Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 Helga Sigurðar- dóttir - Minning Fædd 30. júlí 18% Dáin 29. september 1985 Mánudaginn 7. október sl. var gerð útför ömmu minnar, Helgu Sigurðardóttur, sem lengst af bjó að Vesturgötu 54 hér í Reykjavík. Hún var fædd suður með sjó, þar sem nú standa tóftir Hábæjar í Leiru, dóttir hjónanna Guðbjargar Eyjólfsdóttur frá Hvammi á Hvít- ársíðu, og Sigurðar Þórðarsonar, sem ættaður var frá Vetleifsholts- hjáleigu á Rangárvöllum. Helga ólst upp á ísafirði til fermingaraldurs en fluttist þá til Reykjavíkur og réðst í vist til föðurbróður síns, Þórðar Þórðar- sonar frá Hjalla í Ölfusi. Að vera í vist á þessum árum var mikil og oft á tíðum erfið vinna, launin lág, og varð vinnufólk að ganga mögl- unarlaust að hverju því starfi sem fyrir það var lagt. Ung að árum giftist hún Pétri Jóhannssyni vélstjóra, sem ættað- ur var frá Söðulsholti í Eyja- hreppi, og eignuðust þau fjögur börn, Öldu, Sigríði, Sæmundu og Sigurð, sem öil eru á lífi. Eftir 8 ára hjúskap slitu þau Helga sam- búð, og stóð hún þá ein uppi með börnin ung. Þetta voru erfiðir tímar, og kom þá í ljós, hve mikill dugnaður, orka og útsjónarsemi þjó í þessari konu. Helga amma var einstök kona, lágvaxin og snör í hreyfingum, hreinskilin og ákveðin í skoðunum, en mest bar á kærleikanum og góðmennskunni, sem var með einsdæmum, og á erfiðum tímum hjá ýmsum virtist geta hennar til að hjálpa öðrum ótrúlega mikil. Eftir að þau hjón skildu, fluttu foreldrar Helgu til hennar ásamt Eiði syni sínum. Eiður bjó síðan alla tíð hjá Helgu systur sinni, sem annaðist hann ávallt vel, og lagði hann sitt til heimilisins. Hann dó fyrir 3 árum, en þá voru þau bæði komin á Elliheimilið Grund. Fyrstu minningar mínar um Helgu ömmu eru frá Vesturgötu 54, gömlu timburhúsi, sem nú er búið að rífa. Þar dvaldist ég oftar en ekki þangað til ég var orðinn halffullorðinn. Ég fékk oft að sofa þar, og þegar ég var smápolli fékk ég að sofa uppí hjá ömmu minni, undir þykkri sæng, og mér leið vel þar. Hún dekraði mikið við mig hún Helga amma mín. Margar eru minningarnar frá Vesturbænum og Vesturgötunni frá þessum árum og minnist ég þess að strákarnir, leikfélagar mínir, sem oft komu með mér heim til Helgu ömmu, sögðu að ég ætti alveg sérstaklega góða ömmu, og sumir þeirra kölluðu hana ávallt Helgu ömmu, þótt auðvitað væri hún aðeins mín amma. Það var eins og ósk þeirra um það, hvernig ömmur ættu að vera, birtist í henni, og ekki sakar að geta þess, að hún bakaði bestu kleinur og pönnukökur vestan Lækjar, að okkur fannst, að ekki sé minnst á marengsterturnar á hátíðum. Ég fór oft með henni í heimsókn- ir, stuttar og langar. Stundum fór- um við upp í Borgarnes með gamla Laxfossi til að heimsækja skyld- fólk, og þóttu mér það ævintýra- legar ferðir. Hún tók mig með sér í vegavinnu, en þar var hún ráðs- kona á sumrum. Ég reyndi að hjálpa henni í kartöflugarðinum, en lengst af hafði hún garð við Borgarholt, þar sem nú er íþrótta- svæði KR. Hjónin í Borgarholti, þau Rannveig og Hallgrímur, voru mikið vinafólk Helgu ömmu. Nokkrum dögum áður en hún lést, heimsótti ég hana á Elliheim- ilið Grund, en þar hafði hún dval- ist undanfarin ár. Ég gerði mér far um að heimsækja hana nokkuð reglulega, segja henni frá högum mínum á hverjum tima og hvað væri að gerast í fjölskyldunni, því hún vildi fylgjast vel með hvað væri að gerast hjá sínum nánustu. Hún var þá orðin nokkuð lasburða, enda hafði hún verið skorin upp við lærbroti nokkru áður. Upp kom í huga minn, meðan ég dvaldi hjá henni, í hve mikilli þakkarskuld ég væri við hana Helgu ömmu mína, og ég hefði viljað launa henni betur fyrir hennar þátt í uppeldi mínu. En þannig er nú lífið nú á tímum — margt af því sem maður vildi hafa gert, varð ekki gert, það var orðið of seint. Annað hafði gengið fyrir. Með Helgu ömmu er gengin ein af hetjum hversdagslífsins, dugleg og góð kona, sem kynntist flestum hliðum lífsins, frá tímum kreppu og slæma kjara fram á dag allsnægtarþjóðfélagsins. En ávallt var hennar lífsstefna sú að sælla væri að gefa en þiggja. Minningin um góða konu mun geymast í hugum allra sem Helgu ömmu kynntust, og bið ég góðan Guð að blessa hana og varðveita. Ragnar Guðmundsson Með þessum fáu línum vil ég kveðja eina af mínum beztu vin- konum. Hún lézt þann 29. septem- ber og var til moldar borin á mánu- daginn. Helga var ekkert skyld mér, en hún var góð vinkona móður minnar og kom oft og þáði kaffi- sopa hjá henni. Móðir mín dó þegar ég var kornung, aðeins 13 ára. Einhvern veginn æxlaðist það þannig til að ég hitti Helgu oftar og oftar á förnum vegi. Það endaði með því að ég flutti til hennar og bjó hjá henni í um það bil 2 ár. Það var engin önnur en Helga, sem bauð upp á kaffi þegar ég svo gifti mig. Maður skyldi þó ætla að Helga hafi haft nóg á sinni könnu. Börnin átti hún fjögur. Þar fyrir utan hafði hún á heimili sínu bróður sinn, þar til þau fóru á elliheimili. Þegar eitthvað bjátaði á í lífinu, þá var slegið á þráðinn til Helgu. Það brást ekki að þar var alltaf hægt að fá góð ráð. Það er mikil eftirsjá þegar þvílík sómakona kveður þennan heim, sem Helga var. öll eigum við þó eftir að fara sömu leið. Ef minning okkar er ekki síðri en hennar þá lifðum við til góðs. Blessuð sé minning Helgu. Kristín Sigurðardóttir Vestmannaeyjar: Skemmdar- verk unnin á vörubíl Veslmannaeyjum 7. október. MIKLAR skemmdir voru unnar á vörubifreið, þegar brotizt var inn í húsnæði Fiskiðjunnar aðfaranótt síð- astliðins laugardags. Skemmdarvarg- urinn braut upp læstar útidyr, braut framrúðu bifreiðarinnar og spegla og vann á henni enn frekara tjón. Þá festi hann sjóslöngu ofan á vélina, þannig að sjór fossaði um hana þar til að var komið morgun- inn eftir. Einnig braut hann upp læstar dyr á klórgeymslu fyrirtæk- isins og skrúfaði þar frá klórdælum. Hefur maðurinn síðan orðið að forða sér í snarhasti vegna megnrar klórmengunar í húsinu, sem getur verið skaðleg fólki. Ljóst er af ummerkjum að þarna hefur fullorð- inn verið að verki, en skemmdar- vargurinn er enn ófundinn. HKj radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Kópavogur — Kópavogur Almennur fólagsfundur Sjálfstæölsfélags Kópavogs veröur haldlnn í Hamraborg 1. flmmtudaglnn 10. október kl. 20.30. Olafur G. Elnarsson alþinglsmaóur formaður þing- flokks Sjálfstæöisflokksins ræöir stööuna í þjóömálunum. Sjálfstæöisfólk í Kópavogi er hvatt til aö mæta. Stjórnin. Seltirningar — aðalfundur Aðalfundur Sjálf- stæðisfélags Sel- tirninga veröur hald- inn mióvikudaginn 9. október kl. 20.30 í húsnæði félagsins aö Austurströnd 3, Seltjarnarnesi. Fundarefni: Venjuleg aöalfund- arstörf og Vilhjálmur Egilsson, form. SUS, flytur erindi um skuldasöfnun ls- lendinga. Missiö ekki af góöu erindi sem á eríndi til okkar allra. Stjórnin. Hvöt — Hádegisfundur Hvöt, félag sjálfstæölskvenna i Reykjavik, heldur almennan félagsfund í Valhöll laugar- daginn 12. okt. nk. kl. 12.00-14.00. Oagskrá: 1. Kosning kjörnefndar fyrir aöalfund fé- lagsins 2. Kvennaráðstefna SÞ í Nairobi í sumar. Sigríður Snævar sendiráöunautur í utan- ríkisþjónustunni, sem skipuð var formaö- ur sendinefndar jslands á kvennaráö- stefnu Sameinuöu þjóöanna í Nairobi í júli sl. veröur gestur fundarins. Félagskonur f jölmenniö og takiö meö ykkur gesti. Lóttur hádegisveröur. Stjórnin. Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Almennur fulltrúa- ráðsfundur Almennur fundur i fulltrúaráöi sjálfstæðis- fólaganna í Reykjavík veröur haldinn miö- vikudaginn 16. okt. kl. 20.30 í Sjálfstæöis- húsinu Valhöll Háaleitisbraut 1. Dagskrá: 1. Ákvöröun tekin um hvort halda skuli próf- kjör vegna borgarstjórnarkosninga vorið 1986. 2. Ræöa Davíös Oddssonar borgarstjóra. 3. Önnurmál. Fulltrúaráösmeölimir eru hvattir til aö f jölmenna’ Stjórnin Þjóðmálafundur í Vestmannaeyjum Þjóðmálafundur á Hvolsvelli Alþingismennirnir Árni Johnsen og Ól- afur G. Einarsson form. þingsflokks Sjálfstæóisflokksins ræöa stööu þjóö- mála á almennum fundi i Samkomu- húsinu miövikudag- inn 9. október kl. 20.30. Heimamenn eru hvattirtilaðmæta. Alþingismennirnir Þorsteinn Pálsson form. Sjálfstæöis- flokksins og Pálmi Jónsson ræöa stööu þjóðmála á almenn- um fundi i Hvoli, miövikudaginn 9. októberkl. 20.30. Heimamenn og ná- grannar eru hvattir til aö mæta. Sjálfstæóisfélögin. Sjáltstæðisfelagió Landsmálafélagið Vörður Almennur félagsfundur Landsmálafélagiö Vöröur heldur almennan félagsfund fimmtudaginn 10. okt. kl. 20.30 í S jálfstæðishúsinu Valhöll Háaleitisbraut 1. Dagskrá: 1. Kosning kjörnefndar fyrir aöalfund. 2. Ræöa Þorstelns Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. 3. önnurmál. Seltirningar — Viðtalstímar Fulltrúar meirihluta sjálfstæöismanna veröa meö viötalstima í Félags- heimili Sjálfstæðisflokksins, Austurströnd 3, Seltjarnarnesi nk. laugar- dag 12. okt. kl. 14.00-16.00e.h. Til viötals veröa bæjarfulltrúarnir Sigurgeir Sigurösson, Guömar Magnússon og Asgeir S. Asgeirsson. Bæjarbúar eru hvattir til aö lita við og ræöa viö bæjarfulltrúana um bæjarmálin. Sjálfstæðisfélögin á Seltjarnarnesi. VJterkurog k/ hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.