Morgunblaðið - 10.05.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 10.05.1985, Blaðsíða 52
.52 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1985 Stuðhljómsveitin Metal m ■ . . . . j ser um að allir skemmti ser i kvold. Mætið snemma og mætiö hress. teópuriMM^ L Plnrgi Ij w 3 Áskriftarsíminn er 83033 cO «/ Ar æskunnar — söngvar barna við Sólheima Vart hefur upprunnið meira undur vors á vegum tónlistar á ís- landi en 23. marz síðastliðinn. Þennan laugardag í nánd páska og sumars var landsmót íslenzkra barnakóra í hinni nýju og nývígðu kirkju Langholtssafnaðar við Sól- heima á Hálogalandshæð í Reykjavík. Þarna voru samankomin nær 700 bðrn ásamt söngkennurum sínum víðsvegar af landinu, allt frá Húsavík til Selfoss, Mý- vatnssveit til Melaskóla. Samt hafði yfirlætisleysi leið- toganna og erjur á starfsdegi stétta nær því gert þennan atburð ósýnilegan almenningi i borginni. Fjölmiðlum virtist þetta naumast umræðuefni. Aldurstakmark 20 ár. fLmv Veriö velkomin. Smiöjuvegi 1,^ Opið frá 10—03. (jd 46500' r _í tilefni_ sumarkomu Vorafsláttur gullsmiðum Verslið hjá gullsmiði ÞEKKING - ÞJÓNUSTA - ÁBYRGÐ m MERKIÐ. ff% ^ w tryggir gæoin ** I vió gluggarm eftirsr. Árelíus Nielsson Hver mundi hafa ímyndað sér slíka samkomu svo ungra lista- manna hérna á hæðinni fyrir fimm árum, hvað þá heldur fyrir fimmtíu árum? Þá datt áreiðanlega engum í hug svo stórt söngvasvið og svo mörg börn flytjandi ljóð og lög umhverfis altari einnar kirkju frammi fyrir meira en þúsund áheyrendum, ef allt væri talið, sem notið fær tónanna í safnað- arheimili og kirkju í senn. Þetta er líka fyrsta musteri íslands, þar sem flytjendur tónlistar eru ekki byrgðir að baki safnaðar síns, heldur njóta sín sem ljóssins börn fyrir allra augum. Þessi aðstaða til æðstu listar á vegum kirkjunnar er vissulega þess virði að hennar sé getið. Vart er unnt að hugsa sér á helgri stundu heilagri sjón en há- tíðarklæddan skara yndislegra barna umvafinn ljósum og tónum. Það var einmitt þetta undur, sem þarna gerðist fyrir allra augum, sem í kirkjunni voru. Tólf hópar eða kórar víðsvegar af landinu komu fram hver eftir annan og fluttu hver um sig tvö lög og ljóð. Þetta var fjölbreytt efni bæði þjóðlegt og alþjóðlegt. En þó mest íslenzkt, allt frá rímum til sálma. En þótt margt bæri blæ löngu lið- inna tíma voru höfundar flestir úr hópi kynsióðanna á okkar 20. öld. Vel mætti segja að fátt af því, sem flutt var væri barnasöngvar. En því meiri furða, hve flest tókst vel. Allt fékk þennan hugljúfa bernskublæ í flutningi, sem eng- inn dáir meira en sjálfur meistar- inn frá Nazaret. Svo allt fékk bergmál af hæðum í húsi dýrðar hans. Stjórnendur kóranna voru flest- ir ungar og fallegar stúlkur. En auðvitað einnig piltar. En allir gerðu vel, svo vart yrði á milli séð hvað bezt væri. Þá fluttu sjö barnakórar sam- eiginleg lög af ljúfum giæsibrag og með viðeigandi helgiblæ. Þar skal ekki um dæmt, en allt var þetta efni hugljúft og lifandi. Vissulega hlaut að vekja undrun áheyrenda hve allt var skipulegt og vel undirbúið í þessum stóra og fjölbreytta hópi barna allt frá 16 ára til 6 ára aldurs að sagt var. En þar bar ekki skuggann a. Var það sannarlega íslenzkum skólum og börnum til sóma og af- sannar án orða margt það sem fundið er til vanza á vegum æsk- unnar. Þarna var vissulega flokk- ur mörg hundruð barna úr fjar- lægum landshlutum bæði foreldr- um og kennurum til sóma. Fyrir- mynd á ári æskunnar. Aldrei kom þessi háttvísi og hlýðni þó betur í ljós en við síð- ustu röðun kóranna til sameigin- legs flutnings ásamt hljómsveit úr Tónskóla Sigurjóns. Þá var sem sagt allur hópurinn, sex til sjö hundruð manns barna og stjórnenda, kallaður upp í kór- inn umhverfis altarið. Þessir hóp- ar höfðu fylkt sér víðs vegar um kirkjuna og safnaðarheimilið, en voru kallaðir til samsöngva af helztu stjórnendum mótsins. Satt að segja var hreint undur, hve margir komust þarna að, þótt allt húsrúm virtist horfið. Þar varð skipulagning skólameistaranna heilt kraftaverk. Stöðugt ómuðu í vitund minni tvær hendingar úr fögrum sálmi, bæði lagi og ljóði, sem mér fannst vera sungið sem rödd af hæðum úr djúpi hyldjúprar þagnar. Þar er Guð látinn segja í sálmi Matthías- ar Jochumssonar: „Mitt kærleiksdjúp á himins víðar hallir. í húsi mínu rúmast allir — allir." Naumast yrði hægt að veita kirkjunni okkar við Sólheima stærra verksvið. Þarna voru börnin að veita þessum kæra helgidómi nýja vígslu. Það var sannarlega eftir vilja og krafti Krists, sem mat börnin öllu öðru meira. Þetta var af Guðs hönd gjört. Framhaldið og um leið endir þessara ógleyman- legu tónleika voru sannarlega kór- óna helgidóms þessa hátíðarstund. Það hlaut hver maður að finna nálægð hins heilaga, þegar börnin sungu bænina fögru: „Slá þú hjartans hörpustrengi" um kær- leika Guðs í hjörtum manna. Ekkert var þó æðra en síðasta lagið. Það var þjóðsöngurinn sjálf- ur: „Ó, Guð vors lands". „Eitthvað heilagt og hlýtt kom við hjartað í mér,“ sem ég gæti ekki gleymt. Aldrei hafði ég heyrt þjóðsönginn af barnanna munni eingöngu fyrr, þótt ótrúlegt sé. Enginn hljómur gæti verið helgari, með bros gegn- um tár. Heill Langholtskirkju með þessa heilögu yfirlætislausu vígslu barnanna. Ár æskunnar hafði veitt hér sína himingjöf. Því skyldi aldrei gleymt. V estmannaeyjan Snyrtivöruverzlunin Ninja opnud Vestmannaeyjum, 3. maí. í SÍÐUSTU viku var opnuð hér í bæ ný snyrtivöruverslun að Skólavegi 21. Verslunin ber nafnið Snyrtivöru- verslunin Ninja og er eigandi henn- ar Guðlaug A. Gunnólfsdóttir. í Ninju er á boðstólum mikið úrval af snyrtivörum og ýmsar tískuvörur fyrir konur. Mun versl- unin efna til snyrtivörukynninga og fá snyrtisérfræðinga til þess að leiðbeina viðskiptavinum. Meðfylgjandi mynd tók Sigur- geir Jónasson þegar verslunin opnaði og á myndinni eru frá vinstri: Harpa Gísladóttir, ólafía Magnúsdóttir snyrtifræðingur, Guðlaug A. Gunnólfsdóttir eig- andi Ninju og Þórunn Gísladóttir. Þær Harpa og Þórunn eru dætur Guðlaugar. - hkj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.