Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 42

Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 | 42 fclk í fiéttum Hann grennti sig um rúmlega hundrað kíló Læknirinn sagði við mig ákveðið en ósköp vingjarnlega: „Þér lítið út eins og svín, étið sem slíkt og eruð einfaldlega svín. Þér eigið í mesta lagi eftir að lifa í sex mánuði. „Peter Eifler frá Andernach hjá Koblenz í Þýskalandi vó rúmlega tvö hundruð kíló fyrir 1 Vfe ári og er 1,72 sm á hæð. í dag hefur hann þó náð af sér meira en helm- ingi þyngdar og er orðinn 99 kíló. Hann segir það hafa verið mikið sálarvíti að grenna sig en hafi þó tekist það og það sé aðeins eitt sem verði að fylgja megrun hjá fólki og það sé nógu mikil viljafesta. Eftir eitt og hálft ár sagði hann að fjölskylda sín hefði lagt af rúmlega tvö hundruð kíló. Peter fann ekki upp neina undraaðferð heldur borðaði hollari mat og í minna magni en venjulega, hreyfði sig mikið og ákvað að láta þolinmæði og þrautseigju ráða! Núna er aðaláhugamálið að hjálpa öllum öðrum sem eiga við þyngdarvandamálið að stríða. Elízabeth Taylor kom sá og sigraði Elísabeth Taylor kom sá og sigraði í Frakklandi fyrir skömmu þar sem hún var á Deauville-kvikmyndahátíðinni. Síðan flaug hún til Parísar að taka við menningar heiðursverðlaunum sem nefnast „The com- mander of Arts and Letters" sem hún hiaut fyrir starf sitt í þágu kvikmynda. Við fjölskyldan vorum allt of þung en núna höfum við lagt mikið af. með Arna Valsdóttl ilutverk! nefm umsöng fjölui i Stúder um þ ‘ssar muJ em nú f tó í sam- sem er bikhússi nynd/Vilbo Einarsdó ERNA VALSDÓTTIR SEM FER MEÐ HLUTVERK EKKÓ í SAMNEFNDUM SÖNGLEIK „Mér hefði aldrei dottið í hug að stytta mér aldur út af strákapa“ Eg hata þig — hata — með lafandi tíkarbrjóst ... og hálsinn. Hvaða fyrirbæri væri nógu vitlaust til að reyna við þig... vonlaust." Ekkó sem er unglingsstúlka stendur fyrir framan spegilinn sinn og úr andliti hennar má lesa megnustu andúð á því er við blasir. Umræddur táningur er aðalpersóna söngleiksins Ekkó sem Stúdentaleikhúsið er með á fjölunum í Félagsstofnun stúd- enta þessa dagana og það er Arna Valsdóttir sem fer með hlutverkið. Hún hefur ekki sést mikið á sviði og við fórum því á stúfana og hittum hana sem snöggvast til að forvitnast dálítið um hagi hennar. „í rauninni er mér farið að þykja afskaplega vænt um Ekkó og það er ýmislegt sem ég sé líkt með okkur, jafnvel í dag því það er nú ekki svo ýkja langt síðan ég var sjálf á þessum aldri. Að visu erum við ekki alltaf á eitt sáttar og það kemur fyrir að mér finnst hún ekki nógu hörð af sér. Mér hefði t.d. aldrei dottið í hug að reyna að stytta mér aldur út af einhverjum strákapa, en það datt henni í hug. Annars hefur leiktjáningin meira snúist um það að „lifa persónuleikann" frekar en að leika beint, það er, „að vera eins- konar „ekkó“.“ — Arna, er þetta fyrsta hlut- verkið þitt? „Eiginlega með texta. Ég hef að vísu komið nálægt leiklistinni áður, en það hafa þá verið hóp- senur eða smáhlutverk. Svo hef ég unnið töluvert á bak við, þ.e. við leikmyndagerð o.s.frv. sem er alveg eins skemmtilegt. Aftur á móti hef ég sungið nokkuð lengi og í raun alltaf þurft að koma hljóði að, þar sem ég hef verið. Líklega hef ég verið tólf ára þegar ég ásamt vinum mínum tók upp á því að syngja negrasálma á Akureyri á hinum ýmsu samkundum." — Þið fóruð með þennan söng- leik út á land. Hvernig tókst til? „Öll ferðin eins og hún lagði sigvarfrábær. Við ferðuðumst um landið í mánuð og héldum sýningu næst- um daglega þannig að þetta var mjög strembið. Það var lagt af stað í býtið á morgnana og ekið á næsta stað til að setja upp sýningu. Við sváfum í félags- heimilum og í skólum og það tók mig nokkurn tíma að venjast rúminu mínu aftur eftir legur á hörðum gólfum mestan tímann. En allt var þetta mjög skemmtilegt og ótrúlegt að við sem kúldruðumst öll saman í rútu o.s.frv. í heilan mánuð skyldum aldrei lenda í neinu meiriháttar ósamkomulagi. Ef eitthvað kom upp á var það aldrei það stórvægilegt að það væri ekki auðleysarilegt og við unnum sem ein manneskja. Okkur var alls staðar tekið vel og sýningin ágætlega sótt. Þó stóð okkur ekki á sama í Stykkis- hólmi. Það var með fyrstu sýn- ingunum og ekkert búið að aug- lýsa. Ætli það hafi ekki mætt sjö manns, en við sýndum samt og ákváðum í leiðinni að setja á stofn nefnd til að sinna auglýs- ingamálum." „Hvað varstu að gera áður en þú tókst að þér hlutverk Ekkó? „Ég hef verið í Myndlista- og handíðaskólanum undanfarin ár og er reyndar að hefja þar fjórða og síðasta árið í grafík. Ég hyggst einbeita mér af krafti að náminu að söngleiknum loknum og svo heillar tónlistin líka og mig lang- ar að halda áfram á þeirri braut. Ég hef óteljandi hugmyndir í kollinum en það er nú lítið lengra á veg komið." — Þú hefur alveg sloppið við kvefið sem tröllríður borgar- búum? „Undanfarið hef ég gætt mín veí og sloppið, drukkið heitt, tala ekki of mikið og brýni ekki raust- ina. Aftur á móti vorum við öll meira og minna kvefuð í ferðinni og það var nú heldur slæmt."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.