Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 5

Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 5 Friðrik Sophusson og Birgir ísleifur Gunnarsson um breytingar í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins: Breytingarnar til mikilla bóta „ÉG STYÐ þessar breytingar eindregið. Ég hef reyndar lengi verið þeirrar skoðunar að formaður flokksins eigi að vera í ríkisstjórninni," sagði Fríðrik Sóphusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er blaðamaður Morgunblaðs- ins spurði hann í gær, hvort hann teldi nóg aðgert með þeim breytingum sem nú hafa verið ákveðnar í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins. Friðrik sagði að Sjálfstæðis- flokkurinn tæki þátt í þessu stjórnarsamstarfi til þess að ná árangri. Ríkisstjórnin næði ekki árangri, nema hún hefði traust. „Ef þessar breytingar leiða til vaxandi trúar almennings á stjórninni og styrkja hana til þess að takast á við erfið úrlausnarefni, sem blasa við á næstunni, þá er nóg að gert,“ sagði Friðrik. „Ég tel reyndar, eins og svo fjölmargir aðrir,“ sagði Friðrik, „að nú sé komin röðin að framsókn að sýna viðleitni til þess að styrkja stjórnina. Það er hins vegar mál sem þeir verða að leysa sjálfir." Varaformaður Sjálfstæðis- flokksins sagðist vilja árna for- manni flokksins og ráðherrum hans allra heilla í nýjum störfum. Birgir Isleifur Gunnarsson, sem nú er staddur í Bandaríkjunum, sagði i samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, er hann var Tímabundnar uppsagnir „VIÐ SÖGÐUM lausráðnu starfs- fólki upp um stundarsakir vegna hráefnisskorts. Það hefur allt verið boðað aftur til vinnu næst- komandi þriðjudag, en þá reiknum við með að Olafur Bekkur landi hér,“ sagði Svavar Magnússon, framkvæmdastjóri Hraðfrysti- húss Magnúsar Gamalíelssonar hf. á ólafsfirði, en lausráðnu starfs- fólki þar hafði verið tilkynnt upp- sögn frá og með deginum í dag, miðvikudegi 9. október, með viku fyrirvara. spurður hvort hann teldi nóg að gert varðandi breytingar á ráð- herraliði Sjálfstæðisflokksins: .Ég er þeirrar skoðunar að þessar breytingar séu til mikilla bóta og sérstaklega hafi það verið mikil- vægt að Þorsteinn kæmist inn i ríkisstjórn, því hans staða sem formaður flokksins var orðin óvið- unandi. Mér finnst þetta jafnframt vera rétt leið að stokka upp ráðu- neytum, og tel ég að þetta veiti ferskum blæ inn í rikisstjórnina og styrki hana verulega. Sjálfur tel ég að ekki hefði verið raunhæft að reikna með frekari breytingum á þessu stigi.“ Jólabók um Reyni Pétur og gönguna REYNIR Pétur Ingvarsson göngu- garpur frá Sólheimum í Grímsnesi og íslandsganga hans í sumar verdur efni bókar, sem Eðvarð Ingólfsson hefur skrifað fyrir kristilegu útgáf- una Kkálholt. Heiti bókarinnar hefur ekki verið ákveðið en bókin á að koma út fyrir jól. Bók sina byggir Eðvarð á við- tölum við Reyni, starfsfólk á Sól- heimum og fleiri, frásagnir af göngunni, lýsingar á þvi sem fyrir augu og eyru bar og fjölmörgum myndum. Bókin um Reyni Pétur og Sól- heimagönguna verður 140-150 blaðsíður. 15 ára afmœlishátíð á Broadway Pantið miöa tímanlega þar sem uppselt var um sl. helgi. Sími 77500. STÓRSÝNING Sumargleöinnar hefur svo sannarlega slegid í gegn. 17 úrvals skemmtlkraftar meö þá Ragga Bjarna, Ómar Ragnarsson, Bessa Bjarna, Óla og Hemma Gunn í fararbroddi sem fara á kostum í stórglæsilegri sýningu sem býöur upp á söng, dans, grín og gleöi eins og best veröur á kosiö. Sumargleðin hefur aldrei veriö fjölbreyttari, f;örugri eöa betri en einmitt nú, þaöermálmanna. Matseðill Rœkjukokteill Villikryddað lambalœri Fyllt bökuð epli með kókos- fyllingu og rjóma Þrátt fyrir aö menn hafi stundað stjórnunarstörf um langan aldur, hefur þaö reynst þátttakendum lærdómsríkt að sækja námskeið, deila reynslu sinni með öðrum og heyra hvernig vandamál annarra fyrirtækja eru leyst. MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS: __________________ ________________________ • Kynna meginreglur stjórnunarfræðanna • Vekja stjórnendur til umhugsunar um þann fjölbreytileika sem ríkir í stjórnun • Veita stjórnendum innsýn (eigin stjórnunaraðferðir og samskipti þeirra við starfsmenn Hvað er stjórnun Stjórnskipulag og tegundir Einstaklingurinn og vinnan Starfshvatning Upplýsingastreymi Verkefnastjórnun Skipulagsbreytingar Leiðb.: Höskuldur Frímannsson, rekstrarhagfræðingur Tími og staður: 14.-17. okt. kl. 14-18, Ánanaustum 15 Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 Sími: 6210 66 Framkvæmdaaætlun og forgangsroð aðgerða • Verkefnagerð og undirbuning þátttakenda fyrir fund • Hlutverk fundarstjóra • Tímaáætlun, truflanir • Skilgreiningu og endurgreiningu verkefna • Hvernig ber að fylgja aætlunum eftir Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, hópvinnu og fundarhöldum. Leiðbeinandi: Sigurður örn Gíslason, rekstrarráðgjafi. Tími og staður: 14.-15. okt. kl. 9-12, Ánanaustum 15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.