Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 23
Endurminningar Söru Keays: MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 23 HÖFÐABAKKA 9 — REYKJAVÍK SIMI 685411 Sagði hjákonunni frá Falklandseyiamálinu liinHon H nllÁLor AP " V I/ondon, 8. október. AP. CECIL Parkinson, fyrrum við- skiptaráðherra Bretlands og for- maður íhaldsflokksins, sagði hjá- konu sinni Söru Keays frá ríkis- stjórnarfundum um Falklands- eyja-stríðið, að því er fram kemur í útdrætti úr bók hennar, sem breska blaðið Daily Mirror birti í dag. Þar segir Sara Keays ennfrem- ur, að Parkinson hafi frætt sig „um baksvið þessara sögulegu viðburða". Hún segir, að ráðherr- ann hafi sagt sér frá „ólíkum skapgerðum samstarfsmanna sinna í ráðherranefndinni, sem fór með Falklandseyjamálið, og viðleitni þeirra til að kynna sam- ráðherrum í ríkisstjórninni og þjóðinni ákvarðanir sínar". „Mér þótti það forréttindi að fá að vita svona mikið um það, sem var að gerast á bak við tjöld- in,“ skrifar Sara Keays. Þegar Parkinson lét í ljós beyg við að láta til skarar skríða á Falklandseyjum á fundi með Margaret Thatcher forsætisráð- herra, átaldi hún hann „með orð- um, sem mátti skilja á þann veg, að það væri ekki rúm fyrir bleyð- Sara Keays ur 1 ráðherranefndinni", sagði í bók Söru Keays. Bretar náðu Falklandseyjum á sitt vald árið 1982 í kjölfar inn- rásar Argentínumanna. Parkinson var viðskiptaráð- herra á þessum tíma og síðan kosningastjóri Margaret Thatch- er, en hún var endurkjörin 1983. Cecil Parkinson Hann sagði af sér sem formaður íhaldsflokksins í októbermánuði 1983, þegar uppvíst varð um ást- arsamband þeirra Söru Keays og að hún bar barn hans undir belti. Ungfrú Keays var þá ritari Park- insons. í bókinni segir hún frá því, að Parkinson hafi „sárbænt" sig um að gangast undir fóstureyðingu til að bjarga embættisframa hans. Daily Mirror styður Verka- mannaflokkinn, sem er í stjórn- arandstöðu. Ber birtingu út- dráttarins upp á sama dag og setningu landsfundar íhalds- flokksins í Blackpool á Norð- vestur-Englandi. Breska fréttastofan sagði í dag, að margir fulltrúanna á landsfundinum hefðu verið með Daily Mirror í höndunum í fund- arsalnum og sumir verið að glugga í sögu Söru Keays, meðan á umræðunum stóð. Tillögur Sovét- manna ná ekki til SS-20 eldflauganna Bobb, H. október. AP. TILLÖGUR Sovétmanna sem miða að því að draga úr kjarnorkuvopna- vígbúnaði, eru óaðgengilegar í núver- andi formi og virðast til þess gerðar að reka fleyg í samvinnu og samstarf Atlanlshafsbandalagsríkjanna, að mati aðstoðarutanrikisráðherra Vest ur-Þýskalands, Lutz Stavenhagen. Hann varaði þó við því að tillögunum yrði hafnað alfarið og sagði að Sovét- menn hefðu þrátt fyrir allt nálgast afstöðu Atlantshafsbandalagsins með þessum nýju tillögum. Stavenhagen benti á að tillög- urnar næðu ekki til SS-20-eld- flauga Sovétríkjanna, sem beint er að Vestur-Evrópu, þó þær taki til Pershing 2-eldflauga Atlants- hafsbandalagsins. Leiðtogi Sovét- ríkjanna, Mikhail Gorbachev, sem var á ferð i Frakklandi i síðustu viku, hvatti til algjörs banns við geimvopnum og til helmings minnkunar á kjarnorkuvopnum stórveldanna. Gorbachev gerði einnig að tillögu sinni að beinar viðræður færu fram milli Sovét- manna annars vegar og kjarnorku- veldanna i Evrópu, Bretlands og Frakklands, hinsvegar um fækkun meðaldrægra eldflauga i Evrópu. Vopnaðir menn á varðbergi Sýrlenskir hermenn með alvæpni eru nú á hverju strái í Tripoli í Líbanon en þar hafa stuðningsmenn þeirra og önnur fylking, sem styður Palestínumenn, borist á banaspjót að undanförnu. Er borgin víða í rústum eins og sjá má og flestir íbúanna flúnir á brott. Hríslumar. • • Frumkvæði Kasp- arovs koðnaði niður Skák Margeir Pétursson ÞRETTÁNDA skákin í einvígi Karpovs og Kasparovs um heims- meistaratitilinn varð dauflegri en flestir höfðu búist við. Skákin varð jafntefli eftir 24 leiki, en Kasparov, sem hafði hvítt, hafði betri stöðu framan af. Karpov beitti Nimzo- indverskri vörn í fjórða skiptið í einvíginu. Kasparov tefldi mjög hvasst, fórnaði peði í tíunda leik, og fékk mjög frjálsa stöðu. I 14. leik gaf Karpov peðið til baka til að fá fram uppskipti, en engu að síður var staða áskorandans betri. 18. leikur Kasparovs var hins vegar ekki nægilega góður og eftir að Karpov náði drottningakaupum i 20. leik var jafnteflið tryggt. Kasparov var bjartsýnn áður en 13. skákin var tefld í gær. Haft var eftir honum að 13 væri hans happatala. Hann væri fæddur 13. apríl og eftir að hann væri búinn að afgreiða Karpov yrði hann 13. heimsmeistarinn. En þrátt fyrir að Kasparov færi vel af stað í gær reyndist Karpov sýnd veiði en ekki gefin. Heims- meistarinn lét engan bilbug á sér finna, þrátt fyrir hinn hroðalega afleik sinn í 11. skákinni fyrir viku. Staðan í einvíginu er því enn jöfn, báðir hafa hlotið sex og hálfan vinning. Fjórtánda skákin verður tefld á morgun, þá hefur Karpov hvítt. Þetta var níunda jafnteflið í einvíginu. Hvert jafntefli kostar þá u.þ.b. 240.000 ísl. krónur, því við hvert jafntefli er einn hundr- aðasti tekinn af verðlaunasjóðn- um og settur í sjóð til styrktar skák í þriðja heiminum. Þrettánda einvígisskáin: Hvítt: Gary Kasparov Svart. Anatoly Karpov. Nimzoindverks vörn 1. d4 — RfG, 2. c4 — e6, 3. Rc3 — Bb4,4. Rf3 — c5,5. g3 - Rc6, í fyrstu skákinni Iék Karpov hér 5. — Re4, 6. Dd3 — Da5 og tapaði.. Sfðan hefur hann vafa- laust rannsakað afbrigðið gaum- gæfilega. 6. Bg2 — Re4, 7. Bd2 — Bxc3, 8. Bxc3 — 0-0,9.0-0 — f5,10. Be3 Kasparov ákvað að fórna peði eftir rúmlega hálfrar klukku- stundar umhugsun. Vafalaust er framhaldið 10. Dc2 — b6,11. Be3 — Ba6 of hægfara fyrir hvítan. 10. — Rxc3, 11. Dd3 — cxd4, 12. Rxd4 — Re4,13. c5! Setur svart í töluverðan vanda, því 13. — Rxc5? tapar manni eftir 14. Rxc6,13. Bxe4 var hins vegar slæmt vegna 13. — Re5. 13. — Rxd4,14. Bxd4 — b6 Ef svartur hefði reynt að halda umframpeðinu, hefði Bc8 aldrei komist í spilið. 15. Bxe4 — fxe4, 16. Dxe4 — Ba6, 17. cxb6 — axb6 IA Þó Karpov hafi náð að létta á stöðu sinni með uppskiptum og fá fram mislita biskupa, er staða hvíts ennþá öllu betri. Hann hefur færri peðaeyjur, sem er kostur, traustari kóngsstöðu og þar að auki getur hann ráðist á svarta peðið á b6. Nú kom vel til greina að leika 18. a4 eða 18. Hfbl, en í staðinn verður Kasp- arov of bráður á sér. 18. De5?! — Df6,19. De3 — Dh6! Það er mjög mikilvægt fyrir svart að ná drottningauppskipt- um og í framhaldinu skiptir tví- peðið á h-línunni litlu máli. Víki hvfta drottningin sér undan, hefur svartur unnið leik, þannig að Kasparov ákveður að láta að vilja heimsmeistarans. 20. Dxb6 — gxh6, 21. Hfel — Bc4, 22. a3 - b5, 23. Hadl — HÍ5!, 24. Bb2 — Hd5 og í þessari stöðu var samið jafntefli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.