Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 52

Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 52
j* HUEKKURIHBMSKEÐJU OPIMM 1000-00.30 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR. fslendingur í Noregi: Kærður fyrir morðtil- raun við lögregluþjón í fórum mannsins fannst jafnvirði rúm- lega hálfrar millj- ónar króna — Grun- aður um heróínsölu Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðs- infl í Noregi 8. október. ÍSLENSKUR raaður hefur verið ksrður fyrir tilraun til að myrða norskan lögregluþjón um helgina. jl Maðurinn beindi skammbyssu að höfði lögregluþjónsins, en skot hljóp ekki úr byssunni - annað hvort vegna þess, að byssan stóð á sér þegar hann tók í gikkinn, eða lögreglu- þjónninn náði að afvopna íslending- inn. Skammbyssan, sem maðurinn beitti, er 6.75 kaliber og voru fimm skot í henni. í fórum mannsins fundust 100 þúsund norskar krón- ur eða sem svarar hálfri milljón í íslenzkum krónum. Maðurinn, sem er 31 árs gamall, er grunaður um fíkniefnamisferli, sölu á heróíni. Dagbladet í Osló hefur eftir vitnum að atburðinum, að maður- inn hafi tekið í gikkinn en skot hafi ekki hlaupið úr byssunni. Verdens Gang/Símamynd Frode Johnsen, lögregluþjónn í Osló, og fyrirsagnir norsku blaðannna Dagbladet og Verdens Gang af at- burðinum þegar íslenskur maður ógnaði norskum lögregluþjóni með byssu. „Byssan verður rannsökuð af tæknimönnum lögreglunnur til þess að ganga úr skugga um hvort hún standi á sér,“ segir blaðið í frétt sinni. Verdens Gang segir í frétt, að lögregluþjóninum hafi tekist að afvopna manninn. Tildrög málsins eru þau, að á laugardag var norski lögreglu- þjónninn Frode Johnsen á vakt ásamt félaga sínum. Þeir voru beðnir að athuga ferðir grunsam- legs manns í norðurhluta Osló. „Þegar við komum á staðinn fór félagi minn út úr bifreiðinni, en ég ók um nágrennið. Skyndilega kom ég auga á manninn, stöðvaði bif- reiðina og hljóp á eftir honum," sagði Frode Johnsen í samtali við Verdens Gang. Maðurinn sneri sér skyndilega við og dró upp byssuna og miðaði með hönd á gikk á Johnsen, sem var óvopnaður. „Ég kastaði mér á manninn og reyndi að ná taki á byssunni, en hann sleit sig lausan og miðaði á höfuð mitt,“ sagði Johansen. Lögregluþjónninn brást hart við og náði taki á byssunni og þvingaði hana úr hendi íslend- ingsins, sem nú situr í gæsluvarð- haldi sakaður um morðtilraun. Sjálfstæðisráðherrar í nýja stóla næsta miðvikudag: Albert snérist hug- ur síðdegís í gær „Stuðla með því að einingu í flokknum/4 segir Albert Guðmundsson verðandi iðnaðarráðherra ALBERT Guðmundsson fjármálaráðherra hafnaði í gærmorgun þeirri hugmynd Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins að hann tæki við starfi iðnaðarráðherra í næstu viku, en síðdegis í gær hafði honum svo snúist hugur, þannig að á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins kl. 18 í gær voru tillögur formannsins um til- færslur ráðherra á milli ráðuneyta samþykktar samhljóða. Blaðamaður Morgunblaðsins spurði fjármálaráðherra í gær hvað hefði orðið til þess að hon- um snerist hugur: „Það er samtal sem ég og formaður flokksins áttum í dag, sem breytti afstöðu minni,“ sagði Albert. Hann sagði að i þessu samtali hefði formað- urinn lagt mikla áherslu á að eining yrði um framkvæmd þeirra breytinga sém hann hefði í huga. „Eg tók þeim rökum," Flugfreyjur með verkfallsheimild FLUGFREYJUR hafa veitt stjórn sinni og samninganefnd heimild til * verkfallsboóunar í yfirstandandi kjaradeilu við Flugleiðir. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um boðun vinnustöðvunar, að sögn Margrétar Guðmundsdóttur, for- manns Flugfreyjufélags íslands. Flugfreyjur hafa verið með launaliði samnings sfns lausan frá 1. september sl. Samningafundir hafa til þessa verið árangurslausir - sá síðasti var haldinn hjá ríkis- sáttasemjara sl. föstudag, en þang- að var deilunni vísað 19. septem- ber. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður. Margrét sagði að mikið bæri í milli deiluaðila en hún vildi ekki upplýsa í hverju helstu kröfur flugfreyja væru fólgnar. „Við vild- um gjarnan að atvinnurekendur kæmu meira til móts við okkur en við gerum okkur vonir um að deil - an leysist á næstunni. Sem stendur er þetta í biðstöðu," sagði hún. sagði Albert, „og með því að skipta um skoðun í þessu efni vil ég stuðla að einingu í flokknum.“ Albert lagði áherslu á að þess- ar breytingar væru ákveðnar í sátt og samlyndi og að hann tæki sáttur við embætti iðnaðar- ráðherra. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins greindi fréttamönnum frá því hverjar tilfærslurnar verða að afloknum þingflokksfundinum í gær, en frá þeim var greint á baksíðu Morgunblaðsins í gær. Þorsteinn verður fjármálaráðherra, Sverr- ir Hermannsson menntamála- ráðherra, Ragnhildur Helgadótt- ir heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, Matthías Bjarnason við- skipta- og samgönguráðherra, Albert Guðmundsson iðnaðar- ráðherra og Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra. Um áramótin hættir Geir svo ráðherradómi að eigin ósk og við embætti utan- ríkisráðherra tekur Matthías Á. Mathiesen, sem verður ráðuneyt- islaus til þess tíma. Sjá nánar fréttir, viðtöl við þingmenn og ráðherra Sjálfstæð- isflokksins, forsætisráðherra og fulltrúa stjórnarandstöðunnar á bls. 4 og 5. Morgunbl&dið/Júlíus Eldri borgurum boðið í kynnisferð um borgina í tilefni Umferðarviku í Reykjavík bauð umferðardeild lögreglunnar eldri borgurum í kynnisferð um borgina í gær og leiðbeindi þeim um notkun gangbrautarljósa og hvernig best er að ganga yfir götu. Farið var í tveimur strætisvögnum og ekið vítt og breitt um borg- ina. Á meðfylgjandi mynd má sjá óskar Ólason, yfirlögregluþjón í umferðardeild lögreglunnar, við leiðbeiningarstörf í þessari fræðslu- og kynnisferð sem verður endurtekin í dag fyrir þá sem ekki komust með í gær. Sjá nánar aukablað um Umferðarviku í Reykjavík og frétt um umferðarkönnun barnanna á bls. 2. Fiskaflinn ekki meiri síðan 1980 Þorskaflinn fyrstu níu mánuöi ársins 268.645 lestir HEILDARAFLI landsmanna var um síðustu mánaðamót orðinn nálægt einni milljón lesta og hefur aflinn ekki orðið svo mikili á þessum árstíma síðan 1980 er hann varð rétt rúm ein milljón lesta. f septembermánuði var meiri afli af þorski og öðrum botnfiski en í sama mánuði í fyrra og það sem af er árinu er þorskaflinn 43.391 lest meiri en í fyrra. Heildaraflinn á þessum tíma í fyrra var 924.570 lestir. Heildaraflinn í september var alls 143.697 lestir á móti 40.665 lestum í sama mánuði í fyrra. Munar þar mestu 96.636 lesta loðnuafli, en i sama mánuði í fyrra veiddist engin loðna. Afli annarra helztu tegunda varð einnig meiri nú en í fyrra eða svipaður. Þorskaflinn var nú 17.290 lestir en í fyrra 15.329. Annar botn- fiskafli var 25.495 lestir á móti 20.252 lestum í fyrra. Þorskafli báta nú var 6.479 lestir á móti 5.438 í fyrra og þorskafli togara 10.811 á móti 9.891 lest í fyrra. Annar botn- fiskafli báta var 5.731 lest á móti 4.532 lestum í fyrra og annar botn- fiskafli togara var nú 19.764 lestir en í fyrra 15.720. Heildarafli togar- anna var því tæpum 5.000 lestum meiri nú og heildarafli bátanna rúmum 98.000 lestum meiri. Það sem af er árinu er þorskafli báta 137.716 lestir á móti 109.133 lestum í fyrra, annar botnfiskafli 69.540 lestir á móti 75.596 lestum, loðnuaflinn 471.349 lestir á móti 437.685 lestum í fyrra og afli ann- arra tegunda svipaður. Afli báta er því 54.370 lestum meiri nú. Þorskafli togara er nú 130.848 lestir en í fyrra 115.950. Afli af öðrum botnfiski er 137.769 lestir á móti 155.662 í fyrra. Afli togaranna er því tæpum 3.000 lestum minni nú. Heildarþorskafl- inn nú er 268.564 lestir en var í fyrra 225.073. Afli af öðrum botnfiski er 207.309 lestir en var í fyrra 231.258. Miðað við árstíma er þetta bezta aflaár hér við land síðan 1980. Heildarafli þennan árstíma aftur til 1979 fer hér á eftir: 1985, 975.955 lestir, 1984, 924.570, 1983, 541.593, 1982, 615.610, 1981, 898.177, 1980, 1.021.350 og 1979 1.236.850 lestir. Aflamismunur þessi ár stafar aðal- lega af mismunandi þorsk- og loðnu- afla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.