Morgunblaðið - 09.10.1985, Síða 16

Morgunblaðið - 09.10.1985, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÖBER1985 Verk eftir Ólöfu Grímeu Þorláksdóttur. Úr hugarheimi Myndlist Bragi Ásgeirsson Meðal þess, sem Listahátíð kvenna býður upp á, er sýning tveggja aldinna kvenna í Lista- skála alþýðu við Grensásveg. Báðar teljast konurnar naivist- ar, auk þess sem myndheimur þeirra er í ætt við alþýðumál- verkið. Þær mála báðar af fingr- um fram, svo sem hugurinn býð- ur hverju sinni og undir áhrifum frá umhverfi sínu og myndum úr listaverkabókum. Hin yngri þeirra er Sigurlaug Jónasdóttir f. í Öxney á Breiða- firði hinn 4. júlí 1913. Hún hefur stundað kvöldnámskeið í Mynd- listarskóla Reykjavíkur. Hefur málað í fimmtán ár. í sýningarskrá segir, að þetta sé hennar fyrsta sýning á ís- landi, en þar sem ég hef séð myndir hennar áður og minnir sterklega, að ég hafi ritað um þær, þá tel ég, að hún hafi a.m.k. tekið þátt í samsýningu hér í borg. Verk Sigurlaugar hafa mörg yfir sér ferskan og myndrænan blæ, og í þeim er eitthvað hreint og upprunalegt, er hrífur. Skilj- anega eru þau misjöfn, en mynd- ir eins og „Vetrarleikir (8) og „Uppboðið" (19) standa fyrir sínu og eru einkar skemmtileg á að horfa. Bæði eru vinnubrögðin fersk og einlæg, og svo skín það i gegn, að myndefnið er eigin og sterk lifun. í sýningarskrá er litmynd af málverki, er nefnist „Skinnspýt- ing“ og er af tveimur mönnum í stigum með skinn á milli sín. Fyrir ofan þá getur að líta telpu eða dreng, er liggur á þaki húss- ins og horfir á þá. Myndin er gott dæmi um eðlislæg áhrif, er Sigurlaug hefur orðið fyrir við skoðun listaverkabóka svo og samruna þeirra. T.d. hefur telp- an (drengurinn) sterkan svip af fígúrum Botero, og mennirnir í stigunum koma einnig kunnug- lega fyrir sjónir. Þetta er ekki sagt listakonunni til hnjóðs, þvf fer fjarri, en skýrir um margt vinnubrögð naivista og hvernig þeir horfa á tilveruna. ÓLöf Grímea Þorláksdóttir ( Gríma) er fædd 25. september 1895 á Lambanesreykjum í Fljótum. Hún hefur stundað kvöldnámskeið f myndlist f Myndlistarskóla Reykjavíkur og fengist við að mála í rúm tutt- ugu ár. Gríma hefur haldið einkasýningu í fyrrum húsa- kynnum Klausturhóla, nú Listmunahúsinu, við Lækjargötu og tekið þátt í samsýningum. Myndheimur Grímu er af allt öðrum toga en Sigurlaugar og er meira i ætt við gamlan útsaum, textíla og blómamálverk, hvers konar alþýðulist og bróderí. Allur samanburður er þannig út i hött, nema þá hvað fölskva- laus einlægnin er að baki mynd- gerð beggja. Það eru blómin, gróandinn, mannfólkið og hinn ófreski ljóð- ræni veruleiki að baki, sem eiga hug Grímu allan. Hún málar þessi myndefni sín upp aftur og aftur í margvíslegri, en þó skyldri mynd og nær iðulega árangrL er ber sterkri lifun vitni. Eg vísa hér til tveggja mynda, er undirstrika þessi orð min: „Blátt fólk og landslag" (2) og „Sumar“ (II). í báðum þessum myndum koma fram bestu hliðar Grímu i málverkinu, sem eru fersk- og upprunaleikinn. Það er yfirleitt sól og sumar í myndum Grímu og gaman að vera til, ást til náttúrunnar og mannlifsins. Styrkur sýningar þessara tveggja listakvenna liggur i þvi, að þeim liggur eitthvað á hjarta, Verk eftir Sigurlaugu Jónaadóttur. þær lifa í nútið, sem er f senn fortíð og framtíð og því tíma- laus. Þær þurfa því ekki að hafa áhuga á listastefnum né að vera nútímalegar. Þær vilja syngja sjálfar, en ekki vera hjáróma raddir, dauft hvísl í alþjóðlegum samkór. Og þó eru þær í hæsta máta alþjóðlegar í myndrænni við- leitni sinni, en það kemur af sjálfu sér. Konur hefðu naumast getað hugsað sér betri stuðning en þessa litlu en fallegu sýningu, því að hún er svo einlæg og opinská og aðdáunin fölskvalaus til grómagns lífsins svo og áþreifanlegrar málefnalegrar rökræðu... Sjödægra Nýlega lauk litilli en eftirtekt- arverðri sýningu í Gallerí Borg, er bar heitið Sjödægra. Var það hvort tveggja, að á sýningunni voru sjö myndverk og svo stóð hún yfir í sjö daga. Það er ákaflega hæpið að ætl- ast til þess, að listdómur birtist á sýningartímabilinu, þegar sýn- ingar eru opnar í jafn skamman tíma og eru ekki af stærra um- fangi né tilefni. Til þess eru sýn- ingar i höfuðborginni of margar. Ungur maður, Stefán Axel Valdimarsson að nafni, var hér að kynna verk sin i fyrsta skipti opinberlega. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Is- lands og stundar nú nám við Jan Van Eyck Academie í Maas- tricht Hollandi. Af sýningunni að ráða er hér um mikið listamannsefni að ræða og kom það meira fram í sjálfum vinnubrögðunum en ein- staka myndum. Sterkasta og heillegasta myndin á sýningunni var ótví- rætt sú, er bar fallega nafnið „Erotika", sem var í senn ljóð- ræn og unnin á sérkennilegan hátt með óvenjulegri tækni. Eitthvað ágætt var og í öllum myndunum, og nú bíður maður einungis framhaldsins og óskar listspírunni vinnufriðar. Tvær sýningar Myndlist Bragi Ásgeirsson „Konan til gagns og gamans“ Listahátíð kvenna er enn I fullum gangi er þessar línur eru festar á blað og hefur kvenpen- ingurinn svo til einokað alla sýn- ingarsali borgarinnar um skeið. Það hefur því minna en ella borið á list karla undanfarið og var með sanni tími kominn til, því að öll tilbreyting er af hinu góða en hvort þetta markar tímamót veit ég ekki, en óum- deilanlega hefur framtakið stuggað við ýmsum. Einn er sá maður, sem taldi sig þurfa að sýna kvenþjóðinni virðingu sína og samstöðu á þessum tímamótum og setti í því tilefni upp sýningu í Gallerí Grjóti á Skólavörðustig 4a og að sjálfsögðu til heiðurs konum. Nefnist sýningin: „Konan til gagns og gamans" og saman- stendur af 20 minimal-skúlptúr- verkum, og gerandinn að baki þeim er Magnús Tómasson myndlistarmaður. Magnús er óþarfi að kynna, því að hann hefur komið víða við og haldið margar sýningar, sem athygli hafa vakið, og er einn þeirra, sem kjörnir hafa verið í hið háa listráð Listasafns fs- lands. Sýningin í Gallerí Grjóti er ekki stór I sniðum, en þeim mun skemmtilegri til skoðunar. Magnús Tómasson En mér til efs, að Magnús hafi í annan tíma staðið að baki jafn heilsteyptri sýningu verka sinna. Undirtónn sýningarinnar er öðru fremur tilfinning gerand- ans til kvenlegra forma og at- hafnasemi. Tjámiðillinn er sjálft áþreifanlegt rúmtaksformið og um það fer listamaðurinn var- færnum og ástúðlegum höndum. Á launkýminn hátt mótar hann kvenleg form, er hann þykist sjá í hinum hversdagslegustu hlut- um, og lyftir þeim á listrænan stall í bókstaflegri merkingu. Oft er hér að baki mikil hug* vitssemi, sem á ættir að rekja til tilrauna dadaistanna gömlu svo sem Man Ray, og þó er í þeim persónulegur tónn, sem er það, sem mestu varðar. Sum þessara skúlptúrverka segja á sinn einfalda og sjón- ræna hátt miklu meira en langar og skeleggar blaðagreinar og hitta um leið í mark. Tónleikar á Kjaryalsstöðum: Tónlist eftir Jórunni Viðar Tónllst Rögnvaldur Sigurjónsson Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Ég fór á eftirmiðdagstónleika sl. sunnudag sem haldnir voru á Kjarvalsstöðum, afslappaður og hugsaði mér gott til glóðarinnar að hlusta á verk eftir Jórunni Viðar og þar með að njóta góðrar tónlist- ar, flutta af ágætum listakonum. Ég þarf ekki að orðlengja það, að ég skemmti mér hið besta, því bæði var að verkin sem leikin voru, voru hin áheyrilegustu (með undantekn- ingum þó) og svo var frammistaða listakvennanna með hinum mestu ágætum. En hvað var þá að? Ekk- ert, nema að undirritaður hefir lagt alla gagnrýnistilburði á hilluna, e.t.v. um alla framtíð, og þess vegna var ég alveg óviðbúinn þegar Jón Ásgeirsson, aðalgagnrýnandi Morgunblaðsins, hringdi í mig og sagði sfnar farir ekki sléttar. Hann hafði ruglast á tfmanum og mætt um kvöldið á Kjarvalsstöðum í staðinn fyrir kl. 5 um eftirmið- daginn. Hann var sleginn hann Jón, og skildi ég hann vel. Hann sagði eins og satt er, að það væri hrein- asta hneyksli ef engin grein birtist í Morgunblaðinu um jafn ágætan listamann og Jórunni Viðar, og var ég honum alveg sammála. Og þess vegna er ég hér kominn að skrifa nokkrar lfnur um þessa tónleika. En fyrst vil ég setja harðlega út á það að ekki skuli hafa verið ná- kvæm efnisskrá á boðstólum á tón- leikunum, heldur var efnisskráin lesin upp og finnst mér þetta heldur lágkúrulegt þegar heil kvennalista- hátíð er hér í gangi, sem ætti nú að hafa ráð á því að láta fjölrita eina litla efnisskrá. En snúum okkur þá að tónleikunum. Þeir hóf- ust á Þjóðlífsþætti, svítu í 5 þáttum fyrir fiðlu og píanó. Laufey Sigurð- ardóttir lék á fiðluna og Selma Guðmundsdóttir á píanóið. Þessi svíta er bæði falleg og skemmtilega vel skrifuð fyrir hljóðfærin, sér- staklega þó fyrir fiðluna. Jórunn hefir lagt sig fram við að rýna ofan í þjóðlögin okkar, og eru verk henn- ar mjög í þeim anda. Það er auðvit- að spurning hve langt á að fara í þeim efnum og gæti það stundum orkað tvímælis. Það þótti mér t.d. f næsta verki sem var Hugleiðing um 5 gamlar stemmur fyrir píanó. Lára Rafnsdóttir lék á píanóið. En árans píanóið, það er eins og það vilji ekki taka þessum stemmum torfbæjanna inn á sína strengi. Það verða einhverskonar árekstrar þar Jórunn Viðar sem rímnalagið og píanóið vilja eiginlega ekkert með hvort annað gera. Annaðhvort eru einhver hlaup á tangentunum sem rímnalagið kannast ekkert við eða þá að píanó- ið stynur undan þurrum hamra- gangi og litlausum hljómasam- böndum stemmunnar. En tilraunin er allrar virðingar verð, en það hefir bara ekki tekist ennþá, að koma þessum rímnalögum af nokkru viti á nótnaborðið, hvorki hjá Jóni Leifs né öðrum sem það hafa reynt. Því miður. Að endingu voru flutt fjögur sönglög með píanóundirspili, en það voru Gesta- boð, ljóð eftir Einar Braga, Karl sat undir kletti, ljóð Halldóru B. Björnsson, Vort líf, ljóð Steins Steinars og að endingu Únglingur- inn í skóginum Halldórs Laxness. Þetta var hápunktur tónleikanna hvað tónsmíðarnar varðaði því lögin voru hvert öðru betra og hefir Jórunn áberandi gáfu til að sam- eina ljóð og lag. Hún kann að „mála“ ljóðin í tónum og var kímni hennar sérlega skemmtileg t.d. I hinu fræga kvæði Vort líf, og svo hin impressjóníska stemmning í Únglingnum I skóginum. Katrín Sigurðardóttir og Vilhelmína ól- afsdóttir fluttu þessi lög skínandi vel og eins og áður segir þá léku þessar ungu listakonur allar mjög vel. Jórunn Viðar er þekkt sem óvenjulega gáfuð listakona, alveg frá unga aldri, bæði sem píanóleik- ari og tónskáld, og kom það glöggt í ljós á þessum umræddu tónleikum að hún hefir ýmislegt til þessara mála að leggja. F.h. séra Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestur, sr. ólafur Skúlason, sr. Ragnar Fjalar Lirusson, Ólafur Jónsson leknir, formaður læknaráðs, sr. Hjalti Guðmundsson, Jóhannes Pálmason, frkvstj. Borgarspítalans, Páll Gísla- son leknir, formaður stjórnar Borgarspítalans, sr. Tómas Sveinsson og sr. Halldór S. Gröndal. Sjúkrahússprestur settur inn í embætti sitt SÉRA Sigfinnur Þorleifsson, hinn nýi sjúkrahússprestur BorgarspítaÞ ans, var settur inn í embætti sitt af séra Ólafi Skúlasyni, við almenna guðsþjónustu á Borgarspítalanum sl. sunnuda?. Á meðfylgjandi mynd eru þeir prestar sem inna af hendi kirkju- lega þjónustu á Borgarspítalanum og stofnunum hans auk stjórnenda spítalans. (Frétutilkjnninx

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.