Morgunblaðið - 22.10.1985, Side 14

Morgunblaðið - 22.10.1985, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985 Franskar svítur í Kristskirkju Tónlist Jón Ásgeirsson Helga Ingólfsdóttir sembal- leikari flutti síðastliðinn sunnu- dag þrjár af frönsku svítunum eftir Johann Sebastian Bach. Tónleikarnir fóru fram í Kristskirkju, sem fyrir margra hluta sakir hentar vel sem bar- okk-umhverfi, þó „heyrð" kirkj- unnar sé ef til vill um of sem sérstaklega kom fram í hröðum köflum. Enduróman kirkjunnar er svo langæ, að hröð tónun rennur saman en í hægum köfl- um var tónn sembalsins glitr- andi fallegur. Svíturnar sem Helga flutti að þessu sinni voru nr. 1 í d-moll, nr. 4 í Es-dúr og nr. 5 í G-dúr. Sem millispil lék hún sálmskreytingar á tveimur sálmalögum. Frönsku svíturnar eru mun styttri en ensku svít- urnar, en þær ensku hefjast all- ar á löngum prelúdíum á undan Allemande-þættinum. Þær frönsku, hins vegar, hefjast allar á Allemande, auk þess sem kafl- askipan dansþáttanna er önnur, þó öllum svítunum sé það sam- eiginlegt að enda á enskum „gikk“ (Gigue). Tónleikarnir hóf- ust á fjórðu svítunni í Es-dúr. Allemande-þátturinn var mjög hægur í flutningi Helgu. Annar þátturinn, Courante, var nokkuð hraðar leikinn og þar var yfir- máta mikil heyrð kirkjunnar til trafala við greiningu tónferlis- Helga Ingólfsdóttir „Leikur Helgu er gæddur næmi listamannsins fyrir tónferli, án þess aö fram komi predikandi sýning á þekkingu hennar og tækni... “ ins. Miðþættirnir hljómuðu hins vegar eins fallega og skírt og sá fyrsti. Sérkennileg tónskipan Gavottunnar og sú aðferð Bachs að breyta frumhljómi í forhljóm fjórða sætis í upphafi Sarabönd- unnar og Menúettsins er ef til vill spásögn meistarans um það sem síðar varð, að í margþátta verkum mætti hafa hvern kafla í mismunandi tóntegundum. Men- úettinn, sem Helga lék með fjórðu svítunni, er ekki í Bach — Gesellschaft útgáfunni en í seinni útgáfum (Universal í út- gáfu Julius Röntgen) er þessi sérkennilegi Menúett. Eftir smá sálmamillispil lék Helga fyrstu svítuna, sem er í d-moll. Það sem er sérkennilegast við þá svítu er „gikkurinn", en þar er leikið með „punkteruð" nótnagildi. Þá er stefið í öðrum þættinum (Cour- ante) að tónskipan mjög líkt því, sem heyra má í cís-moll prelúdí- unni, í fyrsta heftinu af „fúgun- um 24“. Síðasta svítan, er Helga lék að þessu sinni er í G-dúr og er nr. 5. Þar í er hin fræga Ga- votte í G-dúr, en auk þess er þar að finna sérkennilegan Loure- þátt. Fyrsti þátturinn er merki- legur fyrir þá sök, að þar er að finna krómantísk vinnubrögð, sem urðu stíleinkenni í tónsmíði hundrað árum síðar, en sökum vandkvæða í tónstillingu, var slíkt tónferli nokkur nýjung á tímum Bachs. Leikur Helgu Ing- ólfsdóttur var mjög yfirvegaður og þó hún hafi yfir að ráða mik- illi hljómborðsleikni, eins og vel kom fram í síðustu þáttum verkanna (Gigue), leggur hún meiri áherslu á að laða fram tónrænan samleik raddanna. Auk þess tekst henni að skapa mjög sérstæða spennu með því að sveigja til „í takti“, án þess þó að raska jafnvægi í hryn og setn- ingaskipan tónverksins. Leikur Helgu er gæddur næmi Iistam- annsins fyrir tónferli, án þess að fram komi predikandi sýning á þekkingu hennar og tækni, og verður í hennar höndum ekki markmið, heldur tæki til að tjá það sem ekki verður skilgreint í orðum, aðeins skynjað í lifandi flutningi góðrar og ihugandi tónlistar. Fyrir undirritaðan er það ávallt viðburður að heyra Helgu Ingólfsdóttur leika á sembalinn sinn. Vetrar veður......................... Nú þegarallra veðra er von, vill Hafskip hf. benda viðskiptavinum sínum á eftirfarandi: Að þeir séu á verði um hagsmuni sína t.d. með því að tryggja vörum sínum viðeigandi umbúðir og gera allar þær ráð- stafanir fyrir sitt leyti, til að auka flutningsöryggi vörunnar. Bent er einnig á ótvírætt öryggi þess fyrir farmeigendur, að vátryggja á frjálsum markaði farm sinn í flutningi og geymslu, þar sem ábyrgð farmflytjenda er á margan hátl takmörkuð, t.d. vegna veðurfars og ófullnægjandi umbúða. Sérstaklega skal gæta þess að frostlögur sé á kælikerfum véla og tækja og huga þarf að öryggi farms í vöruskemmum eða á útisvæðum sem ky nni að vera hætt vegna frosts, foks eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna. Með kveðjum. HAFSKIP HF. HÁFSKIP 1. 2. 3. Norræna rithöfundaráðið: Lagasetning um höfunda- rétt og kapalsjónvarp á Norðurlöndum verði samræmd NORRÆNA rithöfundaráðiö sam- þykkti m.a. eftirfarandi ályktanir á fundi sínum í Stokkhólmi 7.-9. júlí sl: „Á fundi sínum ... hefur Nor- ræna rithöfundaráðið meðal ann- ars fjallað um þá umtalsverðu endurnotkun á verkum rithöfunda, sem fylgir nýjum fjölmiðlum, m.a. kapalsjónvarpi. Ráðið lýsir áhyggjum sínum yfir þeirri þróun höfundalaga á Norðurlöndum sem virðast í sjónmáli. Grundvallarat- riði í höfundarétti er að höfundi eigi að vera kleift að fylgjast með notkun á sínu eigin verki eins langt og framast er unnt og að sann- gjarnt hlutfall sé milli notkunar og þóknunar. Öll reynsla bendir til þess að eðlilegt jafnvægi náist helst með frjálsum samningum, þar sem samningsréttur höfunda er viður- kenndur og virtur. Norræna rit- höfundaráðið krefst þess að ríkis- stjórnir Norðurlanda axli ábyrgð sína og stuðli að því að lagasetning AUGLÝSINGASTOFA MYNDAMÓTA HF um höfundarétt og kapalsjónvarp á Norðurlöndum verði samræmd og verði þannig að tryggt sé að fram náist: frjáls samningsréttur; að þau samtök sem sjá um samn- ingsgerðina séu fulltrúar sem flestra höfunda; að greiðsla fyrir notkun berist rétthafa, annað hvort beint eða gegnum samtök sem starfa í umboði hans.“ „Greiða ber fyrir alla opinbera notkun hugverka. Þetta ætti að gilda um öll bókasöfn og aðrar útlánsstofnanir, sem eru opnar almenningi, ennfremur skólabóka- söfn, en þau eru opin umtalsverð- um hluta almennings. Allir rit- höfundar eiga rétt á bókasafns- greiðslum, þýðendur og bóka- skreytingamenn. Hvernig sem lögum er háttað skal kveðið á um að rétt til bókasafnsgreiðslna sé ekki hægt að framselja til annarra aðila en dánarbús og erfingja." „Kurdinn Alexander Bertelsen hefur verið í haldi í hinu illræmda herfangelsi Mamak í Tyrklandi síðan í febrúar 1984, ákærður og dæmdur fyrir óþjóðhollan róg um Tyrkland erlendis, vegna framlags hans til bókarinnar „Kúrdar, þjóð í Miðausturlöndum", kennslubókar sem út kom hjá forlagi Dreyers í Osló 1979. Hinn 12. mars 1985 var Alexander Bertelsen dæmdur í fimm ára fangelsi og átján mánaða kyrrsetningu í Tyrklandi af þess- um sökum einum. Alexander Bert- elsen bíður nú þess að áfrýjunar- dómstóll fjalli um mál hans.“ „Norræna rithöfundaráðið mót- mælir því kröftuglega að norrænn ríkisborgari skuli með þessu móti látinn gjalda þess að hann notfæri sér tjáningarfrelsi það sem ríkir á Norðurlöndum og krefst þess að ríkisstjórnir Norðurlanda beiti áhrifum sínum til þess að tyrknesk yfirvöld láti Alexander Bertelsen tafarlaust lausan." oinnan 24. október Mætum allar á útifundinn á Lækjartorgi kl. 14:00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.