Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 41

Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 41
YFIRDÓMNEFND Norrænu tónlist- ardaganna 1986 hefur nú valið tón- verk til flutnings á næstu Norrænu tónlistardögum, sem haldnir verða í Reykjavík, 29. september til 4. okt- ober 1986. Fjallað var um 130 verk, stór og smá, sem samin hafa verið á Norðurlöndunum sl. tíu ár. Meðal- aldur tónskáldanna reyndist vera um 40 ár. Um þriðjungur verkanna var valinn til flutnings hér, þ. á m. þrjú íslensk verk eftir Atla Ingólfsson, Hafliða Hall- grímsson og John Speight. Sú hugmynd hefur komið fram að hvetja tónlistarmenn utan Reykja- víkur til þátttöku í hátíðinni. Hefur Akureyri verið nefnd f þvf sambandi. Yfirdómnefnd skipuðu þeir Poul Ruders frá Danmörku, Alfred Jansson frá Noregi, Daniel Börtz frá Svíþjóð, dr. Ilkka Oramo frá Finnlandi og frá íslandi var for- maður hennar, Guðmundur Emils- son. Fréttatilkynning kunningsskapar okkar Helga. Oft þurfti ég að gista í skólanum meðan á byggingarframkvæmdum stóð og eitt kvöldið sögðu þær Helgadætur að nú skyldi ég koma heim að Gerðubergi og kynnast föður þeirra. Ég hafði þá heyrt talað töluvert um bóndann, og enn var þessi glettnisglampi í augum þeirra systra. A hlaði hitti ég Helga, sem síðar átti eftir að verða vinur minn. Ekki var laust við svipaðan glampa í augum bónda og dætra hans. Viss er ég um það, að hann hugsaði sem svo, að þessi strákl- ingur gæti sennilega teiknað sæmilegan skóla, en um fjárbú- skap vissi hann nákvæmlega ekki neitt. Sjálfsagt var það þess vegna sem Helgi fór með mig beint í fjár- hús, þar sem lesin voru yfir mér vísindi þeirrar búgreinar. Undir- ritaður hafði að vísu verið í sveit nokkur sumur hjá frænku minni góðri og manni hennar og taldi sig þekkja nokkuð til sauðkindarinn- ar, enda umgengist þær nokkuð. Þegar Helgi bóndi fór að lýsa þessum elskum sínum með vís- indalegu orðbragði varð ég dolfall- inn. Hann umgekkst þessa vini sína sem manneskjur, ræddi við þá og brosti þessu sérkennilega brosi sínu, — brosi, sem fylgdi honum fram í andlátið. Vini mín- um fannst lúmskt gaman að þess- um fáfróða leikmanni. Ekki er ég þó í neinum vafa um það að Helgi vorkenndi mér ofur- lítið og hætti því að tala um þessa vísindagrein sína og vék orðum sínum að skólabyggingunni. Þótt- ist hann þá ekkert skilja í þeim efnum og fór allt í einu að spyrja mig spjörunum úr, því í raun vantaði ekki áhugann fyrir mann- virkinu. Ég skildi þó hvað hann var að fara. Hann fann skilnings- leysið hjá mér varðandi búskapinn og vildi að ég fengi orðið smá stund. Að lokum sýndi hann mér uppáhaldslambið sitt hjá stoltri móður. Þar skyldu leiðir okkar að sinni og andrúmsloftið á milli okkar allt annað og betra bragð í munni. Eftir þetta urðu ferðir mínar öllu tíðari að Gerðubergi og svo fór að ég reyndi að taka mér í munn vísindaleg orðatiltæki Helga, — en Helgi brosti jafnan þar eð þessi hugtök mín hentuðu ekki alla tíð. Við brugðum okkur á hestbak einu sinni eða tvisvar. í þeim ferð- um var ekki sagt mikið, en Helgi naut fegurðar og tignarlegra leikja ___________________________ hestanna og sjá mátti í augum Helga að hann naut fagurs um- hverfis sveitar, sem hann ann. Þessar ferðir enduðu þó ávallt í fjárhúsi þar sem hann naut þess að sýna mér lamb, — lamb sem ef til vill var sjúkt, — þá skorti ekki lýsingarorðin og umhyggjuna. Eftir að Helgi fluttist til Reykja- víkur kom það nokkrum sinnum fyrir að við hittumst sameiginlegir vinir, séra Árni Pálsson, fyrrver- andi prestur í Söðulsholti, Sigurð- ur Helgason, áður skólastjóri í Laugagerði, og Hörður Kristjáns- son þá byggingareftirlitsmaður. Þessar stundir voru mér góðar og einkar kærar. Þó ég sakni Helga bónda á Gerðubergi eru þessi orð mín ekki sorgarorð, heldur þakkir til al- máttugs fyrir að hafa fengið tæki- færi til að kynnast þessum merkis- manni. Helgi var maður stóryrtur á stundum, en hann var ávallt maður til þess að standa við þau. Hafi Helgi þökk fyrir vináttu hans, hafi hann þökk fyrir sér- stætt bros og grínaktuga fram- komu. Slíkir menn eru ekki marg- ir, en þeir slíkir sem ég hefi kynnst hafa verið og eru mér mikils virði. Hvíli hann í friði. Guðm. Þór Pálsson MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 Minning: Helgi Finnbogason Fæddur 13. október 1916 Dáinn 27. september 1985 Látinn er vinur minn, Helgi Finnbogason, bóndi á Gerðubergi í Eyjahreppi, en við þann stað hefi ég ávallt kennt hann, þótt fæddur hafi verið á Hítardal í Hraunshreppi. Bóndinn, vinur minn, fluttist að Gerðubergi árið 1947, að mig minnir, og bjó þar til hausts 1975 er hann fluttist til Reykjavíkur og hóf störf vestur í sveitum við virkj- anir. Helgi Finnbogason gerði jörð- inni vel til og hafði þar í frammi framkvæmdir, enda hafði hann trú og ánægju á búskap, þá einkum fjárbúskap, en í þeirri grein land- búnaðar var hann sérfræðingur og barst þekking hans á þeim sviðum víða um sveitir landsins, enda var búgrein þessi honum vísindi. Kunningsskapur okkar Helga hófst við byggingu Laugargerðis- skóla í Eyjahreppi. Hafði hann mikla trú á þeirri framkvæmd, þótt dætur hans væru þá vaxnar úr grasi og kæmu ekki til þess að njóta skólans sem kennslustofnun- ar. Áhugi þeirra sjálfra tengdist þó skólanum, þar sem þær unnu báðar við uppbygginguna. Rósa, eldri dóttirin, var matráðskona á meðan á byggingarframkvæmdum stóð. Glaðværðin var þá oft mikil I matskálanum, enda Rósa þannig skapi farin, svo og mannskapurinn allur undir stjórn Harðar Krist- jánssonar byggingarmeistara frá Stykkishólmi. I gleðinni sem þar ríkti skorti sjaldan heiti á ljúf- fengum réttum, ekki síst ef ein- hvers var saknað við matarborðið. Sigríður, yngri dóttirin, tók við þegar skólinn var vígður og bar þar, ásamt öðrum yngismeyjum, fram veitingar og starfaði þar reyndar í mötuneyti skólans í nokkur ár. Sakir glettni dætra Helga Finn- bogasonar urðu þær tengiliður Minning: Börge Sörensen Hann Börge er dáinn. Sjálfsagt hefur það engum komið á óvart, sem til þekkti. Og þó. Svo lengi virtist hann liggja við dauðans dyr, en samt var engu líkara en dauðinn sjálfur veigraði sér við að ganga á hólm við hann og gera út af við þennan máttvana mann, sem lífið hafði leikið svo hart, að svipta hann heilsu og kröftum og öllum möguleikum til að fá nokkra bót meina sinna. Börge Sörensen var hálf-áttræð- ur er hann lést 27. september sl. Fæddur var hann hér í borg, 10. júlí 1910. Foreldrar hans voru Carl Gunnar Wilkens Sörensen, dansk- ur maður, franskur í föðurætt, sem árum saman var vélameistari á skipum Eimskipafélagsins og Guðrún Júlíana Norðfjörð Ólafs- dóttir, factors í Keflavík. Auk Börge áttu þau hjón eina dóttur, Brynhildi, sem árum saman hefur starfað í utanríkisþjónustunni við góðan orðstír. Börge var einn af 52 stúdentum Alþingishátíðarvorsins 1930. Hann var einkar vel látinn meðal skólafélaga sinna, hlédrægur og hógvær og mikið prúðmenni í allri framkomu. Eftir stúdentspróf innritaðist Börge í heimspekideild, en ekki er víst að mikið hafi orðið úr námi hans þar. Á sumrin vann hann í vélsmiðju í Reykjavík. Hann tók þátt í grískunámi í guðfræðideild og lauk því námi á útmánuðum 1932 og fékk ljúflega lofræðu kennarans, Kristins Ár- mannssonar, fyrir áhuga sinn á hinni göfugu tungu, grískunni. Ekki skal hér rakið hvenær og hvernig sú mikla meinsemd fór að búa um sig og brjóta niður heilsu Börge Sörensen. En engin ráð virt- ust koma þar að haldi, svo að árum saman var hann fjötraður við sjúkrabeð og mátti sig þaðan hvergi hræra. En inn í þennan heim veikinda og vanmáttar þar sem Börge hlaut að búa Iagði mikið bjartan og hlýj- an geisla, þar sem var hin einlæga ást og einstaka umhyggja eigin- konu hans, Soffíu Jónsdóttur, sem hann gekk að eiga 12. apríl 1947. Allir sem til þekktu undruðust og dáðust að þeirri óumræðilegu umhyggju og nákvæmu hjúkrun sem hún veitti manni sínum. Hverja stund, hvern dag, ár eftir ár var hún hans ljúfa líkn, hans fagnaðarvon og vegferðarbjarmi. Mörg seinustu misserin var Börge svo aðfram kominn og svo máttar þrotinn, að honum var algerlega um megn að tjá sig ókunnugum á nokkurn hátt. En samt var það svo, að það var eins og vottaði fyrir brosviprum á vör- um hans þegar hann sá okkur bekkjarbræður sína. Það birti yfir svip hans eins Og glit gamalla minninga kæmu upp í huga hans frá löngu liðnum samverudögum á skólaárunum. Minnug þeirra skóladaga kveðj- um við Börge Sörensen í ljósi hinna eilífu fyrirheita: Sælir eru hógværir, því að þeir munu landið erfa. Bekkjarbróðir Norrænir tónlistardagar 1986: Þrjú íslensk verk á efnisskránni Bón- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3 AUGLÝSIR: Bifreiðaeigendur, vitið þið að það tekur aöeins 15 mínútur að fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt. fl I Ath. eftirfarandi: Mótttakan er í austurenda hússins, þar er bíllinn settur á færiband og leggur síðan af stað í ferö sína gegnum húsiö. Eigendur fylgjast meö honum. Fyrst fer bíllinn í hinrt ómissandi háþrýstiþvott, þar sem öll lausleg óhreinindi, sandur og því um líkt, eru skoluð af honum, um leið fer hann í undirvagnsþvott. Viðskipta- vinir eru mjög ánægðir með þá þjón- ustu, því óhreinindi safnast mikið fyrir undir brettum og sílsum. Síöan er hann þveginn meö mjúkum burstum (vélþvottur), þar á eftir kemur handþvotturinn (svampar og sápa.) Hægt er aö sleppa burstum og f á bílinn ein- göngu handþveginn. Næst fer bíllinn í bónvélina og er þar sprautað yfir hann bóni og síðan herði. Aö þessu loknu er burrkun og snyrting. 8 bílar eöa fleiri geta verið í húsinu í einu, t.d. einn í móttöku, annar í háþrýstiþvotti, þriðji í handþvotti o.s.frv. Bíll, sem þveginn er oft og reglulega, endist lengur, endursöluverð er hærra og ökumaður ekur ánægðari og örugg- ari á hreinum bíl. Tíma þarf ekki aö panta. Þeir sem koma með bílinn sinn í fyrsta skipti til okkar undrast hvað margt skeöur á stuttum tíma (15 mínútum). Bón- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3, Sími 14820.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.