fyrirlitningu um „fíkniávana".
Ég vil heldur nefna það að vera
háður, eins og að vera háður
elskhuga. Það að vera háður á
þennan hátt getur verið ánægju-
legt og frjótt; og það getur haft
slæmar, jafnvel sorglegar afleið-
ingar. En jafnvel þegar slæmu
afleiðingarnar koma i ljós, er
hugsanlegt aö viðkomandi vilji
halda áfram vegna fullnæg-
ingarinnar: það er venjulega erf-
itt að losa sig við eitthvað sem
orðið er að ávana. Ef einhver er
sviptur elskhuganum, eða vindl-
unum, þjáist hann af fráhvarfs-
einkennum, hvort sem þau eru
sálræn eða líkamleg. Astin er
sjaldan nefnd fíkniávani. Af
hverju ættu reykingar að vera
það?
Að einu leyti hefur skattgreið-
andinn sem ekki reykir á réttu
að standa: hann ætti ekki að
þurfa að greiða sjúkrakostnað
vegna reykinga. Þess í stað ætt-
um við að leggja nægilega háan
alríkisskatt á tóbak til að standa
undir öllum þeim aukaútgjöld-
um sem stafa af reykingum.
Tryggingafélög gætu einnig tek-
ið hærri iðgjöld af þeim sem
reykja og drekka.
En hvað um áhrif „óbeinna
reykinga“ á heilsuna og óþæg-
indin sem reykingar geta valdið?
Sumir hafa vissulega ofnæmi
fyrir reykingum, og allir sæmi-
lega siðaðir menn forðast að
reykja í þeirra félagsskap. En
þeir sem hafa ofnæmið ættu
sjálfir að forðast staði og sam-
kvæmi þar sem vitað er að mikið
er reykt — diskótek, bari og
kvöldverði með Winston Chur-
chill. En ofnæmi fyrir reyking-
um hefur breiðst ótrúleg ört út
siðustu árin — skyndilega út-
breiðsla sem gefur í skyn að
margir sjúklinganna séu haldnir
móðursýki og geri sér upp sjúk-
leikann til að þvinga sjónarmið-
um þeirra sem ekki reykja upp á
reykingamenn.
í rauninni er það svo, þrátt
fyrir vafasamar skýrslugerðir og
með fáum undantekningum þar
sem um raunverulegt ofnæmi er
að ræða, að reykingar stofna
ekki heilsu þeirra sem ekki
reykja i hættu nema þeir séu
langtímum saman útsettir fyrir
reyk í húsrými án loftræstingar.
Hvað óþægindin varðar er líf-
ið fullt af óþægindum, sem sum
eru hættuleg heilsunni, en við
verðum að sætta okkur við vegna
annarra sem vilja eða þurfa að
gera það sem veldur okkur
óþægindum. Við verðum öll að
anda að okkur menguðu lofti
jafnvel þótt við ökum aldrei í
bílum eða strætisvögnum, bara
vegna þess að aðrir vilja gera
það.
Mun fleiri láta það vera að
reykja nú en áður — sem er gott.
En linnulaus áróður verður ekki
til að fjölga þeim. Ekki heldur
bann við sígarettuauglýsingum.
Marijuana selst allvel án slíkrar
kynningar. Menn læra að reykja,
eða drekka, af öðrum, ekki af
auglýsingum.
Er þá ekkert sem ætti að
gera? Vissulega. Alls staðar þar
sem því verður komið við ber að
aðskilja þá sem ekki reykja frá
reykingamönnum og sjá um að
loftræsting sé góð. Við gerum
þetta í stærri flugvélum. En á
flestum öðrum stöðum, til dæm-
is skrifstofum og veitingahúsum,
verða reykingamenn og þeir sem
ekki reykja að sýna gagnkvæma
tillitssemi. Einhliða reglur sem
ekki er unnt að framfylgja geta
ekki komið I stað almennrar
kurteisi, þvi þótt þær geti haft
skammtíma áhrif, munu þær til
lengdar aðeins veikja virðingu
manna fyrir lögunum.
(Heimild: The New York Times)
Ernest ran der Haag er prófessor í
almennri lögfræói vid lagadeild
Fordbam-háskólans í New York.
Bl
Stjómarskrárbreyting f Brazilíu:
Forseti kjörinn
beinni kosningu
Braflilíu, Brazilíu, 9. mai. AP.
BRAZILÍSKA þingiö samþykkti í
dag cinróma þá breytingu á stjórn-
arskránni, að framvegis skuli forseti
landsins kosinn í beinum kosning-
um. Sá háttur hefur lengi verið hafð-
ur á að kjósa fyrst kjörmenn, sem
síðan velja forsetann, en almenning-
ur i landinu hefur verið mjög
óánsgður með það fyrirkomulag.
Auk þessa var samþykkt, að
ólæst fólk megi hér eftir taka þátt
í kosningum, að kommúnistafl-
okkurinn, sem hefur verið bannað-
ur, skuli fá að bjóða fram og að
borgarstjórar í fylkishöfuðborg-
um verði kosnir beinum kosning-
um 15. nóvember. Það var forseti
landsins, Jose Sarney, sem mælti
fyrir lögunum en hann tók við af
Tancredo heitnum Neves, fyrsta
forsetanum, sem kjörinn hefur
verið í lýðræðislegum kosningum
síðan árið 1960.
Rétturinn til að kjósa forseta
beint var mikið hitamál í Braziliu
á síðasta ári, skömmu eftir að
Argentínumenn losuðu sig við
herstjórnina og kusu Raul Alfons-
in, forseta.
Kundera veitt „Frelsis
verðlaun Jerúsalem“
JerwuJem 9.«—f \p
HINUM útlæga tékkneska rithöf-
undi, Milan Kundera, hafa verið
veitt hin virðulegu Frelsisverðlaun
Jerúsalemborgar, og tók skáldiö við
þeim úr hendi Teddy Kollek, borgar-
stjóra, við hátíðlega athöfn í Jerúsal-
em í gær.
Verðlaunin eru veitt annað
hvert ár, og afhending þeirra fer
fram i tengslum við árlega bóka-
sýningu i borginni. Meðal þeirra,
sem áður hafa hlotið verðlaunin,
eru Graham Green, Bertrand
Russell, Simone de Beauvoir og
Eugene Ionesco.
Dómnefnd verðlaunanna segir í
áliti sínu, að í verkum Kundera
birtist „barátta manna fyrir frelsi
sinu og einstaklingseðli og gegn
fjötrum sðgu, stjórnarfars og
stjórnmálaa.
Kundera, sem er 56 ára að aldri,
var vikið úr tékkneska kommún-
istaflokknum árið 1969 og bækur
hans eru bannaðar í Tékkóslóv-
Milan Kundera
akíu. Hann hefur verið búsettur í
París frá 1975 og unnið þar að rit-
störfum og háskólakennslu.
» Gódan daginn!
Kína:
Einka-
framtaki
att gegn
fátæktinni
Peking, 9. nui. AP.
ÖLMUSUGJAFIK ríkisvaldsins
munu aldrei verða til að ráða bót á
fátæktinni, sagði í tilkynningu kín-
verska ríkisráðsins í dag þegar
kynntar voru ráðstafnir, sem eiga að
ýta undir „frumkvæði og einka-
framtak" fátækra bænda í Kína.
Ríkisráðið, sem Zhao Ziyang,
forsætisráðherra, er í forystu
fyrir, samþykkti skýrslu níu ráð-
herra um ráðstafanir til að bæta
lífskjör 70 milljóna fátækra
bænda en þar eru aðalatriðin þau,
að þeir verði að mestu undanþegn-
ir skatti, lántökur auðveldaðar og
að þeir verði ekki skyldaðir til að
vinna af þegnskap einum við
opinberar framkvæmdir. Ríkis-
ráðið lagði hins vegar mikla
áherslu á, að mesta hjálpin fælist
í því, að bændurnir tryðu og
treystu á sjálfa sig.
í tilkynningunni voru embætt-
ismenn hvattir til að hætta að líta
á framlag rfkisins sem greiða og
ölmusu og reyna heldur að vinna
gegn „ósjálfstæði þeirra og svart-
sýni“.
á útigrillið
Grillpinnar í úrvali
Kryddlegnar lambalærissneiðar
Kryddlegnar lambakótilettur
Kryddlegnar grillkótilettur
Kryddlegnar lambaframhryggja-
sneiðar
Grill — Kol
— Uppkveikjulögur
— Pinnar
— Olía
— Krydd
Vörumarkaðurinn lil.
| Ármúla 7a. — S: 686111 og
Eiöistorgi 11. — S: 622200.