Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985
Tarkovski
Síðastliðið mánudagskveld
var dagskrá í sjónvarpinu
um sovéska kvikmyndaleikstjór-
ann Andrei Tarkovski. Var fyrst
sýndur þáttur er nefndist: Tark-
ovski á íslandi og síðan myndin:
Heimþrá (Nostalgia) er Tarkovski
gerði á Ítalíu og lýsir angist og
söknuði þess er fær aldrei að líta
aftur heimahagana. Ég býst við
að kvikmyndagagnrýnendur blaðs-
ins hafi fjallað um kvikmynd
þessa, en á minni könnu er sjón-
varpsþátturinn. í kynningartexta
sjónvarpsins segir: Sjónvarpsþátt-
ur um heimsókn kvikmyndaleik-
stjórans Andrei Tarkovski til Is-
lands í vor. Ennfremur ræðir Árni
Bergmann við Tarkovski og sýnd
eru brot úr fyrri kvikmyndum
hans. Umsjónarmaður Sveinbjörn
I. Baldvinsson. Það var margt
athyglisvert í þessum sjónvarps-
þætti, þótt brotin úr kvikmyndum
Tarkovski hafi nú ekki sagt langa
sögu um þennan sérstæða kvik-
myndagerðarmann. Hitt fannst
mér öllu athyglisverðara hve upp-
teknir kvikmyndatökumennirnir
voru af íslensku landslagi. En
máski hefir hið nöturlega íslenska
snjófjúk er þarna gladdi augað átt
að gefa hugmynd um sálarástand
þess manns er hefir verið útilokað-
ur um eilífð frá föðurlandi sínu
og ástvinum — og það án nokkurr-
ar sýnilegrar ástæðu.
Útlegð
Já, það dugir svo sannarlega
skammt að yngja upp ásjónu kerfis
er leikur þannig hinn almenna
borgara. Eða getur nokkur íslend-
ingur ímyndað sér þá sálarkvöl er
fylgir útlegðardómi? Tarkovski
elskar sitt föðurland, börnin, ætt-
ingja, æskuvinina, ilminn af rússn-
eska barrinu, sólina þegar hún
speglast á gullnum hvolfþökum
Kremlar. Samt kýs hann að hverfa
frá þessu öllu saman til hagkerfis
er hefir neytt stórmeistara á borð
við Kurosawa til að betla fé svo
hann megi ljúka Lear, til hagkerfis
sem hefir slökkt á ítölsku og
frönsku bylgjunni, til hagkerfis er
krefst hraðrar atburðarásar,
kláms eða gríns. Hver er ástæða
þess að slíkt „kvikmyndaskáld"
slítur líf sitt upp með rótum og
hverfur til hins miskunnarlausa
samkeppnisheims Vesturlanda?
Ástæðan er ofureinföld. Tarkovski
hafði séð grímulausa ásýnd alræð-
isins hann var kominn á rauða
Iistann.
Rauði listinn
Já, það er sko ekkert grín að
lenda á rauða listanum þar sem
„alræði öreiganna" ríkir. Þeir sem
lenda á þeim lista breytast í eins
konar „ómenn" slíka er Orwell lýs-
ir svo í 1984: X var í hópi þeirra,
sem kallaðir voru „ómenn“. Hann
var ekki til; hafði aldrei verið til.
(Bls. 37.) Menn bregðast misjafn-
lega við slíkum „ómennisstjórnar-
háttum", sumir hverfa að mestu
inní heim þagnarinnar, aðrir
stunda línudans eða þiggja kaffi í
húsi rithöfundasamtakanna eða
skjóta sig. Enn aðrir fara að dæmi
Tarkovski. í fyrrgreindri sjón-
varpskvikmynd var Tarkovski
teymdur í sumarbústað við Álfta-
vatn. Var það vel við hæfi því
umhverfið var eitthvað svo rússn-
eskt og bústaðurinn sömuleiðis,
það vantaði bara sleðaferð slíka
er Pasternak lýsir svo í sjálfsævi-
sögunni: Hvítur frerinn kastaði
frá sér stjörnuskininu og lýsti
okkur veginn. Þessi glampandi
hvíti snjór á milli trjánna vakti
hjá manni geig, það var eins og
logandi kerti hefðu verið sett í
skóginn.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / S JÓN VARP
Tryggvadóttir kynna starf
í grunnskóla og Bogi Arn-
ar Finnbogason samstarf
heimila og skóla.
Annan hvern fimmtu-
dag mun Ragnar Jón
Gunnarsson huga að
umhverfi fólks og skipu-
lagsmálum almennt.
Markmiðið er að benda á
mikilvægi umhverfisins f
daglegu lífi fólks og hvetja
til umræðu um það.
Sigurður Sigurðsson
mun síðan annan hvern
fimmtudag koma á fram-
færi almennum fróðleik
um neytendamál og svara
skriflegum fyrirspurnum
hlustenda. Einnig mun
hann fjalla um auglýsing-
ar og markaðsaðstæður á
íslandi.
Aftan-
stund
■■■■ Aftanstund,
1 Q 25 harnaþáttur
— með innlendu
og erlendu efni, er á dag-
skrá sjónvarps kl. 19.25 í
kvöld og kennir þar
ýmissa grasa að vanda.
Fyrst í Aftanstundinni
verður Söguhornið. Hall-
dór Torfason segir ævin-
týrið „Mýslurnar". Þá
verður „Maður er manns
gaman" og „Forðum okkur
háska frá“, teiknimynda-
flokkur frá Tékkóslóvakíu
um það sem ekki má í
umferðinni. Sögumaður er
Sigrún Edda Björnsdóttir.
ílr tékkneska teiknimyndaflokknum „Forðum okkur hiska fri“.
„í dagsins önn ..
■■■■ Þáttaröðin „I
1 o 30 dags'ns
1 ó — önn ...“ hóf
göngu sína sl. mánudag og
verða þættirnir á dagskrá
Barnaútvarpið
■■■■ Barnaútvarpið
1 7 00 er á dagskrá
1 I — útvarps, rásar
1, kl. 17.00 í dag að vanda.
Flutt verður tónlist úr
nýlegum og gömlum kvik-
myndum. Knútur R.
Magnússon heldur áfram
lestri þýðingar Ingólfs
Jónssonar frá Prestbakka
„Bronssverðið", en sagan
er eftir Jóhannes Hegg-
land.
Umsjónarmaður Barna-
útvarpsins er Kristín
Helgadóttir og henni til
aðstoðar eru þau Orri
Hauksson og Ljósbrá
Baldursdóttir, bæði 14 ára
gömul.
rásar 1 fjóra daga vikunn-
ar, frá mánudegi til
fimmtudags.
í þáttunum verða fjöl-
skyldan og heimilið í
brennidepli og er stefnt
að því að veita fræðslu og
hvatningu í dagsins önn.
Markmiðið er að hlúa að
fjölskyldunni og höfða til
fólks á öllum aldri. Tekin
verða fyrir málefni hvers-
dagsins svo sem heil-
brigði, næring, uppeldi,
samvera, skóli, umhverfi
og neytendamál. Þetta eru
sex sjálfstæðir þættir með
jafnmörgum umsjónar-
mönnum og verða þeir á
dagskrá ýmist vikulega
eða aðra hverja viku kl.
13.30 á fyrrnefndum dög-
um.
Á mánudögum mun
Sverrir Guðjónsson beina
athyglinni að fjölskyld-
unni sem heild og sýna
dæmi um samveru sem
eflt gæti innbyrðis tengsl
hennar. Rætt verður við
fólk úr mismunandi fjöl-
skyldugerðum og fjöl-
skyldur sem hafa fatlaða
fjölskyldumeðlimi.
Á þriðjudögum fjallar
Jónína Benediktsdóttir
um heilsuvernd. Leitað
verður ráða hjá sérfræð-
ingum á hverju sviði sem
tekið verður fyrir og þann-
ig reynt að fræða fólk um
hvað það sjálft geti gert
sér til heilsubótar.
Annan hvern miðviku-
dag mun Kristín H.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
9. október
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Leikfimi.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Sætukoppur" eftir Judy
Blume. Bryndls Vlglunds-
dóttir les pýðingu slna (10).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar.
Tðnleikar, pulur velur og
kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn páttur Sigurðar
G. Tómassonar frá kvöldinu
áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Lesið úr forustugreinum
dagblaöanna.
10.40 Þáttur Valborgar Bents-
dóttur.
11.10 Úr atvinnullfinu.
Iðnaðarrásin. Umsjón: Gunn-
ar B. Hinz, Hjörtur Hjartar og
Páll Kr. Pálsson.
11J0 Morguntónleikar
Þjóðlög frá ýmsum löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Sam-
starf heimila og skóla. Um-
sjón: Bogi Arnar Finnboga-
son.
14.00 Miðdegissagan: „A
strðndinni" eftir Nevil Shute.
Njörður P. Njarðvlk les þýð-
ingus(na(14).
14.30 Hljómskálatónlist. Guð-
mundur Gilsson kynnir.
15.15 Hvað finnst ykkur?
Umsjón: Örni Ingi. RÚVAK.
15/45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar
a. Sónatlna nr. 1 I fls-moll
eftir Jean Sibelius. Erik T.
Tawaststjerna leikur á planó.
b. Tónlist úr „Pétri Gaut“
eftir Edvard Grieg. Sinfónlu-
hljómsveitin I San Francisco
leikur. Edo De Waart stjórn-
ar.
c. Sænskur hátlðarforleikur
eftir August Sðderman og
„Haustljóð" eftir Wilhelm
Peterson-Berger. Fllharmon-
lusveitin I Stokkhólmi leikur,-
Björn Hallman stjórnar.
17.00 Barnaútvarpiö
Meðal efnis: „Bronssverðið"
eftir Johannes Heggland.
Knútur R. Magnússon heldur
áfram lestri pýðingar Ingólfs
Jónssonar frá Prestbakka.
Stjórnandi: Kristln Helga-
dóttir.
17.50 Siðdegisútvarp.
— Sverrir Gauti Diego.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.45 Málræktarpáttur
Helgi J. Halldórsson flytur.
19.50 Eftir fréttir
Jón Asgeírsson fram-
kvæmdastjóri Rauöa kross
fslands flytur þáttinn.
20.00 Hálftlminn
— Elln Kristinsdóttir.
20.30 Ipróttir
Umsjón: Samúel örn Erlings-
son.
20.50 Tónamál
Soffla Guðmundsdóttir
kynnir. RÚVAK.
21.30 Flakkaö um ftallu
Thor Vilhjálmsson flytur
frumsamda ferðapætti (6).
SJÓNVARP
19.25 Aftanstund
Barnaþáttur meö innlendu
og erlendu efni. Söguhornið
— Halldór Torfason segir
ævintýriö Mýslurnar. Maöur
er manns gaman og Forðum
okkur háska frá — teíkni-
myndaflokkur frá Tékkóslóv-
aklu um það sem ekki má I
umferðinni. Sögumaður:
Sigrún Edda Björnsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
MIÐVIKUDAGUR
9. október
20.40 Svipmyndir úr forsetatör
Þáttur frá opinberri heim-
sókn forseta fslands til Spán-
ar og Hollands I sfðasta
mánuði. Umsjónarmaöur
Helgi E. Helgason.
21.20 Dallas
I þungum þönkum
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi
Björn Baldursson.
22.10 Þjóðverjar og heimsstyrj-
öldin slöari
(Die Deutschen im Zweiten
Weltkrieg)
5. Hernaður I lofti og á höf-
unum. Nýr þýskur heimilda-
myndaflokkur I sex þáttum
sem lýsir gangi heimsstyrj-
aldarinnar 1939—1945 af
sjónarhóli Þjóðverja. Þýð-
andi Veturliöi Guönason.
Þulir: Guðmundur Ingi Kristj-
ánsson og Marla Marlus-
dóttir.
23.35 Fréttir I dagskrárlok
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
' ins.
22.25 Bókaþáttur.
Umsjón: Njörður P. Njarðvlk.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
9. október
10.00—12.00 Morgunþáttur.
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
14.00—15.00 Eftir tvö. Stjórn-
andi: Jón Axel Ölafsson.
15.00—16.00NÚ er lag. Gömul
og ný úrvalslög aö hætti
hússins. Stjórnandi: Gunnar
Salvarsson.
16.00—17.00 Dægurflugur.
Nýjustu dægurlögin. Stjórn-
andi: Leopold Sveinsson.
17.00—15.00 Tapað fundið.
Sögukorn um popptónlist.
Stjórnandi: Gunnlaugur Sig-
fússon.
Þriggja mlnútna fréttir sagö-
ar klukkan: 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.