Morgunblaðið - 22.10.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985
Gjaldþrotamál Flugfisks Flateyri hf.
Framkvæmdastofnun
kunnugt um að veð
voru ekki örugg
ÞEGAR stjórn Framkvæmdastofnunar ákvað í sumar að veita Flugfíski
Flateyri hf. og aðaleigendum fyrirtækisins tveggja milljóna kr. lán úr Byggða-
sjóði var stjórnarmönnum ljóst að veð fyrir lántökunni voru ekki örugg, að
sögn Stefáns Guðmundssonar sem var stjórnarformaður Framkvæmdastofn-
unar og Guðmundar Malmquist sem var lögfræðingur hennar. Var það sér-
staklega bókað að lánið skyldi veitt „með þeim veðum sem bjóðast". Venju-
lega er ekkert bókað um veð í stjórninni.
Þá var jafnframt bókað að samið
yrði um greiðslu eldri vanskila fyr-
irtækisins, en það var ekki gert
þegar lánið var greitt út, og hefur
enn ekki verið gert og er skuld
Flugfisks við Byggðasjóð nú rúmar
3 milljónir kr.
Stefán Guðmundsson alþingis-
maður, formaður stjórnar Byggða-
stofnunar (áður Framkvæmda-
stofnunar) sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að stofnunin væri til
þess að efla byggð í landinu og yrði
að taka vissa áhættu við lánveiting-
ar. Það hefði verið gert í þessu til-
viki. „Við vissum að veð væru ekki
glæsileg, en töldum að með þessu
láni væri hægt að bjarga fyrirtæk-
inu. Við vissum að fyrirtækið stóð
tæpt, en álitum að ef framleiðsla
þess á plaströrum fyrir Vegagerðina
kæmist á legg, gæti það rétt við,“
sagði Stefán. Ekki sagði hann að
það væri aigengt að stofnunin lán-
aði gegn ótryggum veðum og sagði
að í svona tilvikum væri ef til vill
hreinlegast að veita beina styrki.
Lánið skiptist í tvennt, helming-
urinn var lánaður til Flugfisks
Flateyri hf. og hinn helmingurinn
til væntanlegra hluthafa til greiðslu
hlutafjár. Var sá hluti lánsins lán-
aður framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins og eiginkonu hans sem eru
stærstu hluthafarnir. Lánin eru
veitt til tíu ára með fyrstu afborgun
1987, verðtryggð með 2% vöxtum.
■ Vanskil af eldri lánum Byggðasjóðs
eru orðin 784 þúsund kr. og er skuld
þrotabúanna við Byggðasjóð því
rúmar 3 milljónir. Stærsti hlutinn,
2 milljónir kr., er á aftasta veðrétti
í gömlu vélsmiðjuhúsi og lýsistanki.
Steingrímur Eiríksson lögfræð-
ingur Iðnlánasjóðs sagði í samtali
við Morgunblaðið að það hefði verið
staðfast álit starfsmanna sjóðsins
að nægar tryggingar væru fyrir lán-
um Iðnlánasjóðs til eiganda Flug-
fisks. Iðnlánasjóður veitti fyrirtæk-
inu 7 lán á árunum 1980-83, samtals
að fjárhæð 654 þúsund krónur. Lán-
in eru með veði í lýsistanknum.
Aðspurður vildi hann ekki fullyrða
um að veðið væri pottþétt nú, en
menn hefðu talið það á sínum tíma.
Ekki kvaðst Steingrímur geta upp-
lýst um stöðu skuldanna að svo
stöddu — það myndi skýrast þegar
sjóðurinn gerði kröfur sínar í þrota-
búið. Morgunblaðinu er kunnugt um
að sjóðurinn sendi uppboðsbeiðni á
lýsistanknum til sýslumannsins á
Isafirði í ársbyrjun 1984, en af hálfu
sjóðsins var þess síðan óskað að
beðið yrði með uppboðsaðgerðir og
stendur málið þannig enn þann dag
í dag. Þegar Steingrímur var spurð-
ur um þetta atriði sagði hann að á
árunum 1984 og 1985 hefðu verið í
gangi tilraunir til að bjarga fyrir-
tækinu og hefði ekki þótt rétt að
ganga hart að fyrirtækinu á meðan.
Athugasemd frá sýslumanninum á Isafírði:
Taldi sig ekki geta
staðið í skilum
Morgunblaðinu hefur borizt svo-
hljóöandi athugasemd frá Pétri Kr.
Hafstein sýslumanni á ísafirði vegna
fréttar í blaðinu á sunnudag.
„Það er misskilningur, að for-
senda gjaldþrotaúrskurðar hafi
verið sú, að fyrir hafi legið yfirlýs-
ing framkvæmdastjórans um að
hann teldi skuldir sínar og fyrir-
tækisins meiri en eignir. Beiðni
hans um gjaldþrotaúrskurð var
byggð á a-lið 13. greinar gjald-
Gáð til veðurs
KRAKKARNIR eru algallaðir og augljóslega við öllu
búnir þar sem þeir standa uppi í stafni á leikskólabátn-
um og gá til veðurs en á morgun er spáð suðvestanátt
og hlýju veðri, skúrum um sunnan- og vestanvert
landið en þurru að mestu fyrir norðan og austan. Á
fimmtudag verður hæg breytileg átt og kólnandi
veður, slydduél á annnesjum norðanlands en farið að
stytta upp fyrir sunnan.
Heimamenn og sænskir aðilar bjóða í Þörungavinnsluna:
Sænska tilboðið
mun hagstæðara
segir Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra
TVÖ tilboð hafa borist iðnaðarráðu-
neytinu í eignir Þörungavinnslunnar
á Reykhólum á síðustu dögum. Er
annað frá heimamönnum, en hitt er
komið frá sænskum aðilum, sem
innflutningsfyrirtækið Eintak sf. er
umboðsaðili fyrir.
ættu þarna hlut að máli. Hann
sagði að áhugi þeirra byggðist á
því að þeir hefðu nýjar hugmyndir
um það hvar og hvernig selja ætti
framleiðslu Þörungavinnslunnar.
Fulltrúar heimamanna vildu held-
ur ekkert segja um tilboð sitt.
I gær átti að fara fram nauðung-
aruppboð á eignum Þörunga-
vinnslunnar að kröfu Iðnþróunar-
sjóðs, en því var frestað til 3.
desember. Fyrirtækið skuldar
sjóðnum um 67 milljónir króna og
er stór hluti skuldarinnar í van-
skilum.
þrotalaga, sem veitir aðila rétt til
þess að krefjast gjaldþrotaskipta,
ef hann telur sig ekki geta að fullu
staðið í skilum við lánardrottna
sína, þegar kröfur þeirra falla í
gjalddaga. Það liggur að sjálfsögðu
ekki fyrir, fyrr en að liðnum
tveggja mánaða innköllunarfresti,
hver er heildarfjárhæð krafna í bú-
ið og þar með heldur ekki hvort
eignir hrökkva fyrir greiðslu
skulda."
Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra sagði að töluverður
munur væri á tilboðunum, það
sænska væri mun hagstæðara, og
mætti raunar líta á tilboð heima-
manna frekar sem skilyrði þeirra
fyrir að taka við fyrirtækinu en
tilboð. Sagði Albert að það gæti
orðið ríkinu dýrt að ganga að þeim
skilyrðum. Að öðru leyti vildi
Albert ekki tjá sig um innihald
tilboðanna á þessu stigi. Hann
væri að bíða eftir upplýsingum um
sænska aðilann og tryggingu fyrir
bankaábyrgð.
Guðmundur Kjartansson fram-
kvæmdastjóri Eintaks sf. vildi
ekki upplýsa hvaða sænskir aðilar
Rainbow-máliÖ:
Bandaríkjastjórn
áfrýjar úrskurðinum
Lögbannsúrskurðinum í Rainbow
Navigation-málinu verður áfrýjað af
hálfu bandarískra stjórnvalda.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefur formlega stað-
fest það í orðsendingu til Geirs
Hallgrímssonar utanríkisráðherra.
Jafnframt mun bandaríska ut-
Engin flokkspólitík á bak við þetta
— segir Linda Ósk Sigurðardóttir
sem er fyrsta konan sem kjörin er
formaður Iðnnemasambandsins
„ÞAÐ var engin flokkspólitík á bak við þetta, og við vorum báðar sjálf-
kjörnar,“ sagði Linda Osk Sigurðardóttir, 19 ára Reykjavíkurmær, sem
fyrst kvenna var kjörin formaður Iðnnemasambands fslands, á þingi
sambandsins nú um helgina. Varaformaður sambandsins var kjörin Inga
Þóra Kristjánsdóttir og er það í þriðja sinn, sem kvenmaður gegnir því
embætti. Báðar eru þær stöllur í bókagerðarnámi í Iðnskólanum.
Linda ósk sagði í samtali við ing frá fyrrverandi formanni svo
og mikill áhugi á félagsmálum,
en hún hefur starfað I fram-
kvæmdastjórn Iðnnemasam-
bandsins síðan 1982 og verið tvö
ár í sambandsstjórn auk þess
sem hún gegndi embætti for-
manns Félags bókagerðarnema.
„Fólk virtist bara vera ánægt
með kjör okkar, að minnsta kosti
komu engin mótframboð", sagði
hún.
Linda ósk kvaðst ekki eiga von
á neinum róttækum breytingum
í starfl Iðnnemasambandsins á
næstunni. Hún sagðist þó myndu
beita sér fyrir meiri virkni al-
Morgunblaðið að þau flokkspóli-
tísku átðk, sem svo oft hefðu
einkennt Iðnnemasambandsþing
heyrðu nú sögunni til. „Sjálf hef
ég ekki tekið neina afstöðu til
stjórnmálaflokka enn sem komið
er, þótt auðvitað megi segja að
það sé einhver pólitík I öllu sem
maður tekur sér fyrir hendur.
En þetta þing var rólegt hvað
pólitíkina varðar, og jafnframt
var það mjög málefnalegt. Þetta
var góður hópur og fólk náði vel
saman," sagði Linda ósk. Hún
sagði að ástæðan fyrir því að hún
gaf kost á sér hefði verið hvatn-
Linda Osk Siguróardóttir, sem kjörin var formaður IAnnemasambands
ístands á þingi sambandsins nú um helgina.
mennra félagsmanna innan
sambandsins. „Mesta starfið hjá
okkur er í sambandi við kjara-
málin og að því leyti höfum við
sérstöðu meðal nemendasamtaka
I landinu. Hins vegar er einnig
mikið félagsstarf í Iðnnemasam-
bandinu og við höfum fullan hug
á að nýta betur salinn okkar á
Skólavörðustig 19 undir hvers
konar félagsstarfssemi. Aðalat-
riðið er þó að hinn almenni fé-
lagsmaður taki virkari þátt í
starfinu og við hvetjum því alla
iðnnema til að hafa samband við
okkur og líta inn til okkar í fé-
lagsheimilið á Skólavörðustígn-
um,“ sagði Linda ósk Sigurðar-
dóttir, nýkjörinn formaður Iðn-
nemasambands íslands.
anríkisráðuneytið óska eftir því
við dómarann, sem kvað upp úr-
skurðinn, að framkvæmd dómsins
verði frestað svo útboðið geti farið
fram á tilsettum tíma.
í orðsendingunni frá bandaríska
utanríkisráðherranum lýsir hann
miklum vonbrigðum með úrskurð-
inn og heitir því að allt verði gert,
sem mögulegt er til að leysa málið,
tapi stjórn hans málinu aftur fyrir
áfrýjunarrétti.
Arnarflug:
Leiguflugi
hætt vegna
vanefnda
ARNARFLUG hefur hætt leiguflugi
fyrir ítölsku ferðaskrifstofuna
Mandadori, en félagið hefur annast
flug fyrir ferðaskrifstofuna á milli
Milano, Vínarborgar og Kúbu síðan
í október á síðasta ári.
Ástæðan fyrir því að Arnarflug
hætti fluginu eru vanskil af hálfu
ítölsku ferðaskrifstofunnar að
undanförnu, en nokkrar vikur voru
eftir af umsömdum samningstíma.
Arnarflug gerði samning við
Mandadori í október 1984 og var
þá samið til sex mánaða, en samn-
ingurinn síðan framlengdur um
aðra sex mánuði. Flogið var tvær
til þrjár ferðir í viku á milli Kúbu
og Milano annars vegar og Vínar-
borgar og Kúbu hins vegar.