Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 37

Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAl 1985 37 Bændafundur á Blönduósi: Morgunblaði#/J.S. Frá afliendingu Flateyjarbókar. Jón ísberg, Asta Rögnvaldsdóttir og Grímur Gíslason. Blönduós: Flateyjarbók í Héraðsbókasafn A-Húnavatnssýslu Blönduósi, 8. maí. NOKKRAR stofnanir og fyrirtæki í Austur-Húnavatnssýslu færðu Héraðsbókasafni Austur-Húna- vatnssýslu Flateyjarbók að gjöf. Athöfnin fór fram í húsakynnum héraðsbókasafnsins á Blönduósi sl. þriðjudag. Þar voru mættir fulltrúar gef- enda, stjórn bókasafnsins og bókaverðir. Jón ísberg sýslu- maður sem forgöngu hafði fyrir þessari bókargjöf afhenti Flat- eyjarbók fyrir hönd gefenda. Grímur Gíslason formaður stjórnar bókasafnsins veitti gjöfinni viðtöku og færði gefend- um þakkir fyrir hönd héraðs- bókasafnsins. Ásta Rögnvaldsdóttir bóka- safnsfræðingur hefur yfirum- sjón með daglegum rekstri bóka- safnsins og henni til aðstoðar er Sigurður Þorbjarnarson. J.S. Rússneska flutningaskip- ið laust úr prísundinni UM KLUKKAN hálftvö í fyrrinótt tókst bátnum Skildi að losa rússn- eska flutningaskipið sem strandaði við höfnina á Siglufirði um hádeg- isbilið í fyrradag. Flutningaskipið var að koma til Siglufjarðar til að landa rækju þegar óhappið varð. Skjöldur hafði reynt að draga skipið út skömmu eftir að það strandaði en án árangurs. Þá var um 100 lestum af vatni dælt úr skipinu og á háflóði um nóttina tókst bátnum loks að losa rússn- eska flutningaskipið. Það er óskemmt að sögn hafnarvarðar- ins á Siglufirði. Mótmælir frumvarpi um Framleiðsluráð BlöndnÓNÍ. 9. mai. FUNDUR með stjórnum búnaðar- sambanda og samvinnufélaga í Norðurlandskjördæmi vestra og Strandasýslu var haldinn á Blöndu- ósi lostudaginn 3. maí. Tilefni fund- arins var framkomið frumvarp til iaga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Bjarni Guð- mundsson, aðstoðarmaður landbún- aðarráðherra, og Gunnar Guðbjarts- son, framkvæmdastjóri Framleiðslu- ráðs, mættu á fundinn. Gunnar tók það fram, að hann væri ekki mættur á fundinn í umboði bændasamtak- anna. Á fundinum var lögð fram eftir- farandi ályktun í sjö liðum sem samþykkt var samhljóða: „1. Fundurinn mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum, sem viðhöfð hafa verið af hálfu stjórnarflokk- anna varðandi endurskoðún á lög- um um Framleiðsluráð landbún- aðarins og átelur að þessi endur- skoðun skuli hafa verið gerð án samráðs við bændasamtökin. 2. Fundurinn mótmælir eindregið þeirri valdatilfærslu frá Fram- leiðsluráði landbúnaðarins til landbúnaðarráðherra, sem frum- varpið gerir ráð fyrir og telur að með því sé ákveðið stefnt að því að veikja stöðu bændastéttarinnar, bæði efnalega og félagslega. 3. Fundurinn telur þann samdrátt, sem frumvarpið gerir ráð fyrir varðandi greiðslu útflutningsbóta, algjörlega óraunhæfan meðan þeim samdrætti sem þegar hefur átt sér stað í mjólkur- og sauðfjár- framleiðslu hefur ekki verið mætt með annarri atvinnuuppbyggingu. 4. Fundurinn krefst þess að tekin verði upp framleiðslustjórnun varðandi alla kjötframleiðslu. 5. Fundurinn telur að frumvarpið stefni ákveðið að því að brjóta niður núverandi sölukerfi á búvör- um, svo og vinnslustöðvarnar. 6. Fundurinn tekur að öðru leyti undir breytingartillögu sex- mannanefndar, aukafundar stétt- arsambands bænda og leggur áherslu á að þær verði teknar til greina við lokagerð frumvarpsins. 7. Fundurinn mótmælir því harð- lega, að frumvarpið verði lögfest á yfirstandandi Alþingi og telur að það þurfi enn frekari umfjöllun hjá bændastéttinni.“ JX Úr kvikmyndinni Skuggahlióar Hollywood Regnboginn: Skuggahliðar Hollywood REGNBÍKÍINN hefur hafid sýningar á myndinni „The Glitter Dome“, sem á íslenzku hefur hlotið nafnið „Skuggahliðar Hollywood". Aðalleik- endur í myndinni eru James Garner, Margot Kidder og John Lithgow. Myndin fjallar um morð forstjóra kvikmyndafyrirtækis í Hollywood og rannsókn tveggja lögreglumanna á því. Við rannsóknina kemur ým- islegt misjafnt í ljós, m.a. fram- leiðsla klámmynda. Myndin er með íslenzkum texta. Fiskvinnslan á Sauðárkróki hefur ekki undan: Afla ekið til Siglufjarðar Sauóárkróki, 9. mu'. AFLABRÖGÐ báta sem róa frá Sauðárkróki hafa verið með besta móti undanfarið. Sem dæmi má nefna, að Blátindur SK 88 kom með um 18 tonn af vænum þorski úr einni veiðiferð, eftir að net höfðu legið í sjó í sólarhring. Er þetta talið aflamet hér. Síðan hefur Blátindur fengið fjögur tonn í róðri og trillan Malli nálægt tveimur tonnum sem kallast gott. Týr SK 33 byrjaði á snurvoð 3. maí sl. og hefur fengið yfir 30 tonn í þremur róðrum. Er nú svo komið að ekki er hægt að vinna þennan afla hér og tilkynnti verkstjóri Fiskiðjunnar áður- Enn er verið að hengja bakara fyrir smið nefndum bátum, sem eru í við- skiptum við fyrirtækið, að ekki yrði tekið á móti meiri fiski frá þeim í þessari viku, en úr því myndi rætast eftir helgina. Af þessum sökum hefur Týr hætt veiðum að sinni, en afli Blátinds og Malla fluttur með bílum til Siglufjarðar til vinnslu þar. Togarar Útgerðarfélags Skag- firðinga hafa aflað vel. Það sem af er mánuðinum hefur Drangey landað 161 tonni af grálúðu og karfa, Hegranesið 194 tonnum af sömu fisktegundum og Skapti landaði 51 lest af þorski eftir tveggja daga veiðiferð. Frysti- húsin hafa því haft ærin verk- efni og ekki haft undan að vinna aflann, sem skiptist milli Skjald- ar hf. og Fiskiðjunnar hf. á Sauðárkróki og Hraðfrystihúss- ins á Hofsósi. Stjórn US hefur undanfarið kannað kaup á fjórða togaranum og er þess skemmst að minnast að félagið gerði til- boð í togarann Bjarna Herjólfs- son, sem seldur var Útgerðarfé- lagi Akureyringa. Kári Athugasemd frá lögfræöingi Landhelgisgæzlunnar Álafoas Enn um Álafossmál — tollverði svarað MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Jóni Magnússyni lögfræðingi Landhelg- isgæzlunnar. „í Morgunblaðinu í gær ritar Eiríkur Guðnason, tollvörður, greinarstúf, þar sem hann vill ráð- ast á tollgæslustjóra vegna „Ála- fossævintýris" eins og hann orðar það — og slær þá um leið aðra utanundir. í 1. grein laga um Landhelgis- gæzlu Islands g-lið segir berum orðum, að Landhelgigæzlunni beri að aðstoða islenzka tollgæzlu „eft- ir því sem aðstæður leyfa eða ákveðið kann að vera sérstaklega". Það var einmitt þetta, sem Landhelgisgæzlan gerði 20. júlí 1981, þegar beiðm barst henni frá tollstjóraembættinu í Reykjavík vegna tollskoðunar um borð í ms. Álafossi. Tveir stýrimenn frá Gæzlunni og þrír tollverðir voru látnir síga frá þyrlu um borð í ms. Álafoss við mjög góðar aðstæður, er skipið var statt fyrir sunnan land og inn- an íslenzkrar tollalögsögu. í skýrslu leiðangursstjóra þyrl- unnar frá 23. júlí 1981 segir m.a., að tollverðirnir hafi áður verið æfðir af Gæzlumönnum „ ... með því að kynna þeim vélina og slaka þeim öllum með spili ..." I skýrslunni segir ennfremur: „í aðflugi var slökun undírbúin. Þegar komið var að m/s Álafossi sást að góð aðstaða var til slökun- ar á gáma rétt aftan yfirbygg- ingar. Slökunin mun hafa tekið um 10 mínútur og var henni lokið kl. 16.35.“ í grein Eiríks stendur þetta m.a.: „Það var ekki 'ulltruanum að þakka, að ekki yrði stórslys á mönnum þegar þvrlu-„afgreiðslan“ fór fram fyrir sunnan land. Hver hefði þá borið ábyrgð? Að mínu mati yfirmaður hans, tollstjórinn í Reykjavík, þvi Kristinn er aðeins fulitrúi við Tollstjóraembættið í Reykjavík." Landhelgisgæzlan kemst ekki hjá því að mótmæla slíkum til- hæfulausum getgátum — hugar- órum — sem birtast í ofangreindri klausu Eiríks tollvarðar. Eiríkur var spurður að því í gær á sínum vinnustað af fulltrúa Gæzlunnar, hvað hann hefði fyrir sér í þessum getgátum eða fullyrð- ingu sinni. Svar Eiríks var ekkert, nákvæmlega ekkert — en síðan bætti hann við: „Það hefði getað orðið slys.“ Þótt ritfrelsi sé hér á landi — það skulum við lofa — þá hafa menn ekki leyfi til að rita í dag- blöð eigm hugaróra um viðkvæm mál eingöngu til að fá persónulega útrás og gera það þar að auki á röngum forsendum og að tilefnis- lausu. Eiríkur tollvörður ætti ekki að „stinga niður penna“ oftar, byggj- andi sinar fullyrðingar og getgát- ur á kviksandi, því með því sáir hann íortryggni að ástæðulausu og meiðir sitt eigið sjálf." — eftir Kristin Ólafsson Eríkur Guðnason, tollvörður, skrifar grein í Morgunblaðið hinn 9. maí sl. og gagnrýnir vinnubrögð tollgæslunnar gagnvart ms. Ála- fossi, bæðí þegar skipinu var ný- lega haidið um tíma á ytri höfn- inni í Reykjavík á meðan leit í því fór fram og einnig þegar þyrla var send til móts við það fyrir sunnan iand fyrir nokkrum árum. Ekki skal amast við gagnrýni Eiríks frekar en annarra, því að sitt hvað má örugglega betur fara í starfsemi tollgæslunnar. Þó við- hefur Eiríkur ummæli á einum stað sem ekki má láta ósvarað. Þau eru: „Það var ekki fulltrúan- um að þakka, að ekki yrði stórslys á mönnum, þegar þyrlu-„af- greiðslan" fór fram fyrir sunnan land.“ I þessu sambandi skal upp- lýst, að ég hafði ekkert með örygg- ismál þyrluflugsins að gera, og veit ég ekki betur en þar hafi alls öryggis verið gætt. Eiríkur má ekki hafa slys eða aðrar ófarir í flimtingum, hvorki raunveruleg né ímynduð, til þess að koma höggi á mig, væntaniega fyrir það, að ég hef komið í veg fyrir að hann næöi þeim frama og þeim ;aöðu- hækkunum innan tollgæsiunnar, sem hann hefur sóst. eftír og ahð sig eiga rétt á, en fyrir þvi hef ég mínar ástæður. Hofundur er toUgæshistjón í Reykjarík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.