Morgunblaðið - 16.06.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 16. JÚNl 1985
B 31
Stjörnugjöfin
STJÖRNUBÍÓ:
í fylgsnum hjartans ictrkV,í
Saga hermanns ★★★
LAUGARÁSBÍÓ:
Uppreisnin á Bounty ★★★
Flótti til sigurs ★★
Undarleg paradís ★★★
AUSTURBÆJARBÍÓ:
Á bláþræöi ★★
Lögregluskólinn ★★
Sjö samurajar ★★★★
Hrafninn flýgur ★★★V!í
BÍÓHÖLLIN:
Hefnd busanna ★★
Dásamlegir kroppar ★1/2
Næturklúbburinn ★★★
2010 ★★1/2
HÁSKÓLABÍÓ:
Löggan í Beverly Hills ★★★1/2
REGNBOGINN:
Vogun vinnur ’/2
Vígvellir ★★★
Ólgandi blóö ★
NYJA BÍÓ:
Ævintýrasteinninn ★★★1/2
HAFNARFJARÐARBÍÓ:
Hvítir mávar ★1/2
SV
FRÉTTAPUNKTAR
i vikunni sem leiö var frum-
sýnd nýjasta mynd John Huston
og ber hún nafniö Prizzi’s Honor.
Hún hefur hlotið einróma lof og
þykir ein besta mynd hins fræga
leikstjóra um árabil. Lengi lifir í
gömlum giæöum.
I myndinni leikur Jack Nichol-
son (hálfgeröur tengdasonur
Huston), harösvíraðan útsendara
mafiunnar, en hin eftirsótta Kath-
leen Turner, (Romancing the
Stone), herskáan kvenmann,
sem settur er til höfuös honum.
En svo grípur ástin inní. Séö hef-
ur maöur á prenti aö hér sé um
eina af „myndum ársins" aö
ræöa og allavega er úrvals-
mannskapur á ferðinni. Viö ætt-
um þvi aö leggja Prizzi’s Honor á
minniö.
A View to a Kill, Bond-myndin
nr. 14, sem Bióhöllin hreppti á
dögunum, hefur gengiö meö
ágætum vestan hafs, þar sem
þessi kvikmyndasería hefur aldr-
ei notiö viölíka mikilla vinsælda
og í Vestur-Evrópu. Hins vegar
hafa dómarnir veriö svona og
svona...
Sú mynd sem nýtur langsam-
lega mestra vinsælda í Vestur-
heimi í dag er hins vegar Rambo:
inum eftir verölaunamyndinni
hans Milosar Forman um Ama-
deus Mozart. Von er á henni til
landsins áöur en líöur á löngu, en
óvíst er aö hún veröi tekin til sýn-
inga fyrr en meö haustinu. Aö-
sókn er léleg yfir hásumariö og
reynslan hefur sýnt að þá ganga
helst engar aörar myndir en þær
sem hlaðnar eru hasar og látum.
I ævisögu sinni, Roman, rekur
Polanski raunasöguna um útreiö
hugmyndarinnar aö kvikmynd-
inni Pirates, sem hann ætlaöi sér
aö gera næst á eftir hinni vinsælu
Chinatown. Þá voru kvikmynda-
verin á eftir Polanski og Nichol-
son ætlaöi aö fara meö aðalhlut-
verkiö. Svo fór þó aö lokum aö
hinn snjalli leikstjóri sat uppi
með hugmyndina.
En nýjustu fréttir herma aö
gamall vinur Polanski, framleiö-
andinn Dino De Laurentiis, hafi
lagt fram fé í þetta kostnaöar-
sama fyrirtæki og tökur eru hafn-
ar aö nokkur á Seychell-eyjum
og Túnis. Meö aöalhlutverkiö fer
Walter Matthau og þá hefur hinn
umtalaöi leikstjóri grafiö upp enn
eina, gullfallega hnátuna, hina
sautján ár Chalotte Lewis, til aö
fara meö eitt hlutverkanna. SV
Turner og Nicholson í nýjustu mynd hins
aldna meistara John Huston, Prizzi’s Honor.
First Blood II, meö sjálfum Stall-
pne á nýjan leik i titilhlutverkinu.
Hún hefur hlotiö lygilega aösókn
og hefur slegiö út öll áöur þekkt
aösóknarmet. Fyrstu dagana tók
hún inn hvorki meira né minna en
röskar 30 millj. dala, reyndar í
einum 2000 kvikmyndahúsum.
Spekúlantar reikna meö aö
Rambo.. veröi búin aö slá Indi-
ana Jones, E.T. og Stars Wars
myndirnar út seinni part sumars.
Þaö má reikna með aö íslenskir
kvikmyndahúsagestir fái tæki-
færi til aö sjá myndina í Háskóla-
bíói áöur en langt um líöur.
Talandi um Háskólabíó má
bæta því viö aö Eddie Murphy og
félagar hafa seitt til sín tæplega
fjörutíu þúsund gesti á Beverly
Hills Cop, og er lítið lát á aö-
sókn. Og hún minnkar vafalaust
ekkert aö ráöi meö tilkomu
næstu myndar, The Terminator,
sem er mikil aösóknarmynd meö
vöðvafjallinu Arnold Schwarzen-
egger í aöalhlutverki.
Margir bíöa meö öndina í háls-
Síöasti „fundur" Romans Pol-
anski, Charlotte Lewis, sem fer
meö vænt hlutverk ( nýjustu
mynd hins pólska listamanns,
Pirates. Og hann er sem sagt
ekki hættur í kvikmyndabrans-
anum. Sem betur fer.
Chuck Norris í slagsmálum í nýjustu myndinni sinni, „Code of Silence“.
CHUCK NORRIS GER-
IR ÞAÐ LOKSINS GOTT
Úti í Bandaríkjunum var ekki
alls fyrir löngu frumsýnd nýjasta
hasarmyndin meö vööva- og kar-
atetröllinu Chuck Norris og eftir
því sem Vincent Canby kvik-
myndagagnrýnandi hjá The New
York Times segir, hefur Chuck
loksins slegiö í gegn aö einhverju
marki. Þaö þýöir aö hetjur eins
og Clint Eastwood og Charles
Bronson þurfa aö fara aö vara
sig.
„Code of Silence" (Lögmál
þagnarinnar) heitir myndin og er
fyrsta flokks hasarmynd um
Chicago-löggu, er kann sitthvaö
fyrir sér i slagsmálum og er jafn-
vigur á hnefa og lappir, sem
lendir í bófastriöi út af kókaín-
smygli. Chuck hefur ekki látiö af
þeim vana sínum aö brytja menn
niöur meö þaulæföum jaöar-
höggum og sérlega háum spörk-
um og aö segja ekki mikiö í vinn-
unni og eftir því sem myndir hans
hafa oröiö betri hefur sjálfstraust
hans aukist.
Norris er meiriháttar „ný“
kvikmyndastjarna segir Canby,
og hefur ekki verið uppgötvaöur
af neinum framleiöendum eöa
mikilsmetnum gagnrýnendum,
heldur óbrotnum almúganum,
hinum sama og á sínum tíma
uppgötvaöi þá Eastwood og
Bronson og haföi gaman af þeim
löngu áöur en þeir komust í
tísku. Þótt fáir menningarvitarnir
í New York hafi séö Norris-mynd
eöa heyrt af sltkri, hafa myndir
hans uppá síðkastið dregið aö
sér fé eins og mykjan flugur. Síö-
asta mynd hans, „Missing in Act-
ion", gaf 10 milljónir dollara í
aöra hönd og aörar þrjár hafa til
samans gefiö 100 milljónir í
kassann.
Samanboriö viö þá Eastwood
og Bronson er Chuck Norris enn-
þá svona heldur ómótaöur kvik-
myndaleikari. Þar til hann lék í
Lögmáli þagnarinnar haföi hann
ekki unniö meö kvikmyndagerö-
armönnum, sem þekktir voru fyr-
ir gáfur eöa stíl. Norris er ennþá
ungur miöaö viö hina tvo þótt
hann hafi byrjaö seint í kvik-
myndunum. Hann er nú hálf-
fimmtugur en Eastwood er hálf-
sextugur og Bronson veröur 63ja
þegar „Death Wish 3“ veröur
frumsýnd á þessu ári. Ekkert
viröist þó ætla aö veröa honum
aö falli enda hefur hann alltaf litið
út eins og einhver sem lifaö hefur
tvö eöa þrjú ólík jaröfræöileg
tímabil.
Áöur en Norris byrjaöi aö leika
sin ofurmenni var hann í banda-
ríska flughernum í Kóreu þar
sem hann lærði þaö sem hann
kann í karate og júdó. Seinna
setti hann á fót skóla í þessum
iþróttum og vegnaöi bara vel. i
sjö ár var hann heimsmeistari í
milliþungavigt í karate eöa þar til
hann dró sig ósigraöur í hlé áriö
1974. Þaö var Steve heitinn Mc-
Queen — sonur hans var nem-
andi hjá Norris — sem fyrst kom
honum af staö í kvikmynda-
leiknum, sem hingaö til hefur ein-
göngu veriö beint aö sórstökum
kung-fu- og karate-aödáendum.
En nú virðist semsagt loksins
vera komið tækifæriö hans Norr-
is til aö slá í gegn eftir allar þess-
ar myndir sínar (12 aö tölu) og
koma sér á stall meö þeim East-
wood og Bronson og öörum slík-
um. Ef þaö er þá draumurinn.
— ai
Framleiðendur „Enemy Mine“, Helmut Gattinger og
Stanley O’Toole og leikstjórinn Wolfgang Petersen (t.h.)
TÖKUM Á „ENEMY
MINE“ LOKIÐ
Enemy Mine er svo aö segja
tilbúin til sýninga. Tökum lauk
fyrir nokkrum vikum og veröur
hún frumsýnd um næstkomandi
jól.
Þaö hefur gengiö á ýmsu hjá
framleiöendum myndarinnar,
Stanley O’Toole og 20th Century
Fox. Upphaflega átti myndin aö
kosta um 20 milljón dali, en end-
anlegur kostnaöur er aö minnsta
kosti 32 milljónir.
Enemy Mine er fyrsta banda-
ríska kvikmyndin sem er gerö aö
mestu, ef ekki öllu leyti í Þýska-
landi, heimalandi leikstjórans,
Wolfgangs Petersen, en eins og
menn muna tók hann við af Rich-
ard Loncraine.
Fyrstu atriöi myndarinnar voru
tekin hér á landi í ársbyrjun
1984, en þá hljóp snuröa á þráö-
inn. Leikstjóranum og framleiö-
andanum samdist ekki, og sá
siöarnefndi hringdi héöan í
Wolfgang Petersen og bauö hon-
um aö leikstýra myndinni. Wolf-
gang afþakkaöi boöiö, en sá sig
um hönd eftir aö hann las hand-
ritið. Hann setti fram ýmsar kröf-
ur ef hann ætti aö taka aö sér
leikstjórn; sú mikilvægasta aö
allt efni yröi tekiö upp á nýtt (sem
þýöir aö þaö sem var tekiö hér-
lendis veröur ekki notaö) og aö
myndin yröi öll tekin upp í Ba-
varia-kvikmyndaverinu í Þýska-
landi, en þaö þekkir Wolfgang
betur en sjálfan sig. Þar geröi
hann sinar tvær fyrstu myndir,
Das Boot (Kafbátinn) og Söguna
endalausu. Framleiöandinn gekk
aö þessum kröfum Wolfgangs,
enda leist þeim mjög vel á leik-
stjórn hans eftir aö hafa séö
Söguna endalausu.
20th Century Fox bindur mikl-
ar vonir viö þessa kvikmynd,
enda er hún langstærsta og
metnaðarfyllsta myndin sem þeir
standa aö á þessu ári.
HJÓ