Morgunblaðið - 16.06.1985, Blaðsíða 23
MORG UNBLAÐID, SUNNUDAGUR 16. JUNI 1986
K Zó
kemur fólk alls staðar að með mis-
munandi bakgrunn og skoðanir.
í sumar verð ég baðvörður en
næsta vetur langar mig í nám. Ég
er ákveðinn í hvað ég ætla og
hvernig ég fer að því en ég vil
síður uppvísa þjóðina um fyrirætl-
anirnar. Svo undarlega sem það
kann að hljóma þá er maður alltaf
dreginn í ákveðinn dilk eftir því
hvað maður ætlar sér og þá býst
fólk við ákveðnum einkennum. Ég
vil síður vera fulltrúi vissra fræða,
en það er öruggt að ég veit hvað ég
vil. Mig langar í stóra sundlaug!
Á þjóðhátíðardaginn vona ég að
allir hafi það gott og séu rólegir og
kurteisir í umferðinni."
Auður Alexandersdóttir
AUÐUR ALEXANDERS-
DÓTTIR KSRV:
Verð að vinna
tíu milljónir í
happdrætti
ÞAÐ varð engin stórvægileg
breyting í lífi mínu við að verða
stúdent, þótt óneitanlega sé það
þægilegt. Ég kunni afskaplega vel
við mig í Kvennó, þar er bæði fá-
mennt og góðmennt og gott sam-
starf milli kennara, nemenda og
starfsmanna. Ég hélt mig mikið í
eldhúsi skólans og fékk þannig
viðurnefnið búrkötturinn, en þar
sem skólatíminn er nýliðinn eru
minningarnar þaðan frekar graut-
arkenndar og ekkert sem stendur
mér sérstaklega fyrir hugskots-
sjónum.
í sumar ætla ég að vinna sem
gangastúlka í Hafnarbúðum, en er
að sækja um háskóla í Árhus í
Danmörku þar sem mig langar til
að læra tómstundaráðgjðf. Eg hef
áhuga á að starfa með unglingum
og minn stóri draumur er að geta
keypt stórt gamalt hús og sett upp
mína eigin félagsmiðstöð. En áður
en það getur orðið að veruleika
þarf ég að vinna tíu milljónir í
happadrætti!
Ingi Rúnar Jónsson
INGI RÚNAR
JÓNSSON MÍ:
Oákveðnari
núna en þegar
ég byrjaði
„ÞAÐ ER viss áfangi að hafa lokið
stúdentsprófi, en þó ekkert loka-
takmark. Þegar leið að prófunum
hlakkaði ég mjög til að þeim lyki
en nú gerir maður sér grein fyrir
að annað tekur við. Að vera stúd-
ent er eins konar stökkpallur út í
lífið. Þegar sótt er um starf er
oftast grunnskilyrði að umsækj-
andi hafi lokið menntaskóla eða
fjölbraut og allt framhaldsnám
byggir einnig á stúdentsprófi.
Ég var í heimavist í Torfnesi og
hafði mjög gaman af. Að mínu
mati er það hverjum manni hollt
að vera um lengri eða skemmri
tíma í heimavist svo ekki sé talað
um stað eins og Torfnes þar sem
húsnæðið er mjög gott og mátu-
lega margt á hverri vist.
Ég er alveg óráðinn hvað ég
ætla að gera í framtíðinni, jafnvel
enn óákveðnari en þegar ég byrj-
aði í MÍ. Þó hallast ég mest í átt
að náttúrugreinunum, ef til vill
verður fiskifræði fyrir valinu. Ég
bý inní ísafjarðardjúpi og verð
þar fram á sumar og athuga minn
gang. Hvað verður úr vangavelt-
unum þori ég ekki að segja.
Morgunbladid/Júlíus
Tómas Guðbjartsson
TÓMAS GUÐ-
BJARTSSON MR:
Sé eftir
félagsskapnum
MÉR LÍÐUR stórvel eftir prófin,
en sé mjög mikið eftir félags-
skapnum. Síðasta vetur vorum við
fimmtán saman í einum bekk, í
pínulitilli stofu, og þá er ekki hjá
því komist að kynnast öllum félög-
unum mjög vel.
Að vera inspector í MR var fullt
starf og jafn lærdómsríkt og að
vera í skólanum. Ég kynntist
ótrúlegasta fólki en þegar reynt er
að gera vel í skólanum líka þá er
þetta þrælavinna.
í sumar verð ég að mála húsið
hennar ömmu minnar í sólskininu
sem ég er búinn spá. Næsta haust
ætla ég síðan að reyna við læknis-
fræðina. Það eru margir sem
reyna að draga úr mér kjarkinn,
segja að atvinnumöguleikar séu
lélegir og þar fram eftir götunum.
En það þýðir ekkert annað en að
treysta á sjálfan sig.
Fyrir utan læknisfræðina hef ég
mikinn áhuga á fjallgöngum og
langar til að komast einhvern tím-
ann í Himalayafjöllin og þar sem
ég er bjartsýnn maður þá kemst
ég þangað fyrr eða síðar!
Morgunblaöið/ Júlíus
Anna Gunnarsdóttir
ANNA GUNNARS-
DÓTTIR MR:
Fer til
*
Israels í
haust
ÞAÐ ER unaðslegt að vera búinn
með þennan áfanga. Þó síðastliðin
fjögur ár hafi ekki verið erfið þá
er fínt að vera laus við bækurnar í
bili.
í heild er skólinn mér mjög
minnisstæður. Hann heldur fast í
gamlar hefðir og andinn er mjög
sérstæður, engir langir ópersónu-
legir gangar né stórir salir sem
auðvelt er að týnast í. Þeir félagar
sem ég eignaðist i MR eiga lika
eftir að endast mér allt lífið. Þó að
námið sé strangt og félagslif ekki
upp á sitt besta, þá er auðvelt að
kynnast fólki í bekkjakerfi og
vinnáttuböndin verða traustari
Um framtíðina vil ég litið spá.
Ég er mikil ævintýramanneskja
og þrái það heitast að komast til
Litlu-Asiu, helst ísrael. Stefnan er
að fara þangað næsta haust aö
vinna á samyrkjubúi. Síðan ætla
ég að ferðast en hvert verður hald-
ið er enn óráðið. Þegar ég verð
búin að fá nægju mína af heimin-
um kem ég aftur heim og fer lík-
lega í nám, hvað það verður veit ég
ekki.“
COSPER
— Þú skalt láta það sem bann segir sem vind um eyrun þjóta; þetta er fyrri
maöurinn minn.
CO2-Argon - suóuvélar
meö innbyggöu hleðslutæki
(80 AMP) og startstraum (250 AMP)
Verö:
180 Amper 1-fasa
Kr. 28.500,-
200 Amper 3-fasa
Kr. 27.803,-
300 Amper 3-fasa
Kr. 31.208,-
Greiðslukjör
Ótrúlega hagstætt verð - hafið
_________samband strax._______________
JP-ENfill RERXg
Armúla 36, simi 82424, Pósthólf 4180. 104 Reyk|avik
Dráttarvéladekk: verömeðsöiusk.
600x16 6PLY kr. 3.685.-
600x19 6PLY kr. 3.523.-
650x16 6PLY kr. 3.875.-
750x16 6PLY kr. 4.997.-
900x16 10PLY kr. 11.003.-
10x28 6PLY kr. 12.765.-
11x28 6PLY kr. 15.260.-
12x28 6PLY kr. 16.439.-
13x28 6PLY kr. 19.978.-
14x30 6PLY kr. 26.560.-
14x34 6PLY kr. 30.663.-
Vagndekk:
10.0x15 10PLY kr. 6.943.-
11.5x15 10PLY kr. 8.608.-
12.5x15 14PLY uppseld-væntanleg
13.0x16 10PLY kr. 11.665.-
Heyvinnuvéladekk:
300x4 kr. 594.-
400x4 kr. 654.-
350x6 kr. 748.-
350x8 kr. 789.-
400x8 kr. 962.-
400x12 kr. 1.123.-
BÚNADARDEILD
SAMBANDSINS
ÁRMULA3 108 REYKJAVÍK SIMI 38900