Morgunblaðið - 10.05.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
Strætó
og rás 2
3320-7158 og 6151—5339 skrifa:
Af hverju eru ekki seld barnak-
ort í strætó alveg eins og fullorð-
inskort? Af hverju þurfa 12 ára
krakkar að borga fullorðinsgjald í
strætó og rútur? T.d. förum við
um þrisvar sinnum í viku í Bláfjöll
og þurfum að borga 150 krónur í
rútuna, en stelpa, sem er jafngöm-
ul okkur en er lítil eftir aldri, þarf
aðeins að borga 110 krónur.
Um daginn skrifaði einhver
maður og sagði að alltaf væru
spiluð sömu lögin, Wham og Dur-
an Duran á rás 2, en við erum því
algjörlega ósammála. Við hlustum
mikið á rás 2 og heyrum ekki mik-
ið Wham og Duran Duran. Auð-
vitað eru sömu lögin spiluð aftur
og aftur. Þetta eru lögin sem fólk-
ið vill heyra.
Jæja, nú kemur þó eitt jákvætt.
Hvemig væri að fá þátt á rás 2,
sem spilaði vinsælustu lögin frá
árunum 1980—1982 fyrst það er
alltaf verið að spila einhver lög frá
1960? Við skulum sjá um það.
Unglingarnir, sjónvarpið og Jón Páll
Unglingur úr Kópavogi skrifar:
Alltaf er maður að heyra fólk
tala um hvað unglingarnir séu
slæmir, flækjast um á kvöldin og
þar fram eftir götunum. Hvernig
eiga krakkarnir að geta hangið
heima á kvöldin og um helgar þeg-
ar það eru ekki einu sinni al-
mennilegar myndir í sjónvarpinu.
Það eina sem kemst að eru
fræðslu- og dýralífsmyndir. Þær
eru ágætar að vissu leyti, en okkur
unglingunum finnast þær ekki
skemmtilegar. Hvernig væri að
sjónvarpið tæki bíóin til fyrir-
myndar. Ég get talið upp ótal
myndir, sem eru mjög góðar t.d.
Karate Kid, 16 ára, Með lögregl-
una á hælunum, Lögregluskólinn,
Heavenly Bodies og fleiri. Það er
a.m.k. hægt að hlæja að þessum
myndum.
Svo verður að fara að bæta
Skonrokk. Hvernig er með lagið
„Everything she wants“, með
Wham? Átti ekki að sýna það í
byrjun apríl?
Síðan vil ég minnast á hann Jón
Pál. Hvernig í ósköpunum datt
ykkur í hug að setja hann i leik-
bann — „sterkasta mann heims“?
Engin manneslya botnar upp né
niður í þessu. Eg las viðtalið við
Jón í Æskunni um daginn og þar
sagði hann að hann ætli að keppa
i Skotlandi í keppni sem heitir
„World-series" þann 25. maí. Þar
verði haldin þrjú mót og hið fjórða
í Hollandi. Mig langar að vita
hvort hann megi taka þátt í þess-
um mótum? En eitt er víst að ég
styð Jón og margir fleiri. Haltu
þínu striki Jón Páll, og láttu eng-
an stoppa þig.
Þessir hringdu .
Lyklakippa fannst
ÁsU hringdi:
Ég fann lyklakippu með um 11
lyklum á á Grenimelnum um
daginn. Síminn hjá mér er 23974.
Styðjum við bak-
ið á „Rikshaw“
Sigga, Didda, Tóta og Þóra
hringdu:
Við viljum vekja athygli á
hljómsveitinni „Rikshaw".
Okkur finnst hún mjög góð og er
hún alls ekki að stæla Duran
Duran þó að það séu margir sem
halda því fram.
Hljómsveitin hefur fágaða og
skemmtilega sviðsframkomu og
von er á plötu með henni innan
tíðar Rikshaw er ein besta
hljómsveit landsins í dag og
finnst okkur að islenskir ungl-
ingar eigi að iaka höndum sam-
an og styðja Rikshaw einlægt við
að koma henni á erlendan mark-
að.
Afskræming
mannslíkamans
V.B. hringdi:
Ég er öldruð kona sem horfir
töluvert á sjónvarpið. Nýlega var
íþróttaþáttur og sýnd var m.a.
keppni hjá vaxtarræktarfólki.
Aðra eins afskræmingu á
mannslíkama hef ég ekki séð
fyrr, og ég fór að hugsa með
sjálfri mér hvernig þessir llkam-
ar yrðu þegar fólkið færi að
reskjast.
Ég sá í anda andlitsfrítt fólk
með Hkamann þakinn húðpokum
og sepum þegar vöðvarnir færu
að rýrna. Þetta fyrirbæri á ekk-
ert skylt við íþróttir og vonandi
eru þessar misþyrmingar á lík-
amanum aðeins tískufyrirbæri,
sem líður hjá fyrr en seinna.
Til hvaða
konu er ort?
Geróur hringdi:
Ég vil vita til hvaða konu er
ort í eftirfarandi kvæði. Kvæðið
er eftir Hannes Hafstein.
Nei, smáfríð er hún ekki
o« engin skýjadis
en engn samt eg bekki
sem ég inér Heldur kts.
Þó hún sé hoidug nokkué
er hondin ofursmá
bún er sro iturlokkuA
með cskulétU orá.
Hsildsölubirgöir:
Agnar Ludvigsaon hf.
Nýlondugölu 21,
simi 12134.
OPffilHUTIMAR
IIM HEL6MA
Föstudagur til kl. 7 (19.00)
Laugardagur kl.9—4(16.00)
SUNNUDAGUR
HÚSGAGNASÝNING
milli kl. 2 og 5 (14.00—17.00)
Notið þetta tækifæri
til að skoða stærstu
húsgagnaverslun landsins
BDS6A6NABÖLL1N
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410