Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985
39
Hjónaminning:
Stefanía Eðvaldsdóttir
Guðmundur Jónsson
Stefanía við keyptum okkur þar íbúð í
Fædd 4. desember 1910 kjallaranum á Miklubraut 5. En á
Dáin 29. ágúst 1985 Miklubrautinni höfðu þau búið
lengst af. Tóku þau okkur svo inni-
Guðmundur lega vel og hlýlega og voru okkur
Fæddur 11. júní 1909 svo góð í þau átta ár sem við
Dáinn 5. mars 1985 bjuggum þar. Börnum okkar voru
þau eins góð og þau væru afi og
Stefanía, eða Dúfa eins og hún amma þeirra.
var kölluð, var fædd á Helgavatni
í Vatnsdal 4. desember 1910, dóttir Dúfu kynntumst við að sjálf-
hjónanna Eðvarðs Hallgrímsson- sögðu meira því að Guðmundur
ar og Signýjar Böðvarsdóttur er var svo oft fjarverandi um lengri
þar bjuggu. Þar ólst hún upp í eða skemmri tíma í ferðalögum
stórum hópi systkina. Síðan lá um óbyggðir landsins. Hjá Dúfu
leiðin i húsmæðraskólann á minni var alltaf útrétt hjálpar-
Blönduósi og þaðan til Reykjavík- hönd ef einhvers þurfti við sem
ur. Árið 1938 giftist hún Guð- hún gat bætt úr. Ótal sinnum að-
mundi Jónassyni fjallabílstjóra, stoðaði hún okkur og svo mann
en hann var fæddur 11. júní 1909 á minn og börn er ég þurfti að vera
Sauðadalsá í Kirkjuhvamms- fjarverandi á sjúkrahúsum eða af
hreppi. Foreldrar hans voru hjón- öðrum ástæðum. Þó hafði hún
in Guðrún Jónsdóttir og Jónas alltaf svo mikið að gera í sam-
Jónasson. 5 ára gamall flyst hann bandi við ferðalögin hjá fyrirtæk-
að Múla í sömu sveit ásamt for- inu, stórþvotta og ýmislegt annað
eldrum sínum og systkinum og eða þá að hjálpa börnum sínum og
ólst þar upp. Þau voru því bæði tengdabörnum þegar veikindi voru
Húnvetningar að uppruna. Þau þar eða annað. Mjög oft voru
eignuðust þrjú börn, Gunnar, Sig- barnabörnin hjá þeim eitt eða
nýju og Kristínu, sem öll hafa fleiri í einu. Að sumri til dvaldist
stofnað sín heimili og eru barna- Dúfa mjög oft í sumarbústað
börnin orðin átta. Ég kynntist þeirra við Elliðavatn og Guð-
þeim hjónum fyrst haustið 1971 er mundur þegar hans tími leyfði.
Við bústaðinn var allt svo fallegt
blómum og trjám prýtt. öllu var
þar svo smekklega fyrirkomið.
Einnig bar garðurinn á Miklu-
braut 5 merki smekkvísi og hirðu-
semi í alla staði. Um mitt sumar
hitti ég þau hjónin saman og var
það í síðasta skipti sem ég sá Guð-
mund. Þá kom ég til þeirra í
sumarbústaðinn í yndislegu veðri
á laugardegi. Voru þau þá að slá
þar bæði með vél og orfi ásamt
tveimur dóttursonum sínum. Ekki
datt mér í hug er ég kvaddi þau að
þetta væri í síðasta skipti.
En Dúfu mína hitti ég tvisvar
eftir þetta heima á Miklubraut.
Og nú eru þau bæði horfin yfir
móðuna miklu, með aðeins sex
mánaða millibili. Að endingu vil
ég votta börnum, tengdabörnum
og barnabörnum innilegustu sam-
úð. Blessuð sé minning þeirra góðu
hjóna.
Nú legg ég augun aftur,
ó Guð, þinn náðarkraftur,
mín veri vörn í nótt.
Æ virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(S. Egilsson)
Erla Jónsdóttir
Pennavinir
Bandaríkjamaður, sem getur ekki
um aldur né áhugamál, en er lík-
lega a.m.k. á miðjum aldri:
Mr. Milton Finkelstein,
19 Vincent Street,
Newark,
New Jersey 07105,
USA
Austur-þýzkur maður á fertugs-
aldri óskar eftir sambandi við ís-
lenzka frímerkjasafnara með
skipti á frímerkjum fyrir augum:
Herwig Labahn,
DDR-3573 Oebisfelde,
Stendaler Strasse 84,
East Germany.
Tvítug japönsk stúlka með áhuga
á tónlist og lestri:
Hiromi Hara,
97-6 Tuzi-machi,
Nagasaki,
852 Japan.
Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka
með áhuga á dansi, tónlist o.fl.:
Janet Obeng,
c/o K.Nana,
Box 128,
Oguaa,
Central Region,
Ghana.
Frá Alsír skrifar 22 ára námsmað-
ur með margvísleg áhugamál:
Abdelkrim Chouchan,
34 Rue Bouallel,
Douéra n Tipaza (42),
Algeria.
Félag kaþólskra
leikmanna:
Bóksalan
opnuð í dag
BÓKSALA Félags kaþólskra leik-
manna verður opnuð á Hávallagötu
16 í dag og verður fyrst um sinn
opin á miðvikudögum milli kl. 16 og
18.
Félag kaþólskra leikmanna hef-
ur á undanförnum árum flutt inn
fyrir félaga sína lítið eitt af erlend-
um bókum um kaþólsk málefni.
Hér er yfirleitt um að ræða bækur
sem ekki eru til sölu í bókabúðum
hérlendis vegna þess að eftirspurn
eftir slíkum bókum er ekki mikil.
Vegna áhuga ýmissa utan kaþ-
ólska safnaðarins, á slíkum bók-
um, hefur Félag kaþólskra leik-
manna ákveðið að gefa fólki al-
mennt kost á að sjá þessar bækur
og eignast eitthvað af þeim ef það
VÍll. Fréttatilkynning
Dagur Alþjóða-
póstsambands-
ins er i dag
DAGUR Alþjóðapóstsambandsins er
í dag, 9. október, og er kjörorð
dagsins „Pósturinn, heimurinn við
dyr þínar".
Alþjóðapóstsambandið var
stofnað fyrir eitt hundrað og ellefu
árum, 9. október 1874. Höfuðstöðv-
ar sambandsins eru í Bern í Sviss
og í þvi eru 168 þjóðir. Aðalfor-
stjóri þess er nú Brasilíumaðurinn
Adwaldo C. Botto de Barros.
Fréttatilkynning
Leiðrétting á
frétt um Bandalag
jafnaðarmanna
PRENTVILLA í fyrirsögn breytti
merkingu fréttar um ágreining
innan Bandalags jafnaðarmanna,
sem birtist á bls. 30 hér í blaðinu
í gær. í fyrirsögn var haft eftir
Kristófer Má Kristinssyni, for-
manni landsnefndar bandalagsins,
„Guðmundur og Stefán kljúfa
þingflokkinn", en þar átti að
standa: „Guðmundur og Stefán
kljúfi þingflokkinn". Er beðist
velvirðingar á þessum mistökum.
GERICOMPLEX • ÞEGAR GEFUR Á BÁTINN
Gericomplex er ekkert undralyf.
Það skilar einfaldlega árangri. Og þá
verða sumir undrandi. Þeir eru hressari
á morgnana, vinna betur á daginn og
sofa betur á nóttunni.
Élh
Gericomplex inniheldur 10
steinefni, 11 vítamín og Ginseng G115.
Þessvegna er það einstakt.
Gericomplex hjálpar líkamanum að
byggja upp, eflir hann og styrkir.
Hugsaðu um heilsuna. Hún er
dýrmæt þegar gefur á bátinn.
Þú færð Gericomplex í næstu lyfjabúð.
dlsuhúsið
Skólavorðustig 1 Simi 22966 101 Reykjavik
ex
Gerlcomplex - þvl hellsan sklptlr méll