Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 27
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 400 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 35 kr. eintakiö. Nýmæli Ikjölfar þeirra breytinga á ráðherraskipan Sjálf- stæðisflokksins í ríkisstjórn, sem tilkynnt var um í fyrra- dag, hefur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins nú sam- þykkt tillögur Þorsteins Pálssonar um tilfærslur ráð- herra á milli ráðuneyta. Hér er um nýmæli að ræða í ís- lenskum stjórnmálum. Það hefur oft gerst áður, að ein- stakir ráðherrar í ríkis- stjórnum hafa ákveðið að láta af ráðherrastörfum, eins og Geir Hallgrímsson hefur gert nú. Hins vegar er það óvenjulegt hér að verk- efnaskiptingu á milli ráð- herra sé breytt á miðju kjör- tímabili á þann hátt, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert nú. Slík breyting hefur lengi tíðkast í öðrum löndum og þá alveg sérstaklega í Bret- landi, þegar þreytumerki hafa sést á rikisstjórnum. Þá er gjarnan gripið til þess ráðs til þess að gefa ríkis- stjórn nýjan svip og kannski nýtt líf, að færa ráðherra á milli embætta og taka nýja menn inn í ríkisstjórn. Til- drög þess að Geir Hallgríms- son hættir í ríkisstjórn eru önnur eins og kunnugt er, en það var skynsamlega ráðið hjá Þorsteini Pálssyni að nota þetta tækifæri til víð- tækari breytinga á verkefna- skiptingu milli ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Allir ráðherrar Sjálfstæð- isflokksins í ríkisstjórninni takast nú á við ný verkefni. Hvað svo sem segja má um störf þeirra í gömlu ráðu- neytunum er alveg ljóst, að nýjum verkefnum fylgir nýr kraftur. Þess vegna er fyllsta ástæða til að ætla, a.m.k. þar til annað kemur í ljós, að þessi breyting muni leiða til efnislegs árangurs, sem er auðvitað það sem að er stefnt. Andlitssnyrting ein hefur ekki áhrif nema í skamman tíma. Að vísu má gera ýmsar at- hugasemdir við hina nýju verkefnaskiptingu ráðherr- anna út frá efnislegum sjón- armiðum. Þeir, sem hafa t.d. gagnrýnt Matthías Bjarna- son og Ragnhildi Helgadótt- ur fyrir það, að þau hafi ver- ið ófús til niðurskurðar í hin- um gömlu ráðuneytum sín- um, þar sem mestur hluti ríkisútgjalda hefur verið, munu spyrja sem svo, hvaða efnislega breytingu það hafi í för með sér, að Ragnhildur fari í heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneytið og Matthías haldi samgöngumálum. Hin- ir, sem vilja verja velferð- arkerfið og byggðastefnuna í samgöngumálum munu hins vegar fagna þessari niður- stöðu. Það á svo eftir að koma í ljós, hvernig hún fell- ur saman við fjármálapólitík hins nýja fjármálaráðherra, sem tekur við sínu nýja starfi við þær aðstæður, að beðið verður með eftirvænt- ingu eftir niðurskurðartil- lögum hans. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur með at- burðum síðustu vikna skuldbundið sig svo sterk- lega til verulegs niðurskurð- ar á ríkisútgjöldum, að formaður hans á ekki ann- arra kosta völ en standa við þau fyrirheit. En hvað sem slíkum vangaveltum líður er alveg ljóst, að breytt verkefna- skipting ráðherra á miðju kjörtímabili er merkt ný- mæli í íslenzkum stjórnmál- um, sem lengi hefur verið beðið eftir. Að þessu leyti marka fyrstu afskipti Þor- steins Pálssonar af ríkis- stjórnarskipan tímamót. Ganga má út frá því sem vísu, að eftir þessa breytingu á ríkisstjórninni verði það algengt í stjórnmálabaráttu næstu ára, að gripið verði til slíkra aðgerða einhvern tíma á kjörtímabili til þess að veita ríkisstjórn, sem komin er í hugmyndaleg og starfs- leg þrot, nýtt líf. Að vísu mun framtakssemi eða skortur á því hjá ráðherrun- um í hinum nýju ráðuneyt- um ráða miklu um hversu vel þessar breytingar heppnast. Fyrirfram er ekki ástæða til að gera ráð fyrir öðru, en að áhrifin verði jákvæð. Það hefur líka styrkt stöðu for- manns Sjálfstæðisflokksins hve fljótt og átakalítið þess- ar breytingar gengu fyrir sig og sýnir það eitt út af fyrir sig vaxandi styrk hans í störfum. Byggingarsjóðiir verkamanna er fyrir þá lægst launuðu Málflutningi Búseta svarað — eftir Halldór Blöndal Athygli mín hefur verið vakin á viðtali, sem fréttamaður í ríkisút- varpi átti fyrir skömmu við Jón Rúnar Sveinsson, formann Búseta í Reykjavík. Þar var ýmislegt sagt eða gefið í skyn, sem nauðsynlegt er að leiðrétta, þótt seint sé. Og það er best gert með því að skýra í stórum dráttum viðhorf mín til Búseta og hlutverks Byggingar- sjóðs verkamanna. 35. gr. húsnæðislaganna í 33. gr. húsnæðislaganna er fjallað um hlutverk Byggingar- sjóðs verkamanna, sem hafi að markmiði að bæta úr húsnæðis- þörf láglaunafólks. Samkvæmt henni teljast félagslegar íbúðir: a) fbúðir í verkamannabústöðum sem byggðar eru eða keyptar á vegum stjórna verkamannabú- staða og ætlaðar eru til sölu handa láglaunafólki sem full- nægir skilyrðum þeim sem sett eru í þessum kafla laganna. b) Leiguíbúðir sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum handa lág- launafólki eða öðrum þeim sem þarfnast af félagslegum ástæð- um aðstoðar við húsnæðisöflun. c) Leiguíbúðir sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum, stofnunum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða af félags- samtökum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum fyrir námsfólk, aldraða, ör- yrkja, og aðra sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi. Ég bið menn veita athygli þeim orðalagsmun, sem er á einstökum stafliðum, og íhuga merkingu orð- anna. Þá skýrist fyrir mönnum: a) að íbúðir í verkamannabústöð- um skuli vera sú almenna lausn, sem láglaunafólki býðst, enda styðst hún við áratuga- hefð; b) að sveitarfélögum skuli áfram veitt sérstök lánsfyrirgreiðsla vegna þeirrar almennu félags- legu þarfar, sem jafnan er fyrir hendi varðandi húsnæðisöflun af persónulegum og mjög ólík- um ástæðum; c) að námsmenn, aldraðir og ör- yrkjar eru nefndir sérstaklega og þykir mér ærin ástæða til að skýra það nánar vegna umræðunnar um Búseta. Hjónagarðar í hjónagörðum Félagsstofnunar stúdenta eru 55 íbúðir, sem nýtast stúdentum. Ekki þarf að taka fram, að það er hvergi nærri nóg til að anna eftirspurn, mætti ugg- laust margfalda íbúðafjöldann með þrem eða fjórum og dygði ekki samt. Á Akureyri hafa menn velt fyrir sér, hvort ekki sé tíma- bært að reisa hjónagarða. Og auðvitað er sama þörfin í Tækni- skólanum og Sjómannaskólanum í Reykjavík, svo að dæmi séu tekin. Þess vegna er orðinu „námsfólk" skotið inn í staflið c í 33. gr. Hugsunin er auðvitað sú, að stofn- un á borð við Félagsstofnun stúd- enta standi fyrir framkvæmdum, enda út í hött annað en slíkum hjónagörðum sé ætlaður staður í næsta nágrenni skóla, ef hægt er. í Byggingarsjóði verkamanna liggja fyrir umsóknir um 150 íbúð- ir í hjónagörðum frá Félagsstofn- un stúdenta og jafnmargar frá Bandalagi íslenskra sérskólanema. Auðvitað eingöngu handa þeim nemendum sem nám stunda hverju sinni. Það þarf afbrigðilega hug- kvæmni til að skilja orðið „náms- fólk“ í texta laganna svo, að átt sé við íbúðir til lífstíðar á vegum húsnæðissamvinnufélags en ekki Halldór Blöndal „Þetta er sú nýja stefna, sem Alþýðuflokkurinn hefur markað í hús- næðismálum. Hvflíkur óravegur er ekki milli þessarar „hugsjónar“ eða hinnar, sem Héðinn Valdimarsson gerði að veruleika með fyrstu skóflustungunni að fyrsta verkamannabú- staðnum fyrir hálfri öld. Ekki vafi á að hann hefði jafnvel kunnað verr við sig í nýja Alþýðuflokkn- um en þeim gamla.“ íverustað nemenda meðan á námi stendur. Leyfist mér að leiða fram sem vitni ungt fólk, sem verður að flytja búferlum og stunda nám á fjarlægum stöðum um margra ára skeið, en fær ekki inni í hjóna- görðum. Það væri þakklátt fyrir afdrep á námstímanum. Þarf ekki að taka fram, að í hjónagörðum gildir sú regla, að um leið og maður lýkur námi eða hættir, er honum sagt upp húsnæðinu. Öryrkjar Hússjóður Öryrkjabandalagsins á og rekur 250 íbúðir. Þörfin á að fjölga þeim er svo rík og biðlistinn svo langur, að nýjum nöfnum hef- ur ekki verið bætt við í rúmt ár, til að vekja ekki falskar vonir. Öryrkjabandalagið er nú að búa sig undir nýtt byggingarátak. Ég þarf ekki að taka fram, að öryrkj- arnir búa yfir bestu þekkingunni á því, hvers konar íbúðir þeir vilji og hvar, enda er nú unnið að því að samræma hugmyndir og skoð- anir. Og rekstur Hússjóðs Ör- yrkjabandalagsins hefur verið með slíkum ágætum að mér kemur á óvart ef þær raddir eru háværar innan bandalagsins að leita annað til að gera betur. Sjálfsbjörg á og rekur 36 íbúðir og er svipað um hana að segja og Öryrkjabandalagið að frekari íbúðabyggingar eru í undirbún- ingi. Blindrafélagið á og rekur 23 íbúðir og kemur til athugunar hvort áhugi sé á að nýta sér ákvæði stafliðar c í 33. gr. Af þessari upptalningu er ljóst, að full þörf var á að setja í lög, að félagssamtök þeirra, sem sér- staklega vinna að málefnum ör- yrkja, eigi þess kost að reisa leigu- íbúðir, sem falla undir þá félags- legu aðstoð, sem Byggingasjóður verkamanna veitir. Aldraöir Ég veit ekki um fjölda þeirra þjónustuíbúða fyrir aldraða, sem byggðar hafa verið af bæjarfélög- um, samtökum aldraðra, Verzlun- armannafélagi Reykjavíkur o.fl. Að ógleymdum þeim vernduðu þjónustuíbúðum aldraðra, sem risið hafa í Garðabæ að frumkvæði Sjómannadagsráðs í Reykjavík og Hafnarfirði. En hitt er mér ljóst, að þessar framkvæmdir hafa fært mönnum heim sanninn um nauð- syn þeirra. Fyrirspurnum linnir ekki, enda er mér sagt að hundruð manna bíði þess, að röðin komi að þeim. Orðið „húsnýtingarstefna" hef- ur skotist inn í málið. Og þróunin hefur orðið sú, að vel roskið og aldrað fólk hefur rýmt einbýlishús sín eða íbúðir til að flytjast í þjón- ustuíbúðir aldraðra. Sama þörfin er auðvitað fyrir hendi hjá því gamla fólki, sem leigir, og því sjálf- gert að fella það undir félagslegan þátt verkamannabústaðakerfisins að Sjómannadagsráð, samtök aldr- aðra og aðrir slíkir aðilar geti reist og leigt þjónustuíbúðir handa þessu fólki svo að það njóti öryggis í ellinni. Öryggi og þjónustu aldr- aðra verður best fyrir komið í slíku sérhönnuðu húsnæði. Hvað vill Alþýðu- flokkurinn? Hinn 1. október sl. ver Alþýðu- blaðið verulegum hluta af forsíð- unni með framhaldi á 3. síðu í að útskýra, hvað liggur til grundvall- ar hugmyndinni um Búseta. Til skýringar er tveggja dálka mynd af lystibátum með þessum texta: „Sumir kjósa að leggja peningana sína í bát eða sumarbústað og búa í leiguhúsnæði." Af mörgum fjól- um í þessari grein held ég þessum til haga: „Búseturéttarhugmyndin er komin til íslands frá Norður- löndum, borin hingað af fólki sem þar hefur verið í námi eða atvinnu um tíma. Þannig er allt í einu risin upp sú krafa hérlendis að fólk fái sjálft að ákveða hvort það vill fjárfesta í steinsteypunni eða greiða leigu fyrir hana í ein- hverju formi. Þetta er ekki leng- ur spurning um að byggja yfir þá sem ekki geta keypt sér eigið húsnæði, heldur er nú líka komið ' upp úr kafinu að til er fólk sem ekki vill leggja fjármuni sína í síkt.“ „Ef Norðurlandabúar eru 27 Búseturétturinn spurning um valfrelsi j — Ekki lengur bara spurning um að byggja yfir þá ' sem ekki geta keypt eigin íbúð. Til er fólk sem kýs heldur að geta varið fjármunum sínum í annað. Þ*4 er útbreiddur miukiiuing- ur •« A íaiandi eigi menn sitt eigiö ibúðnrbAsnmdi. Su kenning er toöan af tveimur meginástmðura. Annnn *eg*r býr tóiuverður fJöMi fóikt i Wgubúsnmöi, þar af stör blntl eM þntgmndi okurkjor, hl„. —... mm ... fJoldS verið kölluð, gat gengiö meöan Á siövi árum hefur lika vax- velflestir þjóöíélagsþegnar gátu andi fjöldi íslendinga búiö er- vaöiö I bankavíxlum sem aldrei lendts, einkum á hinum Noröur- þurfti aö borga. Framh. á bls. 3 |ir cr eiguBrreiiur ——m.m á Ibéónm sinum rignarréttur aö nafninu tll og metra aö aegja svo bmpina að baaa veröur iöulega afsannaöur meö opinberu nauðnngarnpp- boöi. Þaö þarf þvi enginn aö veröa verulega hissa, þótt nú séu risin upp tiltölulega öflug samtök (ef miðað er viö félagafjölda) sem krefjast þess aö fólk eigi kost á ööru en vafasömum fjárfesting- um I stetnsteypu, viö öflun ibúö- arhúsnmöis. Á íslandi hefur löngum veriö rekin sú stefna i húsncðismálum almennings aö hver og einn skuli eiga sitt eigið húsnaeöi til aö búa i. Þaö er reyndar ákaflega hæpiö aö tala um þetta fyrirbrigöi sem stefnu i húsnseöismálum, miklu frekar er hér um stefnuleysi aö rseöa, húsnasöismarkaöurínn er einfaldlega látinn ráöa sér sjálfur. Til þess aö koma i veg fyrir aö fólk yrði úti á milli húsa hinna efnameiri hefur þó veriö gripiö ti! tvenns konar aögeröa af hálfu stjórnvalda. Byggöir hafa veriö svokallaöir verkamannabústaöir, sem aö forminu til eru eign þeirra sem i þeim búa, en þessu kerfi svipar hins vegar I eöli sinu mjög til búseturéttarkerfisins sera rekiö hcfur veríö á Norðurlöndum I fjölmarga áratugí meö ágsetum árangri. Hins vegar hafa menn svo fieyöst til þess í sumum sveitarfé- lögum aö reka fáeinar leiguibúöir, handa fólki sem vonlaust er um aö geti haldiö i sér lifinu með ööru móti. Vmislegt hefur svo hjálpast að viö aö halda eftirspurninni eftir þessum tveim tegundum husnæö- is I lágmarki. Þanmg hefur lengst af veriö litiö niöur á fólk sem býr i leiguhúsnaeði á vegum hins opin- bera og jafnvel veriö rætt af nokk- urri lítilsvirðingu um þá sem búa i verkamannabústööum Á siöari árum hefur það hins vegar gerst aö því fólki sem ekki hefur ráö á aö fjárfesu í stein- steypu, hefur fjölgaö mjög. Þetta er i sjálfu sér ákaflega rökrétt af- leiöing af verötryggingu lána. Sjálfseignarstefnan sem svo hefur Forsíða Alþýðublaösins 1. október sl. spurðir hvers vegna þeir kaupi sér ekki eigin íbúð fremur en „hírast" í leiguhúsnæði ár eftir ár, er svarið gjarnan á þá lund að þeir kjósi einfaldlega heldur að verja peningunum í það að eiga seglbát eða sumarbústað eða þá einhverja kostnaðarsama tómstundaiðju." Þetta er sú nýja stefna, sem Alþýðuflokkurinn hefur markað í húsnæðismálum. Hvílíkur óraveg- ur er ekki milli þessarar „hugsjón- ar“ eða hinnar, sem Héðinn Valdi- marsson gerði að veruleika með fyrstu skóflustungunni að fyrsta verkamannabústaðnum fyrir hálfri öld. Ekki vafi á að hann hefði jafnvel kunnað verr við sig í nýja Alþýðuflokknum en þeim gamla. Búseti Ekki ætla ég öllum forystu- mönnum Búseta að hugsa eins og Alþýðublaðið. En eins og þeir leggja málið fyrir er tvennt ljóst. Þeir vilja meiri lánafyrirgreiðslu en aðrir og þeir vilja láta greiða sína vexti meira niður úr ríkissjóði en hjá öðrum. Þeir vilja m.ö.o. njóta sömu kjara og láglaunafólk og aðrir þeir, sem verst eru settir í þjóðfélaginu. Um verkamannabústaði gildir sú regla, að við byggingu þeirra er hver verkþáttur tekinn út um mánaðamót og 80% kostnaðar greiddur úr Byggingarsjóði verka- manna óg viðkomandi bæjarfélagi og er þetta fé vaxtalaust á bygg- ingartíma. Þessara forréttinda vill Búseti njóta. Ég fékk þær upplýsingar á skrif- stofu Verkamannabústaða í Reykjavík, að 100 fermetra íbúð kostaði nú um 2,6 millj. kr. Lán úr Byggingarsjóði verkamanna næmi 2.080 þús. kr., en lán úr Byggingar- sjóði ríkisins yrði að núvirði 820 þús. kr. til þeirra, sem enga íbúð eiga fyrir. Þessara forréttinda, rúmlega 1,2 millj. kr. á íbúð, vill Búseti líka njóta. Búseti hefur sótt um lán úr Byggingarsjóði verkamanna vegna 116 íbúða. Eg hygg að ekki sé fjarri lagi, að það sé um fjórðungur þeirra íbúða, sem fokheldar verða á þessu ári og byggðar eru af ungu fólki, sem enga á fyrir. Lánsum- sókn Búseta vegna 116 íbúða nemur 241 millj. kr., en vegna 348 íbúða ungs fólks í Byggung og víðar 285 millj. kr. Það þýðir m.ö.o. að hægt yrði að hækka hin al- mennu íbúðarlán um 300 þús. kr. eða úr 820 þús. kr. í 1.135 þús. kr. ef allir ættu að sitja við sama borð og því fé yrði skipt jafnt milli allra, sem Búseti ætlar sér umfram aðra. Síðast en ekki síst eru greiddir 3,5% vextir af lánum í Byggingar- sjóði ríkisins en 1% vextir í Bygg- ingarsjóði verkamanna. Sá mis- munur nemur 500 þús. kr. á láns- tímanum samkvæmt því dæmi, sem ég hef hér tekið. Þessa litlu hálfu milljón biður Búseti líka um sér til handa og ætlar hinum að greiða með hærri sköttum, sem hafa brotist í því að eignast þak yfir höfuðið. Að síðustu Það er misskilningur hjá Joni Rúnari Sveinssyni að ég og mínir líkar viljum berjast á móti því að búsetaréttur sé skilgreindur í lög- um. Fjarri því. En hitt er rétt að við erum ekki reiðubúnir til að greiða sjálfir og láta allan fjöldann greiða hærri skatta en ella til að gera þeim lífið hægara sem hafa sömu möguleika og við til að afla tekna. Við viljum láta Búseta njóta sama réttar og Byggung og aðrir landsmenn. Svo einfalt er það. Ég dreg ekki úr nauðsyn þess, að Byggingarsjóður verkamanna starfi áfram á sama grundvelli og hingað til og greiði úr húsnæðis- vanda þeirra sem standa höllum fæti og þurfa á sérstakri fyrir- greiðslu að halda af þeim sökum. Og það skulu vera mín lokaorð, að ég trúi því ekki að óreyndu að Félagsstofnun stúdenta, Öryrkja- bandalagið, Styrktarfélag vangef- inna, Sjómannadagsráð, Samtök aldraðra eða aðrir slíkir aðilar verði settir út I horn í stjórn Hús- næðisstofnunar ríkisins fyrir Bú- seta, enda skortir til þess laga- heimild. Þá fer ég að trúa því sem Alþýðublaðið segir, að áhrifa skandinavískra krata sé farið að gæta hér meir en góðu hófi gegnir. Vestnorrænt þingmannaráð: Samstarf íslands, Grænlands og Færeyja til hagnýting- ar sameiginlegra auðlinda Nefndarmenn, sem sæti eiga í vestnorræna þingmannaráðinu, héldu blaða- mannafund tii að kynna efni fyrsta fundar ráðsins, sem haldinn var í Nuuk á Græniandi 24. september. Frá vinstri: Friðjón Þórðarson, sem er varamaður Péturs Sigurðssonar í ráðinu, Steingrfmur Sigfusson, Páll Pétursson, formað- ur, og Eiður Guðnason. FYRSTI fundur vestnorræns þing- mannaráðs, sem í eiga sæti fulltrúar íslands, Grænlands og Færeyja, var haldinn í Nuuk á Grænlandi 24. september sl., en ráðið var stofnað til eflingar samstarfs milli þjóðanna á sviði menningar-, viðskipta- og samgöngumála auk varðveislu sam- eiginlegra auðlinda þjóðanna. Árið 1981 fengu þeir íslendingar sem þá sátu í Norðurlandaráði samþykkta tillögu um að vinna að auknu samstarfi þessara þriggja landa. Grænlendingar héldu hins- vegar að sér höndunum þá og vildu ekki taka þátt í samstarfinu fyrr en þeir væru lausir úr Efnahags- bandalaginu. Þeir boðuðu þvi til fundarins nú. Fyrir íslands hönd eiga sex full- trúar sæti í ráðinu, einn frá hverj- um stjórnmálaflokki. Páll Péturs- son er formaður íslensku nefndar- innar og aðrir fulltrúar eru: Pétur Sigurðsson, Eiður Guðnason, Steingrímur Sigfússon, Stefán Benediktsson og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Formaður fær- eysku nefndarinnar er Erlendur Patursson, en þaðan kom einnig sex manna nefnd. í Grænlandi eiga fimm menn sæti í nefndinni og formaður hennar og jafnframt formaður ráðsins er Jens Lyberth. Fundir eru haldnir á ársfresti og verður næsti fundur ráðsins hald- inn hér á landi næsta sumar. Formaður ráðsins er kosinn ár- lega. Á seinni árum hafa ýmis um- hverfissamtök beint starfsemi sinni að löndum þessum og hafa t.d. Grænlendingar orðið fyrir verulegu tjóni af þess völdum og eiga nú Færeyingar og íslendingar undir högg að sækja einnig. Ráðið telur því nauðsyn að þessar þjóðir vinni saman að sameiginlegum hagsmunamálum. Á fundinum í Nuuk samþykkti ráðið að beina þeim tilmælum til landsstjórnanna og ríkisstjórnar íslands að hefja umræður um gagnkvæma miðlun frétta- og heimildamynda um menningu iandanna, náttúru og atvinnulíf. Eiður Guðnason sagði á blaða- mannafundi er haldinn var til að kynna samþykktir fyrsta fundar ráðsins að dagskrárgerð væri skammt á veg komin bæði á Grænlandi og í Færeyjum en þó væri okkur eflaust fengur í að kynnast þjóðum þessum meira en við hefðum haft tækifæri til til þessa. „Lítið hefur borist okkur af frétta- og fræðsluefni frá þess- um nágrannalöndum okkar en þó er áhugi fyrir því. T.d. var sam- þykkt í útvarpsráði fyrir stuttu að beina því til útvarpsstjóra hvort ekki væri hægt að koma á nánara samstarfi við þjóðir þessar á sviði sjónvarps- og útvarpsmála." Á fundinum í Nuuk var einnig rætt um að kanna möguleika á sameiginlegri afstöðu til hagnýt- ingar auðlinda á hafsvæðum þjóð- anna í ljósi þess að löndin þrjú greinir nokkuð á varðandi nýtingu vissra fiskistofna. Þá beinir ráðið þeim tilmælum til ríkisstjórnar Islands og landsstjórna Græn- lands og Færeyja að vinna að því að komið verði á föstum sam- göngum milli landanna þriggja. Þá var rætt um hvort ekki mætti auðga atvinnulíf á Grænlandi með aukinni loðdýrarækt með hliðsjón af bættum samgöngum og var þá m.a. refarækt höfð í huga. Lagt er til að skipst verði á upplýsingum um loðdýrarækt vegna lítillar þekkingar á henni á Grænlandi og á þann hátt yrði athugað hvort loðdýrarækt kynni að vera raun- hæfur möguleiki í atvinnulífi á Grænlandi. Eiður sagði að hann væri nær viss um að hægt væri að selja matvæli til Grænlands. „Markaður fyrir unnar kjötvörur er þar mik- ill. Samgöngumálin eru hinsvegar vandamál sem þarf að finna lausn á, en við eigum bæði flugfélög og skipafélög sem eru fullfær um að sinna slíkum flutningum." 200—300 fyrirtæki og stofnanir missa öryggisgæsluna: Verið ad fórna okkur fyrir stóra slaginn um áramótin — segir framkvæmdastjóri Securitas um viðræðuslitin við Dagsbrún í fyrrinótt ENGAR horfur eru á skjótu samkomulagi í vinnudeilu Dagsbrúnar og örygg- isgæslufyrirtækisins Securitas eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum aðila í fyrrinótt. Mikið ber enn á milli í deilunni og frásögnum talsmanna deiluaðila af ástæðu viðræðuslitanna. Verkfall starfsmanna Securitas hófst á miðnætti í fyrrinótt og hefur nýr samningafundur ekki verið boðaður. „Þegar gert var matarhlé á mánudagskvöldið bar ekki nema um hálft prósent í milli," sagði Jóhann Óli Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Securitas, í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Þá settum við fram tillögu í deil- unni en fengum til baka nýja kröfugerð, sem varð til þess að viðræðunum var slitið, enda færði sú kröfugerð okkur aftur um 3-4 vikur. Ég bý mig nú undir að loka - enda á ég ekki annarra kosta völ, fyrirtækið rís einfaldlega ekki undir þeim aukna kostnaði, sem við þyrftum að standa undir ef gengið yrði að kröfunum. Það er greinilegt að Dagsbrún ætlar að fórna þessu fyrirtæki og starfs- mönnum þess til að brýna menn fyrir stóra slaginn, sem er fyrir- sjáanlegur um áramótin." Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Dagsbrúnar, vísaði þessum staðhæfingum á bug. „Það slitnaði upp úr viðræðunum vegna þess að Securitas er ekki reiðubúið að bjóða neina kauphækkun, ef frá er talið 2,5-3% álag fyrir þá starfs- menn sem fara á námskeið er gera þá miklu hæfari," sagði hann. „Fyrirtækið hefur í engu komið til móts við grundvallarkröfu okkar um 10% hækkun grunnlauna. Það er því beinlínis út í hött, að ekki hafi borið nema hálft prósent á milli - það bar kannski hálft pró- sent í milli hvað varðar námskeiðs- álagið en sjálf kaupkrafan var órædd. Til að auðvelda viðræðurn- ar höfðum við orðið ásáttir um að fresta að ræða helstu ágreinings- efnin á meðan önnur atriði voru rædd. Við ítrekuðum svo kaupkröf- ur okkar aðfaranótt þriðjudagsins og skárum þær niður í 10 prósent en þá sleit fyrirtækið viðræðun- um.“ Þröstur tók fram, að af hálfu Dagsbrúnar hefði krafan um 10% grunnkaupshækkun ekki verið úr- slitakrafa. Ónnur meginkrafa starfsmanna Securitas er að samið verði um forgangsrétt þeirra til vinnu. Fall- ið hefur verið frá fyrri kröfu um styttingu vinnuvikunnar úr 40 stundum í 36. Securitas hefur með höndum öryggisgæslu og eftirlit á milli 200 og 300 stöðum í Reykjavlk og ná- grenni, þ.e. með byggingum, fyrir- tækjum og stofnunum. Öll sú starfsemi liggur nú niðri en Jó- hann óli Guðmundsson sagðist sjálfur vera í stjórnstöð til að sinna bráðablóðflutningum og neyðarköllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.