Morgunblaðið - 10.05.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAl 1985
51
Ljósmynd/Benedikt Jónsson
Sr. Geir Waage Reykholti, sr. Jón E. Einarsson Sanrbæ, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason Borg á Mýrum og
Björn Jónsson i Akranesi.
PRESTASKEMMTUN AÐ HLÖÐUM
Húsfyllir og klerkarnir
fóru á kostum
Húsfyllir var er fjórir prestar
úr Borgarfjarðarprófasts-
dæmi stóðu fyrir skemmtun að
Hlöðum á Hvalfjarðarströnd ekki
alls fyrir löngu. Að sögn Jóns E.
Einarssonar prófasts í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd atvikaðist
þetta þannig að kynning á verkum
Guðmundar Böðvarssonar, sem
vera átti þetta kvöld, féll niður.
Var þá með skömmum fyrirvara
leitað liðsinnis prestanna. Þeir
brugðust vel við, hittust einn
sunnudag og komu sér saman um
dagskrá. M.a. flutti séra Geir Wa-
age, í Reykholti þátt um kirkju og
kirkjulíf eftir borgfirska presta.
Séra Þorbjörn Hlynur Árnason,
Borg, söng „Glúnta" ásamt Birni
Leifssyni tónlistarkennara í
Borgarnesi. Séra Björn Jónsson á
Akranesi flutti erindi um Beiti-
staðaprent. Séra Jón Einarsson í
Saurbæ las kvæðið „Hvalfjörður"
eftir Steingrím Thorsteinsson og
var kynnir á skemmtuninni. Auk
prestanna komu fram Ásdís
Kristmundsdóttir söngkona og
Haukur Guðlaugsson söngmála-
stjóri og Guðlaugur Hauksson
nemi, en þeir léku saman á píanó
og fiðlu. Félagar úr Leikhópnum
Sunnan Skarðsheiðar fluttu leik-
þátt.
Að þessari skemmtun stóðu all-
ir starfandi prestar í prófasts-
dæminu nema séra Brynjólfur
Gíslason í Stafholti. Hann hefur
hins vegar átt sæti í Borgfirðinga-
nefnd og lagt til efni í Borgfirð-
ingavöku.
George Michael
fleira en tónlist
til lista lagt
Stundum verður fólk svo frægt
fyrir einhvern ákveðinn hlut,
að það er erfitt að ímynda sér það
í „mannlegum" kringumstæðum.
Þess vegna birtum við þessa
myndasyrpu af Wham-piltinum
George Michael. Ekki ber á öðru
en að hann geti dansað og það með
tilþrifum. Þær upplýsingar fylgdu
myndum þessum, að Michael hafi
verið að taka á móti viðurkenn-
ingu fyrir boðlega laga- og texta-
gerð og að afloknum ræðuhöldum
og kvöldverði hafi verið slegið á
léttari strengi. í fyrstu var Micha-
el gífurlega umsetinn og gat vart
risið úr sæti sínu sökum vinsælda.
En skyndilega setti plötusnúður-
inn á fóninn gamla Bee Gees-lagið
„You should be dancing" úr
kvikmyndinni Saturday Night
Fever. Michael tók þessi orð bók-
staflega, þusti á fætur og beinustu
leið út á gólf ásamt vinkonu sinni
einni, Shirley að nafni.
HÖGNI HREKKVISI
r^jTl 9 /h\
1 Y 1
'« pAO 'a AV V5KA -}5ÝNIE> O0
éEGlPFká; / hlVpnisókolakium 1' PAG!"
n/tmiN
BCOADWAy
sunnudagskvöldiö 12. maí.
Borðhald hefst kl. 19.00 stundvíslega
og húsiö veröur opnaö kl. 18.30.
Matseðill:
Gljáöur hamborgarhryggur
meö rjómasveppasósu.
is meö perum og
heitri súkkulaöisósu
Kl. 20.00 Græna lyftan. Eldhress gleöileikur sem allir hafa
gaman af.
Kl. 22.00 Vesturlandskynning.
★ Bassasöngvarinn Viöar Gunnarsson syngur.
★ Tízkusýning frá Akraprjóni, Modelsamtökin sýna.
★ Söngtríó Bjarna Hjartarsonar frá Búöardal.
★ Bingó. — Fjöldi ferðavinninga.
★ Dans.
Hér er tækifæri til að lyfta sér upp með góðu fólki á góðri
skemmtun í Broadway.
Miðasala og borðapantanir í Broad-
way daglega kl. 11—19. Sími 77500.
Blaöburöarfólk
óskast!
Austurbær:
Sóleyjargata