Morgunblaðið - 10.05.1985, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 10.05.1985, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1985 t SÓLVEIG SIGURBJÖRG SÆMUND8DÓTTIR, Kvöldúlfsgðtu 11, BorgariMai, lést í sjúkrahúsi Akraness miövikudaginn 8. maí. Jón B. Ólafaaon, Kristrún Jóna Jónsdóttir, Smmundur Jónason. t ■ ■ Systir mín, VALGERÐUR HINRIKSDÓTTIR frá Eskifiröi, lést á Eliiheimilinu Grund 8. maí. Árni Hinriksson. Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, PÉTUR EGGERZ STEFÁNSSON, er andaöist á Borgarspítalanum, síöastliöinn miövikudag, veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi, mánudaginn, 13. maí kl. 13.30. Sólveig Pétursdóttir, Árni Jónsson, Elln Eggerz Stefénsson, Árni Friðfinnsson, Bergljót Siguröardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaöur minn, faöir og fósturfaðir, MARGEIR ÞÓRORMSSON, Haf nargötu 8, Fáskrúósfiröí, sem lést 5. maí, veröur jarösunginn frá Fáskrúösfjaröarkirkju laug- ardaginn 11. mai kl. 14.00. Fyrír hönd aöstandenda, Þóra Jónsdóttir, böm og fóstursonur. + Móöir mín, tengdamóöír og amma okkar, GUÐRÚN ÚLFARSDÓTTIR, Drangshllöardal, Eyjafjöllum, veröur jarösungin frá Eyvindarhólakirkju laugardaginn 11. maí kl. 14.00. Ingólfur Björnsson, Lilja Sigurgeirsdóttir og börn. + Fööurbróölr okkar, JÓHANNES GUDMUNDSSON, fyrrverandi bóndi I Arnarnesi, veröur Jarösettur frá Garöakirkju laugardaglnn 11. maí kl. 13.30. Matthías Helgason, Jóhanna Helgadóttir, Haukur Helgason, María Helgadóttir, Ólafur Helgason. + Öllum þeim sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför dóttur minnar og systur, KRISTRÚNAR JÓHANNSDÓTTUR, Skeljagranda 6, Reykjavfk, þökkum viö af alhug. Gróa Þóróardóttir, Huida Jóhannsdóttir. + Innilegar þakkir flytjum viö öllum þeim sem á elnn eöa annan hátt sýndu hlýhug sinn viö andlát og útför MARÍU REBEKKU SIGFÚSDÓTTUR, Klapparstfg 37. Gylfi Gunnarsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Minning: Haraldur Einarsson oddviti, Urriöafossi Fsddur 21. janúar 1920 Dáinn 28. aprfl 1985 Það er bjartur júnídagur 1951. Við erum á leið austur Flóaveginn. Haraldur á Urriðafossi er á heim- leið á nýjum bíl. Með honum er sjö ára gamall ókunnugur strákling- ur, sem er að fara í fyrsta sinn í sveit fullur eftirvæntingar. Halli, en svo var hann nefndur af kunnugum, var nærgætinn við strákinn sem og ætíð síðan. Hann spurði þægilega og frá honum stafaði hlýleiki. Við urðum vinir á þessum fyrsta degi kynna okkar. Á honum fékk ég strax traust. Á Fossi átti ég eftir að dvelja næstu níu sumur frá því um sauðburð og fram yfir réttir á haustin, einnig í flestum fríum að vetrinum, hvenær sem stund gafst. Fyrir hálfum mánuði ók ég enn austur Flóaveginn. En nú voru að- stæður aðrar. Nú var ég kominn að Fossi til að kveðja Harald. Þetta reyndist hans síðasti dagur heima. Hann lést í sjúkrahúsinu á Selfossi 28. apríl sl. Þegar ég kom að Urriðafossi fyrst, var Haraldur nýtekinn við jörðinni af foreldrum sínum ásamt Einari bróður sínum, en hann dvaldi þar ðll sumur og sá einkum um laxveiðina. Faðir þeirra, sem einnig hét Einar, hafði dáið 1949. Milli bræðranna var mjög náið samband. Aldrei heyrði ég þá mæla styggðaryrði hvor til annars. Þar ríkti gagnkvæm virð- ing og skilningur. Ennfremur bjó þarna móðir þeirra Rannveig, merk kona. Hún var hæglát, virðuleg og lagði alltaf gott til mála. Hún hafði einstakt lag á börnum. Þau nutu hennar og hún þeirra. Hún hafði traust og notalegt skjól hjá Haraldi og Unni til dauðadags 1967. Þarna kynntist ég líka Unni, konu Haraldar. Þau voru nýlega gift og barnlaus, þegar kaupstað- arbarnið kom þarna til dvalar. Unnur var þarna úr sveitinni. Hún kom frá austurbænum í Kolsholti og flutti upp á ásana. Það var alltaf mikil hamingja með þessum góðu hjónum, þeim fylgdi glaðværð og í stóru og smáu voru þau einstaklega samhent og nákomin hvort öðru. Það sáum við best þegar sjúkdómarnir sóttu að. Unnur varð mér Iíka strax kær og hlúði að mér á alla lund. Síðar eignuðust þau fjögur börn, tvær stúlkur, Guðbjörgu og Rann- veigu, og tvo pilta, Einar Helga og Þóri, mesta efnisfólk. Stúlkurnar eru giftar og búsettar á Selfossi, en strákarnir eru búsettir heima, annar nýhafinn kennslu á Hellu, hinn við háskólanám. Þessi sumarkynni leiddu til þess, að ég hef nánast litið á mig sem einn úr fjölskyldunni. Mér hefur oft verið hugsað til þess, að í rauninni hef ég aldrei fariö frá Fossi. Þetta var minn staður. Margs er að minnast frá þessum samverudögum, heyskapurinn, laxveiðin, umsvifamiklar fram- kvæmdir, ferðalög, búskapurinn, þjóðmálaumræða, ekki sist hreppsmálin en þar var Haraldur í forystu um langt skeið; í hrepps- nefnd frá 1950, þar af oddviti frá 1962 til dauðadags, sýslunefndar- maður og ýmsum öðrum ábyrgð- arstörfum gegndi hann fyrir sveit sína og hérað. Öll störf hans ein- kenndust af trúmennsku. Hann var bóngóður og viljugur til verka. Þessi ár voru óhörðnuðum ungl- ingi mikil mótunarár. Heiðarleiki og vinnusemi voru leiðarljós í daglegu lífi fólksins á bænum. Vinnulag Haraldar var þannig, að ég hafði það alltaf á tilfinning- unni, að við deildum ábyrgðinni. Svo nákominn varð ég honum, að á haustin, þegar ég kom heim úr sveitinni, sagði mamma oft kímin: „Þú hefur meir að segja náð göngulaginu hans Haraldar." Áin (Þjórsá) setti mjög mikið svipmót á daglegt líf okkar. Talað var um að rölta niður að á og kanna hvort eitthvað hefði slæðst i netin. Góðlátleg kímni og litil- læti einkenndi samræður bræðr- anna oft. Þessu fylgdi jafnframt viss spenna, mikil veiði eða stein- dauð áin. En alltaf héldu menn ró sinni. Gestakomur fylgdu einnig veiðinni. Menn komu og keyptu lax til hátiðabrigða. Annað einkenndi lífið á Fossi á þessum árum. Bæjarlækurinn var virkjaður 1927 svo rafmagn hafði heimilið til ljósa og eldunar langt á undan sveitungum sínum. Þá var að sjálfsögðu boðið i bæinn og mál líðandi stundar rædd yfir kaffi- bollanum. Þær voru notalegar kvöldstundirnar í eldhúsinu, alltaf þessar gæðaflatkökur á borðum, kleinur og gómsætu jólakökurnar. Með hjónunum var mikið jafn- ræði. Snyrtimennska og reglusemi einkenndu öll þeirra störf, jafnt utan dyra sem innan. Öllu var haldið til haga, hvergi bruðlað en um leið bráðmyndarlega búið, svo aðdáun vakti. Framkvæmdir hafa verið með ólikindum miklar, ekki síst þegar haft er í huga heilsu- leysi beggja hjónanna nú hin síð- ari ár. Þá hafa börnin og tengda- synirnir hlaupið myndarlega und- ir bagga. Jörðin hefur verið hýst að nýju, glæsilegar byggingar og land brotið til ræktunar í stórum stíl. Og nú eru þáttaskil. Margir sakna vinar. Eg vil þakka öll gömlu árin mín á Fossi, hjálp og vináttu alla tið síðan. Það var ætið tilhlökkunarefni fyrir fjölskyldu mína að koma að Fossi, móttökur hlýjar og veitingar með höfð- ingsbrag. En áfram tifar tímahjólið. Ung- ir og efnilegir piltar standa nú við hliðina á móður sinni á kostajörð- inni með sína drauma og framtíð- arvonir ásamt dætrum og fjöl- skyldum þeirra. Við hjónin vottum þér, Unnur mín, og fjölskyldu þinni, ættingj- um öðrum, vinum og sveitungum dýpstu samúð og biðjum guð að vernda ykkur og styrkja. Kristján Guðmundsson Dauðinn er óumflýjanlegur öllu sem lífsanda dregur. Það vitum við mannanna börn. Þrátt fyrir þá vissu vekur hann okkur angur og harma þegar hann hrífur frá okkur góðvini og nákomna vensla- menn, að því er virðist oft frá dagsverkinu ekki nærri fullunnu. Minningar frá liðnum samveru- stundum hópast að. Þær knýja á hugann og krefjast andsvara. Löngun vaknar hjá okkur að festa einhverjar þeirra á blað sem til- raun þess að fá að geyma þær bet- ur og varðveita. Ekki reynist þó alltaf auðvelt að orða þessar hugs- anir, síst nákvæmlega eins og hug- ur manns vill. Minningarnar streyma ört að og staldra sjaldan lengi hver og ein ef samveran við hinn látna hefur verið löng og rík af atburðum. Upp í hugann kemur líka sjálfsgagnrýnin. Var ég þess- um manni sá liðsmaður er hann átti kröfu til? Var ég ekki einn hinna mörgu er tíðast litu í eiginn barm og létu um of grasið spretta í þeirri götu, sem til góðs vinar lá? Svo er allt i einu tækifærið til að bæta þar um gengið manni end- anlega úr greipum. Þessu líkar voru þær hugsanir, er um huga minn fóru þegar ég frétti um alvarleg veikindi og and- lát vinar mins og samstarfsmanns um áratuga skeið, Haraldar Ein- arssonar oddvita á Urriðafossi hér í sveit. Haraldur Einarsson fæddist 21. janúar 1920, yngstur sex barna hjónanna Rannveigar Gísladóttur og Einars Gíslasonar oddvita, er lengi bjuggu á Urriðafossi með rausn og myndarbrag. Á bernsku- árum naut hann að miklu leyti leiðsagnar Einars föður síns við nám, en hann hafði verið nemandi SVAR MITT eftir Billy (iraham Ég er ritari húsbónda míns og hann ætlast til þess, að ég segi ósatt hans vegna. Ég er neydd til að segja, að hann sé ekki við, þó að hann sé við og hann skrökvar oft í bréfum þeim, sem ég á að vélrita. Vinsamlegast segið mér, hvort það sé siðferðilega rétt að leggja stund á slíkan óheiðarleika. Samvizka mín er óróleg. Kristnum manni ber ætíð að vera heiðarlegur og sann- ur. Biblían hvetur okkur til að „framganga sómasam- lega" og „breyta vel“. Hún segir að hlutur lygara sé í eldsdíkinu og í boðorðunum er okkur skipað: „Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum." Sumir gera greinarmun á „hvítri lygi“ og „svartri lygi“, en Biblían minnist ekki á litinn. Stundum virðist „hagræðing" vera sakleysisleg og kann að vera iðkuð meðal sumra, sem fást við viðskipti. En lítill óheiðarleiki greiðir götuna fyrir miklum óheiðarleika. Það verður að draga markalínu. Þér segizt vera óróleg. Ef ég væri í yðar sporum myndi ég byrja á því að segja húsbóndanum, að ég gæti ekki haldið áfram að skrökva og útskýra fyrir honum ástæð- una: Þér eruð kristin. Þetta gæti vakið virðingu í huga hans gagnvart yður. En hann getur líka snúizt öndverð- ur og sagt yður upp. Verði viðbrögð hans jákvæð eruð þér vel sett. Ef hann reiðist ættuð þér að hrósa happi yfir því að geta óhindrað leitað vinnu þar sem siðgæðið er í meira samræmi við sannfæringu yðar og trú. Þér sofið betur og þér njótið lífsins í ríkara mæli, þegar þér vakið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.