Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985
31
Atvinnulausum fækk-
aði í síðasta mánuði
Ovissa ríkir þó um atvinnuhorfur á næstunni
í SEPTEMBER voru skráðir 9.000
atvinnuleysisdagar á landinu öllu
eða færri dagar en í nokkrum öðrum
mánuði ársins, að því er segir í yfir-
liti frá vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins. Þetta svarar til
þess að 416 manns hafi verið á at-
vinnuleysisskrá allan mánuðinn, sem
jafngildir 0,3% af áætluðum mann-
afla á vinnumarkaði í mánuðinum,
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar.
Skráðir atvinnuleysisdagar voru
3.500 færri en í ágústmánuði síðast-
liðnum og 2.500 færri en í september-
mánuði árin 1984 og 1983.
t yfirlitinu segir ennfremur, að
þrátt fyrir gott atvinnuástand
undanfarna mánuði ríki nú nokkur
óvissa um atvinnuhorfur á næst-
Ragnheiður Arnardóttir
Endursýningar
á „Skammdegiu
ENDURSÝNINGAR eru nú hafnar
á kvikmyndinni Skammdegi í Nýja
Bíói í Reykjavík, en að þeim sýning-
um loknum liggur leið myndarinnar
á kvikmyndahátíð erlendis.
Með aðalhlutverk i myndinni
fara Ragnheiður Arnardóttir,
María Sigurðardóttir, Hallmar
Sigurðsson og Eggert Þorleifsson.
Handrit myndarinnar er eftir Þrá-
in Bertelsson, sem leikstýrði
myndinni, og Ara Kristinsson, sem
annaðist kvikmyndatöku. Tónlist
er eftir Lárus Grímsson og fram-
leiðandi fyrir Nýtt lif er Jón Her-
mannsson.
Hjá Nýju lífi er nú unnið af
kappi við vinnslu á fjórðu kvik-
mynd fyrirtækisins, sem heitir
Löggulíf og er sjálfstætt framhald
kvikmyndanna Nýtt líf og Dalalif.
Löggulíf verður frumsýnd í Nýja
blói laugardaginn 21. desember nk.
ílr frétuulky «■!»*■
WIKA
Allar stærðir og gerðir
SöiLQirílJQygjyir
Vesturgötu 16, »ími 1328Q
unni. Undanfarnar vikur hafa
Vinnumálaskrifstofunni borist til-
kynningar um uppsagnir hátt í 500
starfsmanna frá ýmsum fyrir-
tækjum, aðallega verktakafyrir-
tækjum. Á sama tíma hefur verið
sótt um leyfi fyrir 100 útlendinga
til starfa við fiskvinnslu víðsvegar
um land, en á öðrum stöðum vofir
yfir atvinnuleysi, þar sem fisk-
veiðikvótar eru á þrotum.
Þessa dagana stendur yfir á
vegum Vinnumálaskrifstofunnar
og Þjóðhagsstofnunar sérstök
könnun á atvinnuástandi nú á
haustdögum og horfum á fyrsta
fjórðungi næsta árs, en sambæri-
leg könnun fór fram á vegum
þessara aðila síðastliðið vor. Til-
gangurinn er fyrst og fremst sá,
að fá mynd af eftirspurnarástand-
inu á vinnumarkaðnum og líkleg-
um breytingum á næstunni með
hliðsjón af óskum og áformum
fyrirtækja um breytingar á starfs-
mannahaldi.
Blaóburóarfólk
óskast!
T
a,
Austurbær Úthverfi
Leifsgata Langholtsvegur 7 —108
Barónsstígur Sunnuvegur
* * *++* *
*******
Nú þegar haustar hefur Álafoss margt á prjónunum. í garð ganga
Álafossdagar, og þá fitjum við upp á ýmsu!
Maraþontrefilinn
prjónum við meðan á
Álafossdögunum stendur.
Frá því að búðin er opnuð
þar til við lokum á kvöldin
verður aldrei lykkjufall!
Svo efnum við til
getraunar um endanlega
lengd trefilsins.
Hugmyndahornið er ætlað
þeim sem eiga hugmynd til
að hrinda í framkvæmd.
Þar verða kunnáttumenn
til skrafs og ráðagerða. Þú
kemur með uppástungu og
í sameiningu leggið þið
drögin að draumapeys-
unni, pilsinu eða kjólnum.
Á Bólvirkinu verður sitt
lítið af hverju. Þar gefur
að líta ýmis listaverk
unnin úr lopa. Við sýnum
líka prjóna af öllum
stærðum og gerðum. Öll
búðin verður síðan uppfull
af lopa í öllum regnbogans
litum og prjónamynstrum
í miklu úrvali.
10% afsláttur verður
veittur af staðgreiddum
vörum alla Álafossdagana.
Svo hjálpið þið okkur að
prjóna Maraþontrefilinn.
Tískusýningar verða í versluninni
báða laugardagana á meðan á Álafossdögunum stendur.
Álafossdögunum lýkur á laugardaginn kemur.
Verið velkomin!